Tíminn - 07.03.1964, Side 5

Tíminn - 07.03.1964, Side 5
ÍÞRDTTIR iiiuMí mm RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON I TEKKOSLÓVAKÍU Yfirburðasigur gegn Egyptum Alf—Reykjavík, 6. marz ísland vann yfirburðasigur gegn Egyptalandi í fyrsta leik sínum í Bratislava. 16 sinnum sigldi knötturinn í egypzka markið, en íslenzka liðið fékk einungis 8 mörk á sig — og hefur til þessa aldrei fengið jafn fá mörk á sig í landsleik innanhúss. Leikurinn náði aldrei að verða spennandi utan 10 fyrstu mínúturnar, en á þeim tókst Egyptum að ná tveggja marka forskoti, 4:2. Mikil taugaspenna var á dagskrá hjá íslenzku landsliðsmönnunum til að byrja með, en smám saman náðu þeir sér á strik og þrumuskot Ragnars og Gunn- laugs höfnuðu nú hvert af öðru framlijá egypzka markverð- inum í netið. í hálfleik hafði ísland tryggt sér þriggja marka forskot 8:5, og síðari hálfleikurinn var alger einstefnuakstur, þá skoraði ísland 8 mörk gegn 3. Lokakeppni 16 landa í heims- meistarakeppninni í handknatt- leik hófst samtímis í fjórum borg um í Tékkóslóvakíu í gærdag, — höfuðborginni Prag, Bratislava, Gottwaldov og Pardubice. — ís- lenzka liðið leikur í Bratislava í B- riðli ásamt Svíum, Ungverjum og Fgyptum. Keppt er í fjórum riðl- um og komast tvö efstu liðin á- ■WMMunnnflM' ÚRSLIT í GÆR Úrslit í einstökum leikjum í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í gær urðu, sem hér segir. (Innan sviga er staðan í hálfleik, og einnig é'r getíð'HjéÝganna, þar sem leikið er): A-RIÐILL (Gottwaldow) V-Þýzkaland—Júgóslafía 14—14 (8—8) A-Þýzkaland—USA 20— 9 (9—4) B-RIÐILL (Bratislava) Svíþjóð—Ungverjaland 15—8 (8—4) ísland—Egyptaland 16—8 (8—5) C-RIÐILL (Prag) Tékkóslóvakía—Frakkland 23—14 (12—7) Danmörk—Sviss 16—13 ( 8—5) D-RIÐILL (Pradubice) Rúmenía—Sovétríkin 16—14 (7—8) Japan—Noregur 18—14 (9—4) íslenzka liðið sigraði með 16:8 í slökum leik. - Egyptar höfðu yfir framan af. - Gunnlaugur og Ragnar markhæstir iram í úrslitakeppnina. Eftir leik- ina í gær er mjög sennilegt að taráttan uen annað sætið í B-riðl- inum komi til með að standa á milil fslendinga og Ungverja. Blaðið hafði samband við Jó- hann Einvarðsson eftir leikinn í gærdag. Hann sagði svo frá, að íslenzka liðið hefði átt slakan leik og byrjunin hefði verið afleit. — Egyptar hafa mun betra liði á að skipa en t. d. Bandaríkjamenn, sagði Jóhann, og byrjunin hjá þeim var ekki svo slæm. Þeir léku icikandi létt og fyrr en varði mátti sjá á markatöflunni 4:2 fyrir Eg- ypta. Taugaóstyrks gætti meðal íslenzka landsliðsins í byrjun og hafði það mikið að segja. Smám saman hvarf þó taugaspennan og Gunnlaugur og Ragnar tóku að ukora, þrátt fyrir að egypzki rnarkvörðurinn, snaggaralegur ná- ungi, sýndi mjög góða mark- vörzlu. ísland sigldi framúr um miðjan hálfleik, 4:4, og í hálfleik var staðan 8:5. Þessi fyrri hálf- leikur-yar. alls ekki góður af hálfu íslands. Vörnin var opin fyrstu mínúturnar, en hún þéttist þegar a leið og Hjalti greip þá oft mjög vel inn í. Síðari hálfleikur var alger ein- stefnuakstur af hálfu íslands- Þó tókst ekki að skora nema 8 mörk gegn 3 og eftir gangi leiksins hefði ekki verið ósanngjamt að ísland skoraði a. m. k. 12—13 mörk. En livað sem öllu leið, lék íslenzka landsliðið undir styrkleika. Gunn- laugur, Ragnar og Hjalti voru beztu menn liðsins, Gunnlaugur og Ragnar skoruðu hvor 4 mörk, en Öm Hallsteinsson og Sigurður Einarsson þrjú mörk hvor og i áttu þeir líka allgóðan leik. Hörð- ur Kristinsson og Karl Jóhannsson skoruðu sitt markið hvor. Það er athyglisvert, að ein helzta skyta íslenzka landsliðsins, Ingólfur Óskarsson, lék ekki með í þessum fyrsta leik. Ingólfur verð ur hins vegar með í leiknum gegn Svíum, sem verður í dag og or ekki ólíklegt, að hin hættulegu gólfskot hans eigi eftir að velgja Svíum undir uggum, en þeir liaía ekki áður séð íngólf leika. Ekki er reiknað með sigri gegn Svíum, en pó verður barizt af alefli og ekki leikið upp á annað en sigur. Svíar og Ungverjar léku fyrri ieikinn í B-riðli í gær og varð leikurinn mjög sögulegur. Jóhan-i sagði okkur, að verstu slagsmál í Hálogalandssalnum væru barna- leikur miðað við það sem skeði í leiknum, en segja má að barizt hafi verið með hnúum og hnefur.i Framhald á 15. síðu. Gísli Halldórsson, forseti ÍSÍ, afhendir Ríkharði Jónssyni silfurbikar frá ÍSÍ fyrir frábæran árannur í knaltspyrnu, en Ríkharður iék á s. I. sumri sinn 30. landsleik. STORAUKIÐ STARF HJA ISI FJÁRSKORTUR hefur ávallt staðið starfsemi íþróttasambands ís- lands fyrir þrifum, en nú hefur sambandið fengið nýjan tekjulið, sem hefur í för með sér, að hægt verður að stórauka starfsemi ÍSÍ. Þetta kom fram f ræðu Gísla Halldórssonar, forseta ÍSÍ, í hófi, sem haldið var í Þjóðlcikhúskjallaranum í fyrradag. Hér á eftir fara nokkrir kaflar úr ræðu Gísla. Á undanförnum árum hefur fjárskortur staðið mjög fyrir þrifum auknu íþróttastarfi í land- inu. Framkvæmdastjóm ÍSÍ hef- ur því lagt áherzlu á það að bæta fjárhag sambandsins og sambands aðila. Á síðasta ári raknaði nokkuð úr þessum málum þar sem Alþingi hækkaði verulega fjárveitingu t.il ÍSÍ og einnig veitti Reykjavíkur- borg nokkurn styrk sambandinu til handa, svo að kleift var að auka námskeiðahald og út- breiðslustarf. Á s. 1. ári var því tekinn upp nýr þáttur í starf seminni, en það var að styrkja sérsamböndin með beinum fjár framlögum, svo að þau gætu l-.aldið námskeið úti um lands- byggðina. Fyrir sérstakan velvilja ríkis- stjórnar og Alþingis, hefur svo tekizt til að fyrir utan hinn beina styrk á fjárlögum frá Alþingi, mun íþróttasambandið nú njóta rýs tekjuliðar i starfi sínu, sem væntanlega mun gefa verulegar tekjur, og þar með bæta fjárhag sambandsins svo að það verði þess umkcmið að hrinda í framkvæmd ýmsum nauðsynlegum og aðkall- andi verkefnum. Sérsamböndin munu verða styrkt eins og aðrir, í sambandi við námskeið þau. sem þau munu halda, einnig mun á þessu ári verða veittur styrkur til hér aðasambanda vegna úthreiðslu starfs þeirra og erindreksturs. Námskeið og fræðsla. Mikið hefur það háð íþrótta starfinu í landinu hversu mikill skortur hefur verið á leiðbeinend um og þjálfurum. Nokkur tilraun hefur verið gerð til þess að leysa þennan vanda með námskeiðum, sem haldin hafa verið í íþrótta- kennaraskólanum með samvinnu við skólastjóra og íþróttafulltrúa, námskeið, sem sérsamböndin hafa staðið að. Þessi námskeið hafa gefið góða raun, en meira þarf ef duga skal. Fræðslustarfið þarf að vera marg þætt, það er varðar hið félagslega inn á við í félaginu, það er efling, samheldni og þekking á félags- lcgu starfi, kynning út á við til elmennings á gildi trausts félags starfs og íþróttaiðkana. Þá varðar það rekstur námskeiða fyrir leið beinendaefni og hæfni eða upp- rifjunarnámskeið fyrir þá, sem starfa að leiðbeiningum og þjálf- un. Síðast en ekki sízt, hlýtur meginkjarninn að vera íþrótta- iðkanirnar sjálfar og undirbúning ur undir ferðir, mót og sýningar. Skipað hefur verið nú nýlega i Fræðsluráð íþróttasambands ís- lands. í því eiga sæti: Benedikt Jakobsson, sem er formaður þess, Stefán Kristjánsson og Karl Guð- mundsson. Þetta ráð mun vinna að því að undirbúa námskeiða- hald á vegum íþróttasambandsins, einnig mun það vinna að því að undirbúa undir prentun ýmiss kon ar fræðslubæklinga varðandi i- próttastarfið, bæði hið félagsle.ga og þá einnig varðandi íþróttaþjá’.f un. Sumarbúðir ÍSÍ. í ráði er að reknar verði á veg- ucn íþróttasambands íslands sum arbúðir á sumri komanda að T í M I N N, laugardagur 7. marz 1964. Reykholti í Borgarfirði, og að þeim veiti forstöðu Sigurður Helga son, skólastjóri í Stykkishólmi. Slíkar sumarbúðir hafa áður vsr ið reknar af ýmsum aðilum og Iþróttasambandi íslands fyrir r.okkrum árum síðan, þóttu nauð synlegar og áttu miklum vinsæld um að fagna, enda ómetanlegar fyrir það æskufólk, sem svo lán- sacnt verður að fá vist á slíkum stöðum. llúsnæðismál íþróttasam- bandsins. Svo sem kunnugt er, stendur yfir bygging á skrifstofuhúsi Iþróttasambands íslands og íþróttabandalags Reykjavíkur. Hús ið er við hliðina á hinni miklu .- þróttahöll, sem nú er risin upp í Laugardalnum. Ef áætlanir stand ast, er gert ráð fyrir því að hús þetta verði það langt komið á þessu ári, að hægt veröi að flytja Framhald á 13. síðu. s

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.