Tíminn - 14.03.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.03.1964, Blaðsíða 16
Laugardagur 14. marz 1964 62. tbl. \ 48. árg. ÖRIH Á MYNDINNI hér að neðan bendir á væntanlegan miðdepi! viðburðar ársins hér á íslandi. þegar íslendíngar fá að kynnast af eigin raun stórkost- legri tækni nútímans. Víkurbúum verður væntanlega tiðförult austur að Múlakvísl í júlímánuði, en þeir þurfa ekkert að óttast, rannsóknir Frakk- anna munu ekki hafa neína hættu í för með sér fyrir nálægar byggðir. — íslendingar fá aðeins ánægjuna af þvi að verða vitni að þessum viðburðum. Myndina hér að ofan tók Kári Jónasson ofan af Reynisfjalli. HjörleifshöfSi er í fjarska á mlSri mynd og Kötlutangi lengst til hægri. Orln bendir á staðinn, rétt austan Múlakvíslar, þar sem frönsku vísindamennirnir ætla, samkvæmt siðustu áætlun, að hafa aðalbækistöð sína við rannsóknirnar. Myndin hér til hliðar er af Centaur-eldflaug, sem er svo tll alveg elns að gerð og Dragon-eldflaugarnar, sem munu hefja sig til lofts af Mýr- dalssandi einhvern júlídaginn { sumar. Eldflaugum skotið frá Mýrdalssandi KH-Reykjavík, 13. marz Einhvern daginn í sumar, á thnabilinu frá 8. til 20. júlí, verSur þjóðveginum austan við Vík í Mýrdal lokað fyrir allri umferð, skip og bátar á allbreiðu svæði u. þ. b. 400 km suður á haf fá aðvörun um að halda sig utan við, og flugvélar á leið yfir N-Atlantshafið fá aðvörun um, að eldflaugarskot sé í vændum frá Mýrdalssandi, u. þ. b. 7 km fyrir austan Vík í Mýrdal. Einhvern þessara daga, í heið- skíru veðri, senda franskir vísindamenn upp eldflaug af Dragon- gerð frá Mýrdalssandi til þess að rannsaka geislabelti, nefnt Van Allen-beltið, sem er í sambandi við norðurljósabeltið og því hvað næst okkur hér á íslandi. Þessar rannsóknir geta haft rnikið gildi í sam- bandi við mannaðar geimferðir framtíðarinnar. ir tugir tonna á þyngd. sem nærri flaugunum skotið mjög bratt upp, Dr. Þorsteinn Sæmundsson, stjarnfræðingur, skýrði blaðinu frá aðalatriðunum í sambandi við þennan merka atburð, sem mun eiga sér stað á Mýrdalssandi í sumar. Rannsóknir þær, sem um er aö ræða, eru gerðar af loftrannsókna deild Centre National de !a Recherche Scientifique í París. Yfirumsjón með þeim er í hönd um prófessörs Blamont, sem hing að kom á s. 1. ári til þess að athuga aðstæður hér með tilliti til þess- ara rannsókna. Rannsóknarráð rií isins fckk síðan skriflega umsókn frá rannsóknarstofnuninni seint á s 1. ári, og hefur það nú veitt leyfi til rannsóknanna í samráði við íslenzk yfirvöld. Undanfarna daga hafa dvalizí hér tveir menn á vegum stofnunar j innar, Le Fevre, verkfræðingur, og Mozer, geimvísindamaður, til þe?s að gera nánari áætlanir um fram kvæmd rannsóknanna Þeir fóru utan í morgun, og verður ekki um fieiri íslandsferðir Frakkanna uó ræða, fyrr en seint í júní eða snemma í júlí, þegar þeir koma. sennilega um 20 manns, með allt sitt ,,hafurtask“, sem verður mare má geta Þegar frönsku vísindamennirnir voru hér að kanna aðstæður til rannsóknanna, var farið með pá rneðfram allri suðurströndinni austur að Kirkjubæjarklaustri, og eftir þá athugun varð Mýrdals sandur fyrir valinu- Bækistöð vís- indamannanna verður u- þ. b. 7 km fyrir austan Vík rétt við þjóo- veginn austan við Múlakvísl, sa;r. kvæmt síðustu áætlun, en hún getur átt eftir að breytast. Þar munu þeir reisa radarstöð og skýli, en um miklar byggingai verður naumast að ræða og engar varanlegar, sem eftir standa. Áætlað er að skjóta tveimur eld fiaugum frá Mýrdalssandi. Þær verða af Dragon-gerð, sem Frakk ar smíða sjálfir, meðalslórav tveggja þrepa eldflaugar, um 7 metrar á lengd, sem draga u. þ. b. 500 km út í geyminn. Þær eru búnar margvíslegum rannsóknar tækjum, sem vega alls um 45 kg. og senda radíómerki til jarðar scm unnið verður úr þar. Sarn- kvæmt síðuslu áætlun verð.m miðað er við, að þær nái upp fyr- ir 400 km, og þær munu lenda um 300 km suður í hafi. Engar ráðstafanir verða gerðar til að ná þeim aftur upp úr sjónum, upp- lýsingar frá vísindamennirnir all- ar með merkjasendingum. Van Allen-beltið er geislabelti umhverfis jörðu, sem fyrst upp- götvaðist árið 1958, þegar fyrst.u bandarísku Explorer-flaugarnar voru sendar upp. Þó iná vera að Rússar hafi orðið þess varir áður. Beltið er nefnt eftir banda riska vísindamaninum Van Allen scm mikið hefur unnið að rani sóknum á því. Van AUen-beltið ei myndað úr hraðfara rafögnum, það er nærri norðurljósabeltinu og í sambandi við það og því hvað næst okkur hér á íslandi. Ytra beltið, sem rannsóknir frönsku visindamannanan beinast að, er 2 —3 jarðradiar frá miðbaug jarðar. Þetta belti hefur ekki þýðingu i sambandi við veðurfar, en getur haft mikið gildi í sambandi við mannaðar geimferðir- Rannsókn- Framh á bls. 15 • -i !í' *' • : IliiifiH HPIi! . ' jiil!l....... ; 1 RUBY TALINN FLOGAVEIKUR NTB-Dallas, 13. marz. HINN heimsfrægi heilasérfræð- ingur dr. Frederick Gibbs sagði í réttinum i dag, að næturklúbbs- eigandinn Jack Ruby, sá, sem drap Lee H. Oswald, þjáðist af mjög sjaldgæfu afbrigði af flogaveiki. Dr. Gibbs, sem er 61 árs ifamall, er, að því er verjandi Rubys, Mel- vyn Belli, sagði, einn af höfundum heilarafritunar, sem er aðferö við rafbylgjumælingar á heilanum. — Gibbs sagði, að hann hefði ásamt nokkrum öðruin sérfræðingum, — gert fyrstu tilraunina til þess að mæla heilabylgjur þegar hann, var við Harvard-háskólann árið 1932. Þessi heilabylgjumælingaraðferð felst í því að mæla rafbylgjur þær, sem heilinn setui' af stað, og mælingarnar geta gefið mjög mikilvægar uppiýsingar um heila- starfsemi mannsins. Dr. Gibbs sagði, að mælingar hans á Ruby hafi sýnt, að hann þjáðist af vissri tegund flogaveiki. sem er mjög sjaldgæf. Sjúkdómur inn lýsir sér ekki ' þeim venju- legu föllum. sem flogaveikissjúki- ingar verða venjulega fyrir, og Gibbs sagði, að einungis um hálft prósent af flogaveikissjúklingum hefðu sama afbrigði og Ruby. Hinn frægi heilasérfræðingur hafði í fyrstu neitað að bera vitni í réttinum, en eftir að verjandinn hafði lagt skoðun hans fram í rétt- inum og ákæruvaldið ráðist harka- lega á hana, fékkst hann til þess aö mæta sem vitni. Hann vildi ekki segja neitt um það, hvort Ruby hefði vitað mun á réttu og röngu á því augnabliki, sem hann skaut Lee Oswald. í kvöld átti dómarinn, Joe Brown, að lesa ákæruna fyrir kvið dóminn, og siðan hefjast lokaer- indi verjanda og ákæruvaldsins. Sjónvarpað verður úr réttarsaln Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.