Tíminn - 21.03.1964, Blaðsíða 5

Tíminn - 21.03.1964, Blaðsíða 5
 RITSTJORI HALLUR SÍMONARSON Nýr landsmóti í handbo -- Furðulegur dómur kveðinn upp í kærumáli FH, sem orsakar, að FRAM OG FH VERDA AÐ LEIKA AÐ NÝJU!! í gærdag var kveðinn upp dómur hjá dómstóli Hand- knattleiksráðs Reykjavíkur í máli því, sem FH höfðaði vegna leiks FH og Fram í 1. deild í síðasta mánuði, en sem kunnugt er, vann Fram lexkinn með eins marks mun. FH kærði leikinn á þeim fors.endum, að það væri DÓMARI en ekki TÍMAVÖRÐUR, sem ætti að flauta leik af, en nokkur ágreiningur varð um mark, sem FH skoraði eftir að tímavörður hafði flautað leik- inn af, en það merki heyrði dómari eða leikmenn ekki strax vegna hávaða áhorfenda. Dómur sá, sem dómstóll HKRR kvað upp í gær í máli þessu, er einn sá furðu legasti, sem um getur í ís- lenzkri íþróttasögu, en hann er á þá leið, að leik- urinn skuli leikinn að nýju. Er dómurinn kveðinn upp þrátt fyrir, að dómstóll inn viðurkenni, að það sé tímavörður, sem eigi að gefa merki í leikslok; þrátt fyrir, að dómari beri það fyrir rétti, að knötturinn hafi ekki verið í leik, þeg- ar FH skoraði liið umdeilda mark og jafnvel þrátt fyrir, að dómstóllinn viðurkenni, eftir að hafa þlustað á seg- ulbandslýsingu frá leikn- um, að leiknum hafi verið lokið, þegar FH skoraði markið. Það hníga sem sé öll rök að því, að kæfa FH í þessu máli sé forsendulaus. En samt er þessi furðulegi dómur kveðinn upp. Og þetta verður jafnvel enn þá furðulegra, þegar litið er á, að kæra FH snýst ein- göngu um það hvort það sé dómari eða tímavörður, sem eigi að flauta leik af. Og um það atriði eru allir aðilar sammála, það er tímavörður sem gefur merki í leikslok. Hvað liggur eiginlega á bak við þennan furðulega úrskurð dómstólsins, sem er greinilega í æpandi mót- sögn við lögin. Eftir því sem undirritað- ur hefur kynnt sér í sam- bandi við þetta mál, mun það vera tilgangur þeirra, sem í dómstól HKRR sitja, að hnekkja á tímaverði leiksins og dómara með úr skurðinum. Með öðrum orð um, hanh á að vera dóm- urum og tímavörðum víti til varnaðar í framtíðinni. Yfirsjón tímavarðar í þess- um íeik var sú, að hann stóð uppi á áhorfendapöll- um með flautu sína og gaf merkið þaðan. Yfirsjón dómarans var, að gera ekki ráðstafanir til að hafa tíma vörðinn við hliðarlínu. Hér skeður því það sem með eindæmum má telja. — Framliðið, sem vinnur sinn leik í heiðarlegri bar- áttu, verður saklaust þol- andi í þessu leiðinlega máli — en ekki tímavörður eða dómari. Hitt er svo önnur saga, að yfirsjón tímavarð- ar og dómara er að minni hyggju smávægileg. Það voru áhorfendur, sem komu í veg fyrir, að merki tímavarðar heyrðist. Reynd ar stóð hann ekki það langt frá hliðarlínu, að það breytti nokkru. Fram mun að öllum lík- indum áfrýja þessum úr- skurði dómstóls HKRR — og er það ekki nema skiljan legt. — alf. ÞEIR VERJA TITIL slnn á móí- inu, svelt Þóris SigurSssonar. — Frá vinstri: Hallur Símonarson, Símon Símonarson, Eggert Benó- nýsson, Þórlr Sigurðsson, Þorgelr Sigurðsson og Stefán Guðjohti- Fjórtánda fslandsmótið í BRIDGE hefst í dag Alf-Reykjavík, 20. marz íslandsmótið í bridge hefst í Sjómannaskólanum í dag. Þetta verður fjórtánda íslandsmótið í hridge og cr þátttaka góð, eru 102 keppendur í sveitakeppni og 112 í parakeppni, en keppt er í meistaraflokki og 1. flokki. Ráðgert er, að mótið standi yfir frá 21. marz til 30. marz og verða tvær fyrstu umferðirnar spilaðar í Sjó- mannaskólanum, en hinar í Khíbbnum og þar verður haldið lckahóf og mótinu slitið annan í páskum. í sveitakeppni meistaraflokks að þessu sinni verða sjö sveitir, sveit Þóris Sigurðssonar, nú- verandi íslandsmeistari, sveit Agnars Jörgenssonar, sveit Benedikts Jóhannessonar, sveit Gísla Sigurðssonar, sveit Mika- els Jónssonar, sveit Ólafs Þor- steinssonar og sveit Einars Þor finnssonar. sem varð Reykja- víkurmeistari nú nýverið og sigraði þá m. a. sveit Þóris. f 1. flokki verða tíu sveitir og fá tvœr efstu sveitirnar rétt til þátttöku í meistaraflokki næsta ár. Dagskráin tvo fyrstu daga mótsins lítur þannig út: Sjómannaskólinn klukkan 14, laugardagur 21. marz. Meistaraflokkur, 1. umfcrð, 1. og 2. lota. Einar—Mikae) Benedikt—Þórú Ólafur—Agnai Gísli situr yfir. Klukkan 20 verður svo spil. uð 3. lota 1. umferðar. Sunnudagur klukkan 14, meistaraflokkur, 2, umferð, 1. og 2. lota: Þórir—Ólafur Mikael—Benedikt Gísli—Einar Agnar situr yfir. Klukkan 20 verður spiluð 3. lota 2. umferðar. Dagskrá 1. flokks tvo fyrstu daga mótsins iítur þannig út: Laugardagur klukkan 14, 1. umferð: Kári—Ragnar Ólafur—Gunnar Framhald á 15. síðu. Svíþjóó vann ísland í Poíar-Sup í gær Norðurlandamótið í körfu- knattleik (Polar-Cup) hófst f Helsinki í gærdag. íslending- ar mættu Svíum í fyrsta leik og töpuðu með sex stiga mun, 59:65. Leikurinn var allan tímann æsispennandi og jafn og verður frammistaða ís- lenzka landsliðsins að teljast allgóð, en sem kunnugt er, urðu mikil forföll í liðinu skömmu áður en farið var í keppnina, sem veikti liðið til muna. Sem fyrr segir var leikurinn allan tímann mjög jafn og í hálf- leik skildu einungis tvö stig á milli, 25:23, fyrir Svía. Síðari hálf leikur var einnig mjög jafn, en góður endasprettur hinna há- vöxnu Svía tryggði þeim sex stiga sigur, 65:59. Þá mættu Finnar Dönum og unnu mikinn yfirburðasigur, 105: 40. í hálfleik var staðan 63:15. í dag leikur íslenzka landsliðið gegn Dönum og er almennt búizt við íslenzkum sigri, en danska lið ið stóð sig mjög illa gegn Finn- um. Bezt er þó að spá varlega, því allt getur skeð í körfuknattleik, sem öðru. Síðasti leikur íslenzka liðsins verður svo á sunnudag gegn Finn- um, sem eru sigurstranglegastir í mótinu. Fréttamenn' Tímans í Helsinki, Gunnar Gunnarsson og Guðjón Magnússon, munu senda fréttir heim af leikjunum eftir helgina og mun umsögn birtast í þriðju- dagsblaðinu. Nýtt met Guðmundar Guðmundur Gíslason, ÍR, setti nýtt íslandsmet í 100 metra flug- sundi á Ægissundmótinu, sem fram fór í Sundhöllinni í fyrra- kvöld. Guðmundur syntf vegalengd ina á 1:03,8 mín., en gamla metið, sem Guðmundur átti sjálfur og setti í fyrra, var 1:04,7 mín. Hinn bráðefnilegi 16 ára sundmaður frá Keflavík, Davíð Valgarðsson, sæk ir sig stöðugt og má segja, að Guðmundur Gíslason sé ekki leng ur einvaldur í karlagreinum. — Davíð sigraði Guðmund í 200 m. skriðsundi á 2:09,2 mín. og er hann farinn að liöggva nærri hinu þriggja ára gamla íslandsmrti Guð mundar í þessari grein, sein er 2:08,6. Eins og á sundmótum fyrr í vet- ur, settu unglingar mikinn svip á mótið í fyrrakvöld. Elrki var mik- Framhald á 15. síðu. T í M I N N, laugardagur 21. marz 1964. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.