Tíminn - 09.04.1964, Side 8

Tíminn - 09.04.1964, Side 8
riKraunaleikhúsið Gríma: REIKNIV Höfundur og leikstjóri: Erlingur E. Halldórsson Gríma hefur aftur látið til sín •heyra, og hsfur rnn leið skipt um yfirskrift, kallar sig tilraunaleik- hús í stað leikflokks. Orðið til- raun er vel til fundið í sambandi við Reiknivélina eftir Erling E. Halldórsson og fleiri verk, sem mætti á einhvern hátt draga í dilk með þessum leik, en „hús“ lætur undarlega í eyrum (samanber Leik hús æskunnar) til auðkenningar á félagsskap, sem hefur ekki sam nefndu húsi á að skipa. En mjög er ánægjulegt, að Gríma skuli vera komin á stúfana. Satt að segja var maður farinn að undr- ast um þennan ágæta félagsskap, sem hefur þegar unnið nokkur minnisverð afrek. Gríma hélt „pressusýningu" á Reiknivélinni á mánudagskvöldið, en þá var gagnrýnendum boðið. Áður höfða farið fram tvær sýn- ingar. Þetta var með ráðum gert og skal ekki nánar farið út í það hér, en möguleikinn er fyrir hendi hjá hverju leikhúsi og kemur til álita, ef ástæða er til að ætla, að leikarar hafi gott af að jafna sig með áhorfendum áður en frum- sýning eða „pressusýning“ fer fram. Erlingur E. Halldórsson er nýr leikritahöfundur, en reyndur leik stjóri. Erlingur hefur starfað með leikfélögum utan Reykjavíkur á undanfömum árum og nýtur þess auðvitað sem höfundur og leik- stjóri Reiknivélarinnar. Viðfang hans í Reiknivélinni er haldreip- ið, það sem sumir kalla trú, eitt- hvað til að reiða sig á. Allir reiða sig á eitthvað: guð, stjórnvöldin eða vissar „staðreyndir“ í umhverf inu. Haldreipin eru skilgreind með nöfnum, óháð mati, sjálf- sögð. Lífsgrundvöllurinn riðar, þegar haldreipin slitna. Menn verða ráðviltir, dasaðir; einfeldn- ingarnir skelkaðir og snúast til vamar. Sumir berja frá sér og láta einu gilda, hvem þeir lemjá. Dæmin gefast: Sumir missa móð inn, ef þeir fá ekki sinn skammt af pólitízkri inngjöf eða gleyma því sem stendur í blöðunum. Það dregur úr mönnum kjark, ef eitthvað stangast á við viðteknar staðreyndir, utanaðlærðar formúl ur eða reglubundið háttalag sjálf- sagðra hluta. Allt er haldreipi með an það heldur áfram að vera það sem það sýnist, eins og það er talið, bókað, kennt. Það verður hluti af lífsskoðun, með vöru- merki ímyndaðs sjálfstæðis. Ef haldreipin bregðast eða gufa upp, finnst manninum, að hann geti í hvorugan fótinn stigið. Það er því ekki lítið áfall, ef niður- stöðutalan sem kemur úr óaðfinn- anlegri reiknivél er yfirleitt önn- ur en í reyndinni skal vera. Frægur maður og kirkjunnar þjón, minnir mig, sagði einhvern tíma á þá leið, að hann efaðist jafnvel um tilveru sína, ef hann lokaði augunum. Þetta hefur mörgum þótt of djúpt tekið í ár- inni. Höfundur Reiknivélarinnar virðist þeirrar skoðunar, að mörg- um verði hált á því að trúa fast. Leikurinn gerist á veitingastað í Reykjavík. Persónur eru fimm: Þormóður, hjálparmað ur í húsinu, fyrrmeir eftirsóttur vinnumaður í sveit og afburða torfristumaður; Emanuel þjónn, nokkuð við aldur; Natan B, gest- ur hússins og mjögþenkjandi um stjórnarfarið á leiðaravísu (geng- ur með Morgunblaðið); Lilli og Didí, ung hjón, komin til að skemmta sér. Natan B er kominn til að hitta nafna sinn (eins konar fyrra sjálf — gæti eins verið stjórnvöldin eða blaðið sem hann gengur með), en nafni Natans B hefur farið inn í símklefann, fullyrðir þjónninn. Natan B gengur um gólf og leiðir þjóninum fyrir sjónir, hvernig þeir ætla að tryggja jafnvægið: Leggja skatt á bændur til styrktar sjáv- arútvegi og öfugt . . . Natan B rekur í vörðurnar, en þá grípur hann lesninguna: Bændur eiga að styrkja sjávarútveg til að sjávar- útvegur geti styrkt iðnað og þá ætti iðnaður að hafa eitthvað af- lögu handa landbúnaði! Nafni hans kemur ekki úr símanum, en Natan B fær sér sjússa meðan hann bíður Uppi í loftinu hangir merkis- gripur, ljósakróna, ekki í sam- bandi við rafmagn, en lifir þó á henni. Enginn hefur sérlegar á- hyggju af krónunni nema Lilli, sem er kominn til að skemmta sér. Lilli horfir á krónuna og þykir hún furðuleg, en þjónninn róar hann og segir ,að krónan beri einkenni sannra framfara. Lilli ber þetta upp við konuna sína, sem segir að veröldin sé eins og hún er. Krónan tilheyrir veröldinni, og án hennar væri konan ekki sú sem hún er. Hún trúir á guð og vill ekki hlusta á efasemdir um ljósakrónuna. Slíkt væri að efast um tilveruna og guð. Þetta bara er svona. Kon- an er hamingjusöm og byrstir sig. Lilli er alveg ráðalaus, en það sem bagar hann mest er að niður- stöðutölumar, sem hann fær, þeg- ar hann er að reikna á skrifstof- unni, eru ekki réttar. Konan get- ur upp á mörgu í þessu sambandi, og síðast að það séu ósýnilegir víxlar, sem rugla niðurstöðutöluna. Lilli segir, að krónan hljóti að vera í sambandi. Konan ljær ekki máls á því, en verður skyndilega hrædd við þetta ósýnilégá, sem hleypur í reikninginn. Hún segir Lilla að koma og kyssa sig, og þau drekka áhyggjum sínum í kossum og dansi. Þormóði er heldur ekki um ljósa krónuna og sýnir ótta hins frum- j stæða manns, þar sem hann stend' ur frammi fyrir einhverju, sem hann skildur ekki. En Þormóður setur traust á meðbróður sinn, þjóninn, og leggur allt kapp á að sanna verðleika sína fyrir hon- um. Hann er sjálfstæður eftir lok- unartíma og gengur með það skrif- Emanúel þjónn, Erllngur Gfslason, og Þormóður, Bjarni Steingrímsson. Lilli, Þorleifur Pálsson. legt á pappaspjaldi um hálsinn. Það verða Þormóði sár vonbrigði, þegar þjónninn tekur spjaldið og, klippir það sundur í smásnepla með skærum, en með þessu spjaldi var Þormóður áður búinn að sanna gildi sitt og sjálfstæði. Hér bregðast fleiri krosstré Natan B lætur örmagnast, þegar hann kemur að símaklefanum gal- opnum og kemst að raun um, að nafni hans er ekki þar og hvergi í húsinu og hefur heldur ekki farið út úr því. Þjónninn læzt einnig furðulostinn yfir þessu, en stend- ur í raun réttu á sama. Natan B reiðir sig á Natan, þjóninn á ljósa- krónuna, en þegar hún bregzt virðist fokið í flest skjól leikper- sóna. Það er þá, sem Þormóði hug- kvæmist að hann gæti haft not fyrir barefli. Því er svo haldið til haga, að ljósakrónan hafi kannski verið í sambandi við rafstraum, og sam- kvæmt þessu mætti leiða getum að því, að Natan B sé hafður að leiksoppi, og niðurstöðutalan skýr anleg. Þetta er samt tæpast gefið : í skyn, hvað þá undirstrikað. Eg geri ráð fyrir, að þetta hugvitsam- lega leikrit hefði ekki beðið hnekki af því að véfengja allar j þessar efasemdir. Eg leiði hjá mér að flokka þetta leikrit eða benda á erlendar hlið- stæður. Sumir mundu kalla það absúrd, en slíkt væri absúrd 1 sjálfu sér. Þó er þess að gæta, að verk sem eru raunsæ í eðli sínu, hafa fengið slíkt orð, — á hæpn- um forsendum. Erlingur Gíslason leikur hér þjóninn Emanúel, er setur traust sitt á reglubundið háttalag hlut- anna í viðtekinni mynd. Erlingur gerir hlutverkinu minnisverð skil, og hef ég aldrei séð hann leika betur. Svipbeitingin og fasið allt var hnitmiðað og spekúleráð, og gervi þjónsins, hvítur jakki,, svart ar buxur og nokkur grá hár, hóf- samlegt og markvisst. Samleikur hans og Valdimars Lárussonar í hlutverki Natans B var á- ferðargóður í þessum hægferðuga leik. Valdemar hélt vel á hlutverki Natans B. óró hans, glóruleysi og slappleika. Utanaðlærðar stjórn málatöggurnar og slagorðin — „við höfum lifað um efni fram“ — „landið er harðbýlt" voru að- eins hæfilega ýktar, fyrri setning- in með ábúðarmiklum svip, hin með grátstafinn í kverkunum og hönd á hjarta. Þetta kom kunnug- lega fyrir sjónir. Bjarni Steingrímsson fór með hlutverk Þormóðar og varð býsna drjúgur í velheppnuðu gervi þ,essa fyrrverandi torfristumanns þótt nokkur viðvaningsbragur skini í gegn. Brynja Benediktsdóttir og Þorleifur Pálsson, nýr leikari, fóru með hlutverk hjónakornanna, Didi og Lilla. Brynja fór léttilega með hlutverkið, skýrt og hófsamlega ýkt, og Þorleifur sýndi ísmeygi- lega hægan. næstum frosinn leik, sem verðskuldar eftirtekt. En kéluhljóð þeirra !— eins konar prump — kann ég ekki að meta. Hér verður sagt að leikarar hafi yfirleitt farið vel með það, sem þeir höfðu úr að spila' og verkið hugvitsamlega gert: samt er leik- urinn í heild gisinn: Framvindan í verkinu úlheimtir hægari leiks- meðferð en efni þess þolir. Benedikt Gunnarsson gerði leik- tjöldin og Jón Ólafsson stjórnaði Ijósum. Leiktjöldin eru sterk, myndræn, er. sérstakt sjpnarmið listmálara virðist hafa ráðið full miklu. Jón Ásgeirsson lagði til rímnalög, sem Þormóður kyrjar baksviðs, harla kátlegar rímur. Baldur Óskarsson 8 T f M I N N, flmmtudaglnn 9. aprfl 1964.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.