Tíminn - 09.04.1964, Qupperneq 13

Tíminn - 09.04.1964, Qupperneq 13
Við seljum Volkswagen ’63—’57. Mozkowitz ’59 station Caravan ’60 Zhephyr ’62 Zodiac ’58 Simca 31 ’63 Ford ’55 2ja og 4ra dyra Chevrolet ‘55, 2ja og 4ra dyra Willys-jeppi ’60. — Glæsilegur bfll, ekinn 14 hundruð km. Látið bíiinri standa hjá okkur og hann selst. LÁTIÐ SÍL.INN STANDA HJÁ 0KKU3 CQ UANN SELST iir rauðar A SKÍJLAGATA 55 — SfMl 15812 gbúðlr óskast Höfum fjársterka kaupeiuV.ir að íbú'ðum af flestum stærð- um í borginni og Kópavogi. TIL SÖLU: 2ja herb. íbúðir við Ásbraut, Blómvallagötu, Langholtsveg. 3ja herb. íbúð við Shellveg. Verð 350 þús., útborgun kr. 120 þús., eignarlóð. Bílskúr. 3ja herb. nýstandsett íbúð í gamla bænum, með harðvið- arhurðum, nýmáluð, laus strax, eignarlóð. 3ja herb. íbúð við Miðstræti. 3ja herb. stór rishæð við Sig- tún, laus eftir samkomulagi. 3ja herb. góð kjallaraíbúð við Kvisthaga. 3ja herb. góð kjallaraíbúð á Teigunum, 90 ferm., sér inn- i gangur..... 3ja herb. hæð I timburhúsi við Þverveg, verð kr. 360 þús. út- borgun kr. 130 þús. Eignar- lóð. 3ja herb. risíbúð við Laugaveg, sér hitaveita, þvottur og geymsla á hæðinni. 4ra herb. efri hæð, 120 ferm., á Teigunum. Bílskúr, góð kjör. 3ja herb. ný og glæsileg íbúð í háhýsi við Sólheima, tvenn ar svalir, teppi á stofu og holi, hagkvæm kjör. 5 herb. ný og glæsileg íbúð, 120 ferm., í vesturborginni. Glæsilegt einbýlishús við Mel- gerði í Kópavogi, fokhelt með bílskúr. Glæsilegar hæðir við Álfhóls- veg og Hlíðarveg, fokheldar með allt sér. Steinhús við Langholtsveg, 4 herb. íbúð í risi og 3ja herb. íbúð á hæð með herbergi í kjallara. Stór ræktuð lóð. Fyrsti veðréttur laus á báð- um íbúðunum. Timburhús við Suðurlands- : braut, 5 herb. ibúð vel stað- sett. Verð kr. 300 þús., út- borgun kr. 100 þús. 6 herb. glæsilegar endaíbúðir, 130 ferm., við Ásbraut í smíðum. Sér þvottahús á hæð, miðstöð með sér hita, tvennar svalir, tvöfalt gler. Sameign á göngum og kjall- ara fullfrágenginn, húsið málað að utan með járn á þaki. Byggingarlóðir og grunnar í Kópavogi. ALMENNA FASTEIGN ASALAN LINDARGATA 9 SÍMI 21150 H3AIMTYR PETURSSON ril SÖ3u: vönduð 5 herb. íbúðarhæð. (2: hæð a fallegum stað í Hlíð- unum. Stærð 140 ferm. Sér hita veita. Tvöfalt belgiskt gler. — Harðviðarhurðir. Tvö snyrtiher bergi. Rúmgott eldhús með borðkrók. Tvennar svalir. Bíl- skúrsréttui. Verzlanir rétt hjá. Laus 14. maí. 2ja herb. íbúðarhæð í 7 ára gömlu steinhúsi á fallegum stað í Kleppsholti. Tvöfalt gler, harðviðarhurðir. Bíl- skúr. 3ja herb. íbúðarhæð (2. hæð) í reisulegu timburhúsi skammf frá miðborginni. — Rishæðin getur fylgt, ef ósk- að er, en þar mætti innrétta 4 ágæt herbergi. Sér hiti. Stór bflskúr, sem mætti nota fyrir smá iðnað. Eignarlóð. Góðir greiðsluskilmálar. Nýstandsett 3ja herb. íbúðar- hæð í timburhúsi á góðum stað í borginni. Steingólf. Tvöfalt gler. Eignarlóð. Út- borgun 210 þús. Laus strax. Ný 5 herb. íbúðarhæð, ca. 135 ferm. í Kópavogskaupstað. Sér inngangur. Góð lán áhvíl andi. Laus eftir samkomu- lagi. Jörð í Skagafirði: Nýtt steinhús. Tún ca. 9 hektarar. Góðir ræktunar- möguleikar. Hrognkelsaveiði og reki. Silungsveiði í heiðar vötnum. Jörðin á hluta af laxgengri á með mögu- leikum til fiskiræktar. Þægi- legir borgunarskilmálar. Bændur, sem ætla að selja jarðir á þessu vori, ættu að tala við okkur sem allra fyrst, m. a. með tillili til eignaskipta. Köfum kaupendur að húseignum og íbúðum af ýmsum stærðum og gerðum í borginni og nágrenni. Útborganir oft háar. Eigna- skipti koma stundum til greina, Hringið í síma 22790, Málflutningsskrifstofa: Þorvarður K. Þorsteinsson Miklubraut 74. Fasteignaviðskipti: Guðmundur Tryggvason Sfmi 22790. TIL S0LU: 3ja herb. ibúð í smi'ðum í Kópavogi 4ra nerb íbúð við Niörvasund 4ra herb íbúð tilbúin undir tréverk í Kópa vo&i 3ja herb risíbúð við Lindargötu 3ja herb íbúð í Skerjafirði Einbýlishús á Grimsstaðaholti. Einbýlishús I Kópavogi Tvíbýlishús við Óðinsgötu 7 herb. íbúðir í Háaleitishverfi tilbúnar undir tréverk. 2ja herb. íbúð á Seltjarnarnesi og Skerjafirði. Vægar út- borganir og góð lán áhvíl- andi. 4ra herb. risíbúð i Kópavogi. Lóð undir tvíbýlishús í Kónavogi. 3ja herb. sér íbúð í tvíbýlishúsi í Kópavogi. — Harðviðarinnrétting og teppi á stoíu Laus 14. maí. í SMÍÐUM 3ja og 4ra herb. íbúðir á góðum stöðum í Kópavogi. Útborganir frá 100 þús. Endurskoðunar- oo fasteignastofa Konráðs Ó. Sævaldssonar Hamarshúsinu við Tryggvagötu 5 hæð (lyfta) Simar 20465—24034 og 15965 RABBAÐ VIÐ HRÓLF Framhald af 9. síðu. að ég hefði svikizt um að gæta ánna. Um haustið fór ég aftur ofan í Reyðarfjör'ð til Bóasar á Stuðlum. Það held ég, að hafi verið sá þakk látasti húsbóndi, sem ég hefi unn- ið hjá. Á þessum árum fékk ég kaup goldið á þann hátt, að ég fékk framgengna á á hverju ári og fóð ur fyrir tvær kindur. Bóas á Stuðl um borgaði þetta svo rausnarlega, að hann seldi mér sjálfdæmi að velja hvaða á, sem ég vildi úr hópn um. Fatnaðurinn var heldur ekki skorinn við nögl hjá Bóasi Á þess- um árum voru jakkarnir kallaðir sloppar. Væru þeir fóðraðir, hétu það tvenn föt. Fylgdu buxur með, þá voru það þrjú föt, bættist vesti við þá fjögur föt. Ýmist voru menn ráðnir upp á þrjú eða fjögur föt. Ekki vit til að hræðast. Eg var ekki hjá Bóasi um hríð, en síðan var það um hausttíma, að ég hafði ekkert ákveðið fyrir stafni og var fenginn til að fara með fé upp yfir Þórdalsheiði upp að Hryggstekk hér í Skriðdal. Varð þá úr, að ég réðist þar til veturvistar og varð þar reyndar í fimm misseri. Á þeim tíma hafði ég fest nokkuð rætur í Skriðdal, en samt höguðu nú örlögin því þannig, að ég fór aftur ofan í Reyðarfjörð. í það skipti'ð vann ég jöfnum höndum á landi og sjó, eiginlega þó mest til sjós. Lá vuð úti í Breiðuvík á róðrarbátum, já, og líka mótorbátum, sem þá voru farnir að tíðkast hér eystra. — En þú hefur ekki haft hug á að ílengjast á sjónum? — Nei, ég kunni illa við mig á sjó, og hafi ég nokkum tíma fundið til óyndis, þá var það á fyrsta gangnadegi, þegar ég var staddur úti á reginhafi. Ekki varj ég þó sjóhræddur, því ég fékk^ an vitnisburð hjá formanni mín Halldóri í Teigárgerði; að’ég hefði ekki vit á að hræðast. . Nei, ég festi sem sagt ekki yndi á sjónum, og einn góðan veður- dag axlaði ég mín skinn og hélt aftur upp í Skriðdal. Fór vinnu- maður að Mýrum til Stefáns, afa Vilhjálms í þróttamanns Einars- sonar. Þar fékk ég 100 krónur á ári og hálfan mánuð frían. Var sagður Kaupdrýgsti vinnumaður á Fljótsdalshéraði á þeim árum, en Stefán vai góður húsbóndi og þakklátur Að eigin búi. — En þar kóm, að ég fór sjálfur að búa. Nauðsyn rak mig til þess. Þannig stóð á, að faðir minn og móðir voru komin á efri ár og komu þá bæði á mína vegu. Eg settist því að að Hátúnum hér í Skriðdal og hóf búskap upp á eig- in spýtur. Þar hafði þá verið eyði- býli í 4—5 ár, hús ákaflega léleg og túnlaust. Þarna bjó ég nú samt í fjögur ár. Árið 1912 tók ég svo upp á því að gifta mig, Guðríði Árnadóttur dónda í Hóllandshjá- leigu í Borgarfir'ði. Eftir tjögurra ára dvöl í Há túniwn flutti ég mig um set og þá að Vallaneshjáleigu. Þá var séra Magnús Blöndal Jónsson í Valla- neshjáleigu, áhugamaður um bú skap. Séra Magnús var mikill nákvæmnismaður í fjármálum. Eina sögu sagði hann mér sjálfur, sem sýnir það vel: Hann gerði upp sjóð sinn um hver áramót. Einu sinni vantaði hann 2 krónur, sem hann gat ehgan veginn skilið, hvað hann hefðij gert við. Hann braut heilann mikið um það, en komst þó ekki að neinni niðurstöðu. Nú liðu nokkur ár . Þá var það eitt sinn, að kona hans var að taka sundur gamalt vesti af honum í bætur Og hvað valt þá þar út úr, annað en tveggja króna peningurinn, Hinir margeftirspurðu \ vestur-þýzku NYLON sokkar komnir. Sendum gegn póstkröfu um land allt. REGNBOGINN Bankastræti 6 — sími 22135. sem saknað haf'ði verið? Svona var nákvæmnin. Nú, jæja, ég var í Vallanes hjáleigu í tvö ár, en fékk þá byggða Hallbjarnarstaði í Skrið- dal. Þá jörð keypti ég tveim árum síðar, eða 1918. Þar bjó ég síðan til 1951, að ég lét Magnús son minn hafa jörðina. Og þar komum við hjónin upp 8 börnum, sem öll lifa. Úr norðri og suðri. — Þú ert búinn að vera Aust- firðingur í 76 ár, en hvernig er það, er ekkert austfirzkt blóð í þér? — Þa'ð ætla ég, að hafi nú ekki verið mikið. Móðurætt mín er vestur-skaftfellsk. Móðir mín var Málfríður Sveinsdóttir, bónda í Holti Sveinssonar. Móðuramma mín var Katrín Þorkelsdóttir. Þetta voru afkomendur séra Jóns Steingrímssonar. Nú, föðurættin er norðlenzk. Faðir minn var Kristbjörn Guð- varðarson fæddur í Hléskógum í Grýtubakkahreppi. Norðlendingur. Trúir ekki á töluna tíu hundruð og þrjá. — Finnst þér ekki hafa orðið miklar framfarir í mannheimum, Hrólfur, síðan þú manst fyrst eftir þér? — Framfarir? Jú, þær eru nú svo miklar, að það er alls ekki hægt að lýsa þeim, svona í fljótu bragði. Nú setja ræktunin og byggingarnar -mestan svip á sveit irnar, og svo vélamenningin. Þetta er ekkert erfiði miðað við það, sem áður var, þegar allt var gert með höndunum að kalla. En þó er mun erfiðara að byrja búskap nú en áður var. Nú er ekki hægt að byrja nema hafa vélar til alls. — Nú heyrist því fleygt, að bændur eigi ekki að vera nema 1003, það sé hin eina sanna tala í þeim efnum? — Já, en ég get nú alls ekki fallizt á hana. Eg hefi ekki trú á að tíu hundruð og þrír bændur fengju framleitt nægjanlega mikið handa þjó'ðinni allri, og svo verð ég nú ekki af þeirri skoðun skek- jinn á gamals aldri, að heppilegra sé, að menn búi sem mest að sínu, en stórbændur drottni ekki ein- ráðir yfir vinnufólki. Eg held varla, að það geti verið framtíð- Eftirmáli (Góði Hrólfur minn. Þegar ég bað þig um þetta við- tal, átti það að koma á afmælis- daginn þinn 8. marz. Af því varð þó ekki, og er þar mér um að kenna og í þetta skiptið urðu ann- irnar að vegartálmunum. Þetta vona ég nú, að þú reynir að fyrir- ge£a um leið og ég þakka þér ógleymanlegar, en því miður allt of stuttar samverustundir, og vænti þess, að gæfan fylgi ferðum þínum á níunda tugnum, og hvar- vetna á ökomnum tímum: Þinn einlægur Kristján Ingólfsson). JÖRDIN Grófargil í Seyluhreppi, Skagafirði, er til sölu og ábúðar í næstu fardögum. Á jörðinni er gott íbúð- arhús og nýbyggt fjós fyrir 30 kýr og 2000 hesta hlaða, ásamt votheysgeymslu fyrir 500 hesta. Ræktunarskilyrði á jörðinni eru mjög góð. Hey- fengur jarðarinnar hefur verið um 1500—2000 hestar árlega. Áhöfn getur fylgt. Tilboð í jörðina óskast, og er áskilinn réttur til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Nánari upplýsingar gefur Árni Sigurbjörnsson, Grófargili, sími um Varmahlíð. Aðvörun Að marggefnu tilefni skulu menn varaðir við að hefja byggingarframkvæmdir í Vatnsendalandi án leyfis byggingaryfirvalda Kópavogskaupstaðar. Mannvirki, byggð í óleyfi, verða fjarlægð á kostn- að eigenda. 8. apríl 1964. Bæjarstjórinn í Kópavogi tTmTTTn, fimmtudaginn 9. apríl 1964. 13 \

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.