Tíminn - 11.04.1964, Page 1
IIÉlliiH
■■ ■
/7
,
í ■/^V^V'Í1
-: %/.
•■■......
Hér á líkaninu fyrir neðan
má má sjá legu hins nýja mið-
bæjar og afstSSu hans til
þeirra hverfa, sem fyrir eru í
borginni, en hann á að liggja
sunnan Miklubrautar með-
fram Kringlumýrarbraut í
Fossvog, eða þar sem Ijósu
mannvirkin eru á myndinni.
Það skal skýrt tekið fram,
að þetta er aðeins tillaga,
en ekki endanleg ákvörðun.
(Ljósm.: Tíminn, K.J.)
NYI MIDBÆRINN VID
KRINGLUMÝRARBRAUT
KJ-Reykjavík, 10. apríl.
Drög að heildarsklpulagi fyrir
Stór-Reykjavik, fram tfl ársins um, og í dag voru blaðamönnum
1983, er um þessar mundir mikið
tU umræðu hjá borgaryfirvöldun-
kynntar þær meginlínur í skipu-
Iaginu, sem nú eru til umræðu.
Kennir þar margra grasa, og er
margt þar sem borgarbúum leikur
cflaust forvitni á að fá vitneskju
um. Umferðarkönnun, sem fram
fór í september 1962, er ein megin
undirstaðan, sem byggt er á í sam-
bandi við skipulagið.
Eltt af því sem fram kom á
fundinum, er, að í undirbúningi er
gerð nýs miðbæjar í Reykjavík.
og á hann að liggja sunnan Miklu-
brautar, meðfram Kringlumýrar-
brautinni, sem nú er unnið að,
og niður í Fossvog á móts við
Borgarsjúkralmsið.
Þessum nýja miðbæ er ætluð 30
ha. landsspilda, en til samanburð-
ar má geta þess að núverandi mið-
bær stendur á 18 ha. svæði. Þarna
a að vera verzlunar- og skrifstofu
hverfi. Borgarleikhúsi, Útvarpshúsi
og Veðurstofu er ætlaður þarra
staður og einnig er gjört ráð fyrir
félagahúsum þarna. Stjórnaraðset-
ur ríkis og borgar verða eftir sem
áður í gamla miðbænum, en kom
ið getur til mála, að tæknideildir
borgarinnar fái húsnæði þama.
Með því að koma upp nýjum
miðbæ á þessu svæði,, léttir mikið
a gamla bænum, en þó eru uppi
miklar ráðagerðir um núverandi
rniðbæ. Ætlunin er að gera Suðux-
götu að mikilli umferðaræð frá
höfninni og miðbænum. Verður
hún í því skyni lengd í sjó fram
bramhaio a 15 síðu.
TÍZKUKJÓLAR
■ ••--r:.- ■ —' **
UR PAPPIR A
500 KRÓNUR!
Nú geta konur farlð að kaupa
sér pappírsföt, og þegar þær
verða leiðar á þeim, má alltaf
henda þelm í pappirskörfuna.
Þetta er alveg tilvalin nýjung
fyrlr þær stúlkur, sem ekki geta
verið oftar en eitt kvöld í sama
kjólnum. Myndin sýnir japanska
fyrirsætu í glæsiiegum pappíra-
kjól, sem grelnilega mundi sóma
sér vel við hvaða tækifæri sem
væri. Jafnvel í veizlunum, sem
haldnar verða prins Philip til heið
urs hér f sumar. Ekki vitum við,
hvennig kjólarnir eru viðkomu,
eða hvort þelr bresta, þegar
frúrnar hneigja sig fyrir prinr-
inum, og skrjáfa. En þetta er
alla vega mjög skemmtileg nýj-
ung fyrlr fátæka eiglnmenn ekki
síður en hégómagjarnar stúlkur,
þvi að verðið á einum svona síð-
kjól er ekki nema rúmar 500
krónur. Myndin er tekin á tízku-
sýningu, sem haldin var í Tokyo
í Japan fyrir fjórum dögum, en
þar voru eingöngu sýnd pappirs-
föt teiknuð af frægum japönskum
tízkuteiknara.
ANASTASÍU-MALIÐ ER
FYRIR RÉTTIENN Á NÝ
EJ-Reykjavík 10. apríl.
Anastasiu-málið svonefnda er
cnn cinu si.nni komið fyrir rétt,
að þessu sinni í Hamborg. Rúss-
neski prófessorinn Sergius Rod-
new, sem var góður kunningi
Anastasíu prinsessu, yngstu dóttur
síðasta iússneska zarsins, studdi
í dag fuilyrðingu Anna Anders-
son um, að hún væri Anastasía
og því hinn rétti erfingi Roxan-
off-milljonanna, sem nú eru
gcymdar í Englandsbanka.
Anastasiu-málið hófst árið 1928,
þegar frú Tschaikowsky — seinna
kallaði hún sig Anna Andersson
— reyndi í fyrsta skipti að sanna
að hún væri dóttir Nikulásar ann-
ars, Anastasía Nikolajevna Rom-
anova. En þessi krafa hennar kom
illa heim við þá fullyrðingu, að
allar dætur zarsins hafi verið
drepnar í Jekaterinburg 17. júlí
1918. Anna Andersson sagði, að
hún hefði aðeins særzt, og að
henni hefði síðan tekizt að flýja
til Þýzkalands.
Fjöldi lögfræðinga, mannfræð-
inga, sagnfræðinga og annarra,
hefur öll þessi ár reynt að hjálpa
frúnni fil þess, að sanna þessa
frásögn sína Meðal þeirra var
danski sendiherrann í Berlín, Her-
luf Zahle, kammerherra, sem kom
fram með, eftir langa og ná-
kvæma rannsókn. fullyrðingu um,
að frú Andersson væri Anastasía.
Ætlunin var, að Zahle yrði kall
aður í réttinn á sínum tíma. til
þess að leggja fram rök sín, en
hann dó í maí. 1941, áður en
hægt var að kalla hann sem vitni.
En lögfræðingar frú Andersson
telja, að Zahle hafi með rann-
sóknum sínum fundið mörg rök
— og jafnvel sannanir — fyrir
því, að frú Andersson væri Ana-
stasía, og hafa því gert ítrek-
aðar tilraunir til þess að fá af-
hentar minnisbækur þær, sem
hann sknfaði rannsóknir sínar í
Framhald á 15 síðu