Tíminn - 12.04.1964, Page 3

Tíminn - 12.04.1964, Page 3
fbúð brezka söngkvartettslns „Tlie Beatles" í London, þar sem þeir búa, þegar þeir ern á þeim slóðum, fylltist nýlega af bréfum og gjöfum vegna þess, að einn bítlanna, George Harrison, varð 21 árs. Alls > þurftu póstþjónarnir að rogast þangað með 52 póstpoka, fulla af alls kyns gjöfum, m. a. hár- burstum, skyrtum sokkum o. fl. þess háttar. Á myndinni sjá um við George líta yfir póstinn. ★ Dr. Richard Beeching, hinn umdeildi, en harðduglegi for- stjóri járnbrautarlesta brezka ríkisins, reynir nú að auka tekj urnar með því að notfæra sér einn óútrýmanlegasta þált mannlegs eðlis, þ. e. „snobbjð". Felst það í því, að fyrir 10 sh. pr. mílu getur farþegi fengið að vera í vagni, sem áður var eingöngu notaður af drottningu landsins! Fyrstu viðskiptavinirnir voru fyrirtæki, sem vildu fá að halda ráðstefnur og fundi í frið og ró. Og auk þess þótti þeim gott að heyra, að flutningskostnaður- inn kemur til frádráttar á skaít skýrslunni! ¥ Bandaríkjamenn gera hvað þeir geta til þess að geta verið jafn framarlega á sviði vísinda- rannsókna í framtíðinni og Sovétríkin, og í því skyni ætla þeir nú að reyna nýtt kennslu- kerfi í tíu borgum Bandaríkj- anna, þar á meðal í New York, Chicago, San Francisco og Baltimore. Þeir ætla sér að kenna fimm ára börnum grund vallaratriðin í stærðfræði, eðlisfræði og dýrafræði! ¥ Ættflokkastyrjaldir Indíán- anna í Bandaríkjunum eru ekki liðnar í tímanna skaut, og í dag geisar styrjöldin milli Matinecock-ættbálksins og Mohawk-ættbálksins. Og deilu- málið er frímiðar á Heimssýn- ¥ inguna í New York! Mohawkarnir telja sig, sarn- kvæmt gcailum samningi, eiga rétt til þess að dvelja á Flush- ing Meadow, þar sem heimssýn ingin verður haldin. En Matinnecockarnir, með Sun Tamo prinsessu í broddi fylkingar, telja, að Mohawkarn ir hafi aldrei komið nær en 300 km. frá Flushing Meadow af þeirri einföldp ástæðu, að landareignin var í eigu for- feðra hennar. „Ef einhverjir Indíánar fá frímiða á heimssýninguna, þá verðum það við“ — sagði prinsessan. — „Mohawkarnir ættu að hafa vit á að halda sínurft löngu fingrum burt frá veiðilöndum okkar!“ Tíkin hér á myndinni er engin venjuleg tík — hún er stórfínn akróbat! Hún heitir Perla og er í eigu józks bónda, sem eitt sinn sá sirkus. þar sem hundar sýndu akróbatik. Hon- um datt í hug, að þetta hly(i Perla að geta líka og hóf því að æfa hana sjálfur. Og í dag gerir Perla hinar furðulegustu kúnstir. Hún get- ur t. d. farið í þrjú hcljarstökk aftur á bak í röð! Og í slíku heljarstökki fer hún venju- lega hálfan annan metra upp i ioftið! Það er því ekki að furða, þótt Perla sé eftirlæti í byggð inni — þ. e. allra nema dverg- hundsins Fido, sem alltaf er fullur af öfundsýki! * ★ Eangelsi er venjulega sá stað ur, sem fólk reynir að forðast, én svo var þó ekki um Louis Santana í Los Angeles. Hann var gamall fangi, sem sleppt hafði verið til reynslu, en var stuttu síðan handtekinn fyrir að brjótast inu í fangelsið! Sagð ist hann vera að flýja frá kvcn manni. ' Og Louis var heppinn. Dóm arinn taldi, að innbrotstilraun hans væri brot á skilyrðum reynslutímans og stakk honum inn aftur. * Skýrsla bandarísku heilbrigð sígarettureykinga varð til þess, sígarettureykinga vairð til þess, að fjölmargir fóru í næstu verzl un og keyptu sér pípu. Og kon- urnar eru engir eftirbátar karl mannanna í þeim cfnum. Ungar stúlkur virðist halda mest upp á iangar pípur þessa dagana, og danska söngkonan á myndinni, Dorthe Larsen, keypti sér eina nýlega og sór, að hún skyldi aldrei aftnr snerta á sígarettum. Hún kallar pípuna Tobias, en vinátta þeirra varð dáiitlum erfiðleikum bund in til að byrja með, eins og sjá má. ¥ Oberst Lowell Conner fannst, að menn hans í heimavarnariið- inu í Georgíu væru alit of feit- ir og skipaði þeim því að megra sig þegar í stað. Nú nýlega komu 418 heima- varnarliðsmenn til obertsins, röðuðu sér upp fyrir framan hann og tilkynntu stoltir, að þeir væru nú samtals tveirn tonnum léttari! En Conner var ekki ánægður: „Farið og megrið ykkur um eitt tonn til“ — sagði hann, — „þá fyrst getur Georgía verið þekkt fyrir að hafa ykkur!“ yv Ráðamenn í Sovétríkjunum berjast hart gegn alls konar trúarbrögðum og reyna margt í því skyni. Nú nýlega var send út áskorun þess efnis, að verkamennirnir skyldu hætta að halda upp á úrelta helgidaga. en minnast í staðinn þess dags. þegar þeir fengu laun sín f fyrsta sinn. eða þegar þeir fengu persónuskilríki! Fyrir nokkru er lokið töku þeirrar djörfustu kvikmyndar, sem tekin hefur verið í Holly wood — þ. e. „The Carpetbagg- ers“ með hinni þekktu Carroll Baker. í myndinni dansar Can - oll nektardansa og gerist fyrir- sæta í listaskóla í París (sjá mynd). Og í fyrsta skipti á æv- inni birtist hún allsnakin, sitj andi fyrir framan snyrtiborð-; spegil. Þegar það atriði var tekið, voru allir aðrir en tækni- fræðingarnir og leikstjórinn reknir út og kvikmyndaveríð umkringt af lögreglunni! Þegar að myndatökunni lok inni fór Caroll til Kenya, þar sem hún leikur í kvikmyndinni „Mister Moses“ ásamt Robert Mitchum. Og fegurö hennar vakti einnig athygli þar, því að einn hinna innfæddu höfð- ingja vildi kaupa hana fyrir 267 pund og 10 shillinga, auk 150 kúa og 200 geita, en það er miklu hærra verð en tíðkast á kvennamarkaðinum þar. T í M I N N, sunnudagur 12. apríl 1964. J 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.