Tíminn - 14.04.1964, Side 5

Tíminn - 14.04.1964, Side 5
T í M I' N N, þrlðjudagur 14. apríl 1964. —* Frá leik FH og Fram í kvennaflokkl. Þarna brýit ein FH-stúlkan í gegn um vörn Fram og skorar. F'H vann með 9:6. Úrslit nálgast / kvennafíokki Tveir leikir fóru fram í meistaraflokki kvenna á laug- ardagskvöld að Hálogalandi. í fyrri leiknum mættust Vík- ingur ojí BreiSablik, en í þeim síðari FH og Fram. Hvorugur þessara leikja hafði áhrif á baráttuna um efsta sætið, þar sem Valur og Ármann bítast um titilinn. Víkingur og Breiðablik háðu nokkuð jafna baráttu, og var leikurinn skemmtilegur. Víkings- stúlkunum vegnaði betur í fyrri hálfleik og höfðu yfir 7 : 2. í síð- ari hálfleik sóttu Breiðabliks- stúlkurnar sig, en það nægði samt ekki til að hindra Víkingssigur. Víkingur vann með 17 : 13. í síðari leiknum mættust FH og Fram. Leikurinn varð jafnari en búizt hafði verið við. FH hafði yfir í hálfleik 5 : 4, og vann leik- inn með 9 : 6. Leikur FH-stúlkn- anna var mjög skemmtilegur og góð tilþrif sáust. Þrír frægir sund- menn í boöi K.R. 65 ára afmælissundmót KR verður haldið í Sundhöll Reykjavíkur dagana 16. og 19. apríl, og hefur sunddeild KR í því sambandi boðið hingað heim þremur „stórum“ sund- mönnum frá Skotlandi. — Þeiirra frægastur er Bobby Mc- Gregor, heimsmethafi í 110 y- skriðsundi. Þá er það Andy Harrower, bezti alhliðasund- maður Skotlands, og hefur einnig getið sér frægðarorð, sem fjórsundsmaðuir á enskum mótum s.l. ár. Með þeim fé- lögum er svo Ann Baxter, Skot'iandsmeistari í bringu- sundi Allt bezta sundfólk lands- ins tekur að sjálfsögðu þátt í mótinu og vænta IÍR-ingar góðs árangurs af heimsókn hinna erlendu gesta. Um helgina fóru fram tveir æfingaleikir í knattspyrnu milli 1. deilda liða. l’ram og Keflavík mættust á Framvell- inum og Þiróttur og Va'lur á Valsvellinum. Þó varlegt sé að taka mark á vorleikjum félaganna, gefa þeir þó styrkleika félaganna að emhverju leyti til kynna Keflvíkingar virðast t.d. vera til alls vísir. Þeir unnu Fram á sunnudaginn með 3 : 2, en höfðu unnið Þrótt helgina þar á undan með 4 : 0. Keflavíkur- liðið er mjög ungt og leik- mennirnir ákveðnir. Óli B. er byrjaður að þjálfa þá, og virð- ast Keflvíkingar eiga bjart sumar framundan, þótt vissu- lega geti allt skeð. Valsmenn hafa fengið nokkra nýja leikmenn til sín frá öðr- um félögum. Kunnastur þeirra er Ingvar Elísson frá Akra- nesi, en einnig eru nokkrir leikmenn frá Breiðabliki. Val- ur vann Þrótt með 4 : 0 og skor aði Ingvar 2 þeirra. KR-ingar eru nú laus- ir við fallbaráttuna KR vann ÍR örugglega á sunnudagskvöld með 29 mörkum gegn 22 Alf — Reykjavík, 13. apríl. KR-ingar eru ekki lengur aðilar að fallbaráttunni í 1. deild eftir sigurinn gegn ÍR á sunnudagskvöld, 29:22, MeS þessum sigri hefur KR hlotið samanlagt 8 stig og nægir það sennilega til að hreppa þriðja sætið í deildinni. í leiknum gegn ÍR á sunnudagskvöld, sýndu KR-ingar enn einu sinni hvers þeir eru megnugr, þegar mest á reynir. Liðið lék mjög öruggt og vitaskuld voru það Karl Jóhannsson og Reynr Ólafsson, sem stjórnuðu öll- um meiri háttar aðferðum, en hinn öruggi bakhjarl var Guðjón Ólafsson í markinu. Leikurinn var allan tímann skemmtilegur og nokkuð vel leik- inn á köflum, en harka var kann- ski fullmikið á dagskrá og sex sinnum varð dómarinn, Hannes Þ. Sigurðsson, að grípa til kælingar- aðgerða og vísa leikmönnum úr báðum liðum út af um stundar- sakir. KR-ingar náðu yfirhöndinni fljót lega og héldu. forystu eftir það, en oft var munurinn aðeins eitt mark og baráttan tvísýn. KR not- aði línuspil óspart og var Reynir sendur á línuna þar sem hann gerði mikinn usla. Eftir 12 mín- útna leik var staðan 8:4 fyrir KR og hafði Reynir skorað sjö mark- anna — þrjú að vísu úr vítaköst- uip, en í flestum tilfellum hafði verið brotið á hann. Gunnlaugur Hjálmarsson hjá ÍR hafði sig lít ið frammi í fyrri hálfleiknum, en mataði cspart meðherja sína og hann átti mestan þáttinn í því, að minnka sex marka forskot KR, 16:10 í 16:14 fyrir hlé. Fyrstu 15 mínúturnar í síðari hálfleik voru mjög jafnar og eft- ir þann kafla leiksins var bilið óbreytt, tvö mörk, 22:20. En mín- úturnar sem eftir voru sýndu KR- ingar vel útfærðan leik. Karl sendi óspart inn á línu og Reynir nýtti vel tækifærin. Einnig opnuðu línu- mennirnir hornin fyrir Karl, en þau tækifæri nýttust illa. En KR- ingar sýndu festu, voru sterkir í vörn og Guðjón Ólafsson varði oft mjög vel Og bilið breikkaði og Staðan Tveir leikir fóru fram í 1. delld á sunnudag: FH—Víkingur 33:22 KR—ÍR 29:22 Staðan í 1. deild er þá þessi: Fram 9 8 0 1 237:185 16 FH 9 6 1 2 258:195 13 KR 10 4 0 6 232:288 8 ÍR 10 3 1 6 240:281 7 Ármann 9 3 0 6 176:196 6 Víking. 9 3 0 6 199:227 6 Síðustu leikir í 1. deild fara fram n.k. miðvikudagskvöld. Þá leika saman Fram—Víkingur og Fll—Ármann. þegar yfir lauk var munurinn sjö mörk, 29:22, fyrir KR. Með þessum sigri eru KR-ingar lausir við fallbaráttuna og rættist því ekki spá' margra, að KR þyrfti að leika aukaleik um fal'lið þriðja árið í röð, KR-Iiðið er misjafnt, en á alveg hildaust skilið að halda sæti í 1 deilö. Reynir Ólafsson sýndi sinn bezta leik í langan tíma á sunnudaginn og hann skoraði 16 mörk (7 úr víti) sem er vcl af sér vikið. Kar! var einnig mjög góður, 'en hans var betur gætt. Kairl skoraði 9 mörk. Guðjón Ólafsson sýndi góða markvörzlu — og allt of snemmt fyrir hann að kveðja handknattleikinn, þrátt fyrir aukakílóin. Önnur mörk KR skoruðu Heinz og Sigurður Óskars son, 2 hvoir. Hjá ÍR bar mest á bræðrunum Þórði og Þórarni, sem skoruðu flest mörkin, en Gunnlaugur Hjálmarsson er maðurinn, sem ÍR- iiðið stendur og fellur með. Hvað skyldi Gunnlaugur annars vera bú- inn að halda ÍR-liðinu mörg ár uppi í 1. deild? Mörk ÍR skoruðu Þórarinn 6, Þórður 5, Gunnlaugur 4, Gylfi, Hermann og Gunnar 2 hver, og Ólafur 1. Dómari í leiknum var Hannes Þ. Sigurðsson eins og fyrr segir. S.l. laugardagsmorgun fóru reykvlskir sklðamenn utan tll keppnl I Solfon I Noregl, en þetta er I annað sklptl, sem Islenrklr keppendur eru mei I borgarkeppnlnnl, sem þar fer fram árlega. Alls fóru utan núna níi skiðamenn, auk fararstióra, Ellenar Sighvatsson. Þessi mynd var tekln vli brottförlna. Fremst á myndinni er Ellen Slghvatsson. Valur og Kefíavík unnu Um helgina fóru fram tveir æfingaleikir í knattspyrnu milli 1. deilda liða. l’ram og Keflavík mættust á Framvell- inum og Þiróttur og Va'lur á Valsvellinum. Þó varlegt sé að taka mark á vorleikjum félaganna, gefa þeir þó styrkleika félaganna að emhverju leyti til kynna Keflvíkingar virðast t.d. vera til alls vísir. Þeir unnu Fram á sunnudaginn með 3 : 2, en höfðu unnið Þrótt helgina þar á undan með 4 : 0. Keflavíkur- liðið er mjög ungt og leik- mennirnir ákveðnir. Óli B. er byrjaður að þjálfa þá, og virð- ast Keflvíkingar eiga bjart sumar framundan, þótt vissu- lega geti allt skeð. Valsmenn hafa fengið nokkra nýja leikmenn til sín frá öðr- um fálögum. Kunnastur þeirra er Ingvar Elísson frá Akra- nesi, en einnig eru nokkrir leikmenn frá Breiðabliki. Val- ur vann Þrótt með 4 : 0 og skor aði Ingvar 2 þeirra. 'mzM ‘ mm íl m 3Ö1 “TIR s& II llttllllllillllllll .... . |. Jf. J| ■

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.