Tíminn - 14.04.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 14.04.1964, Blaðsíða 16
Þriðjudagur, 14. apríl NTB-London. — Lögð var fram á alþjóðlegu ráðstefnunni um S-Afríku í dag tillaga um að setja S-Afríku í alþjóðlegt við- skiptabann I því skyni að þvinga ríkisstjórnina til þess að iáta af stefnu sinni í kyn- þáttamálum. NTB-Kaupmannahöfn — Fundi utanríkisráðherra Norðurlanda lauk í Kaupmannahöfn í dag. Næsti fundur verður haldinn i Reykjavík í haust. NTB-Stokkhólmi — í dag lauk öðrum þætti réttarhaldanna yf- ir Stig Wennerström, en hann náði yfir tímabilið 1952—’57. Á fimmtudaginn hefst þriðji hlutinn, sem nær yfir njósnir hans í Svíþjóð. NTB-London — Reginald Maud ling, fjármálaráðherra Breta, iagði í dag fram fjármálaáætl- un sína. NTB-Helsingfors — Finnska þjóðþingið felldi í dag með 104 atkvæðum gegn 80 vantrausts- tillögu á ríkisstjórnina. NTB-Þórshöfn. — Landsstjórn- in í Færeyjum mun krefjast aukinnar sjálfsstjómar Færeyj um til handa mjög bráðlega. NTB-Hamburg — Sovétska ut- anríkisráðuneytið fór í dag hörðum orðum um hina röngu tilkynningu vestur-þýzku frétta stofunnar DPA um, að Krust- joff væri látinn. NTB-Hollywood — Blökkumað- urinn Sindney Poitier fékk í dag Oscar-kvikmyndaverðlaun- in fyrir beztan leik í aðalhlut- verki karla. NTB-Maniia — Keith Holyoake, forsætisráðherra Nýja Sjálands hefur mótmælt fyrirhuguðum tilraunum Frakka með kjarn- orkuvopn á Kyrrahafi. Tilraun irnar eiga að fara fram 1966. NTB-Brussel — Ráðherranefnd EBE ræddi í dag verð á korn- vörum innan bandalagsins, og eins og áður, þá stóð Vestur- Þýzkaland eitt sér gegn hinum NTB-London. — Utanríkisverzl unarmálaráðhe^ra Sovétríkj- anna, Nikolai Patolitsjef, kom til Lundúna í dag og sagði, að Sovétríkin myndu kaupa verk- smiðjuvélar af Bretum. NTB-Oslo. — 80% af íbúum Kabylia í Alsír, eru smitaðar af augnasjúkdómnum Trakom, og er taiið að 57% þeirra verði blindir NTB-Boston. — Sovézki Lenin- grad-prófessorinn Jurij Asse- jev, sem fékk hæli sem pólitísk ur flóttamaður í Bandaríkjun- um fyrir þrem mánuðum, hef- ur snúið heim til Sovétiríkj- anna. NTB-Dacca. — 1298 menn létu lífið, og 600 sæðrust, í hvirfil vindi, sem geysaði í Jessore- héraðinu í Pakistan. 130 manna er saknað. Guiihvarf í SAS- / v NTB-Stokkhólmi, 14. apríl. I nú verið kært til rannsóknarlög-1 Virði gullsins er un Hið leyndardómsfu'lla hvarf reglunnar í Stokkhólmi. Er hér krónur. gullpakka nokkuirs, sem fara átti um að ræða þriggja cm. þykka Þeir, sem báru ábyrgð á ferm- með SAS-þotu frá London til gullplötu, 15 sinnum 15 cm. að ingu flugvélarinnar, fullyrða, að Stokkhólms s.l. laugardag, hefur I f'latarmáli og 5.3 kg. að þyngd. gullplatan hafi farið með flugvél- Makarios og Grivas á fundi sínum í fyrradag. KÝPUR L OGAÐIÍBARDQGUM í QÆR ■ TVCIR MCNN FCLLU fiugvél? i 250.000 ísL NTB-Nocosiu, 14. apríl Tveir menn létu lífið í bardög- um á Kýpur í dag, en alls var barist á fjórum stöðum í Nicósíu og þar að auki á fimm öðrum stöðum á eyjunni. — Makarios, forseti Kýpur, borðaði í dag mið- degisverð með Grivas hershöfð- ingja, og sagði, að þáttur Grivas ’ í vörnum Kýpur yrði ákveðinn mjög bráðlega. Grískur lögreglumaður var skot inn til bana í kvöld í einum út- ,bæja Nicósíu, Trakhonas. Fyrr í dag var grískur borgari drepinn, og tveir aðrir særðir, í hálftíma bardaga meðfram grænu línunni, sem skilur gríska og tyrkneska menn að í gamla bæjarhlutanum í Nicósíu. Ríkisstjórnin tilkynnti í dag, að tyrkneskir hryðjuverkamenn hafi skotið á gríska menn í Ledragaten sem er helzta viðskiptahverfið í gríska borgarhlutanum. Alls var barist á fjórum stöðum í Nicósíu í dag, og auk þess í. úthverfinu Omorphita, þorpinu Orta Kuey fyr ir utan Nicósíu og í úthverfi bæj- arins Neapolis. Einnig var tilkynnt um bardaga við fjallstindana þrjá við Kyreniaveginn, en þeir kallast j nú Gin, Whisky og Brandy! Talsmaður Sameinuðu þjóðanna sagði í kvöld, að Singh Gyani hers höfðingi, yfirmaður SÞ-herliðsins, hafi rætt bardagana við ríkisstjórn ina og yfirvöld tyrkneskra manna. í Aþenu sagði Makarios forseti, að þáttur' Georg Grivas hershöfð- ingja í vörnum Kýpur verði ákveð inn meðan hann dvelur í Aþenu. Makaríps borðaði í dag hádegis- verð með Grivas hershöfðingja. Talið er ólíklegt að Bretar fari að áskorun U Thants, framkvæmda stjóra Sameinuðu þjóðanna, um að senda lögreglulið til Kýpur. Telja Bretar, að það muni verða óvinsælt meðal ' Kýpurbúa, að bfezkt lögreglulið • komi til eyj- arinnar. I Ankara sagði forsætisráðherra Tyrkja, Ismet Inönu, að samband- ið milli Tyrklands og Grikklands verznaði stöðugt. Sagði hann að grískir menn á Kýpur hafi gert fjölda árása á tyrkneska menn* vegna þeirrar afstöðu, sem Grikk- ir hafa tekið í Kýpurmálinu. inni, en þeir, sem affermdu hana í Stokhólmi, segja, að engin gull- plata hafi komið með vélinni. — Það er því miður margt, sem bendir til þess, að gullplatan hafi á einn eða annan hátt komizt í rangar hendur — sagði Kaj Juste- sen, sem er yfirmaður flutninga- deildarinnar á aðalskrifstofu SAS i Stokkhólmi. í þessu máli stend- ur staðhæfing gegn staðhæfingu. Það var brezka flugfélagið British European Airways (BEA), sem bar ábyrgð á því, að pakkinn færi um borð í SAS-þotuna í Lond- an, og starfsmenn BEA fullyrða, að pakkinn hafi farið með þot- unni. Eins og venjnlega, þegar um slíkar sendingar er að ræða, var serit símskeyti til Stokkhólms, þar sem sagt var til um stærð pakk- ans og hvar hann væri í þotunni. Þegar starfsfólk SAS á Arlanda- flugvellinum í Stokkhólmi ætlaði að afferma þotuna, fann það enga gullplötu. Justesen sagði, að þeg- ar hafi verið tiikynnt um hvarf plötunnar til London, og auk þess framkvæmd ný og nákvæm rann- sókn á farangri flugvélarinnar, en það bar engan árangur. í dag var aftur farið nákvæmlega í gegnum alla pakka, sem geymdir eru á Arlandto-flugvellinum, en það bar engan árangur. Gullplatan var send með áætl- Framhald á 15. síðu. Fundur um búfjár- eignarbannið í kvöld kl. 8,30 halda sauðfjár- eigendafélögin í Reykjavík og ná- grannakaupstöðunum sameiginleg an fund í Skátaheimilinu til þéss að ræða frumvarpið um bann við búfjáreign í þessum kaupstöðum. Flytjendur frumvarpsins, nokkrum embættismönnum og öllum búfjár- eigendum í kaupstöðunum er boð ið á fundinn. Fjáreigendafélag Reykjavíkur, Sauðfjáreigendafélag Kópavogs og Fjáreigendafélag Hafnarfjarðar standa fyrir fund- inum. FRÁ NEYTENDASAMTÖKUNUM Neytendasamtökin hafa í ára- tug barizt fyrir breyttri tilhögun á afgreiðslutímum sölubúða, þann ig að þeir yrðu sniðnir fyrst og fremst eftir þörfum neytenda, en verzlunarfólk og kaupmenn semdu einungis um kaup og kjör. Enda á það lögum samkvæmt að vera í hendi borgarstjórnar að kveða á Um afgreiðslutíma. Sú hefur þó orðið raunin á„ að i kjarasamn- ingum þessara aðila hefur verið samið um lokunartíma, en ekki einvörðungu um vinnutíma, eins og allar aðrar stéttir gera. Því fer svo fjarri, að Neytendasamtök in hafi með tillögum sínum ætlað afgreiðs’ufólki lakari kjör, að þau hafa þvert á móti bent á leið ir til hins gagnstæða, enda þótt það sé ekki í þeirra verkahring. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur er orðið öflug launþegasamtök, sem ættu að geta gætt hagsmuna sinna eigi síður en flest önnur. Þegar frumvarp að nýrri reglu gerð borgarstjórnar lá fyrir, var það sent Neytendasamtökunum til umsagnar. Þau fögnuðu öllu því í frumvarpinu, sem miðaði að rýmkun og auknu frjálsræði, en voru andvíg hinu. Þegar reglu- gerðin með ýmsum rýmkunarat- riðum hafði verið samþykkt í borgarstjórn og beið samþykktar Félagsmálaráðuneytisins, sendi ráðuneytið bréf til hinna ýmsu aðila og óskaði umsagnar þeirra. Neytendasamtökin munu hafa ver ið eini aðilinn, sem lagði til, að TVEIR BÍLAR GJÖRÓNÝTTUST í ÁREKSTR! !N0RÐURÁRDAL GG-Fornahvammi, 13. apríl. Klukkan 5,15 í gær, varð árekst- ur hjá íiúrfelisá í Norðurárdal, rétt fyrir ofan Fornahvamm. Þair rákust á tveir nýir fólksbflar, Volkswagen og Saab. Þeir rákust á uppi á hæðardragi, þar sem þeir sáu hvoirn annan ekki í tíma, og slösuðust fjórir farþegar. Fjórir farþegar voru í Volks- wagenbílnum, tveir sluppu ómeidd ir, en kona skarst á höku og hálsi, og lítil telpa fékk skrámur og taugaáfail. Tveir farþegar voru í Saab-bílnum, og voru þeir meira og minna skrámaðir og brotnir. Báðir voru bílarnir úr Reykja- vík. Volkswagcn-bíllinn vai frá bílaleigu og kaskotryggður, en Saab-bíllinn var tryggður venju- legri tryggingu Báðir eru bílarn- ir gjöreyðilagðir. reglugerðin yrði staðfest. Afstaða stjórnnar Neytendasamtakanna byggðist á því, að reglugerðin væri hið merkasta spor í rétta átt, þar sem í fyrsta sinn væri tekið tillit til þess, um hvaða vörur væri að ræða, sem velja skyldi. Það gildir annað um mat vörur en fatnað, búsáhöld, hús- gögn o. s. frv. Það á ekki einugis að vera á Þorláksmessu, sem hjón geta valið vörur saman, sem vanda þarf val til. Með vikulegri kvöldsölu annarra verzlana en matvöruverzlana skapaðizt stór- bætt aðstaða til aukinnar vöndun ar vöruvals. Þær hinar sömu verzl anir mættu í staðinn gjarna vera lokaðar á þeim tímum, sem sann anlega er verzlað minnst á. Hvað söluop snertir, hafa Neyt endasamtökin aldrei fallizt á það sjónarmið, að takmarka ætti, hverjar vörutgeundir mætti selja eftir venjulegan lokunartíma — og sízt að leyfa skyldi tóbakssölu. sælgætis og annars þess varnings, sem halda á unglingum frá. Þeirri tilhögun sem reglugerðin felur í sér að þessu leyti, voru Neytenda samtökin staðráðin í að berjast gegn. Þau töldu þau svo fráleit, að þau gætu ekki orðið langlif Það er skýringin á samþykki sam takanna á staðfestingu reglugerð arinnar. Nú hafa þau tíðindi gerzt, að framkvæmd reglugerðarinnar hefur verið stöðvuð að öðru leyti en því, að um stórminnkaða þjón ustu við neytendur verður að ræða. Þetta er það alvarlggt mál, að borgarbúar geta ekki við unað og ekki heldur fulltrúar þeirra, sem er borgarstjórn. Að óbreyttu ástandj munu Neytendasamtökin boða til almenns borgarafundar um málið n. k. laugardag og mun hann auglýstur sérstaklega. (Frá Neytendasamtökunum). Hádegiskl úbburin n —kemur saman í dag miðvikudag á sama stað og tíma. Framsóknarkonur Félag Fram. sóknarkvenna lieldur fund i dag, miðviku daginn, kl. 8,30 Tjarndrgötu 26. fngólfur Davíðs son grasafræðing ur flytur erindi: _Garðagróður. — Einnig verða rædd mjög þýðingar mikil félagsmál. Félagskonur fjöl- mennið. — Stjórnin. 2 T í M I N N, miðvikudagur 15. apríl 1964.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.