Tíminn - 23.04.1964, Side 1

Tíminn - 23.04.1964, Side 1
4 i SUMARDAGURINN FYRSTI BLAÐ II sterku lifðu BSsJan kemur upp í fangið á manni í skrautlegasta vorkjólnum síuum, þegar viB ökum upp Mosfellssveitina í logni og bjart- asta skini morgunsólar. Hún er í bvítdröfnóttri blússu og dökku, jafnlitu pilsi og lyftir brúnum fagurlega. Vogar og firðir innan vi5 Viðey eru loknkyrrir og sól stafaðir, en utan blánar í smá- gráði undan norðankaldanum, sem nær sér fram á flóann undan Akrafjallinu en Esjan ver leiðina innan eyja. Þegar við komum á melölduna sunnan Kollafjarðar skiptir um svið, því að við erum komnir undir pilsfald Esjunnar. Niðri á fjörusandinum eru menn að verki, ýtur og vélskóflur. Þar er búið að ýta upp göfðum, og milli . þeirra eru kvosir. Þarna er verið að gera fiskeldistjarnir á vegum laxaklaks ríkisins. Þeim, sem þama hefur stundum farið um í roki, og séð sjóinn skafa inn yifir fjöruna ásamt þangi og sandi þyíkir ólfklegt að auðvelt verði að halda þar við eldistjörnum. Heima á Kollafjarðartúni eru enn meiri umsvif og vélar að verki. Þar er allt í flagi, haugum og gðrðum — enn fleiri laxeldis- tjamir. En í brekkuslakkanum beint á móti þeim, sem kemur akandi að sunnan .ofan í Kollafjörðinn, blas ir við vin, er seiðir augað til sín. Þar er allt orðið fagurgrænt til að sjá. Skógarlundir og belti teygja sig um brekkuna, og í skjóli þeirra er hvítt hús, en yf- ir gnæfir hvöss burst Kistufells- ins. Þama hafa kunn hjón úr Reykjavik unnið merkilegt sum- arstarf í rúm tuttugu ár, og ár- angurinn er stór og fagur gróð- urreitur, sem á sér fáa líka. Þessi hjón era frú Ása Jóhannsdóttir og Sigurjón Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri, Grenimel 10 í Reykjavík. Fyrir rúnium tuttugu árum fengu þau þama spildu hjá Kol- beini Högnasyni, skáldi og bónda i Kollafirði og hófu landnáms- starfið. Þau ræstu fram mýrina, byggðu sér sumarhús og fóru síð- an að planta skógi. Það starf allt bar svo glæsilegan ávöxt, að sér- staka athygli vakti, enda unnu þau þama öllum frístundum, er þau máttu því við koma Lund- urinn í nöktum hlíðarslakkanum vakti æ meiri eftirtekt þeirra sem um veginn fóra. Þarna var skjól gott, og skógurinn þaut upp. Þama var íslenzkt birki, íslenzk- ur reyniViður, aspir, greni og fura frá fjörrum löndum og fagrir runnar. Fuglamir þyrptust að og verptu hundruðum saman í trján- um og undir runnunum. Um- hyggjan og ræktunarstarfið var þrotlaust, enda voru ársprot- ar trjánna 40—60 sentimetrar og varð aldrei hlé á þeim vexti. Lund urinn- vakti trú æ fleiri á því, sem hægt værí að gera í skógrækt armálum hér á landi. ef nógu vel var að verki unnið. En svo skall reiðarslagið yfir, Vorið kom snemma 1963, Allur síðari hluti vetr'arins var samfelldur blíðu- tími með sólfari og hlýindum. — Gras tók að spretta og tré að bruma, og menn vonuðu að sum- arið væri komið. Þá skall kulda- áhlaupið mikla á eftir sumarmál- in. Það áhlaup munu menn muna lengi sár þess öll verða seint og var berskjaldaður. —- Hér er ekki fagurt um að litast, sagði Sigurjón, þegar við ókum upp að hliðinu í fyrradag. — Þarna hafa eyðilagzt milli þús- und og ellefu hundruð tré, mörg nær tvítugu og nokkuð á fjórða metra á hæð. Við erum að rífa þau upp með rótum þessa dag- ana. Við notum vélarafl, annað er ekki hægt. Þetta er mikið rask ar og heim. Nú planta ég birki, réynivið og viðju, sem er mjög falleg og hefur reynzt þolin hér' og vex fljótt. — Og þér finnst þetta hafa borgað sig, þó að svona færi? — Já,. margborgað sig. Hér höf um við verið að minnsta kosti fjóra mánuði hvert sumar. Þetta hefur stundum verið erfitt, og þreytan lagzt í bakið, en ég er sannfærður Þessi mynd var tekin sumarið 1962 í skógarlundi Sigurjóns Guðmundsson- ar,, framkvæmdastjóra við sumarhús hans í Kollafirði. í jjessum fagra lundi drápust rúmlega þúsund grenitré og aspir í áhlaupinu í fyrra, og nú er verið að kippa upp kalviðunum og búa undir gróðursetninguna að nýju. Um þetta og tuttugu ára skógræktarstarf Sigurjóns er rætt í þessari viðtalsgrein. grædd að fullu. Frostið var tíu stig dögum og nóttum saman hér suðvestan lands og kaldara nyrðra. Trén, sem opnað höfðu allar brumhlífar sínar, króknuðu í þessu heljartaki. Verst urðu úti innflutt tré, einkum ösp og greni, og hervirkin voru mest og verst þar sem hlýjast og sólrík- ast hafði verið, því að þar hafði gróður verið kominn lengst á veg en verður að vinnast, ef unnt á að vera að planta einhverju aft- ur. — Þú ætlar að planta aftur? Þú ætlar ekki að gefast upp? — Nei, ég ætla að reyna aftur. En líklega verður það lítið af greni fyrst í stað, fyrr en þeir eru þá búnir að finna veðurþolnari stofna og beti'i við okkar hæfi. Eftir áföll snýr maður oftast inn- um að ég á góða heilsu nú þessu starfi mjög að þakka, og ánægj- an — ég get ekki lýst henni. Við göngum heim gangstíginn undir vöxtulegum trjám, sem flétta lim saman yfir höfði manns. Birkið og reynirinn eru að springa út. Reymrinn er toppkalinn hér og hvar síðan í fyrra, en hef- ur þó staðizt raunina vel. Birkið lætur ski á sjá. Aspimar eru dauðar, hver ein og einasta, þessl blaðfögru gróskumikln tré, en grænir sprotar teygja sig þó hér og hvar út úr feyskjum og rótum og sýna, að enn leynist líf í kal- viðnum. En milli hinna grænu trjáa standa beinagrindumar •— dauðkalnir barrviðimir. Sumir felldu allt barr í fyrra, en aðrir hafa verið að veslast upp, urðu brúnir þegar leið á sumarið, og í vor kom enginn nýr brumhnapp ur á þá, þeir eru dauðir. — En líttu á, segir Sigurjón. Eitt og eitt tré stendur enn grænt og lifandi. í hópi þessara land- nema vestan úr Alaska eða aust- an úr Síberíu hefur verið einn og einn einstaklingur, sem þoldi veð urhörkuna hér á landi. Skógrækt- armennirnir horfa spyrjandi á þessi tré núna. Hvaðan eru þeir? Hvar var fræ þeirra tekið? Hvaða viðnámsþróttur býr í stofni þeirra og gerir þá lífseigari bræðrum sínum? Er von okkar um rækt- un barrskóga hér á landi bundin við að geta fjölgað kyni þeirra? Það er satt, að í þessum kal- viðaskógi kemur það kynlega fyT- ir sjónir að sjá eitt og eitt greni tré standa algrænt með þrútna brumhnappa og í fullu vaxtar- fjöri, og menn spyrja: Hvers vegna stóðuzt þið raunina? — Eg veitti því athygli, sagði Sigurjón — að nokkur munur var á grenifræi því, sem við notuð- um. Eg er sannfærður um, að þarna á meðal hefur verið fræ af viðum, sem vaxnir eru við skipuð veðurskilyrði og hér og hafa því þolað raunina. Við hefðum þurft að kanna veðurlag betur á þeim sióðum, sem við söfnuðum á fræi erlendis. Ef til vill tekst okkur nú að fá gott grenifræ af þeim frostþolnu einstaklingum, sem lif að hafa þetta af hjá okkur og tekst betur næst. Og rauðgrenið hefur alveg staðizt raunina. Það sér ekki á því, en það er nokkuð seinvaxið. — Hvað hefurðu stórt land hérna undir skógrækt Sigur-' jón? — Það eru nú 3,9 hektarar, en ég hef stækkað það í tveimur eða þremur áföngum. — Hver voru tildrögin að því, að þú hófst handa hérna? — Eg er alinn upp í sveit, hef ætíð þráð og dáð fagra náttúru og mig langaði ekki til neins frem- ur en eiga mér einhvern friðar- blett, sem ég gæti leitað til á sumrin úr bænum, og þá helzt ekki allt of fjarri honum. — Margir renndu augum i Kollafjörð fyrr á árum og sóttust eftir bletti þar undir sumarbústað. En Kolbeinn Högnason vildi helzt ekki sumar- bústaðamergð í túnfæti sínum, og hann var vanur að benda þeim, sem báðu hann um sumarbústaða- land, á tnýrarslakka, keldu- og ó- ræktarfen þarna undir hæðinni. Fæstum Virtist það girnilegt, en Framh. á bls. 21 TlMINN ÓSKAR ÖLLUM GLEÐILEGS SUMARS 1 v I I I

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.