Tíminn - 20.05.1964, Page 3
í SPEGLITÍMANS
í skemmtiiðnaðinum leysir
einn annan af hólmi, því að
frægðin er hverful. Og á bak
við allt saman eru sniðugir
fjármálamenn, sem finna upp
á öllu mögulegu til þess að
græða á öllum, og þó einkum
unglingunum.
Það var sjónvarpsþátturinn
brífiki „Ready, Steady, Go!“
sem að gerði „tfhe Beatler"
fræga. Og nú getur sá þáttur
ekki grætt meira á þeim, og
þá er auðvelt að finna upp eitt
hvað nýtt, sem slær Bítlana út.
Þessi nýi skemmtikraftur
heitir „The Rolling Stowes“.
Og nú er það hvorki rokk,-
tvist- eða bítlalög, sem Ieikin
eru, — heldur „blue beat“. —
Aðdáendurnir kallast „Mods“.
Og þeir segja, að í þau fáu
skipti, sem þeir segja eitthvað
skiljanlegt: — „Mods þýðir
modernists, nútímamenn. The
Beatles eru orðnir gamaldags.
Blue beat, maður, blue beat.“
Sjónvarpsþátturinn breiðir
þetta nýja fyrirbrigði ört út.
„The Rolling Stowes“ eru þeg-
ar mjög frægir í Englandi. Og
nú nýlega var þátturinn
Lögð hefur verið fram til-
laga um, að ungar, vanfærar
stúlkur, skuli ekki fá að gifta
sig fyrr en eftir að barnið er
fætt, á ráðstefnu, sem Konung
lega brezka heilbrigðismálafé-
lagið heldur í London þessa
dagana.
Frú Elizabeth Boyd, sem er
háttsett í heilbrigðisstjórninni
í London, segir, að margur
harmleikurinn orsakist af því,
að ungar stúlkur gifti sig ein-
ungis vegna þess, að þær eigi
von á barni. Til þess að koma
í veg fyrir þetta, ætti að setja
lög þess efnis, að þeim væri
ekki leyfilegt að gifta sig fyrr
en t. d. sex mánuðum eftir að
barnið er fætt. Á þeim tíma
ættu foreldrarnir að geta gert
sér grein fyrir því, hvort þau
vilja giftast í raun og veru.
„Ready, Steady, Go!“ tek-
inn upp í Sviss. Og bráðlega
munum við örugglega finna
„mods um allan heim. Hár
þeirra er langt, heimur þeirra
er hljóð og dans. Og svo syngja
þeir, eða öskra: — „Beat, Beat.
We want to go back to Africa.
Beat. Blue beat. Mod. Mod.
Moooooooood“.
★
Sænska Hollywoodleikkonan
Tippi Hedren, sem Alfred Hitc
hcock hefur reynt að gera að
nýrri Grace Kelly, sem ný-
lega lauk mynd sinni nr. 2,
„Marnie“, sem Grace átti upp-
haflega að leika í — hefur aUt
af haldið því fram, að hún ætl-
aði alls ekki að gifta sig í bráð,
En nú hefur hin fagra Tippi
augsýnilega skipt um skoðun.
Hún ætlar nefnilega að giftast
umboðsmanni sínum næstu dag
ana. — „Þá verða prósentum-
ar, sem ég þarf að borga hon-
um, áfram innan fjölskyldunn-
ar“ — segir Tippi!
★
Eddie Fisher hefur nýlega
keypt sér stórt hús í Beverly
Hills, þar sem hann ætlar að
gleyma Liz og Richard Burton
og mörgu öðru. Hann mun nú
reyna hæfni sína sem kvik-
myndaframleiðandi. — Ætlar
hann að láta kvikmynda þekkt-
an söngleik, „Paint Your
Wagon“, og vonast eftir að fá
James Cagney í aðalhlutverk-
ið.
★
Frank Sinatra var nærri
dauður um síðustu helgi. Hann
var í sumarfríi á Hawaii og
fékk sér göngutúr á ströndinni.
Óvenjustór bylgja þreif hann
þá allt í einu með sér og bar
hann til hafs. Varðmennimir
á ströndinni komu auga á hann
og gátu bráðlega dröslað hon
um í land. Var hann mjög illa
á sig kominn og sögðu lækn-
ar, að nokkrum mínútum
seinna hefði verið of seint að
bjarga lífi hans.
★
Veitingahúsin í Rómarborg
hafa búið til nýjan cocktail og
skírt hann „Sophia Loren“ til
heiðurs sinni þekktu leikkonu.
Debbie Reynolds er á góðri
leið með að verða ríkasta kvik
myndaleikkonan í HoIIywood
í fyrsta lagi fær hún geysi-
leg laun fyrir hverja kvikmynd
sem hún leikur í, í öðru lagi
er hún gift milljónamæringn-
um Harry Karl, og í þriðja lagi
hefur fyrirtæki hennar, Har-
man Enterprises, varið 41 millj-.
ónum doUara í nýtt leikhús í
San Carlos við San Francis-
co. Leikhúsið mun taka 3500 í
sæti og verður stjórnað af
Sammy Lewis og Danny Dare,
sem náð hafa miklum vinsæld
um við Melodyland-leikhúsið í
nágrenni við Disneyland. Nat
King Cole, Juliet Prowse og
Jimmy Durante eru meðeigend
ur í leikhúsinu, sem tekur til
starfa í september með „My
Fair Lady“. x
★
f þessum cocktail er jafn mik
ið af apricot brandy, gini og
pineapple juice. Og vafalaust
líður ekki á löngu, þangað til
þyrstir menn geta fengið sér
„Sophiu Loren“ um allan
heim.
Mikið er um að vera í kvik-
myndaheiminum í Belgrad
þessa dagana. Þar er nefnilega
verið að taka fyrstu atriðin í
fransk—ítalskri stórmynd um
hinn fræga ævintýramann frá
Feneyjum, Marco Polo, og hina
stórkostlegu ferð hans. Ekkert
er sparað í kvikmyndina, sem
fengið hefur nafnið „L’Echi-
quicr de Dieu“, eða „Skákborð
Guðs“, og verða hin ýmsu at-
riði hennar tekin í fimmtán
löndum! Kvikmyndaleiðangur-
inn fer frá Belgrad til Aþenu,
Istanbul, Ankara, Theheran,
Nýju Dehli, Rangoon, Bang-
kok ,Cheng-Nei o. s. frv.
Ungi, þýzki leikarinn Horst
Buchholtz, sem leikur Marco
Polo, hefur tekið konu sína,
Myriam Bru, og böm sín með
til Belgrad. Og margir aðrir
frægir leikarar leika í mynd-
inni. Anthony Quinn leikur
Kublai Khan, æðsta mann
Mongólana, og mun allferleg.
ur ásýndum, Elsa Martinelli
leikur „stúlkuna með svipuna“
og auk þess sjáum við Orson
Welles, Peter Ustinov og Ro-
bert Hossein. Hinn þekkti
franski leikritahöfundur, Jean
Anouilh, hefur skrifað mikinn
liluta handritsins, en leikstjór-
ar eru Denys de la Patelliere
og Noel Howard.
Svo margir Kínverjar leika
í kvikmyndinni, að opnað hefur
verið sérstakt kínverskt veit-
ingahús í Belgrad. — Á mynd-
inni sjáum við Elsu Martinelll.
J
Á VÍÐAVANGI
Glóruleysi Vísis
Ritstjórnargreinar Vísis ern
oftast hin furðulegustu smfð.
Þar er öHu er snúið við og
settar fram fullyrðingar, sem
stangast á við staðreyndir, sem
hvert mannsbarn í Iandinu veit
Þannig segir blaðið um þing-
haldið, sem nú er nýlokið: „Það
er eðlUegt að menn renni hug-
anum í þinglok yfir störf lög- .
gjafarsamkundu þjóðarinnar og
spyirji: Hverju hefur hún áork
að? Hér hafa áður verið talin
upp hin fjölmörgu framfara-
má'l, sem ríkisstjórnin bar fram
á þingi. En hver eru verk
stjórnarandstöðunnar? Að vísu
er hún í minnihluta á þingi.
En það er ekki skilyrði þess að
góð mál nái fram að ganga að
þau komi frá þingmeirhlutan-
um, því í fjölmörgum málum
ráða ekki flokksböndin. En
minnast menn eins einasta
þjóðþrifamáls, sem frá stjórnar
andstöðunnj hafi komið? Sú
leit verður erfið, enda er þá
farið i geitarhús að leita ullar.
Sannleikurinn er sá, að starf
stjórnarandstöðunnar hefur ver
ið óvenju neikvætt á þessu
þingi. Þó er kjarni þingræðis-
ins, að stjórnarandstaðan haldi
ekkj aðeins uppi sjálfsagðri
gagnrýni heldur leggi einnig
efnislega til málanna."!!
Málflutningur Fram-
sóknarmanna
Það eru mikil undur, ef rit-
stjóri Vísis lieldur, að það verði
blaði hans og flokki til fram-
dráttar að setja saman svona
greinar. Þingfréttir voru lesnar
í útvarp tvisvar á hverju kvöldi
í a'llan vetur. Þjóðin á þess góð
»n kost að fylgjast með því,
iem á þingi gerist. Þetta þing
»g undanfairin þing hafa Fram-
sóknarmenn lagt fram sæg
mála um nær öll svið þjóð-
lífsins og er það of langt mál
að telja þau öll upp að þessu
sinni. En sameiginleg örlög
þeirra hafa verið, að þau hafa
ekki náð fram að ganga, flest
dagað uppi ekki fengizt af-
greidd firá nefndum þingsins og
er það alvarleg meinsemd í
þingræðinu, ef mál fá ekki
þinglega mcðferð þótt þau séu
borin fram þing eftir þing.
Þannig hefur meirihluti stjórn
arflokkana borið sig að, sér til
lítils sóma og hæfir honum
ekki að hefja grjótkast úir gler
húsi eftir þá frammistöðu.
Jákvæður árangur
En þótt meirihlutinn vilji
ekki samþykkja frumvörp og
tillögur Framsóknarmanna, þá
hafa áhrif stjóirnarandstöðunn.
ar á siðasta kjörtímabili og síð-
asta þingi verið mikil og já-
kvæð. Stjórnin hefur neyðzt til
að taka mörg atiriði úr mála-
flutningi Framsóknarmanna
upp í stjórnarfrumvörp sín og
þannig hafa góð mál náð fram,
því vitanlega skiptir engu, í
hvenra frumvarpi efnisatriði
eru samþykkt, ef mál ná á, ann
að borð fram að ganga.
Ábyrg stjórnarand-
staða.
Á síðasta þingi gerðist það
nýmælj í þingsögu síðustu ára.
tuga, að stjórnarandstaðan
lagði tll lið sitt til að setja á
þjóðina stórkostlegar nýjair á-
Iögur. Þetta varð í sambandi
við setningu nýju vegalaganna
Framhalrt » 15 síðu
TÍMINN, miðvikudaginn 20. maí 1964
3