Tíminn - 20.05.1964, Page 15
HREÐAVATN
Framhald af 16. síclu.
smala lambánum vestan úr
hrauninu og heim í húsin. —
Komst hann við illan leik á
hesti sínum til baka, en fénu
varð ekki k'omið heim fyrr en
í gær, er unglingarnir yfirgáfu
staðinn. Bréfarusl og glerbrot
eru þarna um allt svæðið, og
ekki frýnilegt fyrir fólk að
tjalda þarna í sumar, eins og
það hefur gert á undanförnum
sucnrum. Heimilisfólkinu á
Hreðavatn varð yfirleitt ekki
svefnsamt um helgina, bæði
þurfti' að vakta féð, og svo að
hafa augun opin vegna íkveikju
hættunnar sem stafaði af um-
gangi unglinganna um fjárhús-
in og hlöðurnar. Daníel sagði
að það hefði verið eftirtektar-
vert hve miklar vínbirgðir ung-
mennin hefðu haft með sér. —
Venjulega væri það svo, að vín-
birgðir þryti fyrstu nóttina, en
þarna hefði nú verið blinda
fyllerí í þrjá daga samfleytt. —
Þá hafði blaðið einnig sam-
band við Ásgeir Pétursson sýslu
mann í Borgarnesi, en hann
dvaldist efra mestalla helgina,
og hafði stjóm löggæzlustarí
anna með höndum.
Sýslumaður sagði að nokkrir
hefðu verið fluttir í varðhald í
Borgarnesi, og þar á meðal einn
sem staðinn var að því að efna
til óeirða gegn lögreglunni.
Ungmennin, sem að Hreða-
vatni komu vora, eftir því sem
bílnúmerin gáfu til kynna, úr
Reykjavík, Kópavogi, Hafnar-
firði og af Suðumesjum. Einn
unglingurinn hafði hent steini
í bíl Daníels Kristjánssonar og
brotið rúðu í bílnum. Hann
var fluttur í gæzluvarðhald. Á
milli kl. tíu og ellefu var gerð
allsherjar áfengisleit í bifreið
um við Hreðavatn og höfðust
á milli 40 og 50 séneverspott-
ar upp úr leitinni. Slys urðu
nokkur, en engin alvarlegs eðlis
Alls voru tólf lög
reglumenn við löggæzlustörf
þar efra, frá Borganesi, Alcra-
nesi og Reykjavík, og stóðu
þeir vel í stöðum sinum, sagði
sýslumaður að lokum.
Einn maður var barinn til
óbóta að Hreðavatni. Var það
Skjöldur Magnússon bílstjóri
úr Borgarnesi, sem ráðist var á,
en árásarmaðurinn var Júhann
Víglundsson. Skjöldur er með
áverka á höfði, og bæði augu
hans eru sokkin.
Bjarki Elíasson varðstjóri
hjá Lögreglunni í Reykjavík
tjáði blaðinu, að lögreglan
hefði gert leit að áfengi í bíl-
um á Vesturlandsvegi á laugar
daginn. Var allt áfengi tekið
sem unglingar 21 árs og yngri
höfðu undir höndum, svo og
allt smyglað áfengi. Alls tók
lögreglan 40 flöskur og af því
var um ein þriðji hlutinn ólög
lega innfluttur. Flestar flösk-
uraar áttu þrír piltar 15, 16 og
17 ára, og hefur hafst upp á
manninum sem seldi þeim á-
fengið. Sá hefur aftur á móti
ekki gert grein fyrir því hvem
ig hann fékk það. Bjarki sagði
að lokum að helgin hefði verið
frekar róleg, og engin stórtíð-
indi orðið.
Hafnarfjarðarlögreglan tók
30 flöskur áfengis af ungling-
um í Helgadal á laugardags-
kvöldið. Hafði safnast saman
þarna stór hópur unglinga úr
Reykjavík, Hafnarfirði og
Kópavogi, og verið hátt á ann
að hundrað þegar flest var. —
Nokkrir voru fluttir í Hafn-
arfjörð af lögreglunni, og enn
fremur munu foreldrar nokk-
urra hafa rankað við sér og
sótt afkvæmi sín þarna rétt út
fyrir bæjarmörkin, meira og
minna illa á sig komin. Lög-
reglan í Hafnarfirði hafði vörð
um nóttina þarna uppi í Helga
dal, Sem er skammt frá Kald-
árseli, vatnsbóli þeirra Hafn-
firðinga.
f það heila tekið var hvíta-
sunnuhelgin mun rólegri nú en
í fyrra, er „Þjórsárdalsævin-
týrið“ gerðist. Mun það mikið
því að þakka að nú reyndu yfir
völdin að koma í veg fyrir ó-
sómann í tæka tíð, og höfðu
vakandi auga á ferðum ung-
linganna.
H 95
Upplýsingar í síma 34222
FRAMKVÆMDASTJORI
BlindrafélagiS Plamrahlíð 17, óskar eftir að ráða
framkvæmdastj óra. Verzlunarskólamenntun eða
önnur hliðstæð menntun æskileg og einnig nokk-
ur reynsla í iðnaðarstörfum.
Umsóknir með uppl. um aldur, menntun og
fyrri störf, séu póstlagðar fyrir 20. júní n.k. til
Guðjóns Guðmundssonar, Barmahlíð 6, Reykja-
vík.
NYLONÚLPUR
100% NÆLON
Bamaúlpur, stangaðar nr. 12—14. Kr. 535,00
Fullorðinsúlpur, stangaðar, nr. 46—48. — 715,00
Unglingaúlpur, sléttar, nr. 12—14—16. — 698,00
Dömuúlpur, sléttar, nr. 44—46—48—50—52—54
— 825,00
Herraúlpur, sléttar, nr. 44—46—48—50—52—54
— 825,00
Póstsendum :
KJARAKAUP
Njálsgötu 112
SÚTUNARSTÖÐ
Framhald af 16. síðu.
ins starfaði líkt og áður, en aðal-
íramleiðsla hennar er gólfteppa
band fyrir íslenzkar gólfteppa-
verksmiðjur. Á þessu ári mun S.S.
setja á stofn fullkomna sútunar-
verksmiðju og mun þar, þegar á
þessu ári, verða hægt að súta
nokkurn hluta gæruframleiðslunn
ar úr sláturhúsum S. S. og auka
með því útflutningsverðmætið.
f kvöldverðarboði, sem haldið
var að loknum fulltrúafundi, voru
5 starfsmenn og konur, sem nú
hafa starfað hjá félaginu í 30 ár,
heiðruð Voru þeim þökkuð vel unn
in störf og færð Omega gullúr með
áletruðu nafni starfsfólksins og
merki félagsins. Áður hafa 9 starfs-
menn veiið heiðraðir á sama hátt,
og er allt þetta fólk enn við störf
hjá félaginu.
Á aðalfundi áttu samkvæmt fé-
lagslögum að ganga úr stjóm þeir
Sigurður Tómasson, Barkarstöð-
tim og Ellert Eggertsson, Melafelli
sem baðst eindregið undan endur-
kosningu. Sigurður Tómasson var
endurkjörinn í stjórn, en í stað
Ellerts Eggertssonar var kjörinn
Gísli Andrésson, Hálsi í Kjós. —
Aðrir í stjóm félagsins eru Pét-
ur Ottesen, fyrrv. alþm., formað-
ur, Helgi Haraldsson, Hrafnkels-
stöðum og Siggeir Lárusson,
Kirkjubæjarklaustri.
KAPPREIÐAR
Framhald ai 16. síðu.
. Þetta síðasta svar var stutt og
laggott og þurfti ekki mikillar um-
hugsunar við. Faðir Aðalsteins er
Aðalsteinn Þorgeirsson, bústjóri
á Korpúifsstöðum. Þess má geta,
að í vor lauk Aðalsteinn prófi upp
úr 11 ára bekk barnaskólans á
Brúarlandi og á þvi eftir að taka
fullnaðarpróf.
FEGURÐARSAMKEPPNI
Framhaíd af 1 síðu.
fulltrúi alþjóðasamtaka
i þeirra aðila, sem skipuleggja
fegurðarsamkeppnir.
Þátttakendur keppninnar
munu bæði kvöldin koma
fram í kjólum og sundbolum
og Sonja Egilsdóttir mun í
fjarveru Thelmu Ingvarsdótt
ur krýna sigurvegarana, en
Sonja er á förum til Beirut,
þar sem hún keppir um tit-
ilinn Miss Europe. Hverjum
aðgöngumiða að fegurðar
samkeppninni fylgir atkv,-
seðill, en þá má panta í síma
36618. •
SÍMINN
Framhald af 1. síðu.
frá Patreksfirði til ísafjarðar bæt
ast við 12 af þessum 24 rásum.
Símarásum á milli Akureyar og
Egilsstaða verður einnig fjölgað
um 24, og símarásum á milli Akur
eyrar og Siglufjarðar einnig um
24.
Á VIÐAVANGI
Framsóknarmenn vissu reynd-
ar, að nóg fé var í ríkissjóði
og þessair álögur því óþarfar.
En vissa fékkst fyrir því, að fé
í vegina fengist ekki með öðru
móti og vegakerfið var að
bresta og hið versta ástand
framundan, ef ekki væri að
gert. Þess vegna lögðu Fram-
sóknarmenn álögunum lið og
er þetta gott dæmi um ábyrga
afstöðu stjórnmálaflokks í
stjórnarandstöðu.
SVEIT
12 ára drengur óskar eftir að komast í sveit
í sumar, hefur verið í sveit áður.
Upplýsingar í síma 12323 og eftir kl. 5 í síma
20396.
Hjólhörur - Hjólbörur
Höfum á lager hjólbörur V2 tunnu hjólastærð
4x16 tommur öxull 1 tomma, loftfyllt.
Verð kr. 1950,00 án söluskatts.
Aluminium- og Biikksmiöjan
Súðavogi 42
Trésmiður
vanur verkstæðisvinnu óskast. Getum útvegað hús
næði, ef með þarf.
Upplýsingar í síma 22150.
Vinnuheimilið Reykjalundi
ÞAKKARAVÖRP
Konur, á húsmæðravikunni á Bifröst 10.—15 maf,
senda innilegar þakkir til Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga og kaupfélaga úti um land, og allra þeirra
mörgu, sem á einhvern hátt gerðu okkur dvölina
skemmtilega og ógleymanlega.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra fjær og nær, sem
gerðu mér sjötugsafmæli mitt 5. maí s.l. ógleymanlegt
með skevtum. gjöijim og heimsóknum.
Guð blessi ykkur öIL
Jóhann Kristjánsson, Bakkagerði
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, er sendu mér vin-
hlýjar kveðjur og gjafir á sjötugsafmæli mínu 1. maí
s.l:
Guðmundur Jóhannesson
Hjartkaer elginkona mfn, móðlr, fengdamóðlr og amma okkar,
Guðbjörg Jónsdóttir
frá Telgl í Fliótshlíð,
andaðist í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavfk 9. maf s. I. — Útförln
hefur farið fram. — Innilegar þakkir fyrlr samúð og vlnáttu.
Slggelr Helgason,
Áslaug Siggelrsdóttlr, Frlðjón Slgurðsson,
Ólafur Siggeirsson, Ragnhelður Jónsdóttlr,
og barnabörn.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vlð andlát og útför
Kjai'tans Rósinkrans Guðmundssonar
Jónína S. Jónsdóttir,
synir, tengdadætur og barnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur samúð vlð frá-
l’ll og jarðarför
Hans Jóhannssonar
iárnsmiðs, Reynihvammi 31.
iérstakar þakkir færum við starfsmönnum Landsmiðjunnar og fé-
lagi járnlðnaðarmanna.
Björk Hákonardóttir og börn.
Fósturmóðir okkar,
Sigríður Sæmundsdóttir
frá Borgarfelli í Skaftártungu andaðist að Galtalæk í Land-
mannahreppi á hvítasunnudag 17. þ. m. — Jarðarförin fer fram
frá heimili mínu laugardaginn 23. þ. m. kl. 1 e.h. Jarðsett verður
frá Skarðj. — Fyrir hönd systkina minna og annarra vanda-
manna
Sigurjón Pálsson,
Galtalæk.
TÍMINN, miðvikudaginn 20. maí 1964 —
15