Tíminn - 24.05.1964, Síða 1
15 rakstrar;
!
’wám
114. tbl. — Sunnudhgur 24. mai 1964 — 48. árg.
HNOÐRAR AÐ LEIK
HF-Reykjavik, 23. maí.
ÞESSIR litiu hnoSrar voru að
leika sér í sólsklninu fyrir fram
an Vöggustofu Thorvaldsen-fé-
lagsins, þegar Ijósmyndari Tim-
ans, GE, átfi þar leiS fram hjá.
Þau eru flest rúmlega feins árs
gömul, og því rétf búifi aS iæra
aS ganga, en mörg þeirra eru
yngri og kúrSu þau undir hús-
vegg i vögnum og kerrum. ÞaS
var synd, aS Ijósmyndarlnn
skyldi ekki vera meS litfilmu, þvj
aS gallar barnanna og vagnar
tóku sig vel t í sólskininu í öll-
um regnbogans litum.
SEINNI SLATTUR
SKAÐLEGUR!
OG EINKUM FYRIR NYRÆKTINA
LOGIOG EINAR
í HÆSTARÉTT
FORSETI ÍSLANDS, herra
Ásgeir Ásgcirsson, skipaði
á ríkisráðsfundi í gær l>á
Einar Arnalds, yfirborgar-
dómara, og Loga Einarsson,
yfirsakadóinara, dómara i
Hæstarclti frá og með 1. ág-
úst n. k.
Einar Arnalds er fæddur
í Reykjavík 3. jan. 1911. —
Varð stúdent frá MR 1930,
lauk lögfræðiprófi frá Há-
jkóla íslands í júní 1935,
kynnti sér sjórétt erlendis
fram til ársins 1938, síðan
fulltr. hjá lögreglustjóran
um í Rvik frá vorinu 1939
til ársloka 1943; hdl 1942:
borgardómari í maí 1945 og
yfirborgardómari í Rvík frá
30. des. 1961.
Logi Einarsson er fæddur
í Rvík 16. okt. 1917. Varð
stúdent 1939, cand. juris frá
Háskóla fslands í júní 1944
Fulltr. hjá sakadómaranu n
í Rvík í júní 1944 þar til
1951 er hann varð fulltr. í
Framhald á 15 síðu
FB-Reykjavík, 23. maí
í nokkur ár hafa verið gerðar
tilraunir á Hvanneyri, sem sýna,
að seinni sláttur er mjög skaðleg-
ur fyrir túngróðurinn. Þá hafa ver
ið gerðar tilraunir, þar sem sam-
anburður er gerður á að beita tún
og friða þau, og er hér aðallega
átt við nýræktir. Tilraunirnar
sýna, að bæði beitin og seinni
slátturinn seint á haustin er mjög
skaðleg og auka hættuna á kali.
Agnar Guðnason ráðimautur
sagði okkur frá tilraununum á
Hvanneyri: Árið 1961 var sáð í
nýrækt á Hvanneyri, og voru sum
ir tilraunareitimir slegnir 8. sept.
og fengust af þeim 17 hestburðir
á ha. Aðrir voru slegnir 20 dögum
síðar, og fengust þá 33 hestburð-
ir af ha.
— Árið eftir voru taldar lifandi
grasplöntur í reitunum, og reynd-
ust þá vera 630 plöntur á ferm.,
þar sem fyrr var slegið en aðeins
155 plöntur á seinni reitunum.
Uppskeran varð 51 hestburður á
ha, þar sem slegið hafði verið 8.
september árið áður, en 43 hest
burðir á ha á hinum reitunum, og
var það nær eingöngu arfi. Þess
má að lokum geta, að árangurinn
var enn verri þegar tilraunareit-
imir voru sfðan slegnir í fyrra-
haust.
Agnar sagði, að hin aukna beit
á túnum og nýræktum væri án efa
ein aðalástæðan fyrir gróðurrýrn-
uninni, sem átt hefur sér stað á
síðustu ámm. — Hófleg beit sakar
ekki túngróðurinn, en þessi gengd
arlausa beit, sem á sér stað víða
um land útrýmir fljótlega úr tún-
unum verðmætustu sláttugrösun-
um. Víða em öll hlið opnuð upp á
gátt í byrjun september og ekki
látið í þau aftur fyrr en um jóns
messu. Með þessari beit hafa til-
Framhald á 15 sfðu
Fé keypt í Dalina í
haust og hólfið girt
FB-Reykjavík, 23. maí.
f VOR ver'ður lokið við sauð-
fjárveikigirðingu í Dölum, en eft-
ir er að leggja girðinguna á 20—
30 km. kafla. í Iiaust er síðan æli-
unin að kaupa fé í þrjár svcitir
í Suður-Dalasýslu, Haukadal, Mið-
dal og Hörðudal, og verður féð
keypt í Miðfirði.
— Um næstu helgi fara menn
vestur til þess að leggja girðing-
una, sagði Sæmundur Friðriksson
framkvæmdastjóri í dag. — Nú
verður lokið við 20—30 km. kafla
í Dölunum og er megin hlutinn
frá Bröttubrekku vestur undir Hit
arvatn. Það er búið að flytja allt
efni, og ætti verkið að taka um ?
til fjórar vikur.
1 — í haust á að kaupa fé í Da!-
! ina, í þrjár sveitir í Suður-Daia-
sýsiu og er ráðgert. að það komi
! úr Miðfjarðarhólfinu, þ. e. úr Stað
1 arhreppi og Torfustaðahreppunum
I tveimur, en ef til vill verður að
kaupa eitthvað annars staðar frá.
Ekki er enn búið að athuga, hv3
I margt fé bændur hugsa sér að
| taka, og kemur það ekki i Ijós
fyrr en sést hvernig heyjað verð-
I ur í sumar, en líklega verða þetta
1 uim 12 þúsund lömb.
; Sæmundur sagði, að minna þyrfti
j nú að gera við girðingar en oft
j áður, og byggist það á því, hve
' snjóléttur veturinn hefur verið.
EJ-Reykjavík, 23. maí
MYNDIN hér að neðan
er af Marie-Josee Longpré,
belgísku konunni, sem á-
kærð hefur verið fyrir að
liafa drepið 17 mánaða gam
alt barn sitt, sem var mjög
vanskapað, bæði líkamlcga
og andlega. Hún neitar
þessu, og segir, að barninu
hafi verið rænt.
12. apríl s.l. hringdi frú
Longpré í lögregluna og
sagði, að sonur hennar, Pi-
erre, sem var 17 mánaða,
hafi horfið úr barnavagni
sínum meðan hún skrapp
inn í verzlun. Lögreglan hóf
þegar í stað rannsókn og
viku seinna fannst lík barns
ins fljótandi í Sambre-fljót
inu. Frú Longpré neitaði í
fyrstu að þetta væri sonur
hennar, en játaði það þó síð
ar.
Við krufningu kom í ljós,
Framhald a 15 síðu.
Njólinn tollverndaður?
FB-IIeykjavik, 23. maí
Nokkur óánægja er ríkjandi hjá
bændum og garðyrkjumönnum!
vegna tolla, sem greiða þarf af
ýmsum frætcgundum og jurta- og
illgresislyfjum. Af fóðurkálsfræi j
er greiddur 20% tollur, en enginn !
tollur af fóðurkálinu sjálfu. Af!
lyfjum gegn kálmaðki og kartöflu 1
myglu er 35% tollur, 20% af ill-
gresislyfjum, og nú mun hafa ver
ið rætt um að tollur af lyfjum
gegn njóla og fíflum verði hærri.
Grasfræ og sáðkorn er toll-
frjálst, að því er Agnar Guðnason
ráðunautur tjáði blaðinu, en fóð-
urkálsfræ er tollað um 20%, —
og virðist þetta benda til þess, að
þeir, sem sömdu tollskrána vilji
heldur láta ísl. bændur rækta
kom en fóðurkál. Hjá Tollinum
fékk blaðið síðan þær upplýsing-
ar, að fóðurkálið sjálft væri toll-
frjálst.
Tollur á lyfjum gegn illgresi og
skordýrum er ákveðinn eftir sam
setningu hvers lyfs fyrir sig og í
samræmi við notkun þess. Þannig
er 20% tollur á illgresislyfjum,
en 35% á lyfjum gegn kálmaðki
og kartöflumyglu. Þá hefur einn-
ig verið rætt um að tolla lyf gegn
arfa um 20% en lyf gegn njóla
og fíflum hærra, og verður þá
njólinn tollvemdaður, ef úr þessu
verður.