Tíminn - 24.05.1964, Qupperneq 3
Árlega fer fram í Vestur-
Þýzkalandi kjör á vinsælustu
kvikmyndaleikurum, sjónvarps-
leikurum og söngvurum ársins
og hefur vikublaðið „BRAVO"
með þá samkeppni að gera. —
Lesendur blaðsins greiða sín-
um „stjörnum" atkvæði og síð-
an er haldin mikil hátíð og
gull-, silfur- og bronzverðlaun
afhent. Verðlaunin kallast
•„Grossen Otto“ og sjáum við
mynd af þeim hér fyrir ofan.
Úrslit samkeppninnar fyrir
árið 1063 voru nýlega birt og
á myndunum sjáum við fjóra
vinsælustu kvikmyndaleikarana
og 4 vinsælustu leikkonurnar.
Thomas Fritsch var kjörinn
vinsælasti leikarinn með 50.153
atkvæðum. Næstur kom Rock
Hudson með 38.721, Pierre
Brice með 37.729 og Lex Bark-
er með 34.522. Vinsælasta leik
konan var kjörin hin fagra Sop
hia Loren með 59,187 atkvæð-
um, þá Liselotte Pulver, Doris
Day og Ruth Leuwerik.
Vinsælasta söngkona ársins
1963 var Connie Francis, en
næstar komu Conny Froboess
og Rita Pavone. Vinsælasti
söngvarinn var Cliff Richard
en næstir komu Freddy og Rex
Gildo.
Lotte Tarp er án efa sú feg-
ursta útflutningsvara, sem Dan-
ir hafa framleitt til þessa. Hún
hefur áhuga á að verða kvik-
myndastjarna og er einungis 19
ára. En umboðsmönnum henn-
ar fannst einhvern veginn betra
að hún væri tvítug, svo að hún
hefur elzt um eitt ár. — Lotte
hefur fengið þrjú tilboð í
Bandaríkjunum — eitt um 5
ára samning við kvikmynda-
framleiðanda, annað um að
leika í söngleik á Broadway og "
hið þriðja að taka þátt í kvik
mynd, sem tekin verður á Fil-
ippseyjum.
Hún hefur fengið frest til
þess að hugsa um tilboðin. Og
hún mun örugglega taka ein-
hverju þeirra, því að kvik-
myndaleikkona vill hún verða.
Meðan hún dvaldi í Banda-
ríkjunum var hún 15 sinnum
beðin um að hafa viðtal við
útvarpsfréttamenn og í hvert
sinn varð hún að gera grein
fyrir skoðunum Dana á ástar-
málum. en Bandaríkjamenn
telja Dani mjög lausláta á því
sviði. Og þeir urðu mjög hrifn
ir af Lotte, eða eins og einn
blaðamaður skrifaði í blað sitt:
— „Hún er stúlka, sem jafnvel
Elisabeth Taylor myndi ekki
vilja hafa í húsi sínu!“
Á myndinni sjáum við Lotte
ásamt Anthony Perkins.
Equity Association“, sem hef-
ur um 11 þúsund félagsmenn,
kaus með miklum meirihluta
blökkumanninn Fredrick O’-
Neal sem formann félagsins.
O’Neal er 58 ára gamall.
------------------
Helzta málgagn blökku-
manna í Bandaríkjunum, —
„Ebony“, hefur birt lista yfir
10 hvíta Bandaríkjamenn, sem
blökkumenn geta borið ótak-
markað traust til.
Efstur á listanum eru bróð-
ir Kennedys heitins forseta,
Robert Kennedy, dómsmálaráð
herra, og forseti hœstaréttar
Bandaríkjanna, Earl Warren.
*-----------------
Veðurstofan í Hamborg hélt
upp á 400 ára afmæli Shake-
speares á nokkuð óvenjulegan
hátt.
Veðurstofan hafði iátið gera
rannsókn, sem fékk nafnið
„Shakespeare og veðrið“,— og
komst að þeirri niðurstöðu, að
í leikritum hans sé svo að
segja alltaf norðanvindur, en
aldrei vindur úr austri né
vestri.
Og þoka, hrím og fleiri orð,
sem algeng eru í brezku veð-
urfari, koma einungis örsjald-
an fyrir í verkum hans.
^-----------------
Ein þeirra dönsku stúlkna,
sem leitað hafa hamjngjunnar
sem kvikmyndaleikkonur í
Bandaríkjunum, er stúlkan hér
á myndinni, Greta Thyssen. Og
nú, eftir mörg ár, hefur hún
loksins náð því takmarki sínu
að yerða þekkt leikkona. Og
hún er einig ein af þeim fjölda
mörgu, sem kvikmyndaframleið
endur vilja gera að nýrri Mari-
lyn Monroe, og því skal ekki
neitað, að þær tvær hafa ýmis-
legt sameiginlegt eftir útlitinu
að dæma. — Greta hefur náð
miklurn vinsældum í New Yorli
nýlega, en þar leikur hún aðal-
hlutverkið í gamanleikriti, sem
ber hið ágæta nafn: „í eitt rúm
— og úr öðru“. — En Greta
hefur náð í fleira en frægð
í Bandaríkjunum- Hún krækti
sér nefnilega í sæmilega efnað
an viðskiptamann, Ted Guntli-
er að nafni.
gamalli hárgreiðslustúlku af
tyrkneskum ættum. f rauninni
er einungis eitt, sem skyggir á
— þau skilja nefnilega ekki
hvort annað bg geta því ekki
talazt við! — En það hindrar
þó ekki ást þeirra. Þau ætla að
gifta sig í júní og jafnskjótt og
þjóniwtutíminn er úti, flytja
þau til Svíþjóðar, en sænski
hermaðurinn á benzínstöð í
Malmö.
v*------------—--------
Nikita Krustýoff er vanur
að hamra á því, að hann sé trú-
leysingi. En þó skilur hann
hversu mikla þýðingu trúar-
brögð annarra þjóða geta haft
og kann vel að notfæra sér það
stjórnmálalega.
Hann hefur nú um tíma ver-
ið í heimsókn í Arabíska Sam-
bandslýðveldinu og færði hann
þá hinum fræga háskóla í
Kairo, A1 Axhar, að gjöf mjög
sjaldgæfa útgáfu af Kóranin-
um á rússnesku.
Hin fagra drottning Thai-
lands, Sirikit, hefur látið inn-
rétta í höll sinni í Bangkok
nútíma kvikmyndahús með
geysistóru tjaldi og 80 sætum.
Erlend kvikmyndafélög taka
nefnilega margar kvikmyndir
í frumskógum Thailands — og
þegar kvikmyndin er tilbúin,
þá er venja að senda Sirikit
drottningu eitt eintak af henni
sem þökk fyrir gestrisni henn-
ar.
Blökkumenn hafa unnið enn
einn sigurinn I Bandaríkjun-
um. Leikarafélagið „Actors’
Hópur vísindamanna við Rut-
gers-háskólann í Bandaríkjun
um hafa rannsakað með mikilli
nákvæmni áfengisvandamálin s
1. 3 ár. Og þeir hafa komizt
að þeirri niðurstöðu, að þörfin
fyrir sterka drykki sé bundin
menntun mannanna. — f
gagnfræðaskólunum neyta um
50% nemenda verulega áfengis,
í menntaskólunum 70% og þeg
ar upp í háskólana kemur,
neyta um 85% nemendanna á
fengis verulega.
Þýzka leikkonan Marion
Michael hefur fengið borgaðar
um 2 milljónir íslenzkra króna
i skaðabætur fyrir bifreiðaslys,
sem hún lenti í. Marion er
helzt þekkt fyrir leik sinn í
kvikmyndinni „Liane — stúlk-
an frá frumskóginum“, en þar
lék hún fremur fáklædda frum-
skógarstúlku. — Árið 1959 lenti
hún í árekstri við mann á mót-
orhjóli og skaðaðist á hökunni.
Fékk hún af þeim sökum ör,
sem hún kvað hafa haft slæm
áhrif á kvikmyndaferil sinn.
Hermennirnir, sem eru í
gæzluliði Sameinuðu þjóðanna
á Kýpur, eiga líka sínar glöðu
stundir. Og nú hefur einn
sænsku hermannanna opinber-
að trúlofun sína með 17 ára
TÍMFNN, sunnudaginn 24. maí 1964
V