Tíminn - 30.05.1964, Síða 5

Tíminn - 30.05.1964, Síða 5
úiri helgin Um helgin'a verða háðir 5 leikir í íslandsmótinu í knattspyrnu — tveir í 1. deild og lnrír í 2. deild. Auk þess fer síðasti leikurinn í Reykjavíkurmóti 1. flokks fram. Lítum nánar á Jeik- i.na. Keflavík—Akranes • Á sunnudaginn klukk- an 16, leiða saman hesta sír-g Keflavík og Akranes í 1. deild, og fer leikurinn fram á Njarðvíkurvellinum. Héff er um að ræða leik, sem margir bíða spenntir eftir. Bæði félögin hafa teflt fram sterkum 'liðum í byrj- un kepipnistímabilsins, og margir eru þeinrar skoðun- ar, að þessi lið berjist um efsta sætið ásamt KR. Akra- nes hefur leikið tvo leiki, — gegn Þrótti á heimavelli, og gegn Fram í Reykjavík — unnið báða leikina. Hef- ur Akranes nú forystu í dcildinni. Keflavík hefur hins vegar aðeins leikið einn leik gegn Fram, og sigraði. Eftir því sem bezt er vitað, er ekki um nein for- föll að ræða hjá liðunum — og væntanlega verður því iim harða og skemmtilega viðureign að ræða á Njarð- víkurvellinum á morgun. Fram—Valur • Á sunnudagskii’öld kl. 20.30 mætast svo Fram og Valur í 1. defld á Laugair- dalsvellinum. Bæði liðin hafa farið illa af stað í keppninni að þessu sinni — með ekkert stig eftir tvo Ieiki. Nú er hvert stig dýr- mætt, og berjast bæði lið- in örugglega til þrautair. Einhverjar breytingar verða á Valsfliðinu frá síðasta leik — gegn Þrótti — en Fram- liðið verðuir líklega það sama og gegn Akranesi. Víkingur—ÍBV • Vestmannaeyingar mæta Víkingi á Melavellinum í 2. deild á sunnudag, og hefst leikurinn kl. 16. Þetta verð- ur fyrsti leikur Vestmanna- eyinga í keppninni, og verð- ur eflaust gaman ag sjá til þeiirra. Tindast.—ÍBA • Akureyringar bregða sér til Sauðárkróks á sunnu- dag og mæta heimamön-num þar í 2. dei'ldar keppninni, hefst leikurinn kl. 16. Akur- eyiringar hafa sýnt skínandi góða leiki að undanförnu, og almennt er því spáð, að þeir muni endurheimta sæti sitt í 1. deild. KS—ÍBÍ • Á Siglufirði mæta heimamenn fsfirðingum í 2. deild á sunnudag, og hefst leikurinn kl. 16. Siglfirð- ingar áttu gott lið á síðasta ári, en voru óheppniir í sam- skiptum sínum við Reykvík inga. ísafjarðarliðig ætti að vera sterkt núna, því Björn Framhald á 13. síðu 'Hér hefur hætta skapazt upp við mark Akraness. 'Helgi Númason, iengsttil hægri, hefur gefið fyrir markið til Guðmundar Óskarssonar, en þeir eru þrír gegn einum, Jón Leósson, Bogi Sigurðsson og Helgi Dan. — og hættunni er bægt frá. (Ljósm.: TÍMINN, GE). FRAM LÉK VEL í 10 MÍNÚT- UR, EN Þ A Ð DUGÐISKAMM T SKAGAMENN TÓKU FORYSTU í 1. DEILD MED SIGRIGEGN FRAM, 3:2, í FYRRAKVÖLD. Alf-Reykjavík, 29. maí Skagamenn tóku forystu í 1. deildar keppninni með sigri gegn Fram á Laugardalsvelli, 3:2, á fimmtudagskvöld. Leikurinn var nokkuð skemmtilegur fyrir áhorfendur, sem fengu að sjá góða leikkafla hjá báðum liðum. Og ekki má gleyma þætti Geirs Kristjánssonar, markvarðar Fram er skemmti áhorfendum oft með alls kyns ólátum í markinu, ef hann þaut þá ekki út á miðjan völl og greip inn í varnaraðgerðir með því að skalla knöttinn fram. Þótt áhorfendur hafi skemmt sér konunglega vegna þessara skrípaláta, er ég ekki viss um, að leikmenn Fram hafi skemmt sér eins vel, því spaugið gat orðið liðinu dýr- keypt. — En nóg um það. Skagamenn voru vel að sigrinum komnir, þótt litlu munaði, að þeir yrðu að sætta sig við jafntefli. Það voru gömlu kempurnar, Ríkharður og Donni, sem unnu að sigurmarki Akraness, þriðja markinu, sem kom 10. mín. fyrir leikslok. Rík- harður brunaði upp kantinn hægra megin og lagði knöttinn fyrir Donna, sem rak endahnút- inn með góðu skoti, er Geir réði ekki við. Fyrstu 10. mín. leiksins boðuðu sannarlega ekki Afcranessigur, því á þessum fyrstu mínútum náði Fram-liðið mjög vel saman og hvað eftir annað skapaðist hætta upp við mark Akraness. Uppskera Fram var svo mark á 7. mín. Bald- ur Scheving lék upp að endamörk um hægra megin og gaf vel fyrir til Hallgríms Scheving, sem skor- aði viðstöðulaust 1:0. En það var aðeins í 10 mín., sem Fram-liðið lék virkilega vel og réði gangi leiksins. Skagamenn tóku að átta sig á hlutunum og þess var ekki langt að bíða, að Jón Leósson og Sveinn Teitsson næðu tökum á miðjunni með góðri aðstoð þeirra Ríkharðs og Eyleifs. Fyrsta alvar lega hættan við Fram-markið var á 28. mín. þegar Jóhannes Atla- son, hægri bakv., bjargaði á línu, eftir misheppnað úthlaup Geirs á móti Eyleifi, sem skaut yfir hann. Á 32. mín. jafnaði svo Akranes, 1:1. Sveinn Teitsson sendi knött- inn vel fram miðjuna að marki Fram. Sóknarmenn Akraness „pressuðu" vel og Eyleifi tókst að fylgja sendingunni eftir og skora. Aðeins 6 mín. síðar mátti sjá 2:1 fyrir Akranes á markatöflunni. Aukaspyrna var tekin rétt fyrir t utan vítateigslínu og upp úr henni tókst Ríkharði að skora með skalla. í þessu tilfelli var Geir ekki með á nótunum og hefði vissulega átt að geta afstýrt hætt- unni. — En þannig lauk sem sé fyrri hálfleik, 2:1, fyrir Akranes. í síðari hálfleik sóttu Skaga- menn mun fastar, voru yfirleitt fljótari á knöttinn og þeir höfðu öll völd á miðjunni. Engu að síður varð það samt Fram, sem varð fyrra til að skora. Jöfnunarmark Fram kom á 21. mín. og allan heið urinn af undirbúningi átti hinn ungi innherji, Helgi Númason, sem vippaði laglega yfir varnarmenn Akraness til Grétars Sigurðsson- ar, sem skoraði auðveldlega fram hjá Ilelga. Markið hleypti lífi í Fram-liðið og það var engu lík- ara en Fram ætlaði að taka leik- inn í sínar hendur. Én fljótlega sótti aftur í sama farið og sigur- mark Akraness kom á 35. mín. eft- ir góðan samleik þeiira Ríkharðs og Donna. Sem fyrr segir var leikurinn nokkuð skemmtilegur. Akranes- liðið vann verðskuldaðan sigur, sem varð fyrst og fremst til vegna baráttuvilja liðsmanna. Framlín- an var sterkari hluti liðsins með innherjana, Ríkharð og Eyleif, sem Framhald a 1S. siSu. Norskur skíöa- kennari Hinn þekkti, norski skíða- • þjálfari, Ketill Rödsæther frá Bergen, mun koma til íslands um miðjan júnímánuð og þjálfa íslenzkt skíðafólk í alpa. greinum. Hinn norski þjálfari mun fyrst um sinn dveljast á Siglu- firði og fara þá æfingar fram í Siglufjarðarskarði. Er skíða fólk, sem hefuir áhuga á að taka þátt ■ námskeiði Norð mannsins, beðið að hafa sam- band við formann Skíðaráðs Siglufjarðar, Tryggva Sveim hingað björnsson. Einnig kemur til greina, að Norðmaðurinn haldi námskeig á Akuireyri, og mun það þá verða í samráði við Skíðaráð Akureyrar. Þess má geta, að Rödsæther þjálfaði reykvísku skíðamenn- ina, sem dvöldu í Solfonn í Noregi nú fyrir skömmu. Hann er meðal þekktustu skíðakenn- aira Noregs — og hefur ann- azt skíðakennslu i mörgum löndum. Hann kemur nú hing- að fyrir mi'lligöngu Skíðaráðs Reykjavíkur. Halldór Sigurbjörnsson (Donni) þjarmar her að Geir markverði. RlTSTJÓRi HALLUR SIMONARSON *

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.