Tíminn - 30.05.1964, Side 15

Tíminn - 30.05.1964, Side 15
ÖSKJUGERÐ Framhald af 16. stðu. hluthafar. Önnur tillaga var samþykkt á fundinum í dag, en hún var sú, að stofnað skyldi stéttarsamband framleiðenda sjávarafurða. Þeir aðilar, sem framleiða og flytja út sjávarafurðir, hafa hugsað sér að mynda þetta samband, en til gangurinn er að safna þeim öllum í einn félagsskap. Samband þetta cnun verða nokurs konar opinber málsvari fiskiðnaðarins, fjalla um ýmsa samninga og auka þekkingu á iðnaðinum. GUNNAR LÆRIR Framhald af 16. síðu. á 120 daga en lei'karinn sá sér ekki fært að vera að heiman svo lengi. Þegar Gunnar hefur dvalizt 60 daga í Boston, mun hann ferð- ast um Bandaríkin og kynna sér ýmsar aðrar sjónvarpsstöðvar. — Algengt er að menn frá löndum, sem eru að koma sér upp sjón- varpi, séu þjálfaðir við þessa sjón varpsstöð í Boston, en Gunnar imin einkum léggja áherzlu á leik stjóm styttri leikrita og undirbún ing og stjórn ýmissa dagskrár- atriða. íþróttir beztu menn. Ríkharður var sívinn andi í leiknum og lék félaga sína upp. Eyleifur er íhugandi leikmað ur, sem flanar ekki að neinu. — Sveini og Jóni tókst vel upp í framvarðastöðunum, en aftasta vömin var veikasti hluti liðsins. Helgi Dan. átti nú ólíkt betri leik en með „landsliðinu" gegn KR á dögunum. Fram-liðið saknaði Baldvins Baldvinssonar og Ásgeirs Sigurðs sonar í þessum leik og hafði það sín áhrif. Það er auðséð á öllu, að Fram-liðið getur verið sterkt með sama baráttuvilja og réði ríkj um fyrstu mínúturnar. En því var ekki að heilsa og því fór sem fór. Af sóknarmönnum var Helgi Núma son beztur og þarna er á ferð leik maður, sem vert er að gefa gaum. Guðjón Jónsson var mjög sterkur í framvarðarstöðu og sömu sögu er að segja um báða bakverðina, Jóhannes og Sigurð Einarsson. — Geir Kristjánsson átti sæmilegan dag í markinu, en skrípalæti hressa alls ekki upp á „getuna“... Dómari í leiknum var Baldur Þórðarson og hefur honum oft tekizt betur upp. T. d. fór það alveg fram hjá Baldri, þegar Rík- 'harður varði knöttinn með hönd- urn innan vítateigs Akraness í fyrri hálfleik, þegar Fram tók óbeina aukaspyrnu. 400 MÍN. FLUG samning um kaup á tveim skrúfuþotum af gerðinni Rolls Royce, en nafn sitt dregur þessi gerð flugvélanna af hreyfl unum fjórum, sem eru af Rolls Royce-gerð. Leifur Eiriksson tekur 160 farþega og á henni er 10 manna áhöfn — sex við þjónustustörf og fjórir við stjórn flugvélarinnar. Farþega- rýmið er bjart og vistlegt í alla staði, en hinni nýju gerð sæta, sem á að vera í vélinni hefur ekki verið komið fyrir og verður það ekki gert fyrr en í ágúst n.k. að öllum lík- indum. Þreföld sætaröð er hvoru megin í vélinni, og tvö eldhús — fremst og aftast. — Rolls Royce vélarnar, sem Loft leiðir fá, eru báðar nýjar, koma beint úr verksmiðjunni, og fyrstu vélamar, sem framleidd ar eru af þessari gerð til far þegaflugs. Það má m-eð sanni segja, að í dag hafi verið stigið stórt spor í sögu íslenzkra flugmála með komu þessarar Rolls Roy ce vélar til landsins, og í nóv n.k. mun önnur vél sömu gerð ar koma til Loftleiða. Við ósk um Lóftleiðum til hamingju með þennan stóra áfanga í sögu félagsins. VINABÆJAMÓT Framhalc aí 16. síðu. þátttöku í þessari ferð, þurfa að hafa sent umsóknir til formanns hlutaðeigandi félagsdeildar fyrir 10. júní n.k. Félagsm. frá þeim bæjum, sem ekki hafa formlega samþykkt vinabæjartengsl, er einn ig heimilt að gerast þátttakendur og munu þeir þá væntanlega vera gestir í þeim bæjum sem ráðgert er að verði þeirra vinabæir, eða að öðrum kosti verða þeir í hópi þátttakanda frá höfuðborginni. Ef einhvern, sem ekki er félagsmað ur Norræna félagsins, langar til að taka þátt í ferðinni, er honum heimilt að sækja um, svo framar- lega sem hann gerist félagsmað- ur um leið. Norræna félagið í Danmörku hef ur boðið 25 islenzkum kennurum að dveljast um mánaðartíma í Dan mörku í sumar. Munu þeir lengst af verða á Askov lýðháskóla, en einnig verður nokkurra daga dvöl í Kaupmannahöfn. Þetta er liður í hinum gagnkvæmu kennaraheim boðum, sem átt hafa sér stað á milli Dana og íslendinga nú um lO^ára skeið. f ágúst í surnar verður efnt til norræns æskulýðsnámskeiðs hér á landi. Hefur sex fulltrúum ver- ið boðið frá hverju landi, Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Sví- þjóð. Einnig hefur 3—4 ungling- um frá Færeyjum verið boðin þátttaka. Námskeiðinu verður þannig háttað, að fyrst verður vikudvöl, kynning og nám á heima vikudvöl, kynning og nám í heima daga dvöl á sveitaheimili. Svo verður dvalizt nokkra daga í heimavistarskóla að nýju og að lokum verður 2—3 dögum eytt í Reykjavík. SLYS _______________________ Framhaid af 16. síðu. síldarþróna, þegar hann féll nið- ur í hana, og var þetta mikið fall, eða einir 8 metrar. .Hann lenti á járnslá á niðurleiðinni, og kann það að hafa dregið úr fallinu, en einnig hefur hann getað hlotið meiri meiðsli af þeim sökum. Heimir kom niður á herðarnar, en síðan slóst höfuð hans utan í þróarvegginn. Héraðslæknirinn frá Þórshöfn var staddur hér á Raufarhöfn þegar slysið vildi til, en Raufarhafnarlæknirinn var fjarverandi. Læknirinn sagði þeg- ar til um meðferð hins slasaða manns, en lét um leið hringja eft- ir flugvél, sem kom og flutti Heimi til Akureyrar. Hann kom á sjúkra húsið á Akureyri rétt fyrir klukk- an 9 í kvöld. Þegar blaðið hafði tal af yfirlækninum um hálf tíu í. kvöld sagði hann að rannsókn væri enn ekki lokið enn allt benti til að maðurinn væri höfuðkúpu- brotinn og væri hann rænulítill. NEHRU Framhaid af 1 síðu. væri, að eftirmaður Nehrus yrði kjörinn fljótlega og að val hans væri samþykkt af öllum skoðana- hópunutn innan Kongressflokks- ins. — ,Þetta er ekki staður né stund fyrir klofning “ — skrifar óháða blaðið HINDUSTAN TIM- ES. — .,Það er mjög þýðingarmik- ið. að kjör forsætisráðherrans verði gott og samhljóða. Ef Kon- gress-flokkurinn sýnir merki klofn unai nú táknar þag byrjunina á upplausn flokksins." ‘ Mitt á milli öfgahreyfinganna innan floksins stendur Lal Baha- aur Shastri, sem lengi hefur starf- að sem eins konar varaforsætis- ráðherra. Núverandi forsætisráð herra, Gulzarilal Nanda, er frekar vinstrismnaður og hefur hann alltaf vilja‘3 ná sáttum við kín- verska kommúnista, en þá hefur hann alárei fordæmt. Fyrrverandi varnarmálaráð- herra, Krishna Menon, sem ræður rdttanámskeiö yfir stórum hóp innan Kongress- flokksins, hefur ekki komið fram með neinn frambjóðanda til emb- ættisins. en það er talið mjög þýð- ingarmikið fyrir hina frambjóð- endurna að fá stuðning hans. Segja áreiðanlegar heimildir, að hann muni einna helzt styðja fyrr- um fjármálaráðherra, Morarji De- sai, öfgamann til hægri, af því að hann vilji annaðhvort fá róttækan leiðtoga, eða mjög hægri sinnað- an, í stað miðlínumanns eins og t.d. Shastri. SURTUR SEIDDI Framhald af 1. slSu. 9—10 vikur, Michael er tann- smiður, og verður í minnsta kosti 3 mánuði. Stewart er í Belfast- háskóla og lærir þar frönsku og spænsku og langar mikið til að læra líka íslenzku. Að lokum hitti fréttaritari Tím- ans að máli James Craig Bryan frá Skotlandi. Hann er hárgreiðslu meistari, og kemur frá einni út- borg Glasgow, og hefur dvalizt héma síðan í janúarlok. Hann er sammála írunum um, ag hér sé vinnutíminn of langur, en býst samt við að verða hérna að minnsta kosti í sumar, en vildi gjaman vera lengur, ef hann fær starf við sitt hæfi. Hann sagði, að m.a. hefði það verið Surtur, sem lokkaði hann til fslands og vakti áhuga hans á landinu. Samningar undir- ritaðir í dag HF-Reykjavík, 29. maí Klukkan 10 í fyrramálið verður leigusamningurinn á milli Loft- leiða og ríkisstjómarinnar um leigu flugvallarhótelsins 1 Kefla- vík undirskrifaður. Langt er síð- staðið hefur á undirskriftunum. Eftir að nauðsynlegar breytingar hafa verið gerðar á hótelinu munu Loftleiðir flytja þangað mikið af starfsemi sinni, en einnig munu þeir reka þarna veitingastofu. Samsöngur Söngkór Aðventkirkjunnar held ur kirkjutónleika sunnudaginn 31. maí í Keflavíkurkirkju kl. 16 og í Hótel Hveragerði kl. 21,30 sama dag. f kórnum eru 26 söngvarar. Ein söngvarar og tvísöngvarar eru frú Anna Johansen og Jón Hj. Jónsson. Undirleikari kórsins er frú Sólveig Jónsdóttir. Söngstjóri | Jón Hj. Jónsson. Aðgöngumiðar við innganginn á kr. 35. HÓTEL SAGA Framhald af 2. síðu. mun útvega herbergi úti í bæ fyr- ir þá, er þess óska. Er fréttamaður spjallaði við forstöðumanninn. Erling Halldórs- son, á dögunum, sagði hann, að í framtíðinni væri ætlunin að á þessari lóð yrði reist stórt og gott hótel, en á meðan það væri ekki fgyrir hendi, yrði reynt að koma til móts við óskir gesta í þeim húsakynnum, sem nú væru fyrir Þar hefir allt verið tekið i gegn, og búið í haginn bæði fyrir gesti og starfsfólk, en það verður 8—10 manns í sumar. Bátar i siippum Sú Ieiða villa varð í umbroti forsíðu Tímans í gær, að í að- alfyrirsögninni stóð „Slippnum“ en átti að vera „slippunum“. Hugs unin var sú að hundruð báta þyrftu að komast í slippi landsins fyrir síldarvertíðina, en ekki bara í dráttarbraut Slippfélagsins í Reykjavík. f gær hófust á fjórum íþrótta- svæðum í Reykjavík námsskeið í íþróttum og leikjum á vegum Æskulýðsráðs, Leikvallanefndar, íþróttabadalagsins og fþróttavall- anna. Verða námsskeið þessi fyrir börn og unglinga á aldrinum 5— 13 ára. Á - hverjum stað verður nám- skeiðunum tvískipt, fyrir hádegi kl. 9,30—11,30 verður tekið við börnum 5—9 ára en eftir hádegi við eldri börnum, 9—13 ára, og þá kl. 14—16. Á hverjum stað verða 2 íþróttakennarar, karl og kona, sem leiðbeina börnunum. FB-Reykjavík, 28. maí Eimskipafélag íslands Iiefur sent út áætlun sína, sem gildir frá maí til desemberloka. Samkvæmt áætluninni munu skip félagsins hafa fasta viðkomu í 7 erlendum höfnum, auk þess sem þau munu sigla til Noregs, Svíþjóðar, Finn lands, Rússlands og Póllands og annarra landa, og verður flutnings þörfin látin ráða, hve oft verður komið við í þessum Iöndum. Gullfoss siglir nú eins og venju lega milli Reykjavíkur og Kaup- mannahafnar með viðkomu í Leith og hefur verið mikil eftirspurn eftir farmiðum með skipinu. Hins eru nu laus rúm fyrir nbkkra far þega í næstu tveimur ferðum skips ins. Ein af nýjungunum í áætlun Eimskips að þessu sinni er, að nú verða ferðir til Rotterdam og Ham borg á tíu daga fresti, og til Bret- lands 3—4 sinnum í mánuði, þ. e. hálfs mánaðarlega til Leith eins og venjulega og auk þess á þriggja vikna fresti til Hull, einnig verður stöðum: Ármannssvæði, Valssvæði Víkingssvæði og KR-svæði. Á þess um stöðum verður kennt á mánu dögurn, miðvikudögum og föstu- dögum. Á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum verður kennt á þessum stöðum: Laugalækjarblettur, Skipasunds blettur, Golfvöilurinn og Álf- heimablettur. Innheimt verður vægt þátttöku gjald fyrir tímabilið, sem verður 4 vikur. Gjaldið er kr. 25. Allar upplýsingar eru veittar í símum 15937 (Æskulýðsráð) kl. 2—4 og 10655 (ÍBR), kl. 4—6 daglega. komið við í Antverpen á þriggja vikna fresti. Ferðir til NY verða eins og venjulega, en við þetta bætist, að komið verður við í höfnum í Nor- egi, Svíþjóð og Finnlandi og j löndum við Eystrasalt 1—2 í mán uði eftir þvi, sem flutningsþörfin verður hverju sinni. Hásetahlutur 114 þús krónur AS-Ólafsvík, 28. maí Vertíð lauk í Ólafsvík 15. maí, og eru bátarnir nú senn að búast til síldveiða. Aflahaesti Báturinn' á vetrarvertíðinni var Stapafell með 1351,5 lestir og er hásetahlut- urinn 114 þús. krónur. Skipstjór- inn á Stapafelli er Guðmundur Kristjónsson. Annar aflahæsti báturinn varð Steinunn SH 207 með 1105,3 lest- ir og hásetahlutur 93,000 kr. — Þriðji í röðinni var Jón Jónsson með 1076 lestir, en hásetahlutur- inn var 90 þús. kr. ÞAKKARAVÖRP Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auðsýndu mér hlýhug á sjötíu og fimm ára afmæli mínu þann 27. apríl s.l. Methúsalem Methúsalemsson, Burstafelli. Hjartans þakkir færum við öllum vinum og vanda- mönnum, sem glöddu okkur hjónin á gullbrúðkaups- daginn 21. maí s.l. með heimsóknum, höfðinglegum gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur öll í nútíð og framtíð. Margrét Steinsdóttir, Ólafur Sveinsson, Syðra-velli. Vandamönnum og vinum, sem á margvíslegan hátt glöddu mig með gjöfum, heillaskeytum og margslags annarri hugulsemi á áttræðisafmæli mínu 24. marz 1964, færi ég hugheila- þökk. Guð blessi ykkur öll. Jónína Guðrún Jónsdóttir Valdasteinsstöðum, Hrútafirði. Þórunn Ó. Benediktsdóttir Ingólfsstræti 9, Reykjavík, andaðist á Borgarsjúkrahúsinu fimmtudaginn 28. maí. Kristján Halldórsson. og b6rn hinnar látnu. ari’ gengið vár frá samningum, en vegar hæ.fta margir við. fcrðir. á síðustu stundu,-og- af þeim sökum í dag verður byrjað á þessum Fastar viökomur i sjö höfnum T í M I N N , laugardaginn 30. maí 1964 — 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.