Tíminn - 30.05.1964, Síða 16
KJ-Reykjavík, 29. maí
Rúman hálfan sjöunda tíina
eða fjögurhundruð mínútur tók
það Leif Eiríksson, hina nýju
Rolls Royce flugvél Loftleiða
h.f., að fljúga frá Kennedy-flug
velli við New York og hingað,
á KeflavíkurflugvöII. Þá hafði
verið farin einn hringur yfir
Surti til að sýna hann gestum
Loftleiða, sem um borð voru,
og annar hringur yfir Reykja-
vík, svo Reykvíkingar gætu lit
Ið með eigin augum þessa 1G0
farþega skrúfuþotu Loftleiða.
Töluverður fjöldi fólks hafði
safnazt saman við flugstöðvar-
bygginguna á Keflavíkurflug-
velli, er Leifur Eiriksson lenti
þar á vellinum um stundar-
fjórðungi fyrir tólf. Þar voru
mættir stjórnarmenn og fram
kvæmdastjóri Loftleiða, Alfreð
Elíasson, ásamt mörgum starfs
mönnum Loftleiða. Kona Al-
freðs, frú Milla, færði flugstjór
anum, Magnúsi Guðmundssyni,
fagran blómvönd, en þá höfðu
margir gestir stigið úr vélinni.
Þeirra á meðal voru Thor
Thors ambassador, Hannes
Kjartansson ræðismaður, Árni
Helgason ræðismaður, Björn
Björnsson og frú frá Minnea-
polis, Grettir Jóhannsson ræðis
maður, Sigurður Helgason
framkvæmdastjóri Loftleiða i
New York, Pétur Benedikts-
son, bankastjóri, Sveinn Val-
fells iðnrekandi og að ógleymd
um íslenzku blaðamönnunum,
er komu frá New York ásamt
kollegum sínum þaðan og ferða
shrifstofufólki.
Gestum var síðan boðið að
skoða vélina, og í dag fór hún
svo tvisvar sinnum í hringflug
yfir Suðvesturland með opin-
bera embættismenn, fólk, sem
starfar að ferðamálum og
blaðamenn. — Leifur Eiríks-
son verður almenningi til sýn-
is fyrir utan flugstöðvarbygg-
inguna á laugardag frá 16—18.
Einkennisstafir hinnar nýju
vélar eru TF-LLF og nafnið
Leifur Eiríksson, en það var
áður á einni Cloudmaster vél
Loftleiða, er nú heitir Bjarni
Herjólfsson.
Það var um miðjan febrúar
s.l., að Loftleiðir undirrituðu
Framhald ð 15 sfðu
MYNDIN hér að ofan er tekin við komu Leifs Eiríkssonar. Á myndi nni má m. a. sjá Penfield ambassador, Thor Thors ambassador, Kristján
Guðlaugsson, stjórnarformann Loftleiða, og Sigurð Magnússon, blaða fulltrúa. Myndin efst á síðunni er tekin inni í vélinni í fluginu yfir
Reykjavík. (TÍMAmynd, KJ).
Áttatíu manna vinabæja-
ferð til Norðurlandanna
HF-Reykjavík, 29. maí
20. júní n.k. munu 80 manns
fara héðan í vinabæjarferð til
Norðurlanda. Það er Norræna fé-
lagið, sem efnir til þessarar ferð-
STÓR
SLYS
HH-Raufarhöfn, 29. maí
Um klukkan hálf sex í dag
varð það slys hér á staðnum,
að ungur piltur, Heimir Sveins
son, 17- ára, féll niður í síld-
arþró og mun hann líklega
hafa höfuðkúpubrotnað, sam-
kvæmt upplýsingum frá yfir-
lækni sjúkrahússins á Akur-
eyri, en Hcimir var þegar
fluttur til Akureyrar eftir
að slysið varð.
Heimir hafði verið að vinna við
Framhald á 15, síðu.
ar, en fararstjórar verða þeir
Hjálmar Ólafsson bæjarstjóri og
Jónas Eysteinsson, kennari. — Á
milli 10 og 20 bæir og byggðarlög
hér á landi hafa stofnað til vina-
bæjatcngsla við bæi á Norður-
í löndum.
Áætlað er að ferðin niuni taka
18 daga og ferðakostnaður verður
11.000,00 krónur á mann. Ferðin
hefst með því, að flogið verður til
Kaupmannahafnar og dvalizt þar í
einn til tvo daga, síðan fara full-
trúarnir hver til síns vinabæjar
í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og
Finnlandi. í vinabæjunum verður
dvalizt tvo til þrjá daga, en svo :
er hugmyndin að allir þátttakend-
ur verði komnir til Helsingfors 5.'
júlí og taki þar þátt í ráðstefnu ;
Norrænu félaganna dagana G.. 7
og 8. júlí. Mánudaginn 8. júlí
vcrður svo flogið beint lil Reykjs
víkur.
Þeir félagsmenn, sem óska eftir
Framhalo » 15 sfðu
GUNNAR EYJÓLFSSON
GUNNAR LÆRIR
LEIKSTJÓRN í
SJÓNVARPSSAL
HF-Reykjavík, 29. maí
Bandaríska utanríkisráðuneytið
hefur boðið leikaranum Gunnari
Eyjólfssyni að dveljast í Boston í
j 60 daga og kynna sér sjónvarps-
! leikstjórn. Gunnar mun verða við
j sjónvarpsstöð i Boston, sem er í
; tengslum við Princeton-háskóla.
1 Er þetta nokkurs konar kennslu-
j sjónvarp, sem sjónvarpar leikrit-
! um og öðru menningarefni.
j Boðið hljóðaði upphaflega' upp
Frimhald i 15. sfðu.
S.H. STOFNAR ÖSKJUGERDINA
HF-Reykjavík 29. maí.
Aðálfundur Sölumiðstöðvar
hiraðfrystihúsanna, hefur nú stað-
ið yfir í þrjá daga og lýkur í
kvöld. Meðal annars hefur verið
ákveðið á fundinum, að Sölumið-
stöðin komi upp eigin öskjugerð.
Það eru rúmir þrír mánuðir síð-
an stjórn S.H. gerði opinbera
þessa fyrirætlun sína, og kostaði
i það mikinn úlfaþyt á sinurn tíma.
ISvo mikil hróp voru gerð að fyrir
ætlan S.H. um að koma upp öskju-
gerð, ajs samtökin neyddust til að
senda frá sér greinargerð til varn-
■ít áætluninni.
Þar skýrðu þau frá þvi, að fyr-
irhuguð öskjugerð þeirra mundi
geta framleitt umbúðir, sem væru
20% ódýrari en þær. sem samtök-
in keyptu hjá Kassagerð Reykja-
víkur. Mörgum fannst ekki rétt af
S.H. að beita sér fyrir stofnun
öskjugerðai’, þegar hér væri fyr-
ir hendi fullbúin verksmiðja, sem
fullkomlega annaði þörfum lands-
manna. Þar að auki gæti K.R.
framleilt samkeppinsfærar vörur
á heimsmarkaði, ef ekki kæmu til
verndartollar.
Áðurnefndan aðalfund F.H.
sækja fulltrúar nær allra hrað-
frystihúsa í samtökunum, en þau
eru 50—60 talsins. Á aðalfund-
inum kom ; l.jós, að árið 1963 var
metár í útflutningi ísl. sjávar-
afurða. Þá vru flutt út rösk-
lega 97 þúsund tonn, en ekki
nema 82 þúsund tonn árið áður.
Samkvæmt greinargerð Elíasar
Þorsteinssonar formanns stjórnar
S.H.. er lagt til, að öskjugerðin
beri naínið Umbúðastöðin h.f. og
verði hlutafé fimm milljónir. Gert
er ráð fyrir að Sölöumiðstöðin
verði sjálf stærsti hluthafinn, en
einnig geta allir aðilar í S.H. gerzt
Framh. á bls. 15.
/