Alþýðublaðið - 12.01.1952, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 12.01.1952, Blaðsíða 4
AB-AIþýðubíaðið 12. janúar 1952 Myndir aí verzlunarokrinu MORGUNBLAÐIÐ birti í fyrradag nokkrar myndir eða uppdrætti til þess að skýra það fyrir lesendum sínum, „hvernig verðlagið á báta- gjaldeyrisvörunum mynd- ast“. Voru þær myndir eink- ar athyglisverðar fyrir al- menning, og er þess að vænta, að lesendur blaðsins hafi les- ið þær gaumgæfilega; því að aldrei þessu vant birti Morg- unblaðið þar mjög fróðlegar tölur um það, hvernig okrað er á almenningi með báta- gjakieyrisvörunum. Má mik- ið vera, ef Morgunblaðið hefur ekki látið gera þessar myndir í fljótræði; svo aug- ljóslega hljóta þær, við at- hugun, að hafa öfug áhrif við þau, sem það hefur sjáif- sagt ætlazt til. Það hefur lengi mátt merkja, að Morgunblaðið kynni þeim umræðum illa, sem orðið hafa bæði í blöð- um og útvarpi um skýrslur verðgæzlustjóra varðandi verziunarálagninguna síðan verðlagseftirlitið var afnum- ið; enda hafa þær skýrslur gefið óglæsilega mynd af okri heildsala og annarra milliliða í skjóli þeirrar „frjálsu verzlunar", sem Morgunblaðið telur allra meina bót. Umræðumar um skýrslur verðgæzlustjóra hafa eðli- lega snúizt fyrst og fremst um þá stórkostlegu hækkun verzlunarálagningarinnar, er orðið hefur síðan verðlagseft- irlitið var afnumið; enda hefur það verið yfirlýstur til- gangur verðgæzlunnar með skýrslusöfnun sinni, að ganga úr skugga um það, hver áhrif afnám verðlagseftirlitsins og hin „frjálsa verzlun“ hefði á verzlunarálagninguna. Og þær upplýsingar, sem skýrsl- urnar hafa veitt um þetta, hafa óneitanlega verið óþægi- legar fyrir Morgunblaðið, sem eins og kunnugt er ber málstað heildsala og ann- arra milliliða miklu meira fyrir brjósti en velferð al- mennings. Þegar skýrslurnar afhjúpa, að heijdsalar leggi nú á bátagjaldeyrisvörur tvö- falt, þrefalt, fjórfalt eða jafn- vel sexfalt og sjöfalt á við það, sem þeim var leyfilegt áður en verðlagseftirlitið var afnumið, þá verður því ekki lengur neitað, að hér á ægi- legt okur sér stað í skjóli hinnar frjálsu verzlunar. Og það þýðir ekkert fyrir Morg- unblaðið, að vera að tala um „fáránlegar tölur“ í því sam- bandi á meðan það ekki get- ur borið svo mikið sem eina einustu af hinum birtu tölum um álagningarokrið til baka. En einmitt af því að Morg- unblaðið treystir sér ekki til þess að ræða álagningarhækk- unina, hefur því hugkvæmzt að láta gera umræddar mynd- ir af því, „hvernig verðlagið á bátagjaldeyrisvörunum myndast“, ef vera mætti að þær leiddu athygli almenn- ings frá álagningarhækkun- inni að öðrum hliðum verzl- unarinmr, sem ekki litu alveg eins illa út fyrir okrarana. Þess vegna lét Morgunblaðið reikna út og gera skýringarmyndir af því, hvernig verðlagið á nokkrum bátagjaldeyrisvörum mynd- aðist, er allt væri sundur lið- að: innkaupsverð, flutnings- kostnaður, tollar, innlendur kostnaður, bátagjald, sölu- skattur, heildsöluálagning og smásöluálagning. Þar kemst það hjá því, að benda á á- lagningarhækkunina síðan verðlagseftirlitið var afnum- ið, en sýnir hins vegar hve mikill hluti álagningin er nú af heildarverði bátagjaldeyr- isvörunnar. Þetta hefur Morgunblaðið bersýnilega haldið að væri hagstæðari skoðunarmáti fyrir heildsal- ana og aðra milliliði. En hvað sýna myndirnar, við nánari athugun? Þær sýna, að á ávexti, sem kostuðu 422 þúsund krónur í innkaupi, hefur verzlunaráiagningin, heildsölu- og smásöluálagn- ing, numið 491 þúsundi; á ytri fatnað og ýmsa vefnað- arvöru, sem kostaði 784 þús- und krónur í innkaupi, hefur hún numið 735 þúsimdum; á heimilistæki, sem kostuðu 154 þúsund krónur í mnkaupi, hefur álagningin numið 136 þúsundum, og á saum, sem kostaði 188 þúsund í inn- kaupi, hefur hún numið 176 þúsundum! Þetta þykir heildsölunum og Morgunblaðinu nú máske ekki mikil álagning; en allur almenningur lítur með réttu svo á, að það sé blygðunar- Iaust okur, þegar álagningin á vöruna nemur eins miklu, eða jafnvel meiru, en allt innkaupsverðið; en svo hefur verið í öllum þeim til- fellum, sem Morgunblaðið birti myndir af. Það er því hætt við því, að myndir komi heildsölunum og milli- liðunum að litlu haldi. Þær sýna að vísu ekki hina marg- földu hækkun álagningarinn- ar, sem þeir hafa leyft sér; en þær sýna engu að síður ósvífið okur þeirra á almenn- ingi. Uppboð Samkvæmt lögtaki 1. nóv. s. 1. vetur verður bif- reiðin G. 390, eign Guðmundar Þ. Magnússonar, seld á opinberu uppboði til lúkningar opinberum gjöldum kr. 38.323.00 auk kostnaðar og fer uppboðið fram við lög- reglustöðina hér, þriðjudaginn 22. janúar n. k. kl. 11 f. h. Greiðsla við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði 11. janúar 1952 Guðm. f. Guðmundsson. AB — Alþýðublaðið. Útgefandl: Alþýðuflokkurinn. Kitstjóri: Stefán Pjetursson. Auglysingastjóri: Emma Möller. — Ritstjómarsímar: 4901 og 4902. — Auglýsinga- smu: 4906. — Afgreiðslusími: 4900. — Alþýðuprentsniðjan, Hverfisgötu 8—10. AB 4 i 'V| Fasfeignaskattur- inn nægir sveitar- féiögum alis ekki EMIL JÓNSSON sýiidi fram á það í ræðu á alþingi í gær, að sú lausn, ssm fjármálaráðherra Jeggur til í sambandi við heild arendurskoðun fasteignamats ins, á þörf sveitarfélaganna fyr ir nýja tekjustofna, að þeim verði afhentur fasteignaskattur inn, er alls ófullnægjandi og mun Afþýðutflokkurinn ifylgja framkominni tillögu um það, að vísa málinu frá, enda liggi fyr ir þinginu tillaga um heildar endurskoðun á skattalögum, sem sennilega eigi meirihluta fylgi að fagna. Afgreiðsiustaður B rJ& r 5 Tveir utanríkismálaráðherrar, Um le s og þeir Chur- chill og Truman ræddust við í Washington núna í vikunni, báru utanríkismálaráðherrar þeirra, þeir Eden og Acheson, einnig saman bækur sínar um alþjóðamá'.in. Hér sjást þeir saman á myndinni; en hún var að vísu tekin á þingi sam- einuðu þjóðanna í Paxís í nóvember. 40 beztu bækurnar siðan árið 100 effsr Irisfl ----------<.---- Skoðanakönnun brezks tímarits, sem fólk í 25 löndum tók þátt í. BREZKA TÍMARITIÐ „BRITAIN TO-DAY“ efndi á síð- asta ári til óvenjulegrar samkeppni, sem vakið hefur mikla athygli. Það lagði fyrir lesendur sína þá spurningu, hverjar vaeru 40 beztu bækurnar, sem skrifaðar hefðu verið eftir árið 100 samkvæmt núgildandi tímatali. Því bárust fleiri hundruð svör frá lesendum búsettum í 25 Iöndum. Flest reyndust svör- in frá Bandaríkjunum, Spáni, Indlandi og Argentínu. að Amfmanstíg EINS OG getið var um í blaðinu s.l. laugardag, hafa skíðafélögin hafið sameíginleg- ar skíðaferðir að skálum sínum og að Lækjarbotnum, en af- greiðslustaðnr í miðbænum var þá ekki ákveðinn. Nú hsfur það orðið að sam- komulagi við stjórn íþróttasam bands íslands, að sambandið veitir félögunum aðgang að skrifstofu sinni að Amtmans- stíg 1 og verður afgreiðslustað- ur þar, sími Í.S.Í. nr. 4955. Bifreiðarnar munu þá leggja af stað frá Amtmannsstíg eða Lækjargötu. Eins og áður er getið, eru aðr ir afgreiðslustaðir í Félagsheim ili K.R. við Kaplaskjólsveg og í Skátaheimilinu við Snorra- braut, en upplýsingasími Guð- mundar Jónassonar er nr. 1515. Þanglil malar Listinn yfir 40 beztu bækurn ar samkvæmt samkeppni þess- ari er eftirfarandi: Cervantes: Don Quixote. Swift: Ferðir Guilivers. Tolstoy: Stríð og friður. Bunyan: För pílagrímsins. Defoe: Robinson Crusoe. Dickens: Davíð Copperfield. Hugo: Vesalingarnir. Boswell: Ævi Johnsons. Jane Austen: Stolt og for- dómar. Thackeray: Markaður hé- gómaskaparins. Flaubert: Frú Bovary. Gibbon: Hnignun og hrun Rómaveldis. Marx: Kapítalið. Carroll: Lísa í Undralandi. Darwin: Uppruni tegund- anna. Dickens: Ævintýri Pick- wicks. Voltaire: Birtingur. Dostojevski: Bræðurnir Ka- ramazov. Pepýs: Dagbók. E. Bronté: Fýkur yfir hæðir. More: Útopía. Ágústínus: Játningar. Boccaccio: Tídægra. C. Bronte: Jane Eyre. Dostojevski: Glæpur og refs- ing. Scott: Ivar Hlújörn. Tolstoy: Anna Karenina. Thomas a Kempis: í fótspor Hans. Galsworthy: Forsyte sagan. Goldsmith: Presturinn á Vökuvöllum. Hardy: Tess. Montaigne: Ritgerðir. Fielding: Tom Jones. Kipling: Dýrheimar. Macchiavelli: Þjóðhöfðing- inn. Marcus Árelíus: Þankar. Stowe: Kofi Tórnasar frænda. Dumas: Skytturnar. Mann: Töfraíjallið. Stevenson: Gulleyjan. Úrslit samkeppninnar bera því glöggt vitni, að þátttakend- urnir eru flestir Engilsaxar. „Don Quixote“ sigrað; með yf- irburðum, en Toistoy hefði samt borið Cervant.es ofUrliði, ef atkvæðin hefðu exki dreifzt á „Stríð og frið“ og „Önnu Kar eninu“. Samt hefði Dickens sigrað þá báða, ef atkvæði hans hefðu ekki dreifzt á „Davíð Copperfield", „Ævintýri Pick- wicks“ og ýmsar fleiri skáld- sögur hans, enda af nógu að taka. Rousseau komst ekki á þenn an lista, en hann myndi hafa verið meðal tuttugu efstu höf- undanna, ef atkvæðin, sem hon um voru greidd, hefðu öll fallið á eina og sömu bók. Svipaða sögu er að segja om Balzac, Bernard Shaw og H. G. Wells. H. C. Andersen fékk flest at- kvæði af Norðurlandahöfund- um og skipar 41. sætið á listan- um. Næstur honura er Svíinn Axel Munthe, sem er í 70. sæti fyrir „San Michela“, og Ibsen er í 93. sæti fyrir „Brúðuheim- ilið". Winston Churchill er í 45. sæti fyrir „Siðari /heimsstyrj- öldina“, „Quo Vadis“ er 48. í röðinni, „Þúsund og ein nótt“ 50., „Ævintýri“ Grimmsbræðr- anna 51., „Tom Sawyer“ eftir Mark Twain 55., „Babbitt" eft- ir Sinclair Lewis 62., „Tíðínda- laust á vesturvígstöðvunum" 71., „Sherlock Holmes“ 79, og listanum lýkur með „Myndinni af Dorian Gray“ eftir Oscar Wilde. Aí þeim 40 bókum, sem flest atkvæði fengu í samkeppninni, hafa 24 verið þýddar á íslenzku annaðhvort í heild eða að hluta, en 15 eru óþýddar og eina er verið að þýða um þessar mund- ir. ÞANG er víða notað til mat- ar, m .a. í Japan. Þar er þang- tegund, kölluð agar-agar, sem fæst í lyfjabúðum og er notuð gegn tregum hægðum. Ýmsir vísindamenn hafa rannsakað næringargildi þangsins og fund ið, að það er mjög auðugt að ýmsum fjörefum (m. a. A-, D- og C-fjörefnum) og steinefn- um, í því er m. a. mikið af joði. Skjaldkirtilssjúkdómar af völd um joðskorts eru a’gengir víða um lönd, þar sem lítið er borð að af fiski. Lítill skammtur af þangi eða þangmjöli mundi fullnægja joðþörf líkamans, þótt einskis væri neytt af fiski. í Noregi er farið að framleiða þangmjöl til matar. Má t. d. b’anda því í brauð, allt að 5% án þess að það hafi nein áhrif á baksturinn. (Heilsuvernd). Hann les AB i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.