Alþýðublaðið - 29.04.1952, Qupperneq 8

Alþýðublaðið - 29.04.1952, Qupperneq 8
ö!av Ki IFyrstu hljómjeikarnir verða í kvöld, en endurteknir fyrir börn á miðVikiadaginn SYMFÓNÍUHLJÓMSVEITIN hefur ráði norska liljóiu- rveitarstjórann og tónskáidið Olav Kiclland, sem hljómsveitar- : tjóra og listrænan leiðbeinandi hljómsveitarinnar næstu þrjú árin. Mun Kielland dvelja hér á landi tvo mánuði, haust og vor. og æfa og stjórna hljómsveitinni og skipuleggja starf hennar i samráði við hljómsveitarstjórnina þá tíma, scm hann sjálfur er fjarverandi. ALÞYBUBLA9IB Ein hátíðahöld í kvölcl heldur symfóníu- hljómsveitin fyrstu hljómleika sína að þessu sinni undir stjórn Kiellands, og verða þeir síðar endu.rteknir fyrir skólabörn úr efstu bekkjum barnaskólanna. og verður ókeypis aðgangur fyrir þau. Viðfangsefni á þess- um hljómleikum eru: Oberon- forleikurinn, eftir Weber, sym- fónískir dansar, eftir Grieg, og symfónía nr. 5 — ,.Örlagasym- fónían“, eftir Beethoven. Að hálfum mánuði liðnum heldur symfóníuhljómsveitin aðra hljómleika undir stjórn Kiellands, og loks síðar í vor, begar Hamborgarhljómsveitin kemur hingað á vegum Tón- listarfélagsins, mun symfóníu- hljómsveitin leika með henni undir stjórn Kiellands. Leika Mjómsveitirnar þá sameigin- iega. og verður það stærsta Mjómsveit, sem hér hefur -heyrzt, rúmlega 70 manns. Frá þessu skýrði stjórn sym- fóníuhljómsveitarinnar í við- tali við blaðamenn í gær. Jón Pórarinsson sagði, að Mjóm- sveitin væri nú að hefja starf- semi sína eftir nokkurt hlé, og horfði nú bjartari augum til framtíðarinnar en áður. Alþingi hefði nú í fyrsta sinn veitt styrk til starfseminnar, svo að vonir stæðu til að hún kæmist nú á öruggari gru.ndvöli. Kin merkasta ráðstöfunin, sem stjórn symfóníuhljómsveitar- innar hefði gert af þessu tilefni, sagði Jón, væri sú, að hún hefði leitað samninga við Olav Kiel- land um að taka að sér að stjórna hljómsveitinni næstu þrjú ár og vera listrænn íeið- beinandi hennar. Samningar væru nú um það leyti gerðir, svo að fullvíst væri að úr þessu yrði, og væri Kielland nú kom- ínn og byrjaður að starfa fyrir hljómsveitina. Ráðgert væri, að hann yrði hér 4 mánuði á ári, 2 mánuði haust og vor. Sagði Jón, að hljómsveirin hyggði gott til samvinnunnar við Kielland; enda mætti það teljast einstakt happ fyrir hljómsveitina, að hafa fengið jafn færan og kunnan tónlist- armann í árdögum starfsem- innar. Um Kielland sagði Jón, að hann væri meðal allra ku.nn- ustu hljómsveitarstjóra Norð- urlanda; en hann hefur um 30 ára skeið stundað hljómsveit- arstjórn, en í vaxandi mæli snúið sér að tónsmíðum hin síðari ár. Au.k starfs síns heima í Noregi, en þar hefur hann m. a. verið í 12 ár stjórnandi við Philharmoniske selskabet í Osló, hefur hann stjórnað þekktum symfóníuhljórasyeit- um sem gestur, t. d. í London New York, Berlín, París, Brús- sell og víðar. T. d. verður hann á haust, meðan hann dvelst hér, áð fara vikutíma til Parísar og stjórna þar. Eins og áður getur, verða hljómleikarnir í kvöld endur- Framh. á 7. síðu. Xjéil Evu Braun undiitn í kafbá! á sjávarbolni? Einkennilegur fundur dansks kafara. „NEW YORK TIMES“ flyt ur þá fregn frá Kaupmanna höfn, að danskur kafari hafi fyrir viku síðan komið með part af kvenmannskjól upp úr þj'zkum kafbát, sem sökkt var, vorið 1945 af hrezkum flugvélum í Litlabelti, milli eyjarinnar Fjóns og Jótlands. Þessi fundur liefur undir eins framkallað getgátur um það, að kafbátuririii hafi haft nazistíska flóttamenn frá Þýzkalandi innan borðs, kannski jafnvei llitler og Fvu Braun, og það séu máske leif ar af kjól hennar, sem kafar inn fann. Það er auðvitað ekki talið óhugsandi að einhver af á- höfn kafbátsins hafi haft meff sér kvenmannskjól sem ein- hverja endurminningu; en Sanskur lögreglufulltrúi sagði; „Viff tökum fundinn sem vott þess, að kona hafi verið um borð í kafbátnum“. Áðaifundur Alþýðu- flokksfélags Hafnarfjarðar ALÞYÐUFLOKKSFELAG HAFNARFJARÐAR heldur að- alfund í Alþýðuhúsinu í kvöld kl. 8,30. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa verður rætt um forsetakjörið. Framsögumaður er Emil Jónsson. Flokksfélagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. ÞJÓÐVILJANUM þótti það á sunnudaginn miklum tíðind- um sæta, að eining yrði um hátíðahöld verkalýðsfélag- anna fvrsta maí í ár. Sagði hann í því sambandi að sú spurning h.efði undanfarið verið á allra vörum, hvort slík eining tækist; en nú hefði þeirri spurningu verið svar- að: Fyrsta maí nefnd verka- lýðsfélaganna hefði á loka- fundi sínum fyrir helgina geng ið frá ávarpi dagsins og til- högun hátíðahaldanna. Læt- ur Þjóðviljinn svo að end- ingu ánægju, sína í ljós yfir því, að samkomulag hafi tek- izt, og telur, vafalaust rétti- lega, að reykvísk alþýða muni fagna því. ÞESSI FRÁSÖGN kommún- istablaðsins er líkleg til þess að vekja nokkra undrun. Það hefi'.r nefnilega ekki heyrzt áður opinberlega, að neinn vafi hafi léikið á því, að há- tíðahöld verkalýðssamtakanna fyrsta maí yrðu ein og óklofin í ár, eins og í fyrra. En nú upplýsir Þjóðviljinn, að það hafi engan veginn verið víst; og verður varla annað ráðið af orðum hans, en að honum sé kunnugt um einhverja, sem vel hefðu getað hugsað sér það, að kljúfa raðir verka- lýðsins á þessum hátíðisdegi hans, — af hvaða ástæðum sem það hefur nú verið. Er þá varla öðrUm til að dreifa, sem hann hafi vitað að til þess væru búnir, en flokksmenn hans og aðstandendur. KANNSKI VAR ÞAÐ þess vegna, sem Þjóðviljinn hóf undirbúning fyrsta maí há- tíðahaldanna að þessu sinni. með ruddalegri árás á for- mann fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna hér í Reykjavk sama daginn og fyrsta maí nefndin tók til starfa undir forsæti hans! AB veit ekki bétur, en að einmitt sá maður hafi frá upphafi beitt sér af fu.Ilum heilindum fyrir því, að hátíðahöld verkalýðsins fyrsta maí í ár yrðu ein og óklofin. En svo virðist nú, sem komm- únistar hafi hins vegar engan vegínn talið það sjálfsagt, þótt þeir fagni því í Þjóðviljanum nú eftir á, „að eining tókst‘‘, eins og þar er komizt að orði. tóku þátf í úrslitaatkvæðö- greiðslunni í danslagakeppninn --------------------- Eyþór Stefánsson og Jóhannes Jó- hannesson hlutu fyrstu verðlaun. m jafnsr ÚRSLITIN í danslagakeppni SKT urðu þau, að fyrstu verö laun á gömlu dönsunum hlaut Eyþór Stefónsson, Sauðárkróki fyrir vals-dúsettinn Vornótt, og á nýju dönsunum Jóhannes Jóhanncsson Reykjavík fyrir tvísöngtangóinn Það var um nótt. Keppninni bárust 62 lög og 450 manns tóku þátt í úrslitat- kvæðagreiðslu. * Onnur verðlaun í gömlu döns unum hlaut Jón Jónsson frá Hvanná, fyrir Saumakonuvals- inn, en þriðju verðlaun Stein grímur Sigfússon Patreksfirði fyrir valsinn Norðurljós. Önn ur verðlaun í nýju dönsunum hlaut Ágúst Pétursson fyrir tangóinn Æskuminning, en þriðju verðlaun Gunnar Guð- jónsson frá Hallgeirsey fyrir sömbuna Á réttadaiisleik. Aðrir þeir, er danslög áttu í úrslitunum, og hlutu aukaverð laun voru: Stefán Þorleifsson. hljómsveitarstjóri, Reykjavík, Svavar Benediktsson, Reykja- vík (2 lög), — Helgi G. Ingi- mundarson, Reykjavík, — Ósk ar Björnsson, Norðfirði, — og Halldór Stefánsson, Reykjavík. Nefnd skipuð þremur mönn- um, þeim Þórai-ni Guðmunds- syni, Bjarna Böðvarssyni og Árna Björnssyni, allt þekktum hljóðfæraleikurum og tónskáld um, greindu í sundur frambæri leg danslög og ekki frambæri- leg. — 28 af þeim frambærilegu voru svo tekin með í keppnina. — 16 í nýju dansana og 12 í gömlu dansana. Dansgestir dæmdu sjálfir, með atkvæðum sínum um danslagagildi laganna og tóku 450 manns þatt í úrslita atkvæðagreiðslunni. Danslagakeppni þessi hefur vakið óskipta athygli um íand allt, enda var útvarpað frá allri keppninni. FRIÐRIK og Lárus hafa nú lokið fjórum skákum í einvígi sínu um íslandsmeistartignina í skák og hlotið sína tvo vinning aná hvor. Gert var ráð fyrir fjögurra skáka einvígi, en úr því að þeir eru jafhir eftir þær, munu þeir verða að tefla til úr- slita. Þriðja skákin, sem tefld var í fyrrakvöld, varð jafntefli, en f jórðu skákina vann Lárus í gær kvöldi. Úrslif síðusfu getraunar XÍRSLIT getraunarinnar um ensku knattspyrnuna á laugar- daginn urðu þau að 2 raðir voru með 11 réttar ráðningar og féllu því 784 kr. á röð. Var annað kerfisseðill með 4 raðir og 10 réttar og hlaut hann 1280 krón- ur. 25 raðir voru með 10 rétta og hlaut hver 124 krónur. 179 rað ir voru með 9 rétta og var ekki úthlutað vinni.ngum til þeirra. Gjafir frá ónafngreindu fólki halda áfram aÖ berast. Féll af hestsbaki á Langholfsvegl á sunnudagsnóff og beið bana FYRIR SKÖMMU sendi ónafngreindur maður þjóðminja- verði eitt hundrað krónur í peningum, sem hann kvaðst vilja láta leggja í sjóð til byggingar húss yfir handritasafn á ís- landi, og skoraði jafnframt á aðra að láta eitthvað af hendi rakna í sama sk.vni. í gær barst svo þjóðminjaverði bréf frá Stúdentafélagi Reykjavíkur, þar sem m. a. segir svo: ÞAÐ SLYS varð á sunnu- dagsnóttina á Langholtsvegi, að maður féll af hestbaki og beið bana. Maðurinn hét Sam- son Jónsson, Efstasundi 14, var rúmlega sextugur að aldri. ' Slysið varð, er hann var að koma úr íerðalagi á hestum á- samt tveim mönnum öðrum, Kristjáni, syni sínum, og Jó- hanni Kristjánssyni, er eiga heima að Efstasundi 14. Riðu þeir heim Langholtsveginn með nokkru millibili, og var Samson í miðið. Tók Jóhann, sem fremstur fór, þá eftir því, að hestur Samsonar kom mann laus á eftir honum. Sneri hann við og fann Samson með- vitundarlausan á götunni. Kom Kristján nokkru seinna. og er þeir voru að stumra yfir mann- inum, bar að lögreglubifreið. Samson var fluttur í Landsr spítalann, og þar andaðist hann á sunnudagsmorguninn. Hafði hann Motið höfuðkúpubrot. „Stúdentafélag Reykjavíkur álítur hugmynd hins ókunna manns svo athyglisverða, að það vill leggja sitt af mörkum til þess að efna til almennra samskota í þessu skyni. Að áliti félagsins hefur í handritamál- inu mest borið á kröfum þeim, sem íslendingar þykjast með réttu eiga á hendur annarri þjóð. Minna hefur verið um það skeyft, hverjar kröfur ber að gera til ísiendinga sjálfro, og hverja ábyrgð þjóðin bakar sér, þegar hún tekur við þess- um miklu verðmætum. Telux’ félagið það betur fara, að þjóð- in byggi sjálf yfir handrit sín, heldur en að krefjast þess af ríkissjóði, sem stendur straum af margvíslegum framkvæmd- um öðrum. Fyrir því ákvað stjórn íé- lagsins á fundi sínurn fyrsta sumardag, að verja 1000 krón- um úr félagssjóði í þessu skyni, og leyfir sér að senda yður þá upphæð með þessu bréfi. Fram lagi þessu, fylgir áskorun vor til allra landsmanna um að bregðast vel við þessari hug- mynd, og sérstaklega vill félga- ið skora á stúdenta landsins og samtök þeirra að bregast vel við.“ Eftir að formaður félagsins, Páll Ásg. Tryggvason, hafði skýrt frá þessu á útvarpskvöld- vöku stúdentaféiagsins í gær. bárust þjóðminjaverði undir eins nokkur fleiri framiög frá ónafngreindu fólki. Mun fyrst um sinn mega snúa sér til hans. Frá Skátaskólanum að Úlfljóísvatni: Skólinn mun starfa eins og áð ur að undanförnu og geta skát- ar, skátastúlkur, ljósálfar og ylf ing'ar fengið allt að 10 vikna 'dvöl þar á tímabilinu 20. júní til 30. ágúst. Skriflegar umsókn ir sendist til Jónasar B. Jónsson ár, fræðslufulltrúa, Hafnarstræti 20 fyrir 20. maí n. k. Veðrið í dag: Austan kaldi og síðar stinn- ingskaldi, úrkomulítið, en slcýjað.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.