Alþýðublaðið - 24.05.1952, Side 1
ALÞYÐUBLAÐIB
jppreiðar með 10000 kr. verð
faunum í Gufunesi á morgun
(Sjá 8. síðu.)
XXXIII. árgangur.
Laugardagur 24. maí 1952.
115. íbl.
Þegar dönsku leikararnir komu í fyrradag
Á myndinni, sem tekin var í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli, sjást (talið frá vinstri): Vil-
hjálmur Þ. Gíslason, Poul Reumert, Guðlaugur Ró inkranz og frú, H. A. Bröndsted leikhússtj.
frú Bodil Begtrup sendiherra og Holger Gabrielsen leikstjóri. (Sjá frétt á 8. síðu blaðsins.)
Ver<5a undirritaðir á mánudaginn - Eden
og Schuman komnir til Bonn.
NEÐRI DEILD sambandsþingsins í Bonn felldi í gær til-
lögii Schumachers, leiðtoga jafnaðarmanna, um að þingið hefði
sérstaka umræðu um samningana við Vesturveldin áður en þciy
yrðu undirritaðir. Samningarnir verða því Undirritaðir á mánu-
daginn kemur, eins og til stóð, og eru utanríkisráðherrar Fralika
og Breta, Schuman og Eden, þegar komnir til Bonn, og Acheson
væntanlegur þangað um helgina.
-Þessi málalok skera endan-
lega úr um það, að sambands-
þingið er einráðið í að ljúka
samttingsgerðinni á tilsettum
tíma. Umræður urðu allharð-
ar um tillögu, Schumachers.
Lýsti hann því yfir m. a, að
hvorki hann né neinn annar
fuiltrúi stjórnarandstöðunnar
myhdi verða viðstaddur undir
skrift samninganna, og fór
m\
VATIKANIÐ i Rómaborg
endi nýlega 1000 lítra af víni
em'gjöf til þeirra, sem misstu
igur sínar í flóðunum í Miss-
uri' dalnum í Bandaríkjunum
vor. Gjöfin er þakklætisvott
r fyrir þá aðstoð, er banda-
ískar fjölskyldur veittu fólki
flóðasvæðinu í Pódalnum í
etur. .
hörðum orðum um þá, sem að
þeim standa af hálfu stjórnar
ínnar. Adenauer ríkiskanzlari
kvað svo að orði undir um-
iræðunum, að hann harmaði
að leiðtogi hinnar vestur-
þýzku stjórnarandstöðu skyldi
viðhafa sömu ummælin gegn
hinum væntanlega samningi,
sem þessa dagana væru svo
mjög notuð í áróðri austur-
þýzku kommúnistanna.
Varautanríkismálaráðherra
Breta, Selwyn Lloyd. lýsti í
dag í brezka þinginu ánægju
sinni yfir því, hversu, samning
arnir væru vel á veg komnir.
Hann kvað nauðsyn þess að
gera Vestur-Þýzkaland aðila
að varnarsamtökum Vestur-
Evrópu aldrei brýnni en nú,
vegna vaxandi yfirgangs
Rússa.
Austur-þýzka stjórnin ítrek
aði í dag áskorun sína til and
stæðinga samningsins í Vestur
Þýzkalandi að mótmæla þeim
Framh. á 7. síðu.
er vænlanleg
klukkan 2 í dag
HIN NÝJA skymasterflug-
vél Loftleiða mun vera vænt-
anleg til Reykjavíkur um kl.
2 í dag. í fyrradag var flug-
vélin á reynsluflugi yfir Mac-
Arthurflugvellinum við New
York, og höfðu flugmennirnir
þá samband við flugturninn í
Reykjavík, og kváðust myndu
að öllu forfaUalau.su leggja ai
stað í gærkvöldi, og þá vænt
anlega vera komnir til Reykja
víkur um kl. 2 í dag. Er blað
ið átti tal við flugturninn
seint í gærluzöldi, höfðu ekki
borizt fréttir af því, hvort.
flugvélin væri lögð af stað, en
búizt var við því að svo væri.
Meslu lofiárásir Kór-
euslyrjaldarinnar
HERIR sameinuðu þjóðanna
gerðu í gær einhverjar mestu
loftárásir Kóreustyrjaldarinnar
á verksmiðjuborgir Norður-
Kóreu. Er talið að feiknatjón
hafi orðið af.
Voru loftárásirnar gerðar á
flestar þær verksmiðjuborgir,
sem einhverja hernaðarþýðingu
hafa, m. a. á nokkrar, sem
liggja allnærri Panmunjom, þar
sem tilraunir til friðarsamninga
standa enn vfr;
Það var Friðgeir Sveiossoo, giaidkeri
hjá menningarsjóði og þióðvioafélaginu
ÞAÐ HORMULEGA SLYS vildi til í Reykjavíkurhöfn
laust eftir kl. 9 í fyrrakvöld, að maður ók bifreið út í sjóinn
við Ingólfsgarð og drukknaði. Það var Friðgeir Sveinsson,
gjaldkeri hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs og Þjóðvinafélags-
ins, Langholtsvcgi 108.
Nákvæmlega er ekkert vit-
að um tildrög slyssins, og ekki
er vitað um neinn mann, sem
var nærstaddur, er það varð.
En nokkrir menn frá Ólafs-
firði, sem staddir voru á Faxa
garði, allmiklu innar í höfn-
inni, urðu þess varir, að eitt-
hvað skall þarna í sjóinn. Sáu
þeir fyrst skvettu.r og síðan á
bifreið, sem var að sökkva.
Þeir gerðu lögreglunni þegar
aðvart, og þá var klukkan 10
mín. yfir 9. Hóf hún þá strax
að gera ráðstafanir til að ná
bifreiðinni upp. Var fenginn
kafari frá vélsmiðjunni Héðni,
tveir bátar, hafnarbáturinn
og annar til, og kranabifreið
frá björgunarfélaginu, Vöku.
Kafarinn kom böndum á
afturöxul bifreiðarinnar, sem
lá á hvolfi á botninum. Var
hún síðan dregin að bryggj-
unni og upp. En til frekara
öryggis við starfið, var feng-
inn stór kranabifreið frá Eim-
skipafélagi íslands, og var bif
reiðinni að síðu.stu lyft með
honum upp á bryggjuna. Þá
var klukkan um hálfeitt. —
Múgur og margmenni safnað-
ist saman við austu.rhöfnina,
meðan verið var að ná bif-
riðinni upp.
Friðgeir Sveinsson.
Mossadegh ællar aS
blðjast lausnar
MOSSADEGH, forsætisráð-
herra írans, tilkynnti í gær,
að hann myndi segja af sér
störfum þegar er alþjóðadóm-
stóllinn í Haag hefði kveðið
upp úrskurð sinn í aeilu Bret
lands og írans út af rekstri
olíujindanna.
Bifreiðin var alhnikið brot-
in að framan og hurðirnar
dældaðar af vatnsþunganum.
Lá lík Friðgeirs í aftursætinu.
Bifreiðin hefur farið út af
í krikanum, þar sem Ingólfs-
garður gengur út frá sjálfri
uppfyllingunni. Sást þar móta
fyrir hjólförum í bláhorninu.
Hafði vinstra framhjólið far-
Framh. á 8. síðu. i
Mossadegh gaf þá skýringu
á afsögninni að óánægjan færi
nú vaxandi meðal almennings
í íran yfir þvi, hvernig írans-
stjórn færist rekstur olíulind
anna úr hendi. Hann tók fram,
að afsögn sín væri ekki frarn
komin vegna þess. að hann
væri hræddur við að verða
ráðinn af dögum.
Bifreiðin, sem ekið var í höfnina, eftir að búið var að draga
hana upp á bryggjuna. — Ljósm.: Pétur Thomsen.