Alþýðublaðið - 19.06.1952, Blaðsíða 8
Kvennadagurinn 19. iúní
Konur tialda upp á dagitin
jónusfu o§ samsæ
KVENNADAGURINN 19. júní er í dag. Halda komir dag-
ijnn háííölegan me3 guðsþjónustu í Dómkirkjunni og samsæti
"í Tjarnarkaffi. Eru þessi hátíðahöld fyrsti liður á áttunda
landsfundi Kvenréttindafélags íslands og verður fundurinn
settur á morgun kl. 10 f. h.
Guðsþjónustan hefst kl. 8
siðdegis, séra Jón Auðuns pré
dikar. En á eftir hefst samsæt
ið. Þar syngu.r m. a. Guðmunda
Elíasdóttir söngkona lög eftir
Jórunni Viðar með undirleik
tónskáldsins.
dóttur málara og Theodóru
Thoroddsen skáldkonu.
BLAÐH) „19. JUNÍK
Kvenréttindafélag íslands
gefur út í dag blaðið „19. júní'1.
Flytur það greinar um . ýmis
réttindamál kvenna, Ijóð eftir
konur og fleira. Ritstjóri þess
er Sváva Þorleifsdóttir.
Þessar konur eiga m. a. grein
ar eða annað efni j ritinu: Auð
ur Auðuns, Kristjana Bene-
di’ktsdóttir. Bodil Begtrup
sendiherra Dana. Sigurborg
Eyjólfsdóttir, Þórunn Elfa
Magnúsdóttir, Rannveig Þor-
steinsdóttir, Svava Jónsdóttir,
Guðrún Nielsen, Björg Guðna
dóttir, Guðlaug Benediktsdótt
ir, Viktoría Bjarnadóttir, Sig-
urlaug Árnadóttir og ritstjór-
inn. Viðtöl eni í ritinu við
Ástu' Magnúsdóttur ríkisfé-
Iiirði, Ingibjörgu Ögmundsdótt
ur símstöðvarstjóra, Theresíu
Guðmundsdóttur veðurstofu-
stjóra, Margréti Eiríksdóttur
píanóleikara. Vigdísi Kristjáns
McGaw fer frá
E. J. McGAW, hershöfðitigi,
mun fara frá Keflavík á morg-
un til Bandaríkjanna, eftþ- að
íiafa verið yfirmaður varnar-
iiðs Bandaríkjanna á íslandi í
naerri 14 mámiði.
McGaw hershófðingi mun
taka við störfum nem yfirmað-
ur stórskotaliðsdeildar í Carson
herbúðunum í Colorado. Áður
mun hann þó hafa viðræður við
liernaðaryfirvöld í Washington
og Norfolk í Virginia-fylki, og
gegna störfum í Jndíana
tíma.
um
Enn hefur ekki verið tilkynnt
opinberlega um eftirmann Mc
Gaw
Búizt er við að J. R. Ruhs-
enberg, foringi í ílotanum, —
muni gegna störfum sem yfir-
maður varnarliðsins, þar til
fastur yfirmaður kemur til ís-
iands. Ruhsenberger, er yfir-
maður flotadeildanna við ís-'
land.
Annað lisfamanna-
kvöld Norræna fé-
lagsíns.
NORRÆNA FÉLAGIÐ
efndi' til íistámannakvölds síð
ast liðið mánudagskvöld, og
var það annað listamannakvöld
ið, sem félagið efnir til, en það
mun halda þessari nýbreytni
áfram.
Listamannakvöldið var vel
sótt, en þar kom m. a. fram
norska leikkonan Tora Seg-
elcke, er las kvæði eftir ýmis
helztu ljóðskáld Norðmanna,
og enn fremur söng danska
söngkonan Lulu Ziegler,
Norræna félagið er 30 ára í
haust og mun afmælisins þá
verða minnzt á viðeigandi
hátt.
Presfasfefnan verður
ídag.
PRESTASTEFNAN hefst
í dag með guðsþjónustu í Dóm
kirkjunni kl. 11 f. h. Séra Sig-
urbjörn Einarsson prófessor
prédikar, en fyrir altari þjóna
séra Jón Auðuns og séra Garð-
ar Þorsteinsson. Kl. 2 setur
biskupinn prestastefnuna í há-
skólanum og flytur hann
skýrslu um störf og hag kirkj-
unnar á liðnu ári og verður
ræðu biskups og messunni í
dómkirkjunni útvarpað. Þá
verður einnig útvarpað erindi
séra Magnúsar Guðmundssonar
í Ólafsvík. Erindið verður flutt
á prestastefnunni , og nefnist
það: ,,Starf kirkjunnar fýrir
hina sjúku.“ Auk venjulegra
viðfangsefna prestastefnunnar
verður aðalmál hennar viðhorf
kirkjunnar í dag og framtíðar-
starfið. Prestastefnunni mun
ijúka á morgun.
ALÞYSUBLAÐIB
Sendiferðabifreiðin
; kom á nr. 73595.
DREGIÐ hefur verið í happ
drætti dvalarheimilis aldraðra
cjómanna og komu hæstu vinn
ingar upp á þessi númer.
Sendiferðabifreið á nr. 73595,
ískápur á 10998, þvottavél á
25766, hrærivél 39384, sauma
vél 32605, eldavél 5773 og ryk
’su.ga 43485.
Vinninganna sé vitjað til
skrifstofu fulltrúaráðs sjó-
mannadagsins í Grófin 1, sími
6710, opið frá kl. 11 til 12 og
kl. 4—5 e. h. — Vinningsnúm
erin eru birt án ábyrgðar.
Golíat í sáfwin.
GOLÍAT er nú að sleikja sár
sín eftir hólmgönguna og ósig- j
u.rinn á ísafirði ,og revnir að j
bera sig mannalega. „Krat- ]
arnir héldu þingsætinu á
lánsatkvæðum“, segir Morg-
unblaðið á þriðjudaginn: en
um sjáifstæðismenn er sagt,
að jjkosríingaúrslitin sýni
greinilega, að flokkux þeirra
sé orðinn stærsti stjórnmála
flokkurinn í bænum . . .
stærri en Alþýðuflokkurinn“!
ÞESSA TÖLVÍSI verður að
fyrirgefa Golíat, á .meðan
hann er að ná sér eftir bylt-
una. En hinsvegar munu
aðrir leyfa sér, að líta svo á,
að sá flokkur, sem fær 644
atkvæði, eins og Alþýðuflokk-
urinn á ísafirði á sunnudag
inn, sé öllu stærri þar en
hinn, Sjálfstæðisflokkurinn
sem ekki fékk nema 635. Verð
ur Morgunblaðið því að þola
það, að menn hendi sín á
milli nokkurt gaman að
mannalátum þess í sambandi
við kosningaúrslitin.
EN SVO AÐ minnst sé á „láns-
atkvæði1', þá var Þjóðviljinn
á þriðjudaginn vissulega ekk
ert þesslegur, að Hannibal
hefði fengið neina slíka hjálp
frá kommúnistum. „Hannibal
skreið inn“, sagði Þjóðviljinn.
Golíat verður því að vera
áfram undir þeim grun, að
það hafi verið hann, en ekki
Hannibal, sem fékk lánsat-
kvæði frá hinum austrænu,
þó að ekki nægðu þau risan-
um til sigurs. Sú skoðun er
og ekki sögð fara neitt dult
vestur á ísafirði.
Um 600 fermefra ðandsspilda
brann I Heiðmörk i fyrradai
---------------»-----
Eldurinn kviknaði rétt viS veginn ög|
er talinn stafa af sí^arettu. 1
í FYRRAÐAG kviknaði eldur x mosa á Hólmshrauni viSf
Heiðmörk og brann þar um 600 fermetra landsspila. Eldsins
varð vart um kl. 10 fyrir hádegi frá Hólrni, og brá bóndinn þar,
Karl Norðdahl þcgar við með þriðja mann til þess að hefta út-
breiðslu eldsins, en jafnframt lét hann starfsmenn Skógræktar-
innar vita um eldinn.
Þegar starfsmenn skógrækt-1 liðinu, sem dældu á bruna-
arinnar og slökkviliðið kom á
vettvang höfðu þsir félagar
þegar unnið mikið starf til að
hindra útbreiðslu eldsins, og
bættist nú liðsauki ásamt
tveimur vatnsbílum frá slökkvi
Kardináli í heimsókn
á íslandi.
- JAMES MCGUIGAN kardi-
náli og erkibiskup í Toronto í
Kanada kemur hingað í opin-
bera heimsókn á morgu.n.
Kardinálinn kemur í tilefni af
minningarhátíð Jóns Arason-
ar og mun hann dvelja hér í
viku. Tekið verður á móti kar
dinálanum í Landakoti kl. 9
árdegis.
Hermaður bíður bana í bif-
reiðarslysi við Leirvogsvatn
------1-------
ÞAÐ SVIPLEGA SLYS vildi til nokkru eftir hádegi í gær,
að einn hermaður beið bana og tveir meiddust, er herbifreið
var ekið út af veginum við brúna fyrir neðan Leirvogsvatn.
vinna að rannsókn-
um fyrir iðnaðinn
í BANDARIKJ QNUM vinna
nú 150.000 menn og konur að
alls konar rannsóknum í þágu
iðnaðarins ,segir Dr. H. G. Pain.
varaforseti United States Steel
Corporation. Bain sagði á 100
ára afmæli Amerísku Járn og
stál stofnunarinnar, að banda-
ríski. _ iðnaður/nn eyði um 1000
milljónum dala til rannsókna,
sem nú eru á döfinni. Slík rann
sókn er geysi þýöingarmikil,
sagði hann, þar eð að nú er ekki
lengur til þrjótnaai magn
brennslu og hráefna í óbreittu
formi“.
svæðið, en þó liðu rúmir fimra
klukkutímar u,nz lokið var viS
að slökkva eldinn.
Samkvæmt upplýsingum, er
AB fékk hjá Einari Sæmund-
sen skógarverði, munu hafa
bmnnið þarna um 600 ferrnetra
landsspilda, aðallega mosi,
lyng og birkikjarr, en þarna
hafði engin gróðursetning vef
ið framkvæmd.
Eldurinn kom upp rétt við
veginn og er enginn vafi tal-
inn á þvi, að einhver vegfac
andi hafi kastað sfgarettu 2
mosann, en hann er nú skræl
þurr og logar eins og bezta
uppkveikja.
Það verður aldrei nógsam-
lega brýnt fyrir fólki, að fara
varlega með eld nálægt skóg-
arsvæðu.m og mosalendurrt,
þegar jörð er jjafn þurr og nú.
Er þetta í annað skiptið í vor„
sem eldur kviknar í Heiðmörk,
en í fyrra skiptið var tekið
fyrir eldinn um leið og hanrs
var að byrja að loga í mosáru
um. og í það sinn fannst sjga
rettustubburinn, sem eldurinrs
kviknaði frá.
Mófsfaða gegn fólksflufning-
um Rússa í Ausfur-Þýzkalandi
-------4------
ÓVÆNT MÓTSPYKNA var veitt austur-þýzku lögreglumxS
í síðustu viku, er hún tók til að ryðja þriggja mílna breitt svæSS
við landamæri Vestur-Þýzkalands. Hefxrr óvægni kommúmistaa
hvergi komið jafnskýrt í Ijós, eins og í þessum aðgerðum, síðaa
innrás þeirra hófst í Suður-Kóreu,
Bifreiðin mun hafa verið á
leiðinni austur og farið út af á
beygjuntxi vestan við brúna. en
þar varð banaslys fyrir nokkr-
um árum. Valt bifreiðin ofan í
ána, sem þarna er ekki vátns-
mikil en stórgrýtt. Einn mann
anna lenti undir bifreiðinni í
gnni. Hann var mxð lífsmarki
fyrst eftir að slysið -v-arð, og bar
menn að fljótlega ti laðstoðar,
en sakir áhaldaleysis reyndist
ekki unnt að ná honum undan
bifreiðinni þegar. Var hann lát
inn, er komið var á vettvang úr
Reykjavík.
Hinir tveir munu ekkj. hafa.
verið mjög alvarlega meiddir,
annar skorinn á fæti ,en hinn
slasaður á öxl og handlegg. Óku
menn, er voru á leiðinni austur
á Þingvöll, þeim áleiðis til
Reykjavíkur, en mættu sjúkra
þifreið, er var að fara á stað-
inn hjá Seljabrekku. Flutti húti
þá til Reykjavíkur, í Landsspít
alann, þar sean gert var að sár-
um þeirra, og síðan þann, er var
meira slasaður, til Keflavíkur.
Veðrið í dag:
Vestan kaldi, skýjáð,
sums staðax súld.
Þar hefur lögregla kommún
ista á grimmdarfullan hátt
rutt þriggja mílna breytt belti
meðfram landamærum Vestur
Þýkalands, rekið þorpsbúa úr i
húsum sínum og bændur af
býlum sínum og flutt þá til
óþekktra staða langt inni í
landi.
Bersýnilegt er, að engin lög
leg afsökun er til fyrir þessari
ógnaröld við landamærin.
Hér er eingöngu um að ræða
eins konar hemaðaraðgerðir
til þess að hræða vestux-þýzka
lýðveldið frá því að taka þátt
í vömum Vestur-Evrópu og
staðfesta samningana við Vest
urveldin.
Lögreglan hefur þó orðið
fyrir óvæntri mótspymu af í-
búunum. Hafa menn barizt við
lögregluna með skeifum, sigð
um, kylfum og hverju öðru,
sem handbært hefur verið.
Hafa tugir manna verið hand
teknir og margir særzt. Auk
þessa steyma flóttamenn svo
hundruðum skiptir til Vestur
Þýzkalands, þeirra á meðal
lögreglumenn, og menn, sem
eru að flýja undan herkvaðn-
ingu, en kommúnistar eru nú
opinberlega farnir að stofna
her.
Austur-þýzka lögreglan hef
ur alla tíð verið skipulögð sem
her. Kemur það því úr hörð-
ustu átt, er forsætisráðherra
leppstjórnar Rússa, Otto Grote'
wohl, lýsti yfir á mánudaginn
stofnun 375.000 manna her3
„til venxdar friðinum“.
Akranesingar sigruðu
Kvik með 7 gegn 3.
AKURNESINGAR kepptu á
mánudaginn víö knattspyrnu-
flokk Kvik í Halden, og sigr-
uðu með 7 mörkum gegn 3. 1
gærkvöldi kepptu þeir í Lilla
strand, en úrslit voru ekka
kunn, þegar blaðið fór í prenft
un.
Maður slasast við
MAÐUR að nafni Hörð«c
Gunnarsson slasaðist á fæti 2
gær, er hann var að vinnu við
útskipun á salti í togarann
Jón Baldvinsson hér í höfn-
inni. Atvikaðist slysið þannig,
að hann varð með fótinn á
milli rennunnar, er saltið fer
um niður í skipið, og palls á
vörubifreið, er ekið var að með
salt.
Maðurínn var fluttur 3
■Landsspítalann og þar gert að
sárum hans.