Alþýðublaðið - 22.07.1952, Side 1
ALÞYÐUBLAÐIB
r
Heliiu atvinnutæki Norðfjarðar
auglýsl til sölu vegna skulda!
(Sjá 8. síðu.)
XXXin. árgangur.
Þriðjudagur 22. júlí 1952. .. 162. tbíj
VerSurTruman
ÓJympíuleikvangurinn í Helsingfors: Áliorfendasælin eru fyrir 70 000 manns.
Bandaríkjamenn
sér frí, fér í bað
MIKLUM ÓTTA sló á
menn, er þa3 vitnaðist nýlega
áð krókódíll, sem hafðúr var
til sýnis af farandsirkus á
Suður-Þýzkalandi, væri horf
inn. Hópur manna var gerður
út til þess að leita að honum;
og imian skamms fannst hann
mókandi í ánni Enz. Hann
hafði augsýnilega Langað í
bað. Eftir nokkra stund skreið
hann í land og hélt beina leið
til stöðva farandsirkusins.
Þótti för hans öll vera honuin
til hins mesta sóma!
Rannsókn í máli
brezkafogaransYork
City lauk í gær
•UM KLUKKAN ÁTTA í
gærkveldi lauk réttarhöldum í
máli brezka togarans „York
City“, sem varðskipið „Ægir"
tók í landhelgi út af Patreks-
firði síðast liðinn miðvikudag.
í gærmorgun lagði skipherra
brezka eftirlitsskipsins fram
skriflegar fyrirspurnir til Þór-
arins Björnssonar, skipherra á
„Ægi“, og var rétti þá frest-
að til kl. 7 í gærkveldi, til þess
að gefa skipherranum tóm til
þess að svara skriflega.
Kl. 7 í gærkveldi var réttur
settur að nýju. Kom ekkert
nýtt fram í málinu og aðeins
skipzt á spurningum og svör-
um. Skjöl málsins voru í gær-
kveldi send til dómsmálaráðu-
neytisins, svo sem lög mæla
fyrir um, og er þaðan beðið
úrskurðar um, hvort mál skuli
höfðað á hendur skipstjóran-
um á „York City“.
ékkinn Zatopek vann þó 10 km.
hlaupið á nýju ólympísku meti
--------♦--------
Krisiján Jóhannsson ssfli íslenzk) nse).
--------4--------
EFTIE FYRSTA OG AJNNAN DAG ÓLYMPÍU-
LEIKANNA eru það Bandaríkj amenn, sem hlotið hafa
flest fyr-stu-verðlaimin. 3>eir hafa sigxað í fimm grein-
um og áttu /til dæmis þrjá fyrstu í einni þeirra, kúlu-
varpinu. Tékkinn Zatopek sigraði í 10 km. hlaupinu
á nýju ólympisku meti; en þau hafa nú verið sett í
mörgum greinum, og yfirleitt hefur náðst prýðilegur
árangur það sem af er ieikjunum.
Af hálfu Islendinganna hefur Kristján Jóhannsson stað-
ið sig bezt og setti hann nýtt ísienzkt met í 10 km. hlaupinu
með 32:00.0.
I fyrraaag var keppt til úr-
slita í hástökki og 10 000 m
hlaupi, og varð engan veginn
óvænt útkoman. Davis sigraði
auðvitað í hástökkinu (2.04) og
landi hans hafnaði í öðru sæti
með 2.01. í 10 km sigraði hinn
nafntogaði Zatopek á nýju ó-
lympisku meti, 29:17.0, en Mi-
moun, Fraklandi, varð annar
eftir gott hlaup. Hann reyndi
að halda í við Zatopek, en varð
viðskila við „eimreiðina“, er
líða tók á hlaupið.
Kristján Jóhannsson var
meðal keppenda í þessu hlaupi,
og má segja, að frammistaða
hans hafi varið eftir vonum
manna, en hann bætti íslenzka
metið með því að hlaupa á
32:00.0. Kristján varð 26. af
32 keppendum og hljóp 5 km
á 15:26.2 (met hans er 15:20.0),
svo gera má ráð fyrir að hann
bæti metið á þeirri vegalengd
allverulega í dag.
í undanrásum 100 m hlaups-
ins voru allir landarnir slegnir
út. Hörður Haraldsson náði
beztum árangri með því að
Framh. á 7. síðu.
Rússar fyrslir fil
þrýsHlofsflugs
eins og alls annars! |
s'
sagði^i
Flokksþing þeirra kom saman í Chicago
í gær tij þess að veija forsetaefni.
-----------4----------
123ð FULLTRÚAR voru maettir á flokksþingi demókrata
í Bandaríkjunum, er það var sett í Clúcago síðdegis í gser.
Verkefni þess er að velja forsetaefni flokksins við forsetakjör
ið í haust, og eru margir tilefndir, en enginn jæirra neitt
nálægt því, að eiga fyrirfram þá 616 stuðningsmenn vísa á þing
inu, sem til þarf að ná kosningu, sem forsetaefni. Ovæntir við
; burðir eru ekki taldir útilokaðir á flolíksþinginu, svo sem, að
Truman forseti yrði við eindregnum áskorunum um, að gefa
kost á sér sem forseiaefni á ný, enda þótt hann hafi tekið því
fjarri hingað til.
Það er til þess tekið í frétt- j
um, hve miklu friðsamlegra
sé yfir flokksþingi demókrata, ,
en hinu, sem repúblikanar
héldri, á dögunum og lauk með
kjöri Eisenhowers sem forseta-
efni þess flokks. En þar stóð
hin hatramma deila milli
tveggja manna, Tafts og Eis-
enhowers; en á þingi demó-
krata eru þeir margir, sem
keppa um að verða kjörnir
forsetaefni flokks síns.
FIMM UM BOÐIÐ
Þeir, sem nú eru helzt til-
nefndir og allir hafa opinber-
lega gefið kost á sér sem for-
setaefni fyrir flokk sinn, eru:
öldungadeildarþingmennirn-
ir Estes Kefauver frá Ten-
nessee, Richard B. Russel
frá Georgia og Robert S.
Kerr frá Oklahoma; en auk
þeirra Alben W. Barkley,
núverandi varaforseti Banda
ríkjanna, og Averill Harri-
man, ráðunautur Trumans
og forstjóri hinnar gagn-
kvæmu öryggisstofnunar.
Mikið er einnig talað um
Adlai Stevenson, fylkisstjóra frá
Illinois, sem miklu fylgi er
talinn eiga að fagna á flokks
þinginu; en hann hefur hingað
til ekki gefið neinn kost á sér
sem forsetaefni. Ef Stevenson
neitar áfram að gefa kost á sér,
og enginn hinna fær nægilegan
stuðning, er nú ekki talið óhugs
andi, að Truman léti undan á
Framh. á 7. síðu.
^ MOSKUÚTVARPI®
^ nýlega, að því er Rauters^i
^ fregn hermir, að það ha.fi
^ hvorki verið Þjóðverjar né ^i
^ Bretar, sem hófu þrýstilofts
^ flugið. Það hefðu Rússar gert^i
^ 1940 (Fyrsta þrýstiloftsflugið ^
^ á Þýzkalaudi var að vísu^i
^ 1939, eu á Bretlandi ekki fyrr ý
^ en 1941).
^ En Moskvuútvarpið bætti^
( því við, að í rauninni hefði y
(rússneskur vísindamaður^
( fundið upp þrýstiloftsmótor- ^
\ inn þegar árið 1903!
Stjórn Ghavam Sultaneh fallin:
Baðst lausnar s gær effsr blóð-
ugar óeirðir í Teheran
-------4-------
GHAVAM SULTANEH, sem myndaaöi stjórn í íran fyrir
helgina, baðst lausnar síðdegis í gær eftir blóðugar óeirðir í
Teheran, sem fylgismenn Mohammeds Mossadeq stofnuðu til,
og urðu 15 manns að bana, en um 200 manns særðust í, er log
reglan skaut á mannfjöldann. Talið var víst í gærkveldi, að
Mossadeq eða einhverjum fylgismanni hans yrði falið að mynda
nýja stjórn.
Alvarlegan óreiðir hafa orðið
í Teheran alla dagana síðan
Ghavam Sultaneh tók við stjórn
fyrir helgina, og hafa það verið
menn Mossadeqs, sem að þeim
Framh. á 7. síðu.
Lisiaháskólinii í Höfn
veitir viðtöku einum
íslendingi áriega til
náms í húsagerðariisi
I LISTAHÁSKÓLINN í Kaup-
manna.li. hefur fallizt á að taka
við einum íslendingi árlega tii
páms í húsagerðarlist við skól-
ann, enda sé nemandinn gæddur
sérstökum hæfileikum til slíks
náms. _
Þeir, sem hug hafa á að sækja
um upptöku í skóla þennan,
skulu senda skriflegar umsókn
ir ásamt prófskírteinum og með
mælum, ef til eru, til mennta
málaráðuneytisins fyrir 29. þ. m.
Upplýsiiygar um inntökuskil
yrði í skólann eru veittar í ráðu
neytinu. ______
FORSÆTISRÁUNEYTIÐ hef
ur veitt Stefáni P. Bjömssyni,
lækni, 4.000 króna styrk úr
Kanadasjóði til framhaldsnáms
í læknisfræði við Winnipeg
General Hospital.
Þá hefur ráðuneytið einnig
veitt styrki úr Snorrasjóði, —
Kristni Björnssyni, stúdent. kr.
1000,00 til að ljúka námi í sátar
fræði við háskólann í Oslo. og
Jóhönnu Jóhannsd., stúdent,
kr. 3600.00 til háskólanáms í
tungumálum við Oslóarháskóla.