Alþýðublaðið - 15.08.1952, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 15.08.1952, Blaðsíða 1
írflæEBwasiwwrsrw" Atvinnumálaráðherra hefur i sinnf störfum síðan í vor (Sjá 8. síðu.) ALÞYÐUBLASIB XXXIII. árgangur. Föstudagur 15. ágúst 1952. 179. tbl. VÍWfllir h iá S.P. Fimmtíu og einn ungur maður frá 28 ; þjóðlöndum starfar nú á aðalskrif- stofum sameinuðu þjóðanna í New. York og skrifstöfunum í Genf til þess að kynnast starfi þeirra. Hér birtist mynd af einum þeirra, Sveini H. Valdimarssyni. Sveinn er sonur Valdi- mars Sveinbjörnssonar leikfimikennara og útskrifaðist í lög- fraeði frá háskólanum síðastliðið vor. 00 (10 ræða væntanlega afsföðu fil fonetakosninganna -----+----- Talið óvíst, að CIO veiti Adlai Steveo- son opir\beran stuðning. nauosyn a fé fil að 39 - 49 rekneia báfar landa dag- lega í Grindavi FLESTIR af Grindavíkurbát unum eru nú komnir á rekneta veiðar í Grindavíkursjó. og afla yfirleitt vel. Bátar þeir, sem voru á síldveiðum fyrir norðan, eru ýmist komnir heim eða eru á leiðinni o% munu þeir einnig hefja reknetaveið- Mikið af aðkomubátum er á reknetaveiðum í Grindavíkur- sjó, og hafa undanfarna daga 30-40 skip landað síld í Grinda vík. Síldin er ýmist fr>'Sf eða sett í bræðslu, og þykir sjó- mönnum það neyðarúrræði, en söltun hefur ekki verið leyfð enn þá. Einn daginn fyrir skömmu voru; lönduð á þriðja hundrað mál af síld í Grindavík. FULLTRÚAR hinna tveggja risastóru verkalýðssambanda Bandaríkjanna, AFL og CIQ, ræddust við í dag varðandi vænt- anlega afstöðu til forsetaefnanna i forsetakosningunum þar í haust. Samtals hafa verkalýðssamböndin innan sinna vébanda um 16 milljónir manna og er afstöðu þeirra beðið með mikilli eftirvæntingu. ÆL, sem er mun fjölmenn-* ara. hefur ekki tekið slíka af- stöðu opinberlega til nokkujs í'orsetaefnis síðan 1927, en taldar líkur til að það breyti út af venjunni í þetta skipti, án þess að vitað sé á hvora sveifina það muni hallast. Tal- ið var víst, að CIO myndi hafa stutt Truman núverandi for- seta af öllu.m mætti, ef hann hefði verið forsetaefni demó- krata, en sambandið mun ekki vera eins ánægt með Adlai Stevenson sem forsetaefni. Truman forseti bauð fyrir skemmstu þeim Eisenhower hershöfðingja og Adlai Stev- enson til Washington, í því skyni, að þeim yrði veitt sem bezt fræðsla um heimsmálin áður en þeir leggja fyrir alvöru út í kosningabaráttuna. Hefur Stevenson þekkzt boðið, en Eisenhower hafnað því. Færir hann þau rök fyrir neitun sinni, að hann kjósi helzt að mynda sér sjálfstæða skoðun u,m þau, án áhrifa frá þeim mönnum, sem svo lengi og illa hefðu stjórnað, eins og hann komsí að orði. NAGUIB hershöfðingi í Egyþtalandi lét í dag setja hervörð um stöðvar aðalmál- gagns wafdista í Kairó. Yfirgnæfandi meirihlutl síldveiðiskipanna ' hefur ekki aflað fyrir kaupfryggingu ■ ---------*--------- NEFND, sem skipuð hefur verið til að finna lausn á vandræðum síldarútvegsins, nú þegar síldveiðia fyrir Norðurlandi hefur algerlega brugðizt, leggur til að hlutatryggingarsjóði verði tryggt fé til að gegna hlutverki sínu og leysa út sjóveð hásetanna á síldveiði skipunum, en yfirgnæfandij meirihluti skipanna hefup. ekki aflað fyrir kauptrygg|ngu sjómanna. Bæði vegna sjómananna,* ^ sem vitaskuld þurfa að fá kaup sitt greitt, og útvegs- ins, sem stendur höllum fæti, er nau'íVsynlegt að gera skjót ar ráðstafanir. Tveir Akureyringar opna málverka- sýningu SÍÐAST LHJINN LAUGAR DAG opnuðu tveir ungir Akur eyringar málverkasýningu í gagnfræðaskólanum, þeir Að- alsteinn Vestmann og Gunnar Dúi Júlíusson. Á sýningunni eru rúmlega 100 myndir, flest vatnslitamyndir, en einnig nokkur olíumálverk og teikn- ingar. Nefndin er skipu.ð þremur mönnum, sem LÍÚ, síldarút- vegsnefnd og síldarverksmiðj- ur ríkisins hafa tilnefnt til við ræðna við ríkisstjórnina um lausn á þessu vandamáli. í nefndinni eiga sæti; Erlendu.r Þorsteinsson frá síldarútvegs- nefnd, Sverrir Júlíusson frá LÍÚ og Sveinn Benediktsson frá síldarverksmiðjum ríkisins. Hann er formaður nefndarinr, ar. Alþýðublaðið hefur frétt, að nefndin hafi rætt málið við forsætisráðherra og fjárrnála- ráðherra og lagt fyrir þá fram angreinda tillögu, — en át- vinnumálaráðherra, sem for- ustu hlýtur að hafa í þessum málum, er sjúkur. Ekki veit blaðið, hvað ríkisstjórnin hef- ur í hyggju að gera, en það er augljóst, að á þessum málum verður að taka með festu og leysa vandkvæði útvegsins skjótt, svo að sjómennirnir fái kaup sitt greitt og útvegurinn stöðvist ekki. Skólasfjórafrúin á Eiðum fæddi barn jeppa á leiðinni milli Eiða og Egilssfaða HINN 2. þ. m. ske-ði sá ein stæði atburður, að kona fæddi barn í jeppabifreið á leið milli Eiða og Egilsstaða á Austurlandi. Þetta bar a® með þeim hætti, að Sigrún Sigurdórsdóttir, kona skóla- stjórans á Eiðum, Þórarins Þórarinssonar, tók léttasótt, sem ekki er í frásögur fær- andi undir venjulegum kring umstæðum. Hugðist maður hemiar fara með hana í sjúkrahúsið á Egilsstöðum, og lögðu þau af stað í jeppa- bifreið skólastjórans, em vegalengdin milli þessara staða er um 15 kílómetrar. Er ekki að orðlengja það, að konan fæddi stúlkubarn i bifreiðinni þegar þaa voru komin hér um bil miðja vega til Egilsstaða. Tók maður hemiar á móti barninu og lagði litlu stúlkuna i fang móðurinnar, og sá kostur var einn fyrir hendi uð halda á- fram tii Egilsstaða. Þegar þau voru nýlögð af stað að nýju, mættu þau stórum far- þegabíl og stöðvuðu liann. Svo vel vildi til að meðal farþeganna þar var þýzk hjúkrunarkona, sem kunnl allvel tál þeirra starfa, er hér var mest þörf fyrir að innt væru af hííndum eins og á stóð. Var nú skilið á .milli, konumii og barninu veitt sú aðhlynning, sem við varð komið og enn haldið.af stað áleiðis tij Egilsstgða, en jafn framt komið þangað boðum um, hvernig komið væri. Þegar til Egilsstaða kom voru þar fyrir læknir og ljós móðir og mæðgunum veitt sú bezta hjúkrun, sem kostur var á. Þeim heilsaðist báðum vel, og varð livorugri meint af. — Þetta er fimmta barn skólasjórahjónanna, og áttu þau þrjá drengi og eina stúlku fyrir, en hafa auk þess tekið að sér munaðar- laust fósturbarn, sem nú er hið sjötta í sysikinahópnum. I Noregskonungur i r * þakkarforseía Islands heillaóskaskeyii i FORSETI ÍSLANDS sendí hans hátign Hákoni Noregskors ungi heillaskeyti á áttræðisaf-» mæli hans og hefur nú borizt þakkarskeyti frá konungi. Einkaskeyti til AB. Akureyrarbæ neilaS um fjárfestingarleyfi Á FUNDI bæjarstjórnar Ak« ureyrar var frá því skýrt í síð- ustu viku, að Aku.reyrarbsa hefði verið neitað um fjárfest- ingarleyfi til byggingu fjög- urra íbúðarhúsa til útrýming- ar heilsuspillandi húsnæði. En hins vegar hefur ríkið veitt lán til þessara sömu bygg- inga! Af fé því, sem álþingi sam- þykkti á sínum tíma að verja til útrýmingar heilsuspillandi húsnæði, hefúr Akureyri verið veittar 800 þúsu.nd krónur. Með leyfi ríkisstjórnarinnar hefur Akureyrarbær ákveðið að verja fé þessu með tvenn- um hætti: Byggja sjálfur 4 íbúðir, en lána hitt til bygg- ingar mönnum, sem annað hvort eru, húsnæðislausir rr.eð fjölskyldur sínar, eða búa S heilsuspillandi íbúðum. veiðl á Súðavík —3> ■ i SÚÐAVÍK í gær. MIKIL smásíld er nú í Álfta firði. Vélbáturinn Einar Hálf- danarson fékk um 200 mál í einu kasti í gærkveldi, og smá trillubátar hafa aflað töluvert í háf. Allgott fiskirí -er nú í ísa- fjarðardjúpi. .i A. K.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.