Tíminn - 10.07.1964, Page 2
FIMMTUDAGUR, 9. júlí.
NTB-Vientiane. — Gefin var
í dag út tilskipun þess efnis,
að kosningar sk'uli fara fram í
Laos næsta vor og verður þá
þing kosið til næstu fimm ára.
NTB-Pe'king. — í ritstjórnar
grein málgagns kínverska kom
múnistaflokksins í dag er fast-
lega gefið í skyn, að það sé
skylda Kínverja að kotma N.-
Vietnam til hjálpar, ef bardag-
arnir í S.-Vietnam tækju að
færast norður á bóginn. Vitnar
blaðið i ræðu Chen Yi, utanrík
isráðherra, þar sem hann sagði,
að met’.n gætu ekki búizt við,
að Kínverjar sætu aðgerðarlaus
ir hjá, ef ráðizt yrði á Norður-
Vietnam
NTB-Leopoldville. — Þar sem
ekki tókst að ná í fyrrverandi
forsætisráðherra Kongó, Cyr-
ille Adoula, í allan dag, gat
Kasavubu, forseti ekki útnefnt
Moise Tshombe, fyrrverandi
fylkisstjóra í Katanga, forsæt-
isráðherra hinnar nýju stjórn-
ar í Kongó, því að undirskrift
Adoula undir ráðherralistann
er skiiyrði fyrir útnefningunni.
Kasavubu hefur liins vegar að
öllu leyti fallizt á ráðherralist-
ann. Samkvæmt stjórnarskrá
Iíongó, verður a?S bera allar á-
kvarðanir forsetáns undir ríkis
ráð, og þar sem Adoula var
ekki mættur, var ekki hægt að
gahga frá skipun Tsliombe í for
sætisráðherraembættið.
NTB-Stokkhólmi. — Georges
Pcmpidou, forsætisráðherra
Frakka og Couve de Murville,
utanríkisráðherra luku í dag
viðræðum sínum við pólitíska
ráðamenn í Stokkhólmi en þar
voru þeir í opinberri heimsókn.
NTB-Washington. — John-
son, Bandaríkjaforseti, hefur
skipað Margaret Joy Tibbetts,
sendiherra Bandaríkjanna í
Noregi, að því er segir í til-
kynningu frá Hvíta húsinu í
kvöld.
NTB-Vínarborg. — Á ráð-
stefnu Alþjóðapóstsambandsins
í Vín, var í dag felld tillaga
um að útiloka Suður-Afríku
frá aðild að sambandinu. Til-
lagan var felld við leynilega
atkvæðagreiðslu með 58 at-
kvæðum gegn 56.
NTB-London. — Brezka
stjórnin og Sovétstjórnin hafa
náð samkomulagi um skilyrði
fyrir lánastarfsemi, sem gerir
Sovétríkjunum fært að kaupa
mikið aí iðnaðarvarningi í
Bretlandi, að því að haft er eft-
ir áreiðanlegum lieimildum í
Lundúnum í dag.
NTB-Washington. - U Thant
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna hefur lagt til, að hið
fyrsta verði haldin ný Gefnar-
ráðstefna til að ræða deiluna
í S.-Vietnam.
NTB-Róm. — Aldo Moro,
fyrrverandi forsætisráðherra
ftalíu hélt í dag tvo fundi með
leiðtogum þeirra flokka, sem
sátu í síðustu samsteypustjórn
og ræddi við þá um möguleik-
ann á myndun nýrrar stjórnar
í landinu.
MIKILVÆG RÁDSTEFNA
Umræður héldu áfram á
samveldaráðstefnunni í Lund-
únum í gær, en liún var sett
í fyrradag og stendur yfir í
fimm daga. Meðal þeirra, sem
töluðu í dag, Var Ajub Kahn,
forseti Pakistan og ræddi
hann m.a. aðstoð Bandarilíj-
ana við lönd í Miðaustur-Asíu.
Ráðstefnu þessa sitja flestir for-
sætisráðherrar brezka samveldis-
ins og verða á ráðstefnunni tekin
fyrir mörg mikilvæg mál, þar á
meðal vandamál S-Rhódesíu, sem
búizt er við miklum deilum um.
Eins og kunnugt er af fyrri frétt
um, komst forsætisráðherra Ind-
lands, Shastri, ekki til ráðstefnunn
ar sökum lasleika en hann fékk
fyrir skömmu aðkenningu að slagi
og verður að halda kyrru fyrir
fyrst um sinn a.m.k.
í sinn stað sendi hann á ráð-
stefnuna T.T. Krishnamachari,
fjármálaráðherra og hina 46 ára
gömlu dóttur Nehrus, fyrrverandi
forsætisráðherra, Indira Gandhi.
Indira Gandhi var gerð að upp-
lýsingamálaráðherra í stjórn Lala
Bahadur Shastri fyrir skömmu og
hefur sending hennar á ráðstefn-
una vakið mikla athygli og talin
bera þess vott, að Indira sé ætlað-
ur mikill frami innan Congress-
flokksins og hafa jafnvel sumir
pólitískir fréttamenn bent á, að
ef veikindi Shastri, forsætisráð-
herra reynast langvinn, þá verði
Indira skipuð staðgengill hans í
embættinu, en slíku starfi gegndi
einmitt Shastri síðustu vikurnar
fyrir dauða Nehrus.
Enn standa björgunaraðgerðir
yfir á jarðskjálftasvæðinu í há-
lendinu skamnit suðvestur af
Mexíkóborg, þar sem fjöldi þorpa
hrundi í rúst í jarðskjálftum á dög
unum.
Enn er ekki fullvíst, hve margir
Iiafi' farizt ,en talið er, að þeir séu
yfir 50. Mörg þorp einangruðust,
og vinna björgunarmenn nú að því
að koma samgöngum í lag auk
þess sem þcir hreinsa nú til í rúst-
unum. Einna harðast úti urðu
þorpin í Couyuca-dalnum ,og er
myndin hér til hliSar frá björg-
unarstarfi þar. Sjást björgunar-
menn hefja vinnu við að hreinsa
til í rústum hruninna húsa. Óttast
er, að drepsóttir kunni að koma
upp ,og hafa ýmsar öryggisráðstaf-
anir verið gerðar í því sambandi.
SLATTUR
FramhalO af I siSu
hirða hey í sveitum sunnanlands í
dag.
Heyskapur stendur nú sem hæst
í flestum sveitum norðanlands, og
hófst sláttur þar með fyrra móti.
Þó háðu kuldar sprettu í uppsveit
um, þótt snemma voraði. Síðan
ræktunarlönd hafa aukizt nota flest
ir bændur nokkuð af þeim til vor
beitar, og að þessú sinni ætla
beittu túnin að spretta seint. —
Friðuðu túnin eru orðin mjög
vel sprottin. Margir bændur hafa
nú fengið ágætlega verkuð hey í
hlöður, en aðrir lítið, og t. d. í
Mývatnssveit eru margir ekki farn
ir að slá. Fréttaritari blaðsins á
Akureyri sagðist álíta, að útlitið
væri nú betra en oft áður. Bænd
ur hafa margir orð á því, að þar
sem þeir hafa borið á húsdýraá-
burð á haustin og aftur tilbúinn
áburð á vorin sé spretta góð, en
mun minn, þar sem tilbúnn á-
burður hefur eingöngu verið not-
aður. f dag var sólskin og gott
véður víða norðan lands.
Vestanlands er heyskapur frem-
ui skammt á veg kominn. T. d.
sagði fréttaritari blaðsins í Stranda
sýslu, að í hans sveit væri aðeins
búið að hirða í vothey. Spretta er
þar sæmileg, en sláttur hófst yf-
irleitt ekki, fyrr en fyrir viku. •—
Undanfarið hefur verið norðan-
stormur og kuldi á þessum slóð-
um, en í dag var hlýrra og betra
veður.
Á Austurlandi eru tún víðast
ágætlega sprottin, og nokkrir
bændur eru búnir að hirða meiri
hlutann af túnum slnum. Margir
kvarta þó um, að túnin nái sér
seint eftir kalið, sem var ofboðs-
legt veturna ‘62 og ‘63. Sumir hafa
orðið að rífa túnin sín algjörlega
upp og sá í þau á nýjan leik. —
Fréttaritari blaðsins á Egilsstöð-
um kvartaði yfir því, að nú væri
síldin komin, og þá kæmu kall-
arr.ir neðan af fjörðutn og smöl-
uðu stúllcunum í síldina.
MYNDIN er tekin við komu Indira Gandhi til Lundúna á þriðjudag-
inn og er hún að faðma vinkonu sína, sem færði henni blóm. Indira
er til hægri á myndinni.
Philip /
Malawi
Eins og kunnugt er af fyrri frétt
um, féll það í hlut Philíps, her-
toga af Edinborg, sem hér var í
heimsókn á dögunum, að verða
viðstaddur fyrir hönd brezku krún-
unnar, hátíðahöldin í Nyassalandi
í tilefni af sjálfstæði landsins.
Nyassaland var lýst sjálfstætt
ríkí þann fimmta þessa mánaðar,
og lieitir ríkið nú Malawi.
Er þetta þrítugasta og sjöunda
Afríkuríkið, sem hlýtur sjálfstæði.
Að vonum var mikið um dýrðir
í samband við sjálfstæðisdaginn
og tók Philip, hertogi, fullan þátt
í gleði fólksins. Hér á myndínni
sést hann dansa við innfædda
konu, frú C. Kadzamira.
Fimmtudagurinn 9. júlí 1964:
SÍLDARLEITINNI var ekki
kunnugt um neitt skip, sem feng-
ið hafði afla s. 1. sólarhring. — f
morgun var veður farið að batna
! á miðunum og skipin, sem legið
I höfðu á Raufarhöfn, voru farin á
miðin. Hins vegar voru skip þau,
sem lágu á Austfjarðahöfnum,
eigi farin út.
2
T í M I N N, fðstudagur 10. júlí 19ÍA