Tíminn - 30.07.1964, Side 2
Mlðvikudagur, 29. júlí.
NTB-Jackson. — Flokksþing
demokrata í Mississippi sam-
þykkti í gær að taka fyirst um
sinn enga afstöðu með eða
móti neinum sérstökum fram-
bjóðenda við forsetakosningarn
ar I haust.
NTB-Pasadena. — Allt bendir
til þess að geimskipið Ranger
VII lendi á tunglinu síðdegis á
föstudag eins og áætlað er.
NTB-Moskva. — U Thant, fram
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð
anna, ræddi i dag við Nikita
Krústjoff forsætisráðherra í
Moskvu.
NTB-Pretoria. — Verwored-
stjórnin í Suður-Afríku hefur
vísað frá ósk Bretlands um að
Nelson Mandela og sjö félagar
hans fái mildari dóm, en þeir
voru dæmdir í ævilangt fang-
elsi fyrir skömmu.
NTB-Ottawa. — Kanada hefur
ákveðið að senda n«fnd til
Malaysíu tid þess að gera sér
grein fyirir hergagnaþörf sam-
bandsins í baráttunni við Indó
nesíu.
NTB-Medford. — Tíu cnenn
meiddust lítilsháttar í kynþátta
óeirðunum á skautasvelli í Med
ford, Massachusetts í gærkvöld.
Óeirðirnar hófust, þegar blökku
maður reyndi að fara á skauta
þar ásamt ungri, hvítri stúlku
NTB-Kmh. — Trúárbragðaleið
t«gar frá Austur-Þýzkalandi fá
ekki vegabréfsáritun til þess að
taka þátt í evrópsku kirkjuráð-
stcfnunni, sem haldin verður í
Dianmörku í október.
NTB-Washington. — Jaqueline
Kennedy, ekkja Kennedys for-
seta, fer í ágúst í skemmtiferð
á snekkju meðfram júgó-
slavnesku Adríahafsströndinni
ásamt brezkum vi'num sínum.
NTB-London. — Gambia verður
sjálfstætt ríki einhvern tíma í
febrúar 1965, að því er tiikynnt
var í Londo>n í dag.
NTB-Tokio. — Sovétríkin munu
n.k. föstudag láta lausan 51 jap
anskan fiskimann, sem hand-
teknir voru í maí s.l., ákærðir
fyrir að hafa farið inn í sovézka
Iandhelgi.
NTB-Paris. — Árið 1964 er tal
ið verða óvenjugott hvað fram
leiðslu snertir, og verða gæði
vánsins sérlega góð.
NTB-Lissabon. — 65 menn voru
í dag dæmd'ir í allt að 10 ára
fangelsi fyrir misheppnaða upp
reisnartilraun gegn ríkisstjórp
inni í janúar 1962.
9 af 14 námumönnum taldir á lífí
NTB-Champagnole, 29. júlí.
f nótt verður gerð tilraun til
þess að bjarga þeim níu námu-
verkamönnum, sem lokaðir eru
niðri í kalknámu, ca. 68 metra und
ir yfirborði jarðar í Champagnole
í Austur-Frakklandi. Við björgun
artilraunina verður notað sams
konar björgunartæki og notað var
við björgun námumannanna í
Lengede-námunni í Vestur-Þýzka
landi í fyrra.
Vitað er með vissu, að 9 af þeim
fjórtán námumönnum, sem lokuð
ust inni í námunni, eru á lífi, en
vafi leikur á um 2. Björgunar-1 sem látinn var síga niður í gegn
mennirnir náðu í dag sam- um borholu. Einn hinna innilok-
bandi við þá með hjálp magnara,' uðu sagði, að þeir væru aðeins
Kappreiðar Faxa
KH-Reykjavík, 29. júlí.
Síðastliðinn sunnudag hélt
hestamannafélagið Faxi kappreið-
ar við við félagsheimilið Faxa-
Údýr fargjöld á Vestfirö-
ingavöku og Önfirðingamót
Um verzlunarmannahelgina verð
ur mikið um að vera á ísafirði
og Flateyri við Önundarfjörð. Á
fsafirði verður Vestfirðingavaka,
en Önfirðingamót að Flateyri.
Vestfirðingavakan stendur dag-
ana fyrsta og annan ágúst og verð
ur þar margt til skemmtunar,
knattspyrnukeppni, frjálsar íþrótt
ir, samkomur og dansleikir.
í sambandi við þessi hátíðahöld
hefur Flugfélag íslands ákveðið
lækkun á fargjöldum til Vest-
Nyt fra Island
Tímanum hefur borizt ritið Nyt
fra Island, sem gefið er út af
Dansk-Islansk Samfund, en rit-
stjóri er Bent A. Koch.
Af efni blaðsins má m.a. nefna
grein um stöðu danskrar tungu
á íslandi, Frá ári til árs, eftir
Bjarna Benediktsson, forsætisráð
herra, Eyja íæðist, eftir Elínu
Pálmadóttir, blaðakonu á Morgun-
blaðinu, Morgunblaðið í fimmtíu
ár eftir Matthías Jóhannessen, rit
stjóra, og „Islansk Portræt1' um
Matthías Jóhannessen, ritstjóra
höfundur Sigurður A. Magnússon,
blaðamaður við Morgunblaðið. Það
eina sem skyggir á, að hér sé urri
fylgirit Morgunblaðsins að ræða,
er forsíðumyndin. Hún er frá
Surtsey, tekin af Ijósmyndara Tím
ans, og dreift í gegnum Polfoto
í Kaupmannahöfn. Nyt fra Island
er að sjálfsögðu skrifað á dönsku.
fjarða um verzlunarmannahelgina
og kostar farið frá Reykjavík til
ísafjarðar og aftur til Reykja-
víkur kr. 1145.00. Fargjöld þessi
gilda frá 31. júlí til 4. ágúst að
báðum dögum meðtöldum.
NORRÆN SAMBÚÐ
] REYND Á FJÖL-
SKYLDUSVIÐINU
NTB-Osló, 29. júlí.
Danmarks Radio ætlar í byrjun
i ágúst að gera tilraum með, hvort
íbúar Norðurlanda geti lifað sam
an í sátt og samlyndi. í því skyni
fær ein fjölskylda frá hverju Norð
j urlandanna tækifæri tJil þess að
búa sáman á eyjunni Moirs í Lima
firði í eina viku.
1 Frá íslandi tekur þátt í þessari
tilraun Andrés Björnsson, dag-
■' skrárstjóri. Hinir fimm eru:
' Christian Mehlem, magister, Hels- j
i ingfors, Hedin Bru, rithöfundur, I
' Þórshöfn í Færeyjum, Trygve Bull j
i þingmaður, Oslo, Jörgen Weibull,
1 dósent frá Lundi í Svíþjóð, og Paul
Erik Söe, ritstjóri, frá Kaupmanna j
höfn. Allir þessir menn hafa fjöl-
skyldur sínar með sér, og verða
■ þátttakendur því alls 35.
Sumarfrí þetta hefst 2. ágúst j
og stendur til 8. ágúst. Þátttakendj
urnir munu á þessum tíma taka!
þátt í sjö sendingum í danska út-j
varpinu. i
borg á Ferjukotsbökkum. Mikil
aðsókn var manna og hesta, og
mótið fór vel og greiðlega fram.
Veður var gott alveg fram á
kvöld.
Vallarstjóri á mótinu var Mar
inó Jakobsson, Skáney í Reyk-
holtsdal. Enginn hestur náði lág-
markstíma til fyrstu verðlauna í
250 m. skeiði, en fyrstur varð
Hrollur Sigurðar Ólafssonar,
Reykjavík, á 25.8 sek. og annar
varð Blakkur Sæmundar Ólafs-
sonar, Guðnabakka. f 300 m.
stökki varð fyrstur Grámann Sig
urðar Sigurðssonar, Reykjavík, á
23 sek., á sama tíma, en sjónar-
mun á eftir, varð Tilberi Skúla
Kristjánssonar, Svignaskarði, og
þriðji varð Logi Sigurðar Sigurðs
sonar, Reykjavík. Logi Ágústar
Oddssonar, Akranesi, vann 250 m.
folahlaup á 19.4 sek., annar varð
Ölvaldur Sigurðar Tómassonar í
Sólheimatungu á 19.5 sek. og
þriðji Blossi Dagbjarts Dagbjarts
sonar, Akranesi, á 20 sek.
Þá var félagskeppni góðhesta
um Faxaskeifuna, en það er silf
urskeifa, sem félagið gefur og
keppt er um árlega. Faxaskeifan
féll nú í hlut jarps hests frá
Hofsstöðum á Mýrum í eigu hús
freyjunnar þar, Ingibjargar Frið-
geirsdóttur.
tvo metra frá stað, þar sem grjót-
skriða hafi fallið, og sagði, að
of mikill hávaði gæti komið nýrri
skriðu af stað. Þeir fengu niður
til sín matvæli, sígarettur og
vasaljós og kort yfir námugöng
in.
Sambandið við námumennina
náðist fyrst 36 klukkustundum eft
ir, að slysið varð, og minnkuðu
vonir björgunarmannanna um,
að einhverjir væru lifandi niðri í
námunni smám saman, einkum eft
ir að viss hljóð, sem þeir töldu
að væru hljóð frá námumönnun-
Framhalo s 15 slðu
Aðalfundur Landssam-
bands veiðifélaga
LANDSSAMBAND veiðifélaga
hélt aðalfund sinn í Borgarnesi
hinn 5. júlí. Á fundinum flutti
Þór Guðjónsson, veiðimálastjóri,
erindi um veiðifélög og Þórir
Steinþórsson gerði grein fyrir til-
lögum um breytingar á laxveiði-
lögunum. Miklar umræður urðu
um starfsemi veiðifélaga og um
breytingar á laxveiðilögunum svo
og ýimsar framfarir í veiðimálum.
Voru fundarmenn sammála um
nauðsyn þess að auka til muna
starfsemi í þágu veiðimála og
veita Veigimálastofnuninni aukið
fé til starfsemi sinnar, og skoruðu
á ríkisstjórn og Alþingi að bæta
hér um. í stjórn Landssambands
veiðifélaga eiga sæti þeir Þórir
Steinþórsson, skólastjóri, Reyk-
holti, formaður, Hinrik Þórðar-
son, Útverkum, og Óskar Teits-
son, Víðidalstungu.
Hokjökulilagðist að
bryggju á Djúpavogi
ÞS—Djúpavogi, 29. júlí
í morguin kom Hofsjökull hing-
að til Djúpavogs og lagðist að
bryggju, og gekk það mjög vel,
cn þetta er stærsta skip, sem
hingað hefur komið. Hofsjökull er
2830 lestir og skipstjórinn er Ing-
ólfur Möller.
Ingólfur hefur komið hingað áður
með stórt skip, Langjökul og
Drangajökul, en þeir eru um 2000
lestir, og er Hofsjökull því mun
stænri, Ilofsjökull kom hingað til
þess að lesta freðsUd til útflutn-
inigs.
VARNAÐARORÐ
Miðvikudaginn 29. júlí.
SÆMILEGT veður er nú á síldar-
miðunum úti fyrlr Ausffjörðum og
gott veður út af Langanesi. Einn
bátur fékk síld í gærkvöldi 75 mil-
ur austur af norðri frá Langanesl.
Þar voru nokkuð mörg skip i morg
un, en ekkert þeirra hafði fengið
veiði. Sömuleiðis var engin veiði út
af Austfjörðum í morgun eða nótt,
þrátt fyrir sæmilegt veður. .
Samtals 12 skip með 4.200 mál og
tunnur.
Ólafur Friðbertsson ÍS 200 mál.
Þórkatla GK 200. Ásbjörn RE 200.
Sólrún ÍS 300. Garðar GK 200. Ögri
GK 300. Engey RE 500. Þórsnes SH
150 Fákur GK 250. Skipaskagi AK
400. Höfrungur in AK 200. Sigurður
Bjarnason EA 1300 tn.
Ein lengsta frí- og ferðahelgi
sumarsins er framundan —
verzlunarmannahelgin — sem
orðinn er að miklu leyti al-
mennur frídagur. Undirbúning
ur hvers og eins, til að njóta
þessa langa helgarfrís, hver á
sinn hátt, mun að mestu full-
ráðinn.
Þúsundir manna þyrpast í
allar áttir, burt frá önn og erli
hins rúmhelga dags.
Samkvæmt árlegri reyrizlu,
er umferð á þjóðvegum úti
aldrei meiri, en um þessa helgi,
umferð sem fer vaxandi ár frá
ári.
Hundruðum saman þjóta bif
reiðir, fullskipaðar ferðafólki,
burt frá borgum og bæjum, út
í sveit, upp til fjalla og öræfa.
í slíkri umferð, sem reynzla
áranna, hefir sýnt og sannað,
að er um þessa helgi, gildir
eitt boðorð öðru framar, sem
tákna má með einu orði, að-
gæzla eða öryggi. En brot
gegn því boðorði getur gætnin
ein tryggt.
Hafa menn hugleitt í upphafi
ferðar — skemmtiferðar —
þau ömurlegu endalok hvíldar-
og frídagafarar, þeim, sem
vegna óaðgæzlu, veldur slysi
á sjálfum sér, sínum nánustu,
kunningjum eða samferðafólki.
Sá, sem lendir í slíku óláni, bíð-
ur slíkt tjón, að sjaldan eða
aldrei grær Um heilt.
Það er staðreynd, sem ekki
verður hrakin, að einn mesti
bölvaldur í nútima þjóðfélagi,
með sína margþættu og sí-
auknu vélvæðingu, er áfengis-
nautnin. Og tekur það böl
ekki hvað sízt til umferðarinn-
ar almennt, en þó sérstaklega á
stórum ferðahelgum. f þessu
sambandi má minna á að s. 1.
7 mánuði ársins hafa orðið,
hvorki meira né minna, en 14
banaslys af völdum umferðar-
innar, sem m. a. stafa af
ónógri aðgæzlu. Þá má minna
á, að samkvæmt lögreglu-
skýrslum eru meint brot vegna
ölvunar við akstur, frá áramót
um rúmlega 400, en voru á
sama tíma í fyrra um 300.
Það er ábyrgðarleysið dæmi
gert, á hæsta sfigi, að setjast
að bílstýri undir áhrifum áfeng
is.
Afleiðingarnar láta heldur
ekki að öllum jafnaði, á sér
standa. Þær birtast oft í lífs-
tíðar örkumli eða hinum hrylli
legasta dauðdaga.
Áfengisvarnarnefnd Reykja-
víkur skorar á alla, sem nú
riyggja til ferðalaga, um verzl
unarmannahelgina, að sýna þá
umgengnismenningu í umferð
sem á dvalarstöðum, er frjáls-
bornu og siðmenntuðu fólki
sæmir.
En slíkt skeður því aðeins,
að menn hafa manndóm til
þess að hafna allri áfengis-
nautn á slíkum skemmtiferða-
lögum, sem fyrir dyrum standa.
(Áfengisvarnarnefnd Reykja-
víkur).
T í M I N N, fimmtudaglnn 30. fúlí f>64
— -L-
2