Tíminn - 30.07.1964, Qupperneq 16

Tíminn - 30.07.1964, Qupperneq 16
/ Fhnmtudagur 30. júlí 1964 170. tbl. 48. árg. Ekki hrædd við Kötlu KH-Reykjavík, 29. júlí. Fréttin um sprunguna í Mýr- dalsjökli hefur vakið ugg meðal margra, og hafa ferðamenn jafn- vel viljað hætta við fyrirhugað ferðalag um þessar slóðir, því að skiljanlega fýsir engan að lenda í jökulhlaupi og ósköpum. Jarð- fræðingar telja þó enga ástæðu til ótta, og hcimafólk í nágrenni Kötlu er hvergi hrætt, eins og sést af eftirfarandi samtali, sem Tíminn átti við Guðrúnu Þórðar- dóttur, húsfreyju á Þykkvahæjar- klaustri í dag: — Hafið þið útsýni til jökulsins í dag, Guðrún? — Nei, í dag er þoka og leið- indaveður. En í gær var fínasta sumarveður, þurrkur og gott skyggni til jökulsins. Við horfðum náttúrlega mikið í þá áttina, með berum augum og kíki, en við sá- um ekkert óvenjulegt. — Þið hafið ekki séð sprung- una, sem þau sjá úr Skaftártung- unni? — Nei, við gátum enga breyt- ingu séð héðan. Jökullinn er allt Framh. á bls 16 Átti 2 kálfa KJ-Reyykjavík 29. júlí. Þeir voru heldur blautir og aumingjalegir þessir tveir nýfæddu kálfar í fjósinu að Korpúlfsstöðum í kvöld, enda ekki nema tveggja tíma gaml- ir þá. En það sem var nú for- vitnilegt við þá, og okkur fannst fréttnæmt, var að þeir eru „tvíburar" annar rauð- stjömóttur og hinn baugótt- ur. Þeir komu í heiminn í dag á túninu á Korpúlfsstöðum rétt upp víð brúna hjá Korpu. Þá var hann að byrja að hellirigna hér í nágrenni Reykjavíkur, svo það var ekki að furða þótt þeir væru illa til reika greyin. Það mun ekki vera daglegur við- burður að kýr beri tveim kálf- um, en kemur þó af og til fyr- ir. I fjósinu þar sem kálfarnir voru öskruðu þrír bolar svo varla var viðlit að tala saman, hefur þeim þótt við vera of nærgöngulir við afkvæmi einhvers þeirra. Þama í fjós- inu eru venjulega um hundrað hausar, og það þykir ekki ný næmi þótt „belja beri“, en svolítið er það þó til að lífga upp á hversdagsleikann þegar tveir kálfar koma í heiminn samtímis, og þar að auki stórir og stæltir bolakálfar. Stór hafnaprammi týndist úr togi J—Reykjavík 29. júlí víkur mótorbáturinn Reykjaröst, komið var undir Jökul slitnaði —, ■*—* ------*—......... morgun lagði af stað til Olafs- með fallhamarspramma í togi. Er pramminn aftan úr bátaum, og gátu bátsverjar ekki náð honum aftur. Reykjaröst lagði af stað með pramma þennan í morgun, en nota átti hann við hafnargerðina í Ólafsvík. Mánafoss kom til Ólafs víkur í morgun með stál í enda- kerið, en fallhamarinn átti að nota við endakerið á hafnargarðinum, þar fyrir vestan. Eins og áður segir þá slitnaði pramminn úr togi undir Jökli, nán ar tiltekið 10 mílur SA af Malar rifi. Bátsverjar reyndu að ná prammanum aftur, en það tókst ekki. Bæði var báturinn fullhlað-1 inn, og þvtþungur, og svo var vont í sjóinn þarna um miðjan dag þegar pramminn slitnaði frá ^ Halldór sýnir nýja bæjarhlutann á skipulagsuppdræftinum.. (Timamynd-PB). MIKLAR BYGGINGAR I BORGARNESI I SUMAR KJ-Reykjavík, 29. júlí. FRAMKVÆMDIR í bæjum og kauptúnuin standa nú sem hæst, þar sem á annað borð er hægt að fá einhvern mannskap í vinnu. — Blaðið hafði samband við sveitar- stjórann í Borgarnesi, Halldór E. Sigurðsson alþingisinann og spurði hann frétta áf framkvæmdum í Borgarnesi og fleiru, sem á döf- inni cr þar. — Hér í Borgarjiesi er unnið á- fram að varaniegri gatnagerð við Egilsgötu og Borgarbraut, en ekki er enn ákveðið, hve mikið verður steypt í sumar. Mikið er hér um nýbyggingar, bæði íbúðarhús og svo húsnæði undir atvinnurekstur. Þannig eru t. d. 25 íbúðarhús í smíðum eins og er, og verða þar yfir 30 íbúðir. Gert er ráð fyrir að byrjað verði á fleiri húsum í sumar. Borgarnes byggist nú aðallega á Brennuholti kringum vatnsgeym- inn, sem er sunnarlega í bænum. Ný gata hefur verið lögð að þessu hverfi og öðru nýbyggingahverfi og liggur hún frá Borgarbraut og suður að firðinum. Á fjárhagsáætlun hreppsins er allt að 2 milljónum varið til gatna vega og holræsagerðar. Unnið er að viðbótarbyggingu við Barnaskólann, og er ætlunin að miðskólinn flytji þangað þegar þar að kemur. Tvær kennslustof- ur verða væntanlega teknar í not'k un í nýbyggingunni í haust. Uti í Brákarey er Kaupfélag Borgfirð inga með sláturhús í byggingu, sem verður mikið mannvirki. Áætl að er að steypa eina hæð í sumar sem hægt verður að nota í slátur tíðinni í haust. Þá er Vírnet h.f. að byggja hér 1100 fermetra iðn- aðarhúsnæði efst í þorpinu. íbúar þorpsins nálgast nú óðum þúsundið, og er ýmislegt sem gera þarf í þúsund manna bæ. Þannig opnar hér á komandi hausti lyfja verzlun, og hefur Kjartan Gunn- arsson lyfjafræðingur fengið iyf söluleyfi. — Olíufélagið h.f. og Skeljungur starfrækja hér nýjar Framhald a 15 sfðu Reykjaröst. Ætlunin var að Björn Pálsson flygi í kvöld vestur og svipaðist um eftir prammanum, en vegna slæmra veðurslilyrða varð ekki af því í kvöld. Bátar og skip sem voru á þessum slóðum voru beðta að svipast um á þessum slóðum, en ekki var neitt skip búið að til- kynna fund prammans er síðast fréttist. Strax í fyrramálið mun verða farið að stað, til að leita prammans ef hægt er úr lofti. Prammi þessi er 15x5 metrar að stærð og eign Vita- og hafnar- málaskrifstofunnar. Héraðsmót í V.- Skaftafellssýslu Framsóknarmenn í Vestur- Skaftafellssýslu Iiatda hið árlega héraðsmót sitt að Kirkjubæjar- klaustri laugardaginn 8. ágúst og hefst það kl. 9. Ræður og ávörp flytja Eysteinn Jónsson, formað- ur Framsóknarflokksins, og Óskar Jónsson fulltrúi. Skemmtiatriði annast Emilía Jónasdóttir leik- kona og Árni Jónsson óperusöngv ari. Að lokum leika Tóna-bræður fyrir dansi. fffi ÓSKAR EYSTEINN LOfTLEIÐIR FLVTJA I UAG FB-Reykjavík, 29. júlí. í FYRRAMÁLIÐ verða tvær síð ustu flugvélar Loftleiða afgreidd- Verum okkur sjálfum tilsáma Nú fer verzlunarmannahelgin að nálgast og umferðin verður mikil um byggðir og óbyggðir. Við viljum öll koma að ósnortinni náttúrufegurð, þar sem hreinlega hefur verið gengið um. Skiljum því sjálf hvergi eftir matarleifar, bréf, flöskur né annað rusl Ánægjan af útivistinni verður lítil, ef umhorfs er eins og á öskuhaugum. Landið okkar er einstætt að ósnortinni náttúrufegurð og henni má ekki spilla. Verum okkur sjálfum til sóma. ar á Reykiavíkurflugvelli, og þeg- ar þær eru farnar verður allt sem við kemur tlugafgreiðslunni og móttöku gesta flutt suður á Kefla víkurflugvöll, en þar verður byrj að að taka á móti vélunum á föstu- dagsmorgun. Síðustu vélar Loltleiða, sem lenda á Reykjavíkurflugvelli að sinni kotna frá Bandaríkjunum um og eftir kl. 7 í fyrramálið, að sögn Sigurðar Magnússonar blaðafull- trúa, og á föstudaginn verður byrj að að afgreiða Loftleiðavélarnar í Keflavík. eingöngu Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á Flugvallarhótelinu í Keflavík og er þeim ekki að fullu lokið enn. Um 130 manna starfs- lið hefur verið ráðið suður eftir að undanförnu til þess að annast móttöku og fyrirgreiðslu fyrir vél- ar og farþega Loftleiða þar í fram- tíðinni. SVEITARSTJORI HELLISSANDI AJ-Sandi, 28. júlí. ílér hefur verið skipaður nýr sveitarstjóri, Jónas Gestsson frá Stykkisliólmi. Tveir inenn auk Jónasar sóttu um sveitarstjórastöð una, þeir Pétur Guðmundsson frá Laxnesi og Páll B. Valdimarsson frá Reykjavík.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.