Tíminn - 08.08.1964, Page 2
FÖSTUDAGUR, 7. ágúst:
NTB Varsjá. — Forseti P61-
lands, Alexander Zawadski,
andaðist í dag, 65 ára a<5 aldri.
Hann hefur verið forseti lands
ins síðan árið 1952, en áður bjó
hann lengi landfiótta í Sovét-
ríkjunum.
NTB-Stokkhólmi. — Búlg-
arskir tannlæknar. hafa nú ver-
ið ráðnir til starfa í Norður-
Svíþjóð, en þar hefur verið
mikill tannlæknaskortur. Áður
en þeir hefja störf munu þeir
sækja fiögurra mánaða nám-
skeið við Tannlæknaháskólann
í Stokkhólmi, en síðan munu
þeir halda til nyrztu héraða
landsins, sem sænskir tannlækn
ar fást ekki til að fara til. Þar
munu þeir njóta sömu launa-
kjara og innlendir tannlæknar.
NTB-Madrid. — Spænskir
verkfræðingar hafa fundið upp
aðferð til að vinna neyziuvatn
úr sjó á miklu ódýrari hátt en
annars staðar tíðkast.
, NTB-Lusaka. — Menn úr
Lumpa-trúarflokknum drápu í
gær 17 menn til viðbótar. —
Kaunda forsætisráðherra hefur
skipað að láta handtaka leið-
toga hrevfingarinnar, Alice
Lenshina, en hún hefur ekki
náðst ennþá.
NTB-Moskva. — Pravda ver
í dag miklu rúmi til að skýra
frá skýrslu um Páskaeyna, sem
norski fræðimaðurínn Thor
Heyerdal flutti á alþjóðlegu
þin<?i þjóðfræðinga í Moskvu á
miðvjil-udaginn.
NTB-New York. — Sýriand
hefur kært ísraei fyrir öryggis
ráði Sameinuðu þjóðanna. og
segir har. að hermenn frá fsra-
el hafi ráðizt á svrlenzka landa
mæraverði síðast’iðinn miðviku
dag. Sýrland segist ekki óska
eftir neinum sérstökum aðgerð
um af hálfu Samcinuðu þióð-
anna veena þessa atburðar. en
' viiii aðeins vekia athygli ör-
ygaisráð?ins á þeim.
NTB-Moskva. — Málgagn sov
ézkra ungkcmmúnista segir í
dag. að ein af meginorsökum
hins mikla drykk.iuskapar í
landinu sé ágirnc^ veitinga-
manna. sem reyni áð selia sem
mest af vodka, og er lagt til
að hætt verði að selja vodka
með ábata fyrir einstaka menn
til að stemma stigu við þessu.
NTB-Róm. — ítalska þingið
samþykkti í gær traustsyfirlýs-
ingu á stjórn Aldo Mores.
Miklir erfiðleikar hafa risiö
upp í sambandi við evrópsku
kirkjuráðstefnuna, sem upp-
runalega átti að halda í októ
ber í Danmörku. Aðalvandamál
ið var, að Ulbricht-stjórnin í
Austur-Þýzkalandí vildi ekki
láta austur-þýzku prestana fá
vegabréf til Danmerkur, sem er
í NATO. Ýmsir danskir ráð-
herrar hafa reynt að fá Ul-
bricht til þess að skipta um
skoðun, en árangurslaust.
En nú er lausnin fundin
Þingið verður haldið um borð
í danska skipinu Bornholm úti
á alþjóðlegu hafi!
Moise Tshombe forsætisráðherra Kongó stendur nú í ströngu viS aS bæla niður uppreisn þá, sem geisar
í landinu. ÞaS er því ekki furSa, þó aS hann hafi ánægju af aS handleika vopn, eins og hann sést gera
á þessari mynd.
Munu Bandarfkin
hjálpa Tshombe?
NTB-Washington, Elizabethville
og Brussel, 7. ágúst.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI Banda-
ríkjanna tilkynnti í gærkvöld, að
rætt hefði verið um, að Bandarík-
in veittu ríkisstiórn Tshombes í
Ku-klux-klan
menn teknir
!
NTB-Washington, 7. ágúst. j
Fjórir menn úr Ku-klux-klan-
samtökunum hafa verið teknir;
fastir, ákærðir fyrir að hafa myrt
blökkumanninn Lemuel Penn í
síðasta mánuði. Penn, sem hafði,
liðsforingjatign í varaliði hersins,
var skotinn með haglabyssu á leið-.
inni frá Aþenu í Georgíuríki til
Washington 11. júlí síðast liðinn
Bandaríska ríkislögreglan hefur
síðan leitað banamanna hans af
kappi, og nú hafa sem sag! fjórir
menn verið teknir höndum. Veröi
þeir fundnir sekir, eiga þeir á!
hættu að verða dæmdir til dauða.
Kongó hernaðaraðstoð til að vinna
bug á uppreisnarmönnum í land-
inu. Averell Harrimann, sérlegur
sendimaður Johnsons forseta kom
í dag til Brussel til að ræða þró-
un mála í Kongó við Spaak utan-
ríkisráðherra Belgíu.
Bandaríkjastjótn hefúr xiiðutind-
anförnu haft af því áhyggjur hve
lítið ríkisstjórn Tsohmbes vérður
ágengt við að -bæla uppreisnina
niður. Talið er að Tshombe hafi
nú farið þess á leit við Bandaríkin,
að þau veiti stjórninni tæknilega
aðstoð, en hins vegar mun hann
að svo stöddu ekki óska eftir, að
fá bandarískar flugvélar eða önn-
ui befciaðartæki til að nota gegn
uppreisnarmönnum. Fulltrúar
belgísku stjórnarinnar taka það
fram, að Belgar muni ekki breyfa
þeirri stefnu sinni, að láta innan-
líkismál Kongós afskiptalaus. —
Eelgía sé hins vegar fús til að
eita Tshombe alla þá aðstoð, sem
hún er fær um að veita. nema
beina hernaðaraðstoð. Segja Bclg
ar að öll frávik frá hlutleysi í
hernaðarátökum geti stefnt Hfi
belgískra borgara í landinu í
hættu.
barizt á Kýpur
NTB-Níkósía, 7. ágúst.
í kvöld kom til átaka I höfuð-
borg Kýpur, Níkósíu. Skiþzt var á:
skotum í miðborginni, og segir,
talsmaður Sameinuðu þjóðanna á!
eynni, að skothríðin hafi verið
hörð.
Pólsk mynd »
Stjörnubíoi
PÓLSK-íslenzka menningarfélagið
heldur kvikmyndasýningu í Stjörnu
bíói á taugardaginn klukkan 14. Þar
verður sýnd pólska kvikmyndin
Strákarnir frá Baskastræti. Leikstj.
er Aleksander Ford. — Öllum er
heimill aðgangur.
Óróinn á eynni hefur farið vax-
andi að undanförnu. Bardagar
áttu sér stað í dag á norðvestur-
hluta eyjarinnar. Segir talsmaður
Sameinuðu þjóðanna, að sprengju
kastarar og brynvagnar hafi ver-
ið notaðir í þeim átökum. Fyrr
um daginn skutu tvö kýpurgrisk
varðskip á kýpurtyrknéska bæinn
Kokkina á vesturströndinni, en
ekki hefur verið tilkynnt um neitt
tjón Segir talsmaður Sameinuðu
þjóðanna, að minnsta kosti hundr-
að skotum hafi verið skotið, en á
þessum hluta eyjarinnar var bar-
izt af hörku í gærdag og féllu þá
fjórir grískumælandi og einn
%
tyrkneskur Kýpurbúi.
Harriman mun dveljast í
nokkra daga í Brussel og eiga við-
iæður við fulltrúa stjórnarinnar
og belgíska iðjuhölda, þar á meðal
fuiltrúa frá námufyrirtaékinu Uni
on Miniere du Haut-Katanga, en
það á mikilla fjárhagsmuna að
gtöta í Kongo. Viðstaddur viðræð
ur þeirra Harrimans og Spaaks í
dag vár sendiherra Belgíu 1 Leo-
poldville, en hann mun hverfa aft
ur til Kongó á morgun og afhenda
Tshombe persónulegan boðskap
frá Spaak utanríkisráðherra.
Frá Kongó bárust þær frt/gnir
í kvöld, að herir stjórnarinnar
hefðu hrakið uppreisnarmenn frá
Baudoineville við Tanganyikuvatn,
en uppreisnarmenn hafa haldið
þeirri borg í þrjár vikur. Engar
nánari fregnir hafa borizt um á-
tökin þarna, en sagt er að upp-
reisnarmenn hafi beðið mikið
manntjón. Svo virðist sem stjórn-
arherirnir hafi stöðvað framsókn
uppreisnarmanna í Norður-Kat-
anga skammt norðan við herstöð
ina fyrrverandi í Kamina. — í
Stanleyville virðist allt vera með
kyrrum kjörum.
Flugvöllurinn þar er á valdi upp
reisnarmanna, en sendiráð Banda
j rikjanna í Leopoldville segist ekki
| hafa náð sambandi við ræðis-
[ mann Bandaríkjanna í Stanleyville
j í dag. en fregnir um átökin í bæn
j um undanfarna daga hafa flestar
!:omið frá honum.
DRUKKINN
l
! '
j r r *
OK A
Flugvélin til Eyja
FB-Reykjavík, 7. ágúst.
Eyjaflug hefur nú fest kaup á
flugvél af de Haviland-gérð, og
er vélin væntanleg til Vestmanna-
eyja um klukkan 10 í kvöld. Vél-
in er keypt í Bretlandi og tekui
hún níu farþega. Sverrir Jónsson
flugmaður hefur dvalizt ytra að
undanförnu í sambandi við þessi
flugvélakaup, og flýgur hann vél
inni heim, en með honum er Lárus
Gunnarsson vélamaður. Þeir lögðu
af stað frá London í dag og ætl-
uðu að hafa viðkomu á Hebrides
eyjunum og taka þar benzín, en
voru þegar síðast fréttist, vænt-
anlegir til Vestmannaeyja um tíu-
leytið í kvöld.
BRÆÐSLAN
FB-Reykjavík, 7. ágúst.
Síldarbræðslur ríkisins hafa nú
tekið á móti rúmum 600 þúsund
málum eða 400 þúsund meira en
á sama tíma í fyrra. Síðasta sólar-
hring fengu 30 skip samtals um
21 þúsund mál, en engin veiði
var framan af í dag, en skipin
að byrja að kasta með kvöldinu.
í dag komu 10 skip til Raufar-
hafnar og þar var saltað á 4 stöðv-
um. Síldin er yfirleitt léleg til
söltunar. .Á Seyðisfirði hefur eitt-
hvað verið saltað í dag.
1 IH-Seyðisfirði, 7. ágúst.
| í dag milli klukkan 3 og 4 varð
árekstur hér á milli U-bíls og F-
bíls, en þegar lögreglan fór að
athuga málið kom í Ijós, að öku-
maður U-bílsins var það ölvaður,
að hann stóð varla undir sjálfum
sér. Bílarnir skemmdust ekki mik-
ið og mennirnir urðu ekki fyrir ^
neinum meiðslum. Málið er i rann-i
sókn.
Veður var sæmilegt á veiðisvæð
inu, sem er 75 — 80 mílur ANA
frá Dalatanga s.l. sólarhring en
kaldi er upp við landið. Þrjú skip
fengu góðan afla 220 mílur austur
af Langanesi.
Samtals komu 30 skip með 21.500
mál og tunnur.
Hafþór RE 550 tn Þórður Jónas-
sonRE 800 tn Skírnir AK 700
Kristjgn Vaigeir GK 500 tn Guð
rún GK 700 tn Heimir SU 350
Framnes ÍS 600 tn Rifsnes RE
350 tn Ingvar Guðjónsson GK 500
tn Sólrún ÍS SOO tn Vigri GK 300
tn Snæfell EA 1700 mál Guðbjart
ur Kristján ÍS 280 1000 mál Stein
unn SH 600 tn Jón Jónsson SH
900 tn Æskan SI 300 tn Stefán
Árnason SÚ 550 tn Arnkell SH
1000 tn Þórsnes SH 650 tn Bjarmi
II EA 700 tn Skarðsvik SH 1300
tn Reykjanes GK 400 tn Árni Geir
KE-500 tn Hvanney SF 600 tn Sig-
urður SI 700 tn Loftur Baldvins
son EA 1700 mál Helga Björg HU
500 tn Björgvin áA 900 tn Guð-
björg OF 350 tn Hilmir KE 900 tn.
Bræðslan hjá ríkisverksmiðj-
unum stendur nú sem hér segir.
Hjá SR á Siglufirði hafa verið
brædd 153.893 mál (35.591 í
fyrra) Húsavík 22.061 (1784),
Raufarhöfn 233.534 (90.965),
Seyðisfjörður 134.379 (71.303),
Reyðarfjörður 64.340 (22.380).
Heildarkræðslan nemur nú 610.
207 málum en nam í fyrra 222.
026 málum Rauðka er búin að
taka á móti 69.924 málum en í
fyrra hafði hún fengið 11.537
mál. í Krossanesi er nú búið að
bræða 80 þús. en á sama tíma í
fyrra 16—17 þús.ð og á Hjalteyri
er búið að bræða 42 þús. en þá
voru brædd allt sumarið 39 þús.
mál.
2
TfMINN, lauqardaelnn 8. égúst 1964