Tíminn - 08.08.1964, Side 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastióri' Kristián Benediktsson Ritst.iórar Þórannn
Þórarinsson (áb). Andrés Krist.iánsson. Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Frétta
stjóri: Jónas Krisijánsson Auglýsingastj Sigurjón Davíðsson
Ritstjórnarskrifstofur l Eddu-húsinu simar 18300— 18305 Skrii
stofur Bankastr 7 Afgr.simi 12323 Augl simi 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 90.00 a mán innan
lands. — f lausasölu kr 5,00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.l
Umreikningurmn
Þegar núv. stjórn breytti tekjuskattslögunum 1960,
felldi hún niður þá reglu, sem hafði gilt árum saman, að
skattskyldar tekjur skyldu umreiknaðar samkvæmt sér-
stakri vísitölu, þ e. að persónufrádrátturinn yrði aukinn
í samræmi við aukna dýrtíð Það hefur nú sýnt sig, að
þessi breyting hefur orðið mjög óhagstæð launþegum, þar
sem þeir hafa ekki fengið tekið tillit til þess, að frádrátt-
ur ykist í samræmi við launahækkanir, sem leiddu beint
af aukinni dýrtíð og væru því ekki raunverulegar Kjara- 1
bætur. Að vísu var frádrátturinn nokkuð aukinn á sein-
asta þingi, en hvergi nærri nógu mikið til þess að
mæta dýrtíðaraukningunni, er hafði orðið síðan 1960.
Jafnframt var svo skattstiganum breytt til hækkunar og
eyddist þannig að mestu sú úrbót, sem hækkun persónu-
frádráttarins hefði annars orðið skattgreiðendum.
Á seinasta þingi lögðu Framsóknarmenn til, að hinn
svonefndi umreikningur yrði tekinn upp aftur í því formi,
„að breytist vísitala framfærslukostnaðar til hækkun-
ar eða lækkunar frá því sem hún var að meðaltali árið
1959, skuli framangreindum frádráttarupphæðum breytt
í réttu hlutfalli við vísitölubreytinguna. Tekjutölum skatt
stigans skal breytt á sama hátt.“ Þetta hvort tveggia
hefði haft þau áhrif, að skattarnir hefðu ekki hækkað.
þótt menn fengju launahækkanir vegna aukinnar dýrtíðar
Jafnhliða þessu lögðu Framsóknarmenn til. að ekki
yrðu gerðar breytigar á skattstiganum .frá 1960
Hefðu þessar tillögur Framsóknarmanna vérið sanv
þykktar, myndi skattabyrðin hafa orðið stórum minni nú
en raun ber vitni um. Jafnframt hefði það veriS tryggt
tíl frambúðar, að skattar hækkuðu ekki vegna launahækk-
ana, er væru afleiðing aukinnar dýrtíðar.
Illu heilli höfnuðu stjórnarflokkarnir þessum tillögum
Framsóknarmanna og því er nú komið sem komið er.
Óhjákvæmilegt er, að þessi mál verði tekin hið fyrsta
til gagngerðrar endurskoðunar og endurbóta eins og
Framsóknarflokkurinn hefur lagt til við ríkisstjórnina
Verkamenn blekktir
Það er auðráðið af ummælum fjölmargra verrkamanna,
að ekki hefðu náðst samningar um óbreytt kaupgjald á
síðastl. vori, ef menn hefðu þá vitað um þær gífurlegu
skattahækkanir, sem kæmu til sögu síðar á árinu.
Meginþorri verkamanna stóð þá í þeirri trú, að skatt-
arnir myndu ekki hækka að ráði. Þótt menn tryðu
ekki alveg þeirn áróðri stjórnarblaðanna, að skattarnir
myndu lækka, trúðu menn samt svo mikið á hann, að þeir
bjuggust ekki við stórfelldum skattahækkunum.
Ríkisstjórninni og málgögnum hennar tókst þannig að
blekkja verkamenn og leyna fyrir þeim hinum miklu
skattahækkunum, er framundan voru. Samningarnir við
atvinnurekendur og ríkisstjórnina voru gerðir í þeirri
góðu trú, að skattarnir yrðu svipaðir því og þeir hefðu
verið.
Verkamenn voru þannig blekktir og sviknir. Aflsiðing-
arnar eru þær, að nú fær fjöldi fastlaunafólks svo 'ítið úr
umslögunum sínum, að það nægir ekki fyrir fæði, hvað
þá öðru Sumir fá ekki neitt.
Sennilega er erfitt að finna dæmi um, að menn hafi verið
eins herfilega blekktir og verkamenn, þegar þe’r voru
að semja við ríkisstjórnina í sumar En það ‘'erður ekki ’
síðasta sinn, sem stjórnarflokkarnir reynr ð blekk.ja
menn, ef menn draga ekki réttar ályktanir af þessari
bitru reynslu.
Landsbyggðin er landvörn
okkar
í dag höldum við íslendingar
þjóðhátíð, til þess að minnast
20 ára afmælis hins íslenzka lýð
veldis — og til þess að minnast
foringjans í frelsismálum þjóð
arinnar, sem fæddur var á
Rafnseyri við Arnarfjörð 17.
júní 1811. En það var að yfir-
lögðu ráði, að lýst var yfir
stofnun lýðveldisins á afmælis-
degi Jóns Sigurðssonar — 17
iúní 1944, á Þingvöllum.
í heiminum eru nú rúmlega
100 sjálfstæðar þjóðir — eða
ríki — stórar og smáar. Nokkr-
ar þessara þjóða telja hundrað
eða hundruð milljóna, Nokkrar
aðrar 50—100 milljónir. í nokkr-
um ríkjum er íbúafjöldinn einn
eða nokkrir tugir milljóna. Hin
ar sjálfstæðu frændþjóðir okk-
ar á Norðurlöndum eru ca. 4 til
8 milljónir hver, að mig minnir.
og kallast smáþjóðir á heims-
mælikvarða. — Víðs vegar um
heim eru álíka fjölmennar þjóð-
ir taldar til smáþjóða og eru þó
þetta margar milljónir hver.
Við íslendingar erum tæplega
einn fimmli úr einni milljón. Á
imóti hverjum 20—40 Norður-
landamönnum og á móti hverj-
um 1000 Bandaríkjamönnum
eða 3000 Kínverjum á ísland
einn mann til starfa og til að
minna á, að það sé til.
Ef við. þessir 185 þúsund ís-
lendingar, sem nú byggjum land
ið, ættum heima í einhverju
álíka fjölmennu stórborgar-
hverfi, t-d. í London eða
: Mo-skva, fséru af okkur litlar
sögur. sem slíkum. Móðurmálið
okkar væri þá ekki tií, ög við
yrðum í öllu að semja okkur
að þeirra siðum, sem við þá
sjálf réðum litlu um, sakir fá-
mennis. En okkur, sem ekki er-
um nema fimmtungur úr millj-
ón, eru allt önnur og meiri ör-
lög sköpuð „óvenjuleg örlög.“
Við erum sjálfstæð og fullvalda
þjóð. Við ráðum málum okkar
sjálf. Við eigum sérstaka tungu
cg þjóðmenningu forna, samtím-
is því, sem okkur hefur í seinni
tíð lánazt að fylgjast með á
framfarabraut þjóðanna. Full-
trúar okkar í höfuðborgum
heimsins njóta þar þeirrar virð-
ingar, sem fylgir því að koma
fram fyrir hönd sjálfstæðs ríkis
Fáni íslands blaktir á höfum,
þar sem íslenzk skip fara, og á
leiðum loftsins. Við höfum mál
frelsi og atkvæðisrétt eins og
aðrir á þingi hinna sameinuðu
þjóða. íslenzka kænan með einn
mann um borð siglir sama sjó
og þúsund manna hafskip stór
veldanna.
En hver er ástæðan til þess að
okkur, þessum fimmtungi úr
einni milljón, eru þessi sérstæðu
örlög sköpuð? Hvernig stendur
á því að við skulum vera sjálf
stætt ríki með feérstaka þjóð-
menningu og þurfum ekki að
lúta neinum fyrirmælum öðrum
en þeim, sem við sjálfir teljum
að íslenzkum lögum?
Ástæðan er sú. að við eigum
land, eigum það einir og að
eignarréttur okkar á þessu landi
er viðurkenndur af öðrum ríkj-
'um. Engir aðrir gera kröfu til
þessa lands. Eignarréttur íslend
inga á íslandi er óvefengjanleg
ur. Og landið okkar er ekki lít
ið, þó að þjóðin sé það ennþá
ísland er eins stórt og helming
Ræða Gísla Guðmundssonar alþm. á þióðhatíðar*
lamkomu á Þórshöfn 17. júni s. I.
ur Bretlands, þar sem fimmtíu
milljóna þjóð býr. Það er stærra
en Holland og Belgía samtals,
þar sem 20 milljónir búa. Það
er 150% stærra en Danmörk og
írland, sem hvort tveggja eru
lönd nokkurra milljóna Við
hinir smæstu allra smáþjóða.
eigum stórt land, fagurt land og
heilnæmt, þó svalt sé ‘hér stund
um. Og framtíðarmöguleikarn-
ir í þessu landi eru miklir á
komandi tímum. á öld hinnar
undursamlegu tækni. sem gerir
náttúruna manninum undir
gefna í ríkari mæli en hægt var
að láta sig dreyjna um fyrr á
, tímúm. .
Jn -er þá ekki hættá á, að
rþVssi dýrmæta eign, ísland,
gangi okkur úr greipum? Þurf-
um við ekki að gera eitthvað til
þess, að tryggja okkur áfram
eignarréttinn? Leggur þessi dýr
mæta eign, landið, undirstafí1
sjálfstæðisins, okkur ekki ein
hverjar skyldur á herðar?
Vissulega er það svo. Tíl þess
að geta haldið áfram að eiga
landið, án þess að umráða- og
eignarrétturinn sé vefengdur.
verðum við og afkomendur okk-
ar að gera hið sama og lands-
menn gerðu í öndverðu til að
eignast það og síðan afkomend-
ur þeirra og forfeður okkar og
formæður, öld fram af öld: Við
verðum að byggja landið —
byggja það allt — og við verð
um að sýna það öllum heimi á
hverjum tíma, að við getum
komizt sómasamlega af í þessu
landi, stöndum ekki öðrum að
baki í þroska og framförum, að
við sitjum þetta land með þeirri
prýði, sem við á og getum kom-
ið fram heiman og heima eins
og þeirri þjóð hæfir, sem ræður
vfir slíku landi.
Hvernig haldið þið að örlöe
íslands hefðu orðið, ef hinir
norrænu landnámsmenn hefðu
aðeins byggt landnám Ingólfs og
Skallagríms, eða sem því svar
ar og látið hina landshlutana
óbyggðá? Þá hefðu þeir lands-
hlutar síðar á tímum án efa
byggzt fólki af öðrum þjóðlönd-
um. Kannski Englendingum.
Frökkum. Þióðverjum eða Rúss-
um, þegar bessa þjóðir fóru að
leita nýrra landa. stofria sér ný-
'endur. Þá væru hér hvorki ís»
'endingar né íslenzk tunga, né
eldur íslenzkt ríki, og engin
Jenzk þjóðhátíð í dag.
En það sem ekki gerðist á
landnámsöld og það, sem aldrei
síðar gerðist á þessu landi, þrátt
fyrin mannfækkun af hallærum
og drepsóttum, getur átt eftir
að gerast á vorum dögum eða
síðar. ef íslands óhamingja verð
ur slík Það gerist ef íslendingar
gerast svo léttúðugir að láta
undir höfuð leggjast að gegna
þeirri frumskyldu sinni að
byggja landið. Ef aðrar þjóðir
sjá, að við getum ekki eða vilj-
um ekki byggja svona stórt
land, ef við leggjum byggðir og
heila landshluta í eyðj eða svo
til og látum sem þessi dýrmæti
arfur, þessi guðsgjöf forlaganna,
sé okkur óviðkomandi, þá mun
ekki skorta fólk af öðrum þjóð-
um og jafnvel fjarskyldum, til
að taka sér bólfestu í þessum
landshiutum
Og þá piyndi þess skammt aw
bíða, að íslendingar, íslenzkt
ríki og íslenzk menning hætti
að vera til, nema sem dauður
hlutur í bjóðminjasafni veraldar
innar
Landsbyggðin er landvörn
okkar íslendinga Þeir, sem nú
halda við landsbyggðinni. sem
verst í vök og efla hana gegna
varðstöðu. sem getur verið
framtíð þessarar þjóðar Slíkir
útverðir kunna að fara einhvers
á mis, en þeir munu m.a taka
laun sín í almennari hreysti af
komenda sinna. líkamlegri og
ekki sízt andlegri. en borgarlíf-
ið getur veitt, þrátt fyrir kosti
þá, sem því fyigja. Þetta kennir
aldagömul reynsla í mörgum
löndum. Og þess vegna þrá börn
in á malbikinu og iafnvel hinir
fullorðnu líka að komast út
fyrir borgarmúrana á vorin.
Vitur maður sagði einu sinni:
Landið hefur stækkað þjóðina.
Minnumst þess jafnframt að
styrkur þjóða. lífsafl og máttur
til framsóknar. fer ekki að öllu
leyti eftir íbúafjölda, og er held
ur ekki í réttu hlutfalli við veð
urblíðu eða frjósemi landanna.
Tæið smáþjóðar til . að verða
sterk og hraðfara á vegi fram-
faranna, er að reyna að tryggja
það sem bezt. að sérhver ein-
staklingur geti notið líkamlegra
og andlegra hasfileika sinna til
fulls og haft skilyrði til þess
þroska, sem honum tr eðlilegt
að ná Og óhollar lífsvenjur
verði honum eða samfélaginu
ekki fjötur um fót
Kynstofninn, sem byggir þetta
land. er sterkur að uppruna og
eftir vægðarla.ust úrval óblíðra
lífskjara á liðnum tímum. Við
biðjum af hjarta. að þau lífskjör
sem um mörg hundruð ára
hindruðu vöxt þjóðiarinnar og
meinuðu meirihluta íslenzkra
barna að vaxa upp og njóta lífs-
ins í landi sínu.komi aldrei aftur
Þjóðinni fjölgar nú örar en í
flestun öðrum löndum hvítra
manna — og landið þarf þess
með, að öll börn þess fái að lifa
og komast til svo mikils þroska
sem þeim er auðið að ná Ef það
tekst, og ef friður helzt milli
þjóða, og ef okkur íslendingum
lánast að byggja landið. verður
hér vonandi um aldir — eins og
segir í þjóðsöngnum „gróandi
þjóðlíf með þverrandi tár.“
T í M I N N, laugardaginn 8. ágúst 1964 —
7