Alþýðublaðið - 08.07.1953, Qupperneq 3
Miðvikudag'imi 8. júlí 1953
S
12.1C-—13.15 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
16.30 Veðurfregnir.
19.00 Tómstundaþáttur barna
og unglinga (Jó:i Pálsson).
19.25 Veðurfregnir.
19.30 Tónl.: Óperuiög (plötur).
19.45 Auglýsingar..
20.00 Fréttir.
20.30 Útvarpssagan: ..Flóðið
mikla“ eítir Louis Brom-
field. III (Loftur Guðmunds-
son rithöf.).
21.00 Tónleikar: Egypzk ballet
svíta“ sinfóníuhljómsveit
leikur. Percy Fletcher stjórn-
ar (plötur).
21.20 Veðrið í júní (Páll Berg-
þórsson veðurfræðjngur).
21.45 Búnaðarþátt-ur (Gísli
Kristjánsson talar við Lárus
Rist).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Dans- og dægurlög: Dizzy
Gillespie og hljómsveit (pl.).
22.30 Dagskrárlok.
■SfKl
Hin margþráðu félagsmerki á bílana eru nú
tilbúin. Snúið yður sem fyrs't til skrifstofunn-
ar. sem er opin kl. 1—4 alla daga og mánud.,
miðvikud. og föstud. kl. 6—7. — Sími 5659.
Féfag ísienzkra bifreiðaélgénda
Þi'.igholtssíræti. 21. II. hæð.
(Gengið inn frá Skálholtsstíg.)
óskast til leigu 1. október.
Péfur iakobsson
löggiltur faáfeignasali.
Kárastíg 12. -— Sími 4432.
Frá happdrætti fulltrúaráðs
Alþýðuflokksins:
Dregið var í happdrætti full
trúaráðsins 1. þ. m. hjá full-
trúa borgarfógeta. Upp komu
þessi númer:
6026 Eldavél.
5233 Farseðill til Kaup-
mannahafnar.
3338 Ryksuga.
4058 Hrærivél.
581 Málverk.
208 Sykurkassi.
2064 Kexkassi.
6579 Listaman:ia.þing.
3066 íslands þúsund ár.
6769 Brennu-Njálssaga.
8296 Listamannaþing.
Vinninganna sé vitjajf í skrif-
stofu Alþýðuflokksins í ÁI-
þýðuhúsinu.
Athygli söluskattskyldra aðilja í Reykjavík
skal vakin á því, að frestur til að skila framtali
l til skattstofunnar um söluskatt fyrir 2. ársfjórð-
! ung 1953 rennur út 15. þ. m.
Fyrir sama tíma ber gjaldendum að skila
skattinum fyrir ársfjórðunginn til tollstjóra-
skrifstofunnar og afhenda henni afrit af fram-
tali.
Reykjavík, 7. júlí 1953.
Happdræíti Háskóia íslands.
Á föstudaginn verður dregið
í 7. f-lokki. Vinningai eru 752,
samtals 339200 kr. Hæsti vinn
ingur 25 000 kr- Síðasti sölu-
dagur er á morgun.
Skattstjórinn í Reykjavík.
Tollstiórinn í Revkiavík.
í DAG er miðvikudagurinn
8. julí 1953.
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
apóteki, sími 1616.
RAFMAGNSTAKMÖRKUN:
í dag frá kl. 10,45: 5. hverfi.
Á morgun á sama tíma: 1.
hverfi.
FLDGPERBIR
Flugfélag íslands:
í dag verður flogið til Kaup
mannahafnar kl. 3 f. h. — Á
morgun verður flogið til eftir-
taldra staða, ef veður leyfir:
Akureyrar, Blönduóss, Egils-
staða. Kópaskers, Reyðarfjarð
ar, Seyðisfjarðar og Vest-
mannaeyja.
SKIPAFRETTIK
Skipadcikl SÍS:
Hvassafel ler í London. Arn
arfell er væntanlegt til Reyð-
arfjarðar í dag frá Kotka. Jök-
ulfell er á Eyjafjarðarhöfnum.
Ðísarfell kemur til Hamborg-
ar í dag.
Jiíkisskip:
Hekla fer frá Reykjavík á
föstudaginn til Glasgow. Esja
fór frá Reykjavík í gærkvöldi
austur um land í hringferð.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er væntanleg til
Reykjavíkur árdegis í dag að
vestan og norðan. Þyrill er á
leið að vestan og norðan til
Reykjavíkur. Skaftfellingur
fór frá Reykjavík í gærkvöld
til Vestmannaeyja.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Reykjavík
í gærkvöldi ti'l Vestmannaeyja
Mull, Boulogne og Hamborg-
ar. Dettifoss fór frá Hamborg
5. þ. m. tií Antwerpen, Rott-
erdam og Reykjavíkur. Goða-
foss fer frá Hafnarfirði á há-
degi í dag til Belfast, Dublin,
Antwerpen, Rotte-dam, Ham-
borgar og Hull. Gulílfoss fór
frá Leitli í gær til Kaup-
frá New York eGeL
mannahafnar. Lagarfoss var
væntanlegur til Reykjavíkur
í morgun kl. 8 frá New York.
Reykjafoss fer frá Kotka á
morgun til Gautaborgar og
Austfjarða. Selfoss fer frá Hull
á morgun til Rotterdam og
Reykjavíkur. Tröllafoss fer
væntanlega frá New York á
morgun til Reykjavíkur.
__ * * _____
NÝKOMNAR
ENSKAR
BÆKUR:
The Roniniel Papevs.
Himmler.
The theatrc.
Display illustrated.
Paper sculpture.
Wonderbook
of Wonders.
Wonderbook of
Motors.
o. fl. o. fl.
Bókabúð NQRÐRA
Hafnarstræti 4.
Sími 4281.
VT
JÓN LEIFS kom á sunnudaginn hingað með Gullfaxa eft
ir að hafa sem íslenzkur fulltrúi setið veigamikla tónlistarfundi
í Noregi og Frakklandi. IJann skýrði blaðamönnum frá ferð
sinni og árangri eins' og hér segir:
I. Tónlistarmót
í Reykjavík 1954.
Sem forseti Norræna tón-
skáldaráðsins ' stjórnaði Jón
Leifs fyrst fundum þess á
tveggja daga móti í Osló. Sem
annar fulltrúi Tónskáldafélags
íslands mætti Jón Nordal.
Mikil eining ríkti á fundunum,
og var þar gengið frá dagskrá
að Norrænu tónlistarmóti, sem
■ halda skal í Reykjavík á næsta
ári.
Veigamesta málið.
Samkvæmt ílillögu Jóns
Leifs á fundi Norræna tón-
skáldaráðsins var samþykkt
einróma ályktun um að fara
þess á leit við tónmenntaráð
Sameinuðu þjóðanna að gang-
ast fyrir því að stofna í sam-
ráði við Norræna tónskálda-
ráðið, alþjóðasamtök höfunda
æðri tónlistar og var • Jóni
Leifs falið að bera ályktun
þessa fram á væntanlegum
fundi tónmenntaváðsins hjá
UNESCO í París. — Sérstakur
fulltrúi frá brezka tónskálda-
félaginu mætti í Osló til að
ræða þetta mál við Jón Leífs.
Fundum Norræna tónskálda-
ráðsins lauk með sérstökum
fundi ráðsins ásamt fjórum
tónmenntafulltrúum frá nor-
rænum útvarpssföðvum, en
íslenzki útvarpsstjórinn sendi
kveðju sína og árnaðaróskir
símleiðis. Fundarmenn voru
allir sammála um að Norður-
löndin fimm, tónskáldafélögin
og útvarpsstöðvarnar, skyldu
hafa samvinnu um útbreiðslu
norrænnar tónlistar bæði sín
á. milli og gagnvart öðrum
löndum, en fyrirætlanir tón-
menntaráðs Samemúpu þjóð-
anna voru ræddar sérstaklega.
Loks hélt forseti Norræna
tónskáldaráðsins fyrir hönd
Tónskáldaíélags íslands fund-
armönnum veizlu á Holmen-
kollen Turisthotell og ríkti
mikill gleðskapur. Náttúru-
fegurð er þar mikil, og sá í
tunglsl jósi yfir allan Osló-
fjörðinn. Sögðu fundarmenn
að kvöldstund þessi mundi
seint úr minni líða.
II. Alþjóðasamband
nútímatónlstar.
hélt ársfurid sinn og tónlistar-
mót í Osló að afloknum fund-
um Norræna tónskáldaráðsins.
Á meðfylgjandi -mynd sjást
fulltrúar alþjóðasambandsins
á fyrsta fundi sínum.
Samtímis daglegum hljóm-
leikum, er flutt'.i eirgöngu ný
tónverk, voru haldnir fundir
frá morgni til kvölds og stund-
um nefndarfundir fram á nótt.
Fyrir lá að endurskipuleggja
þetta alþjóðasamband.
Jón Leifs hélt nokkrar ræð-
ur á fundunum og var kjör-
inn í nefnd þá, sem undirbjó
endurskipulagningu sambands-
ins. Telur hann að nú hefjist
nýtt tímabil í starísemi þessa
félags. Samkvæmt tillögum
hans mæla lögin svo fyrir, að
undirnefndir skuli siá um
framkvæmdir einstakra mála.
Eins var - samþykkt að hvert
land skuli eiga tónverk á dag-
skrá mótanna ekki sialdnar en
þriðja hvert ár.
Samkomulag varð um að
, miðstöð sambandsins og for-
seti þess ætti aðsetur í Dan-
mörku næsta ár, og varð Jo-
hann Bfentzon fyrir kjörinu.
Fulltrúar frá tónmenntaráði
Sameinuðu þjóðanna áttu sæti
á aðalfundi sambandsins og
stofnuðu auk þess til sérstaks
fundar, þ. e. „rcund-table-
conference“, með tönskáldum,
túlkendum, blaðamönnum, út-
gefendum, útvarpsmönnum o.
fl. Þar flutti Jón Leifs erindi
á ensku um gilcli túlkunar
nýrra tónverka. Fulltrúar
brezka útvarpSins h.éldu líka
ræður þar um útbreiðslu nýrra
tónverka. Umræðiir urðu
miklar, og ýmsar ályktanir
voru gerðar.
III Tónmenntaráð
Sameinuðu þjóðanna.
hélt svo ársfund sinn í París í
lok júní hjá UNESCO. — Sam-
kvæmt ályktun Non-æna tón-
skáldaráðsins. í fyrra höfðu
verið myndaðar þjóðlegar tón-
menntanefndir í hverju
Norðurlandanna, og voru
nefndir þessar nú teknar upp
í tónmenntaráð Sameinuðu
þjóðanna með öllum sömu rétt-
indum og nefndir stórþjóð-
anna. Fór Jón Leifs á fundin-
um með atkvæði íslenzku tón-
menntanefndarinnar, sem var
einróma samþykkt á fundin-
um, enda þótt ágreiningur
kæmi í ljós um lónmennta-
hefndir ýmissa annarra landa.
íslenzka nefndin vinnur að
því að sameina félög og stofn-
anir, sem fást við tónmenn-
ingu á íslandi, í eitt allsherj-ar
„Tónmenntasamband íslands".
Aðalfundur tónmenntaráðs
Sameinuðu þjóðanna sam-
þykkti nú í París einróma til-
lögu Jóns Leifs um að fela
framkvæmdastjórn ráðsins að
undirbúa í samráði við Nor-
ræna tónskáldaráðsins stofnun
alþjóðasamtaka með tónskáld-
um æðri tónlistar. Hefir hann
sem forseti Norræna tónskálda-
ráðsins undirbúið mál þetta
allrækilega og mun leggja
fram efni og vinnu við fram-
gang málsins.
Á fundum tónmenntaráðs
Sameinuðu þióðanna voru ann-
ars rædd ýrnis framfaramál tón
listar. Jón Leifs minnti m. a.
á tillöguna um að UNESCO,
menningarstofnun Sameinuðu
þjóðanna, stofnaði cigið útvarp
sem heyrðist um allan héim,
og að útvarpsstöð gæti verið
á hæsta fjallstindi á íslandi.
Forseti ráðsins Sir StUart
Wiison tók tillögunni mjög vfel
og minnti. líka á Mount Ever-
est, hæsta fjallstind í heimi.
40.000 börn heimlíis-
Eaus í Kéreu
SAMKVÆMT upplýsingumi
aðalritara ensku barnahjálpar-
innar, T. IV. Boyce, sem er ný-
kominn úr ferðalagi frá Kór-
eu, eru nú um 40 000 börn.
heimilislaus í Kóreu. Böm
þessi lifa flökkulífi í yfirgefn
um þorpum og skotgröfum í
Suður-Kóreu. Önnur 40 000
börn hafa náðst og verið flutt
á barnaheimili. Vegna næring
arskorts eru börnin í mikilli
hættu af að sýkjast af berkl-