Tíminn - 27.08.1964, Síða 3

Tíminn - 27.08.1964, Síða 3
HEIMA OG HEIMAN BELIAKAR í SILKI Sumo-glímukapparnir minna á sæfíla. Líkingin var svo sterk, að ég greip andann á Iofti, þegar ég kom í búnings- herberft þeirra. Þessi vistar- vera mlnnti á fjós með göngu braut í miðju, en beggja vegna hennar upphækkun, þar sem glímumennirnir halda til um sýningatímann. Og nú lágu þeir þarna, flest- ir berir, en sumir höfðu brugð- ið sér í kimono. Enginn virtist taka eftir, að 150 punda rind- ill eins og ég, var kominn í þennan hóp. — Þar lyfti einn höfðinu að gjóa til mín auga, en hinir héldu áfram við sína sýslu að spila, láta raka sig eða bara lágu eins og sæfílar á strönd. En sjáið þá í essinu sínu! Þá hreyfa þeir sig með ótrúlegum hraða, krafti og snerpu. Þessir menn tjá sig á glímupallinum, og þar hef ég séð þá, nokkrum sinnum viðstaddur í Kokugik- an-glímuhöllinni í Tokio, og hvað eftir annað á sjónvarps- skerminum þann hálfa mánuð, sem kappglímur standa yfir, en þá er sjónvarpað frá fjórum glímumótum samtímis og tím- unum saman dag hvern. Orðið Sumo er borið fram með áherzlu á síðara atkvæði. Sumo er gamalt fyrirbrigði, í það minnsta 1500 ára að talið er. Sumo-reglurnar hafa verið óbreyttar í 1000 ár. Nokkrar íþróttagreinar hafa þróazt frá Sumo, jiujitsu meðal annarra. Glíman fer fram á hörðum leirpalli. Hálmi er stráð á leir- inn áður en hann þornar og myndar hálmurinn hringlaga flöt, 4,60 m. á breidd. Þar á ofan er stráð sandi, og á þessu er glímt. Reglurnar eru einfaldar. Glímumaðurinn tapar um leið og hann snertir gólfið með ein- hverjum líkamshluta öðrum en iljunum. Og ef hann snertir pallinn utan hringsins, þó ekki sé nema með nöglunum, þá er glíman töpuð. Þannig sá ég glímukappann Tahio snerta gólfið og tapa. Hann er mesti Sumo-glímukappi, sem hefur komið fram eftir stríð og hefur unnið á 13 glímumótum. í þetta sinn hafði Tahio unnið 34 glímur, en þá varð hann af 34. sigrinum og 14. mótinu. Sumo-metið er 69 unnar glím- ur í röð, og nú verður Tahio að byrja á byrjuninni til að keppa að þessari tölu. Glíman má aðeins vara í fimm mínútur, en sjaldan er glímt svo lengi. Sérstakir til- burðir, sem glímumenn sýna áður en þeir takast á, eru reikn aðir með glímutímanum, en einungis framúrskarandi glímu menn hafa leyfi til að bera sig þannig til. Þá klappa þeir saman lófunum, slá sér á lær og lyfta fótunum, stundum upp yfir höfuð. Síðan ganga þeir í hringinn, og strá hnefafylli af salti fyrir framan sig og taka sér stöðu andspænis hvor öðrum, sinn hvorum megin við tvær hvítar snúrur, sem liggja um þveran hring. Glímustjór- inn er í samurai-klæðum með aldagömlu sniði. Hann gefur nú merki og glímumennirnir leggjast á fjóra fætur og horf- ast fast í augu. Stundum risa þeir á fætur án þess að hvarfla augunum og snúa svo baki hvor við öðr- um og ganga hægt og mjög virðulega hvort út í sitt horn. Þetta endurtaka þeir stundum Dewanishiki í fullum skrúða. — KlæSnaSurinn kostar 30—36.000 ísl. kr., en hann er aSeins notað- ur við athafnir glímumanna áður en þeir takast á. 5—6 sinnum og halda tauga- stríðinu áfram, þar til báðir finna á sér, að tími sé til kom- inn að láta hendur skipta. Þeir renna saman svo smell- ur í. Ég hef séð glímur ráðast þannig, að annar flytur sig of- urlítið til og snertir hinn með þunga sínum svo hann skopp- ar út fyrir. En hér skiptir mestu að ná taki á lendaskýlu andstæðingsins og hefja hann á loft og leggja hann eða þeyta út fyrir. Hin klassísku Sumotök eru 48 talsins og mörg afar skemmtileg fyrir áhorfandann, en þeim cnun leiðari fyrir þann, sem verður að þola meðferð- ina. Oft lyktar þessu svo, að glímumaðurinn flýgur í loft- inu, og þetta 300 punda hlass kemur niður meðal áhorfenda, sem næstir sitja. Síðustu daga mótsins eru margir glímumenn með plástra og bindi, en fáir verða jafn illa úti og Kahsi- wado, sem viðbeinsbrotnaði í sumar. Hann hafði þá 10 vinn- inga. Það, furðulega er, að í fyrrasumar fór nákvæmlega eins fyrir Kashiwado. f Japan eru 800 Sumo-glímu- menn. Þeir skiptast í flokka eftir vinningafjölda, en ekki í þyngdarflokka. Þeir, sem fá minna en átta vinninga á glímu móti, eru venjulega færðir niður, en átta vinningar og þar yfir, er ekki trygging fyrir þvi að komast í hærri flokk. Fjörutíu beztu glímumenn landsins mynda svokallað ma- kuuchi-lið, en í því eru fimm efstu flokkarnir, yokozuna eða stórmeistari, en þeir eru nú þrír; þá koma ozeki, sekiwake, komusubi og maegashira. Hvert mannsbarn í Japan þekkir þessa fjörutíu glímumenn með nafni, þótt þeir skipti oft um nöfn eftir því, sem vegur þeirra fer vaxandi. Kappglímur fara fram frá kl. 9 að morgni til 6 að kvöldi. Glíman er skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Áhorfendasvæð- inu er skipt í bása. Þar er venjulega gólfrými fyrir fjórar sessur. Þar setjast fjölskyld- urnar, og þar eru bornar fram • veitingar meðan horft er á glímuna, en margir hafa nesti meðferðis, og þar er sleitulaust drukkið te og rísvín. Hróp og hlátur bergmálar í glímusölun- um og alltaf vex hávaðinn, þegar á daginn líður, en þá koma meistararnir fram. En litlu börpin falla í svefn þegar kvöldar. Það var um þetta leyti dags og skömmu áður en meistar- arnir gengu í hringinn, að ég vogaði mér inn í búningsher- bergi Sumomannanna. Þar sett- ist ég við fætur Tadao De- wanishiki maegashira, en hann hafði lofað að veita mér á heyrn. Meðan einn af sveinum De- wanishiki nuddaði hann, rak- aði og greiddi hár hans eftir fornum reglum, þannig að lokkarnir mynduðu eftirlíkingu af blöðum ginkatrésins, sagði glímukappinn mér, að Sumo væri öllum íþróttum fremri. Hún veitir sálarþrótt, en aðrar íþróttagreinar eru meira fyrir líkamann. Hinar aldagömlu glímureglur eru stranglega haldnar, og hér ríkir hinn sanni íþróttaandi, sagði De- wanisiki. Þessi yfirlýsing kem- ur vel heim við reynslu áhorf- andans. Sigurvegarinn rétffr þeim fallna alltaf höndina og hjálpar honum á fætur, og sá, sem tapar, brosir oftast breiðu brosi. Dewanishiki er 39 ára gam- all og elzti Sumo-maðurinn, sem nú stundar glímur í Japan. Hann óx upp í grennd við Ko kugikan, og varð stór og sterk- ur. Sumomenn tóku hann að sér, þegar hann var 14 ára, en þá hafði Dewanishiki misst for- eldra sína. Hann hefur aldrei náð takmarki sínu að v.erða stórmeistari, en hann hefur staðið í þriðja efsta flokki og verið einn hinna 40 og aldrei fallið út síðan 1947. Það er líka met. Hann hefur glímt 1300 glímur opinberlega og unnið yfir 700. Tekjur hans eru rúmlega milljón yen á ári eða ca. 20 þúsund danskar krónur og það er meir en nóg til að Dewanishiki getur séð vel fyrir konu sinni og þrem- ur börnum. Sumomennirnir lifa að öðr um þræði nokkurs konar klausturlífi, en geta þó eigi að síður átt heimili, konu og börn. Þeir búa í glímuhöllunum með- an glímumót standa yfir, en þess utan mega þeir lifa og láta sem þeim sýnist, ef þeir halda sér í þjálfun. Þjálfunin er fyrst og fremst að borða og viðhalda þunganum. Dewani- shiki vegur ca. 143 kg. og er næstþyngstur allra Sumo-glímu manna. Sá, sem er enn þyngri, heitir Wakamiyama og vegur 160 kg. Sumomenn eru eftirlæti kvenþjóðarinnar, og margar stúlkur fara tvær og tvær sam- an að horfa á og skrafa um þessar hetjur. Sumo-glímumaður á ekki að kvænast fyrr en hann hefur náð þrítugsaldri. Þetta er eitt af því, sem skrifað stendur, en í ár var reglan brotin og þess utan var það sekiwake, Da- igo að nafni, sem gerði það. Hann gekk í hjónaband 27 ára gamall. Daigo gerði þetta skömmu áívr en glímur hóf- ust. Svo tapaði hann flestum glímum og hefur nú verið færður niður. — Hvað er Sumo glímumað- ur sterkur? spurði ég Dewanis- hiki, en hann gaf ekkert á kveðið svar. Ég hef séð þá lyfta 250—300 punda andstæð- ingum í axlarhæð og þeyta þeim út úr hringnum. Þessir menn gætu tekið olympíuverð- laun fyrir lyftingar, en láta sér ekki detta það í hug. Þeir miða ekki krafta sína við þunga, sem þeir geta lyft, heldur við sigra og ósigra á glímumótum, og það er undir ýmsu komið öðru en því að lyfta miklum þunga, sagði Dewanishiki. Hann gerir-sér ljóst, að glímu- dagar hans eru taldir að fáum árum liðnum. Gert er ráð fyrir, að sá, sem hefur náð maku uchigráðu, hætti áður en hann er dæmdur niður. En hann er bjartsýnn eigi að síður. Sumo gefur fé í aðra hönd, og De- wasishiki getur orðið kennari eða dómari, þegar hann hættir að glíma. Sumo gefur nú fé i aðra hönd, fyrst og fremst af því, að sjónvarpið veitir peningum þangað. En Sumo-íþróttin mundi halda áfram að þrífast þótt sjónvarpið væri ekki til staðar, því hún færir japönsku þjóðinni heim sanninn um, að hún á sér forna menningu, sem gleymist ekki þrátt fyrir mikil vestræn áhrif. Sumo er jafn rótgróin í menningu Japana og musterishátíðirnar og hinar há- tíðlegu tedrykkjur. Sv. A. Nyboe-Andersen. (Þýtt úr B.T.) Á VlÐAVANGI * Lýsisherzla f lok lieimsstyrjaldarinnar gaf Alþingi heimild t'il að reisa lýsisherzluverksmiðju á Siglu- firði. Var málið komið svo langt, að þegar höfðu verið keyptar allmargar vélar til verksmiðjunnar, en síðan ekki söguna meir. Á síðustu árum hefur málinu verið hreyft að nýju, m.a. hefur Björn Páls- son og fl. flutt tillögur um lýsisherzluverksmiðju á Siglu- firði. Lýsissamlag ísl. botn- vörpunga starfrækti litla herzluverksmiðju frá 1949 til 1958, en þá tók fyrirtæklC Hydrol h.f. við rekstri verk- smiðjuwnar, en hún framleiðtf aðeins um 600 tonn á ári, sem seld eru innanlands. íslending- ar hafa möguleika á geysilegri verðmætasköpun með lýsis- herzlu, en starfsgrundvöllinn hefur vantað, markaðir fyrir vöruna hafa ekki verið fyrir hendi. Fyrir skömniu var skrif- að um nauðsyn markaðsrann- sókna fyrir útflutningsatvínnu. vegina og að ríkisvaldið hlypi undir bagga með einstakling- um og félagssamtökum við erf- iðustu sporin við að koma á fót nýjum útflutni'ngsgreinum, þ.e. markaðsöfiunina, sem er einn þáttur stofnkostnaðar við slík fyrirtæki, Samkeppnin Því til undirstrikunar skal hér birtur kafli úr viðtali, sem „Iðnaðarmái“ áttu við Pétur Pétursson, forstjóra Hydrol h.f. um hvar skórinn kreppir fyrs-t og fremst að þessum iðn- aði, en hann svarar svo spurn- ingu um sölutregðuna erlendis: „f fyrsta lagi er mjög hörð samkeppmi á erlemlum mörk- Uðum, Kemur þá fyrst til, að afkastageta herzluverksmiðja í Norður-Evrópu er meiri en eft- irspurnin eftir haiðfeiti. Þess- ar verksmiðjur eru rótgrónar með fullafskrifuð tæki og þurfa því ekki að reikna inn í sitt verð nema lítinn hluta af kostn aði við vélar og byggingar. Við erum aftur á móti að byggja upp og verðuœ að bera tölu- verðan slíkan kostnað. Þess má geta hér, að miklir erfið- leikar myndu ríkja í norska herzluiðnaðinum, ef þeir hefðu ekki komizt inn á rússneska markaðinn. sem er þeirra stærsti markaður nú.“ Unilever „f öðru lagi ér harðfeitin yf- irleitt seld milli landa sem „CRUDE“ hert, þ.e. eftirhreins- un, aflyktun og lokaframleiðsla í smjörlíki og bökunarfeiti er gerð af kaupanda. Þetta þýðir, að þrjú síðustu stigin vantar á framleiðsluna til þess að hún verði neyzluhæf. Þessi þrjú stig eru framkvæmd að veru- legu leyti af stórfyrirtækjum, svo sem Unilever, sem eiga sín- ar eigin herzluverksmiðjur og Iáta þær að sjálfsögðu sitja fyr- ir viðskipium.“ Ötflutningsskattur „Hér má líka geta þess, að útflutningsskatturinn á lýsi, hertu sem óhertu, er 7.4%. Þessi prósenta leggst á herzlu- kostnaðinn og umbúðirnar og jafngildir því að framleiðslu- kostnaður okkar yrði alltaf 7.4% hærri en sambærilegur kostnaður eriendis á þeim Framhald á síðu 13. T t M I N N, fimmtudaginn 27. ágúst 1964 — 3

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.