Tíminn - 27.08.1964, Qupperneq 15

Tíminn - 27.08.1964, Qupperneq 15
ÍSLANDSMÓTIÐ LAUGARDALSVÖLLUR í kvöld kl. 19 heldur íslandsmótið áfram með leik milli Fram — KR Mótanefnd. BLAÐBURÐARBÖRN óskast til blaðdreifingar í Holtin, Grímsst.holt og Seltjarnarnes. Stnránt afgreiðsla, sími 12323. Til útsvarsgreiöenda i Seltjarnarneshreppi Hreppsnefnd Seltjarnarneshrepps samþykkti á fundi sínum 24. ágúst s. 1. að verða við tilmælum ríkisstjórnarinnar um fjölgun gjalddaga á eftir- stöðvum útsvara álögðum 1964, úr fjórum 1 sex hjá þeim launþegum, sem þess óska, enda greiði þeir útsvör sín reglulega af kaupi. Þeir sem óska að notfæra sér þessa fjölgun gjald- daga sendi skriflega umsókn þess efnis til und- irritaðs fyrir 1. september n. k. Sveitarstjóri Seltjarnarneslirepps. Verkfræðingur Hreppsnefnd Seltjarnarneshrepps hefur ákveðið að ráða verkfræðing til að annast verkfræðistörf fyrir hreppinn. Umsóknir sendist fyrir 15. september, til undir- ritaðs, sem veitir allar nánari upplýsingar. Sveitarstjóri Seltjarnarneshrepps. Góð 3ja herbergja íbúð óskast til leigu. 1 árs fyrirframgreiðsla. 5 fullorðnar manneskjur. Tilboð leggjast inn á afgr. blaðsins merkt: Innan Hrifigbrautar. KHANH Framhald af 2. síðu. armanna, en eins og kunnugt er varð þó ofaná, að gengið var að öllum kröfum mótmælendanna. Er það einkum ákvæði yfirlýsingar herráðsins, sem gefin var út í gær, um að það skuli lagt niður, sem deildum veldur. Telja sumir meðlimir þess, að ef orðið verði við þessari kröfu, muni of mikil völd færast í hendur Búddatrúar manna, en vald hersins minnka. Eins og skýrt var frá í íiéttum í gær, var búizt við, að herráðið veldi nýjan forseta í stað Khanhs í dag, en eins og fyrr greinir náð- ist ekki samkomulag. HÆTTULEGUR ÁBURÐUR? Framhald af 2. síðu. hennar né orsakir. Eins virðist doði hafa aukizt hér á síðustu árum. Samkvæmt rannsóknum virðist notkun tilbúins áhurðar geta orsakað þessa búfjársjúk- dóma. Það er ekki aðeins, að búpeningur hressist, ef notað- ur er lífrænn áburður á fóður hans, heldur verða jurtirnar heilbrigðari, fá á sig fallegri lit og verða beinvaxnari. KARTÖFLURNAR Framhald af 16. stðu. skemmd á sumum bæjum á Vest fjörðum, að því er Jóhannes Dav- íðsson sagði í dag, en þó eru þau lítið skemmd hjá öðrum bændum. Taldi hann þó, að uppskeran'yrði miklu minni í ár en í fyrra. SKATTHEIMTA Framhald af 16. síðu. ríkisstjórnarinnar við fulltrúa Al- þýðusambands fslands og Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja. Stjórn sambandsins taldi rétt að verða við þessum tilmælum og til- nefndi á fundi í dag af sinni hálfu í nefndina varaformann sam- bandsins, Pál Líndal, skrifstofu- stjóra. Stjórn sambandsins vill þó af þessu tilefni taka mjög greinilega fram, að hún telur litlar líkur á því að sveitarfélögin i landinu geti almennt dregið úr útgjöld- um sínum eða frestað innheimtu útsvara sinna þannig að teljandi áhrif hafi á afkomu gjaldenda á næstu mánuðum. Útgjöld sveitarfélaganna, það, sem eftir er ársins, munu að lang- mestu leyti verða lögbundin eða samningsbundin, þannig að ekki verður raskað með einhliða á- kvörðun sveitarstjórnanna. (Frá Sambandi íslenzkra sveitarfélaga.) FUNDUR í B. f. í dag kl. 3 í Nausti, uppi. Á dagskrá fundar- ins eru hinir nýju samningar við útgefendur og önnur mál. Búast við átökum í Suður-Rhodesíu NTB-Salisbury, 26. ágúst. Yfirvöld í Suður-Rhodesíu lýstu í dag yíir neyðarástandi í afrík anska hluta borgarinnar Sailsbury. Higfield og bönnuðu um leið starf semi hinna tveggja stóru afrík önsku þjóðernisflokka. Samtímis umkringdi her- og lögreglulið borg arlilutann og handtóku um 90 og svarta menn, sem héldu mótmæla fund fyrir utan þingliús borgar- innar. Formaður Zimbabwe, hins þjóð lega einingarflokks blökkumanna, Natani-El Sithole, hvatti í dag alla afríkanska borgara til að sáfna saman vopnum og berjast gegn einhliða yfirlýsingu stjórn arinnar um sjálfstæði landsins. Þá voru afríkönsku íbúarnir hvattir til að taka alla peninga sína út úr bönkum og koma mat- arbirgðum fyrir á öruggum stað. Þá skyldu þeir láta vera að borga skatta og hætta að láta börn sín sækja skóla. Mótmælin fyrir framan þinghús FAXAVERKSMIÐJAN Framhald af 8. síðu ir því sem fyrsta athugun leiddi í ljós. Svo sem kunnugt er, hefur Faxa-verksmíðjan ekki verið starf rækt um langt árabil, en nú var ráðgert að hefja þar vinnslu í nóvember-desember. Bruninn kem ur til með að tefja mikið fyrir því að verksmiðjan geti hafið vinnslu, og gott ef það verður í vetur. Gunnar Sigurðsson, varaslökkvi liðsstjóri tjáði blaðinu að erfitt reyndist að slökkva í hampinum, og voru menn hans enn með slöngur á lofti um átta í kvöld. Vesturhliðin á húsinu stóð þá nokkurn veginn enn uppi, en aust urhliðin, sú er snéri að höfninni var öll fallin eða að falli komin. Gaflarnir báðir voru steyptir, og blöstu þar við svartar gluggatóft- irnar, en hið sterklega stál- grindaþak allt fallið inn, og ekki orðið nema brakíð eitt. Þetta er með stærri brunum hér í Reykjavík, og annar stór- bruninn í röð sem verður vegna íkviknunar í hampi. Ekki er að svo stöddu hægt að segja hve mik ið tjónið er, því margir aðilar áttu þarna vörur. Eitt er þó víst að tjónupphæðin verður reiknuð i milljónum. ið stóðu í sambandi við frumvarp á þingi um að blaðið Daily New, sem styður afrikönsku þjóðemis hreyfinguna, yrði bannað. Meðal þeirra, sem handteknir voru, var Judy Lodd, tvítug dótt ir fyrrverandi forsætlsráðherra landsins, Garfield Lodd. Dómsmálaráðherra landsins sagði í dag, að flokkarnir tveir, sem bannaðir hafa verið, njóti ekki stuðnings meiri hluta fólks- ins. Þá sagði hann, að ef blaðið Daily New yrði ekki bannað, gæti það leitt til blóðsúthellinga og öngþveitís í landinu. Ritstjórar blaðsins lýstu því hins vegar yfir, að blaðið hefði aldrei hvatt til undirróðursstarfsemi. FENNTIR BÍLAR Framhald af 16. síðu. hátt undir hjólin svo hann tekur ekki niðri. Um 6 til 7 kílómetrar voru frá Kattbekingi og í Dyngju fjalldal, þar sem við fundum bíl ana. Þoka var þétt og gekk okkur erfiðlega að rata og svo var líka komið myrkur, svo ekki var hægt að sjá nokkuð til þess að ákveða leíðina. Við þetta bættist svo, að ekki höfðum við ákveðnar staðar ákvarðanir um það, hvar bílana var að finna. Um miðnætti fund- um við bílana, sem voru uppfent 5r og illa til reika, og mátti ekki seinna vera að bjarga þeim. Millí klukkan 3 og 4 lögðum við af stað aftur og komum að Weaponin um klukkan 8 í morgun. Þá var komin kafaldshríð og héldum við eins og skot aftur austur að Mý- vatni. — Við vorum orðnir dálítið ugg andi um Norðmarninn sem farið hafði upp að Öskju, en það hafði verið ákveðið, áður en við skild- um, að hann skildi fjarlægja merki við veginn, ef hann væri farinn. Merkin voru horfin, og við héldum áfram ferðinni, og fund um Norðmanninn j Þorsteinsskála í Herðubreiðarlíndum, en þangað, hafði hann gengið síðast liðna nótt, og fékk hann sæmilegasta veður til göngunnar. Komum við svo að lokum hingað til Reynihlíð ar í eftirmiðdag í dag. — Þetta er búin að vera löng og erfið ferð, og við vorum sann arlega glaðir, þegar við sáum Reynihlíð aftur, sagði Halldór að lokum. FaSlr okkar, Valdimar Long, kaupmaSur, HafnarflrSI, verSur jarSsettur frá ÞjóSkirkjunnl í Hafn- arfirSi, föstudagínn 28. ágúst, kl. 2 siSdegis. Ásgelr Long, Einar Long. Innilega þökkum vlS öllum þeim, sem sýndu okkur samúS og vin- arhug viS andlát og jarSarför eiginmanns míns og föSur okkar, Guðmundar Péturssonar , U frá Stóru Borg. F.h, vandamanna. Sigurlaug Jakobfna Sigvaldadóttlr og börnin. Innilegar þakkir fyrir auSsýnda samúS viS andlát og jarðarför móður minrv'-' Guðríðar Gunnlaugsdóttur frá UrriSaá. iFyrir hönd ættingja. Jóhannes Slgurðsson. MóSir okkar, tengdamóðir og amma, Guðrún Stefánsdóttir frá HjarSarholti, Kjós, verSur jarSsett föstudaginn 28. þ. m. kl. 2 e.h. frá Reynivallaklrkju. Börn, tengdabörn og barnabörn. T I M I N N, flmmtudaglnn 27. ágúst 1964 — 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.