Tíminn - 08.09.1964, Blaðsíða 2
MANUDAGUR, 7. sept.
NTB-Stokkhólmi. — Nú er
ljóst, að 8 manns, allt Svíar
hafa farizt í hinu mikla járn-
brautarslysi, sem varS í gær
um 100 km. vestur af Sunds-
vall, er lest rann út af spori á
um 90 km. hraða. Um 20 manns
liggja á sjúkrahúsi, en enginn
er lífshættulega slasaður. Opin-
berlega var staðfest í dag, að
orsök slyssins hefði verið hinn
mikli hraði lestarinnar, er hún
skipti um spor. Hins vegar er
ekki vitað um ástæðuna fyrir
því, að lestin skyldi vera á 90
km. hraða í stað 40, eins og
skilti gefa til kynna. Talið er,
að vegna þoku hafi lestarstjór-
inn ekki séð aðvörunarskiltið.
NTB-Nýju Delhi. — A. m. k.
65 manns týndu lífi og yfir 2,2
milljónir hektara ræktaðs lands
eyðilögðust í gífurlegum flóð-
um í Indlandi í gær. Samkvæmt
fyrirliggjandi upplýsingum hafa
6 milljónir manna á einhvern
hátt beðið tjón af völdum flóð-
anna, sem náðu til um 15.000
þorpa í Indlandi.
NTB- London. — Afríkumenn
og hvítir menn stóðu fyrir mót
mælaaðgerðum sitt i hvoru
lagi í Lundúnum í dag, er lan
Smith, forsætisráðherra S.-
Rhodcsiu kom tii Lundúna til
að ræða við Home, forsætis-
ráðherra um sjálfstæði S.-
Rhodesiu. Ekki hafa neinar
fregnir borizt af viðræðufund-
unum.
NTB-Detroit. — Fréttamenn
segja, að telja megi ræðu John
son, Bandaríkjaforseta á fundi
í Detroit í dag, byrjun kosninga
baráttu hans, enda þótt því sé
neitað í orðsendingu frá Hvíta
húsinu síðar í dag, að ræðan
hafi verið upphaf kosningabar-
áttunnar. í ræðunni lagði John
son mesta áherzlu á, að hann
teldi það stærsta verkefni sitt
að reyna að koma í veg fyrir
kjarnorkustyrjöld. Svo lengi
sem ég verð forseti mun ég
gera allt til þess að koma í
veg fyrir að slík hörmung komi
fyrir, sagði Johnson.
NTB-Moskvu. — Nikita Krúst
joff, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna sagði í útvarps- og
sjónvarpsræðu í dag, að hægt
væri að komast hjá styrjöld, ef
allar þjóðir legðust á eitt til að
berjast gegn ásælni heimsvalda
sinna og gegn stríðinu sjálfu.
Varðveizla friðarins er heilög
skylda allra manna, sagði Krúst
joff.
NTB-Kuala Lumpur. — Haft
var eftir áreiðanlegum heimild-
um í Lahis í S.-Malaysíu, að
margar konur séu í indónesísku
fallhlífasveitinni, sem húið hef-
ur um sig á Labis-svæðinu. —
Hafi ein kvennanna fallið og
önnur verið tekin til fanga. í
dag kom til nýrra bardaga milli
brezkra Gurkha-hermanna og
indónesískra fallhlífahermanna.
Öryggisráð S.þ. mun koma sam
an á miðvikudag að kröfu Mal-
aysíustjórnar til að ræða á-
standið í landinu.
BANDARÍSKAR FLUGSVEITIR GEGN
STÖÐVUM KOMMÚNISTA í LAOS?
NTB-Saigon, 7. september.
Frá því var skýrt í Saigon í dag,
að líkur séu fyrir því, að handa-
rískum flugsveitum verði beitt
gegn birgðastöðvum kommúnista
við Tchepone í Suður-Laos. Talið
er, að erindi Maxwell D. Taylor,
sendiherra til Washington hafi ver
ið að ræða þetta mál við banda-
ríska ráðamenn.
Tilgangurinn með slíkum loft-
árásum myndi vera sá að eyði-
leggja birgðastöðvar Viet-Cong-
mann í S-Vietnam, en haft er eftir
áreiðanlegum bandarískum heim-
ildum í Saigon í dag, að brýr og
vegir yrðu einnig eyðilagðir til
þess að koma i veg fyrir birgða-
flutninga.
Bandaríski flugherinn hefur tíl
ráðstöfunar stórar sprengiþotur,
léttar orrustuþotur og eftirlits-
þotur á þrem stórum flugvöllum
í S-Vietnam og myndi þessum
flugher verða beitt gegn sam-
gönguleiðum Viet-Congherjanna
um Laos.
Eftirlitsþotur, sem staðsettar
eru í S-Vietnam, hafa í marga
mánuði reynt að koma i veg fyrir
birgðaflutninga frá Norður-Viet-
nam um Tchepone-svæðið til S-
Vietnam. Vegalengdin frá landa-
mærum S-Vietnam til Tchepone
er um 40 km. í seinni tið hafa
miklar vöruflutningalestir farið
eftir veginum og samkvæmt upp-
lýsingum heryflrvalda í Saigon
hafa flugvélar verið meðal þess,
sem flutt er.
énauðgunartilrauniróðsmanns
NTB-Tönsbérg, 7. s’eptember.
Ungur og gjörsamlega óður kyn
ferðisbrotamaður gengur nú laus
í Tönsberg í Noregi. Síðustu þrjá
daga hcfur hann gert 4 nauðgunar
tilraunir um hábjartan dag. Lög-
reglan óttast, að hann geti hafið
árásir á nýjan leik, hvenær sem
er og hefur því beðið fólk að vera
SUNNUDAGINN, 6. september.
Hagstætt veður á síldarmiðunum
í gærdag og frameftir nóttu, en
þá tók að hvessa og undir morgun
tóku skipin almennt að leita vars.
Skipin voru cinkum að veiðum í
Reyðarfjarðardýpi og Tangaflaki.
Síldarleitinni var kunnugt um
afla 61 skips samtals 48.500 mál
og tunnur.
Straumnes ÍS 350, Helga Guð-
mundsdóttir BA 1600, Sæunn GK
800, Höfrungur II AK 650, Mímir
ÍS 500, Snæfell EA 2350, Akraborg
EA 1200, Einar Hálfdáns ÍS 1100,
Heiðrún ÍS 700, Þorl. Rögnvaldss.
ÓF 550, ísleifur IV VE 400, Jör-
undur II RE 1000. Páll Pálsson
GK 300, Rifsnes RE 500. Hamra-
vík KE 1400. Bergui VE 1400,
Marz VE 700. Arnkel* SH 700,
Kópur KE 500 Asbjörn RE 400,
Lómur KE 1300. Stígandi ÓF 500,
Mummi GK 700, Framnes ÍS 700,
Guðbjörg ÓF 500, Gullver NS 650,
vcl á verði og skýra frá öllu, sem
gæti leitf til ha'ndtöku hans.
Hefur mikill óhugur gripið um
sig í Tönsberg og heldur lögregl
an nú uppi umfangsmikla leit.
Á sunnudag gerði hann tvær
nauðgunartilraunir með stuttu
millibili og bendir allt til, að hér
sé vitfirringur á ferð.
Sif ÍS 500, Arnarnes GK 500, Sig.
Jónsson SU 350, Hafþór RE 250,
Dalaröst NK 800, Engey RE 1800,
Hafrún ÍS 1000, Sigurður SI 900,
Ól. Friðbertsson ÍS 700, Steinunn
SH 800, Hilmir KE 600, Víðir II
GK 750, Sólrún ÍS 1400 Náttfari
ÞH 1300, Stefán Árnason SU 1000,
Þráinn NK 550, Smári ÞH 300,
Oddgeir ÞH 700, Guðbjörg GK
1600, Jón Jónsson SH 900, Guð-
björg ÍS 1300, Stjarnan RE 500,
Margrét SI 750, Guðbj. Kristján
ÍS-268 1300, Jörundur III RE 600,
Akurey RE 550, Sæfaxi NK 200,
Þórsnes SH 250, Ól. Tryggvas. SF
250, Sigurpáll GK 800, Fjarðar-
klettur GK 300, Mánatindur SU
1500, Sigurvon RE 650 Hólmanes
SU 1100, Amfirðingur RE 300.
Mánudaginn 7. sept. Óhagstætt
veður var á síidarmiðunum s. 1.
sólarhring, og tilkynntu 20 skip
sfldarleitinni um afla, samtals
6.400 mái og tunnur. Var eingöngu
um að ræða smáslatta.
Björn Jónsson RE 500, Blíðfari
SH 150, Ól. Magnússon EA 450,
Sig. Bjarnason EA 600, Bjarmi II
EA 700, Jón Gunnlaugs GK 100,
Héðinn ÞH 350, Skagaröst KE 150,
Guðrún Jónsdóttir ÍS 450, Ingiber
Ólafsson GK 200, Pétur Sigurðs-
son RE 500, Æskan SI 250, Bjarmi
EA 250, Jón Kjartansson SU 400,
Skírnir AK 250, Björgúlfur EA
100, Óskar Halldórsson RE 200,
Seley SU 250, Björgvin EA 250,
Ögri GK 300.
f dag fékk svo lögreglan til-
kynningu um tvær nauðgunartil-
raunir til viðbótar. Allt voru þetta
ungar stúlkur, sem urðu fyrir árás
um, en þeim tókst annað hvort
að rífa sig lausar eða kalla á
hjálp, svo ódæðismaðurinn kom
ekki vilja sínum fram. Ein stúlkn
anna telur síg hafa sært árásar-
manninn, er hún sló hann með
regnhlíf. Hafði hinn óði maður
þá tekið hana kverkataki. Enda
þótt þessar tilraunir hafi ekki vald
ið miklum skaða á stúlkunum, ótt
ast lögreglan, að pilturinn haldi
áfram á sömu braut og hafi því
miklar ráðstafanir verið gerðar til
að hafa hendur í hári hans.
SLYSASKOTIÐ
KJ-Reykjavík, 7. september.
Maðurinn, sem varð fyrir slysa
skotinu í bifreiðinni á Skeíðaveg
inum á laugardagsmorguninn hét
Svearir Ingólfsson, til heimilis
að Vesturgötu 4» í Reykjavík.
Sverrir lætur eftir sig konu og
stálpaðan son.
Héraðsmót
á Blönduósi
FRAMSÓKNARMENN í Austur
og Vestur-Húnavatnssýslu halda
sameiginlegt héraðsmót að Blöndu
ósi laugardaginn 12. september
n.k. og hefst það kl. 8,30 síðdegis.
Ræður flytja Ólafur Jóhannes-
son, varaformaður Framsóknar-
flokksins og Steingrímur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri.
Smárakvartettinn á Akureyri
syngur og Jón Gunnlaugsson, gam
anleikari skemmtir.
Polo og Erla frá Akureyri leika
og syngja.
BROSHÝRA stúlkan hér á mynd-
inni er Daisy Voog frá Munchen
í Þýzkalandi, sem varS fyrst
kvenna til aS klífa hina alræmdu
norðurhlíð Eiger-f jallgarðsins i
Sviss, sem gengið hefur undir
nafninu, „Hlið djöfulsins". Fiall-
ið er 3.970 metra hátt á þeim
stað, sem hún fór upp. í tilraun-
um við að klífa fjallið hafa far-
izt 17 fjallgöngumenn og þykir
afrek stúlkunnar því mikið. Hún
er 26 ára að aldri og er myndin
tekin rétt eftir að hún kom ofan
úr fjallinu. Virðist hún fara létt
með hinn stóra bakpoka slnn.
Geir Aðils-Khöfn, 4. september.
Listamannafélagið „Se“ heldur
um þessar mundir sýningu í Charl
ottenborg. íslenzka listakonan
María H. Ólafsdóttir, sem er í fé-
laginu, sýnir þar ýmis verk, m. a.
andlitsmyndir og landslagsmyndir
frá íslandi. Hún fær, eins og
venjulega, mjög góða dóma í blöð
unum. Um listamennina, sem sýna
á þessari sýningu, segja gagnrýn
endurnir m. a. „Þeir lifa í sínum
eigin heimi, meðhöndla listina á
sinn eígin hátt. Þeir hafa náðar
gjöf sanngldisins. Þeir geta sagt
ævintýri þannig, að við trúum
þeim: t. d. þegar María H. Ólafs-
dóttir sveipar ljósi ævintýranna
um börnin, sem leika prins og
prinsessu, þá fjarlægjumst við að
eins hinn kalda veruleka og höld
um til móts við betri og hjarta-
hlýrri veröld.“
María Ólafsdóttir kom til Dan-
merkur árið 1945 og stundaði nám
við Kunstakademiet í Kaupmanna-
höfn hjá Axel Jörgensen heitnum
prófessor. Hún er gift hinum
ágæta danska listamanni Alfred
Jensen, sem í mörg ár hefur verið
líf og sál Se-félagsins. Alfred
Jensen hefur mikínn áhuga á fs-
landi og íslenzkum málum, skilur
og talar íslenzku furðu vel, og
sækist eftir félagsskap fslendinga,
sem hann kann vel við.
Tréskurður eftir Mariu Ólafsdóttur.
2
T í M I N N, þriSjudaginn 8. september 1964