Tíminn - 15.09.1964, Blaðsíða 3

Tíminn - 15.09.1964, Blaðsíða 3
Allar borgir þurfa að eiga listamannakrá. Margar borgir Rafa einhvern stað, sem hægt er að nefna því nafni, líklega flestar höfuðborgir nema Reykjavik. Eða hvað? Einu sinni var sungið „Laugavegur 11 er listamanna krá“. Þetta var uppsuða úr kvæði Davíðs um Lapi . . .“ því Lapi er og Lapi verður listamannakrá." Lapi var í Flór gkz og vonandi er hún þar enn. Laugavegur 11 var í Reykja- vík, en er þar ekki lengur, að minnsta kosti ekki sem lísta- mannakrá. Kaffistofunni var lokað fyrir nokkrum árum og fatabúð kom í staðinn. Lista menn fóru á vergang, en svo var Mokkakaffi opnað við Skólavörðustíg. Sumir segja, að Mokka sé listamannákrá. Hvaða listamenn stunda Mokka? Eða skyldi þar vera um nokkra ástundun af hálfu Bstamanna að ræða? Er Mokka Kstamannaskrá eða ekki? „To be or-not to be“. Jú, listamenn koma í Mokka, listamenn í öllum listgreinum. Þeir koma þar og drekka kaffi, sterkt úr litlum bollum, meðalsterkt úr meðalbollum og miðursterkt úr meira en með- albollum. Ef þeir vilja sterkt, þá biðja þeir um „einn sterk- an“ og fá hann í litlu bollun- um, annars biðja þeir um „capuchino" og fá það í með- albollunum, en „capuchino er kaffi með gufusoðinni mjólk eða mjólkurfroðu út í og súkku la'ðimylsnu ofan á. Sumir drekka „café au lait“ úr stóru bollunum en það er kaffi og gufusoðin mjólk til helminga. Kaffivélin í Mokka heitir la Carimali og er ættuð frá Mil- anó. Veitingamaðurinn heitir Guðmundur Baldvinsson, en það vita allir. Listamennirnir drekka kaffi, en það gera fleiri: skrifstofu menn, verzlunarfólk, lögfræð- ingar, fasteignasalar, blaða- menn, ljósmyndarar, iðjuleys- ingjar, vísindamenn, mennt- skælingar og eilífðarstúdentar, og síðast en ekki sízt konur, sem eru mikíð fyrir kaffi. Auk þess koma túristar í Mokka og bergja á kaffinu, bæði þeir sem ferðast í gallabuxum og þykkbotnuðum gönguskóm og þeir sem ferðast á blankskóm með hvítt um hálsinn. Hver er þá hlutur lista- manna? Borinn saman við hlut hinna ólistrænu er hann harla lítill. Það orkar því tvímælis, að Mokka geti kallazt lísta- mannakrá. Hitt er ólíklegt, að nokkur önnur veitingastofa í Reykjavík geti kallazt lista- mannakrá fremur en Mokka, jafnvel þótt listamenn fari hvert sem vera skal, þegar svo ber undir. Ef komur lista- manna, „listunnenda“, bókabé- usa og annarra sérvitringa á Mokka væru bornar saman við komur þeirra í önnur veitinga- hús, má eflaust gera ráð, fyrir að Mokka hefði vinninginn. Hvaða listamenn eru þaul- sætnastir á Mokka? Líklega Dagur Sigurðarson og Helga kona hans (frá Aust ur-Berlín) í fremsta sæti. Sum ir segja, að Dagur sitji þar lon og don, og aðrír segja, að hann hafi farið til Sikileyjar til að lofa öðrum að komast að á Mokka. Nú er Dagur kominn aftur frá Sikiley og setztur á sinn stað, að minnsta kosti í viðlögum. Sverrir Haraldsson, hann sat tíðum á Mokka, drakk súkku laði og reyktí Cool. Nú sést hann ekki lengur. Þeir segja hann sé að mála og enginn muni sjá hann fyrr en hann er tilbúinn með næstu sýningu. Þá muni hann aftur koma á Mokka og sitja þar í nokkra mánuði. Kristinn Pétursson kemur hér oft og tíðast seinnipart vetrar, þegar daginn fer að lengja. Hann trúir á jól nátt úrunnar og fagnar hækkandi sól. Og ekki má gleyma ungu skáldunum, Jóni frá Pálmholti og Þorsteini frá Hamri. Þeir koma oft fyrir hádegi og þá er Sveinbjörn Beinteinsson nærstaddur. Nú ku Sveinbjörn vera búínn að raka sig og hef ur ekki sézt á Mokka langa tíð. Jóhannes Jóhannesson lítur inn, en hann hefur vinnustofu á næstu grösurn. Hann ræðir vandamál listarinnar við Sigurð Sigurðsson og Valtý Pétursson. Þeir síðarnefndu koma stöku sinnum. Jökull Jakobsson og Gísli Halldórsson — þeim bregður fyrir, og það /er ekki óalgengt að sjá Helgu Bach- mann, Helga Skúlason og Stein dór Hjörleifsson saman við borð. Þá veit maður, að leik listin er á dagskrá. Guðmund ur Steinsson og Kristbjörg Kjeld koma og líta í blöðin, en Guðmundur veitingamaður hefur þau öll til reiðu handa gestunum. Kemur Elías Mar hér? Lí'k- lega sárasjaldan. En Vilhjálm ur Bergsson? Varla mjög oft. Bragi Kristjónsson kemur hér oft, en þá er komið út fyrir stétt listamanna. En Bragi er listamaður á sína vísu, kannski meiri en margur annar. Það má annars segja um Braga, að hann drekkur meira kók en kaffi. Þá kemur einatt maður með bláa alpahúfu, gengur hægt og virðulega inn eftir gólfinu, snýr sér að einhverj ucn og segir: „Können Sie mir eina Zigarette geben?“ Hann fær ævinlega sígarettu og geng ur þá út. Annar maður, ívið dularfullur, kemur líka í Mokka Hann er með grásprengt skegg, í sítt og mikið, gleraugu komin til ára sinna, en sjálfur maður- inn er á bezta aldri. Hann mun búa yfir afarmikilli vitneskju, en segir hana engum. Kung, hinn aldurhnigni, sem kom hér til að leita að hinu sokkna Atlantis, hefur ekki sézt á Mokka frá því í fyrra eða hitteðfyrra. Og menn eru enn að spyrja, hvað hafi orðið um hann. Enginn virðist kunna svar við því. Hann sat hér oft að tedrykkju og las bækur með stækkunarglerinu sínu. Það var ferkanntað gler á skafti, og Kung hélt því frá sér, ívið nær en mitt á milli bókar og augans, þegar hann var að lesa. Stundum kveikti hann í sígarettu með stækkunargler- inu, hann reykti Craven A og lifði mest á tei, sögðu þeir sem gerst máttu vita. Mestum tíma sínum varði hann f Landsbókasafninu, þar sem hann las allt milli himins og jarðar. Ekkert mannlegt lét hann sér óviðkomandi, og það sem er ekki mannlegt lét hann sig einnig varða. Honum var til dæmis mjög umhugað um fljúgandi diska. Kung var léttur í spori þeg ar hann gekk frá Landsbóka- safninu upp í Mokka að fá sér tesopann. Skeggið klofnaði um hökuna og lagðist aftur á bak, og sítt hárið flaxaðist í vindin um. Hvað hefur orðið af Kung? Getur það verið, að hann sé ekki lengur á meðal okkar, eða hefur hann kannski fundið Atlantis? Á Mokka er ekkert svar við því. Þar koma nýir gestir á nýjum árum, og ef maður spyr þá um Kung er mjög senni- legt að þeir hristi hausinn og segi: — Eg hef aldrei séð hann, ég veit ekkert hver hann var. Á VÍOAVANGI Mogga-siðgæði Morgunblaðið hælir sér af því sýknt og heilagt, að það sé siðgott blað, hlutlaust í frétta- flutningi, leyfi mismunandl sjónarmiðum óspart að koma fram og halli aldrei réttu mál'i. f samræmi við þetta sjálfsálit setur Moggi sig á háan hest og prédikar siðgæði fyrir öðrum blöðum, sakar þau um „frétta- |falsanir“ og hlutdrægni í hví- vetna, wg svo bæta ritstjórarnir 1 vafalaust við í hljóði: Guð, við þökkum þér, að Við erum ekki eins og önnur blöð. Þetta yfirburðasiðgæði sitt f blaðamennsku sýndi Moggi svo gleggst með því að birta hið p margfræga plagg, með nafni 1 Ágústs Sigurðssonar undir, Jó- ; hannesi og Lárusfl hæstaréttar- rj dómara Bjarna Ben til þægð- | ar. Moggi hafði aldrel minnzt Íá þetta margfræga mál meðan það var almennt fréttaefni fyr- ir dómstólum og í uppboðs- rétti, en svo tekur hann sig allt í einu til og þjónar rétt- lætinu með því að blrta plagg þetta og gerist með því ein- hliða málsvari annars aðila í samfélagi við Mánudagsblaðið. Verður plaggið og hlutur Morg- unblaðsins lengi uppi, enda hæfir hvað öðru vel. „Skrifaði ekki orS/# Nú er hins vegar komin á prent ný yfirlýsing frá Ágústi Sigurðssyni, og bíða menn þess nú, að Mogga renni réttlætis- kenndin til skyldunnar og birtS hana næst. Yfirlýsiing þessi er í blaðinu Frjáls þjóð. Þar er viðtal vfð Ágúst og segir þar m.a.: „Aðspurður kvaðst Ágúst ekki hafa skrifað orð af „yfir- lýs!ingu“ þeirri, sem birtist í Morgunblaðinu og kvaðst sjá, að hann yrði að leiðrétta hana, ef hann kæmi fyrir rétt“. Morgunblaðið gat þess ekki, hver hefði beðið um birtingu hinnar frægu yfirlýsingar, en 9 það fer nú varla milli mála í Ieíigur, hvernig hún var til | komin og hve sönn hún var. 1 Nú mun Moggi þegja, en eft- | ir þessa nýju yfirlýsingu a Ágústar hefur hlutur þess M blaðs ekki batnað í málinu. Nú er svo komið, að þjóðin öll veit, að birting Mogga á einu ömurlegasta siðleysisplaggi sem sézt hefur á prenti hér á landi, er það lægsta, sem ís- lenzkt dagblað hefur lagzt á siðustu áratugum. Kirkjulegt bræðralag Maðurinn, sem fram að þessu hefur talið sig citnna mestan krossferðaríddara gegn kommúnistum hér á landi, ræð- ir s.l. sunnudag i Reykjavíkur- bréfi í Mbl. uin samband ís- lenzkra kommúnista við Moskvuvaldið, en það hefur verið mjög á dagskrá vegna fundar í Moskvu, sem Þjóðvilj- inn hefur gagnstætt venju sagt frá. Um þessi tengls segir í Reykjavíkurbréfinu: „Vel má vera, að tengslin þarna á milii séu lausari en margir hafi ætlað. Ef þau væru ekki nánari en t.d. milli lútherskra kirkjudeilda inn- byrðis, mundu flestir telja þau skaðlítil. En tjald'ið skyggir enn á of margt til þess að fært sé að breyta um skoðun á eðli tengslanna". Riddarinn í Reykjavíkurbréf- Framh á 15. síðu TÍMINN, þriðjudagur 15. september 1964 — 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.