Tíminn - 23.09.1964, Síða 5

Tíminn - 23.09.1964, Síða 5
 lllllli ít=RÚ‘ 1'TIR r" : —p— 1 — RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON TILLÖGUR FRÁ ÍÞRÓTTAÞINGI Á íþróttaþinginu, sem háð var um helgina, voru margar tillögur samþykktar og fara hér á eftir tillögur íþróttanefndar. Blaðið mun næstu daga birla meira frá íþróttaþinginu. íþróttanefnd hefur farið yfir og rætt þær tillögur, sem lagðar voru fyrír nefndina og leggur til að þær verði samþykktar þann- ig: Frá framkvæmdastjórn ÍSÍ. fþróttaþing ÍSÍ 1964, heimilar framkvæmdastjórn að hefja und- irbúning að því að koma upp æf- inga- og námskeiðabúðum fyrir íþróttasamtökin. íþróttaþing 1964 telur að sú þróun sé eðlileg, að sérsamband verði myndað fyrir íslenzka glímu. Fyrir því felur þingið framkv. »tj órn ÍSÍ að vinna að undirbún- ingi og stofnun sérsambands í glímu, á þessu hausti. fþróttaþing ÍSÍ 1964, lýsir yfir eindregnum stuðningi við tillögur þær um uppbyggingu íþrótta- mannvirkja, er nefnd sú hefur samið, er menntamálaráðherra skipaði á sl. ári, til þess að athuga fjármál og framkvæmdir íþrótta- sjóðs. Frá íþróttanefnd. íþróttaþing ÍSÍ 1964, fagnar þeim framkvæmdum, sem í sum ar hefur verið unnið að við íþrótta kennaraskóla íslands að Laugar- vatni. Jafnframt beinir þingið þeim tilmælum til menntamálaráðherra, að hann hlutist til um að gerð verði fimm ára áætlun um upp byggingu fþróttakennaraskóla ís- lands. Frá íþróttamerkjanefnd. íþróttaþing haldið í Reykja- vík dagana 19. og 20. sept. 1964, samþykkir: 1. Hafin skuli keppni um íþrótta- merki ÍSÍ fyrir konur. 2. Aldurtakmark verði lækkað úr 16 árum í 14 ár. Frá Þorsteini Einarssyni. íþróttaþing ÍSÍ haldið 19. og 20. september 1964, samþykkir að beina þeim tilmælum til háttvirts menntamálaráðuneytis, að húsa- kynni til íþróttaiðkana séu reist við hvern nýjan skóla jafn snemma og fyrstí áfangi viðkom andi skóla. SííííííííííííííS'ít ALFREÐ ÞORSTEINSSON SKRIFAR FRÁ LUNDÚNUM: Hlð unga llð Chelsea í sviðsljósinu á Englandi Hefur nú þriggja stiga forskot í 1. deild eftir sigur gegn Leeds London, 20. september. Chelsea er í sviðsljósinu í enskum knattspyrnuheimi um þessar mundir, og þegar þetta er skrifað, hefur liðið tekið örugga forustu í 1. deildar keppniniri, hlotið 15 stig úr 9 leikjum, og er nú eina iiðið, sem ekki hefur tapað leik. Næstu lið fyrir neðan eru Sheffield Utd., Arsenal og Blackpool, öll með 12 stig. Hvernig verður svo framhald- ið, tekst þessu unga Chelsea-liði að halda strikinu og vinna deildar- keppnina? Chelsea var á toppin- um 1954—55, eða fyrir 10 árum, og varð þá enskur meistari. Síð- j nn það varð hafa skipzt á skin og ekúrir. fall niður í 2. deild, en' eíðan afturkoma í 1. deild — og \ síðasta keppnistímabili var j Chelsea meðal toppliðanna, íj ,'immta sæti með 50 stig, en þess: má geta, að Liverpoól sigraði með 57 stigum. Hér í Lundúnum var Stamford Bridge leikvangur Chelsea, undir fmásjá s.l. laugardag, þegar Chel-j »s>a mætti Leeds Ut. Mikið öng-; þve’ti skapaðist við Fulham Broad-j way sem er næsta neðanjarðar- járnbrautarstöð við Stamford Bridge. Þúsundir fólks streymdu að úr öllum áttum og höfðu tugir lögregluþjóna nógan starfa við að stjórna hinni miklu umferð. Og hvers vegna var áhuginn fyrir þessum leik svona mikill? Þarna mættust tvö efstu Iiðin í deildinni. Chelsea hafði fyrir þennan leik 13 stig, en Leeds Utd. 11 stig — og nú hafði Leeds möguleika á því að ná Chelsea og skjóta sér þar með einnig upp í efsta sætið. Leeds Utd. kom eins og kunnugt er, upp úr 2. deild á síðasta keppnistímabili Liðið hef- ur innan sinna vébanda marga reynda leikmenn, þ.á.m. Bobby Collins, sem áður lék með Celtic og Everton, honum er mest þakk- aður framgangur Leeds að undan- förnu. Þá má nefna Jack Charl- ton, bróður hins fræga enska landsliðsmanns, Bobby Charlton, Manch. Utd. Jack hefur leikið með Leeds um 11 ára skeið og leikið um 300 ieiki með liðinu. — í þessum leik saknaði Chelsea hins leikvana Thambling, sem meidd- ist I leik um síðustu helgi, en annars var liðið skipað að mestu leyti eins og í fyrri leikjum. Það var greinilegt, að tauga- spenna var allsráðandi hjá leik- mönnum beggja liða, sérstaklega fyrstu mínúturnar. Harkan var mikil — og hvað eftir annað varð dómarinn að stöðva leikinn vegna grófra brota, átti þetta jafnt við um bæði liðin. Á 18. mín. gerðist atburður, sem kom hinum mörgu áhangendum Chelsea til að rísa úr sætum og steyta hnefana. Collins hjá Leeds missti stjórn á sér eitt andartak og gaf Harris, vinstri framverði Chelsea, hnefa- högg. Þetta gerðist eftir að Harris hafði unnið návígi. Dómarinn stöðvaði leikinn umsvifalaust og Á íþróttaþingi, sem haldið var i Reykjavík um helgina, eins og skýrt var frá í blaSinu 1 gær, var Gísli Halldórsson einróma end- urkjörinn forseti ÍSÍ. Myndina hér aS ofan tók Ijósmyndari Tímans, GE, þegar Gísli Halldórsson setti íþróttaþingið á laugardag. gaf Collins áminningu. (Hrædd- ur er ég um að íslenzkir knatt- spyrnudómarar hefðu farið öðru jvísi að og rekið viðkomandi leik- , mann af velli). Eftir u.þ.b. 30 mín. leik missti Leeds mann út af, Giles, hægri útherja, en hann hlaut meiðsli í hnéi, lék því Leeds með 10 menn það sem eftir var Leikurinn hafði fram að þessu verið mjög jafn, . en nú tóku Chelsea-leikmennirnir við sér — og nokkrum mínútum fyrir hlé skoraði vinstri innherjinn, Ven ables, stórglæslega með þrumu- skoti. Chelsea átti mun meira í síðari hálfleik og þá skoraði hinn ungi framvörður. Hollins, mark af löngu færi. Þinnig vann Chelsea þennan leik með 2 : 0 og hefur nú þriggja stiga forskot i 1. deild. Það var lítíll glans yfir Chelsea-liðinu, sem ég sá s.l. iaugardag, en þetta er tvímælalaust jafn bezta liðið. sem ég hef séð hingað til, enginn veikur punktur. Af framlínu leikmönnunum voru Bridges og Framhald á bls. 6. Finnland Noregur SvíþjóS Danmörk 3 2 0 1 3—3 4 2 110 3—1 3 3 1115—33 2 0 0 2 2—6 0 Finnar hafa því enn mögu- leika á því að sigra í keppninni og verða Norðurlandameistar- ar, en það fer eftir úrslitum í ieik Danmerkur og Noregs hinn 11. október í Kaupmamna- höfn. Þess má geta, að Danir vinna Norðmenn yfirleitt alltaf. nUlnlMl FRETTIR • Hollctndingar sigruðu Dani með eins stigs mun — 106 gegn 105 — í landskeppni í frjálsum íþróttum, sem háð var í Breda í Hollandi á laugardag og sunnudag. Danir voru óheppn- ir, þar sem annar maður þeirra í 400 m. grindahlaupi var dæmdur úr leik — og það varð tll þess að þeir töpuðu keppn- inni. Hollendingar sigruðu í spretthlaupunum, en Danir unnu hins vegar öll hlaujp frá 800 m. og upp úr. Jörgen Dam sigraði í 1500 m. á 3:51.6 mín. og í 5000 m. á 14:19.6 mín. Thyge Thögersen sigraði i 10 km. á 30:22.2 mín. Athyglis- verðasta árangrinum í keppn- inni náði Koch, Hollandi, í kringlukasti, kastaði 55.58 metra. • í landskeppmi ítalíu, Nor- egs og Svíþjóðar f frjálsum íþróttum, sem háð var á Ólym- píuleikvanginum í Róm um helgina, setti Oddvar Krogh nýtt, norskt met í sleggjukasti, ; kastaði 65.80 metra. Hann átti sjálfur eldra metið 64.83 metra. ftalía vann Svíþjóð 111—97 og Noreg 113—95, og Svíþjóð vann Noreg 107—101. • Stan Cullis, hvnn frægi framkvæmdastjóri Úlfanna, sem rckinn var frá félaginu í sfðustu viku, hefur tilkynnt, að j hann muni hætta afsfciptum af I knattspyrnu. ítalska félagið Ju- I' ventus bauð honum að gerast framkvæmdastjóri hjá félaginu með 10 þúsund ipunda árslaun og emska liðið Sunderland bauð honum einnig framkvæmda stjórastöðu. Cullis afþakkaði á þeim forsendum, að hann treyst'i sér ekki til þess að vinna þessum félögum á sama hátt og hjá Úlfunum, en þar var hann í 30 ár, fyrst sem leik- maður og síðan sem fram- i kvæmdastjóri. • Svíar voru heppnir að ná jafntefli í landsleik við Norð- menn, sem háður var í Osló á sunnudag, en þetta er í þriðja sinn í röð, sem þessar þjóðir gera jafwtefli í landslcik i knattspyrnu. Norðmenn sóttu mjög mest allan leikinn, en þó voru Svíar fyrri til að skora. Nýliðinn Bo Larsson skoraði úr vítaspyrnu á 39. mín. eftir að brotið hafði verið gegn hon- j um. Norðmenn jöfnuðu eftir 10 mín í s.h. er útherjinn Finn Seeman skallaði í mark. Á 16. j mín. fengu Svíar aftur víta- spyrnu, en Beingt Lindskog j spyrnti knettinum beint á markvörð Norðmanna. 25 þús- und áhorfendur sáu leikinn. Staðan er nú þannig i Norður- landakeppnkini; 7 í M I N N, miðvikudagur 23. september 1964. O

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.