Tíminn - 30.09.1964, Qupperneq 5
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Guðm. Gíslason fyrsti kepp-
andi íslands á Úl.-lelkunum
Olympíuleikarnir verSa settir 10. október en sund-
keppnin hefst daginn eftir. íslenzku þátttakendurnir
halda til Tokíó 6. október.
TÍMINN styttist ó'ðum þar til hin mikla íþróttahátíð hefst í Tokio
— og á annað þúsund keppendur cru þegar komnir til borgarinnar.
Hinir íslenzku eru þó ekki þar á meðai, en frjálsíþróttamennirnir Jón
Ólafsson og Valbjörn Þorláksson héldu til Svíþjóðar íyrir nokkrum
dögum, þar sem þeir rnunu dvelja í æfhvgabúðum í Boson ásamt
sænskum olympíuförum.
Ingi Þorsteinsson, fararstjóri ís-
lenzku keppendanna á Olympíu-
leikana, boðaði fréitamenn á sinn
fund á sunnudag og skýrði þá frá
ýmsu í sambandi við undirbúning
við ferðina. Áætlað er að halda
til Kaupmannahafnar 4. október
og þaðgn til Stokkhólms, þar sem
Jón og Valbjörn sameinast hópn-
um. Olympíuþátttakondur annarra
Norðurlanda verða þar flestir —
nokkrir eru þó þegar komnir til
Tokio — en íþrótíasambönd Norð-
urlanda hafa samið við SAS utn
flutning á íþróttafólkinu á hag-
kvæmum kjörum og er talið að
fjöldinn frá Stokkhólmi verði 421.
Flogið verður frá Stokkhólmi yf
ir Norðurpólinn, cldsneyti tekið í
Alaska og síðan haldið til Japan.
Áætlað er að ferðin taki 17 klst.
SÉRSTAKT HÚS.
Hinir fjórir ísl. keppendur —
Hrafnhildur Guðmundsdóttir og
★ ÁSTRALÍUMKNN unnu aft-
ur Davis-bikarinn í tennis af
Bandaríkjunum í hörku-
skemmtilegri keþpni um helg-
ina. Eftir einliðalcikina á laug-
ardag voru þjóðirnar jafnar, en
Bandaríkjamennirnir McKinley
og Ralston sigruðu Emmcrson
og Stolle í tvíliðaleiknuni og
stóð 2:1 fyrir Bandaríkin fyrir
síðasta keppivisdaginn. Stolle
Guðmundur Gíslason — auk þeirra
sem áður eru nefndir og farar-
stjórinn munu búa í sérstöku húsi
í olympíuþorpinu meðan á leikun-
um stendur, Hrafnhildur á efri
hæðinni, en karlmennirnir á þeirri
neðri. Sérstakur leiðsögumaður
japanskur mun verða með ísl.
flokknum allan tímann, sem lei'k-
arnir standa yfir. í fyrstu ætlaði
framkvæmdanefndin íslendingun-
um að búa á hóteli, en á það var
ekki fallizt, og breyttu Japanir þá
ákvörðun sinni.
Setningarathöfn Olympiuleik-
anna verður 10. október og strax
næsta dag hefst sundkeppnin. —
Guðmundur verður fyrstur íslend-
inganna í eldlínunni, keppir þann
dag í 100 m. skriðsundi — en dag-
inn eftir í 400 m. fjórsundinu, sem
er hans aðalgrein. Hrafnhildur
keppir þá einnig í 100 rn. skrið-
sundi, en 15. október í 100 m.
flugsundi.
vann þá Ralston og Wimbelton-
meistarinn Emmerson sigraði
McKinley í lokalciknum þann-
ig, að Ástralía vann 3:2. Þetta
er í 13. sinn á 15 árum, sem
Ástralía sigrar í þessari merk-
ustu keppni þjóða í tennis. Sem
kunn-ugt er sigruðu Svíar í Evr-
ópuriðlinum, en töpuðu fyrir
Ástralíumönnum í undanúrslit
um.
Keppni í frjálsum íþróttum hefst
14. október og næsta dag mun
Valbjörn keppa í stangarstökki.
Aðalgrein hans verður hins vegar
tugþrautin, sem fer fram 19. og
20. október og Jón Ólafsson kepp-
ir í hástökki þann 20. október.
Ráðgert er að halda heim frá
Tokio þ. 24. Fyrst verður flogið til
Bankok, stanzað þar í tvo daga, þá
til Calcutta, Teheran, Róm og
Reykjavíkur.
Ilrvalslið Reykjavíkur
vann varnarligsmenn
Á LAUGARDAGINN léku úr-
valslið Reykjavíkur og varnarliðs-
manna á Keflavíkurflugvelii fyrsta
leik sinn af fimm í hinni árlegu
keppni milli þcssara aðila, sem
liófst í fyrra og sigraði Reykjavík
þá í þremur leikjum af fimm. —
Úrslit í leiknum, sem háður var
i íþróttahúsinu á vellinum, urðu
þau, að Reykvíkiiigar sigruðu með ,
85:64 og sýndi liðið ágætan Ieik. |
f hálflcik stóð 45:35. Stighæstir
voru Guttormur Ólafsson, KR, með
36 stig og sýndi haiin mikið öryggi
í vítaköstum, skoraði m. a. úr 10
í röð. Þorsteinn Hallgrímsson, ÍR,
var með 23 og Einar BoIIason, KR,
með 18.
Argentíska knattspyrnuliðið Independiente frá Buenos Aires hefur hlotið heimsmeistaratitil félaqsllða eftir 3
leiki við Evrópumeistarana Inter Mllan. Argentínumennirnir sigruðu í fyrsta lelknum á heimavelll með 1:0
en í Mllano slgraði Inter með 2:0. Þar sem markatala ræður ekki úrslitum varð þrlðjl laikurinn að fara fram
og var hann háður á lelkvelli Real Madid á mánudagskvöld. Og Argentinumennirnir skcuðu þá eitt mark
sem nægðl tll slgurs — en bæði þessl llð eru fræg fyrir varnarleik sinn. MYNDIN hér að ofar er táknræn
fvrir það, en hún var tekin í Milano á laugardag. — Vinstri útherji Argentínumanna er næstur knettinum
inn í vítateig Inter, með miðherja ítalanna á hælunum.
Þessa skemmtilegu mynd tók Páll Eiríksson á haustmótinu í knattspyrnu
í Hafnarfirði, en þá léku meistaraflokkslið Hauka og FH og varð jafn-
tefli 3:3, í nokkuð skemmtilegum leik. IFH sóttl mun meir í leiknum, en
Karl Jónsson, sem sést hér slá knöttinn frá marki sínu, stóð sig ágætlega,
þótt hann yrði þrisvar að sjá á eftir knettinum í marklð. Bakvörðurinn
Sigurður Jóakimsson heldur um markstöngina. Félögln verða að lelka
að nýju þar sem jafntefli varð.
STUTTAR
HJJlIbi
OLYMPÍU-þátttakendurnir
streyma nú til Tokio og meðal
þeirra, sem komu í gær var
Olympíumeistarinn í maraþon-
hl«upi frá Róm, Etiópíumaður-
inn Abebe Bikila. Við komuna
sagði hann, að nú myndi hann
hlaupa á skóm, þegar hann
keppir í maraþonlilaupinu, en
berfættur vann liann gullverð-
launin í Róm. — „Hér í Tokio
er asfalt á vegunum, sem lilaup
ið verður um og skór því nauð-
syniegir". — Bikila cr talinn
mjög líklegur sigurvegari í
maraþonhlaupinu — og hefur
fengið leyfi frá störfum sem
lífvörður Hailc Selassie keis-
ara. Ef liann kemur aftur með
guilverðlaun heim bíða hans
þar „gull og grænir skógar“.
★ Á MÁNUDAGINN lék Black
pool og Tottenham í 1. deild og
varð jafntefli 1.1. Leikurinn
var háður í Blackpool, scm nú
er í öðru sæti í deildinni, 2
stigum á eftir Chelsea. Stór-
leikur fer fram i Lundúnum í
1 >Iag, en þá leikur Chelsea gegn
Maneh. Utd. Einn leikur var
'iáður á mánudag í 2. deild. —
Lundúnaliðið Leyton Orient
"ann Bolton 3:1 og koma þessi
i úrslit nokkuð á óvart, því Bolt
on hefur náð góðum árangri
undanfarið.
★ Á LAUGARDAGINN fó»* *
fram úrslitaleikurinn í firma-
kcppni Golfklúbbs Suðurnesja.
Til úrslita léku Bifreiðaleigan
Brautin (Bogi Þorsteinsson) og
Verzl. Nonna og Bubba (Helgi
Sigvaldason). Þetta var hörku-
keppni, eftir 17 holur voru
þeir jafnir, en Boga tókst betur
upp á 18. holu og sigraði með
einu höggi. Brautin hlýtur því
bikar Golfklúbbsins.
★ ÞAU óvæntu úrslit urðu á
Norðurlandsmótinu í knatt-
spyrnu, að Knattspyrnufélag
Siglufjarðar var'ð Norðurlands-
meistari. Sigraði fyrst Knatt-
spyrnufélag Akureyrar og síðan
Þór í úrslitaleiknum á Akur-
eyri s. I. sunnudag með 3:1.
— Þó hefur -lkureyrarliðið
Þór á að skipa leikmönnum
í 1. deildar Iiði íþróttabanda-
lags Akureyrar.
★ BREZKI Evrópumeistarinn í
þungavigt í hnefaleikum Henry
Coopcr hefur verið sviptur titli
sínum, þar sem hann hefur ckki
getað varið hann fyrir þann
tima, sem ákvcðið hafði verið
vegna meiðsla í liendi. Ákveð-
in hefur verið keppni um
liinn lausa titil milli Þjóðverj-
ans Karl Mildenberger og ítal-
ans Sante Amonti og verður
hann í Berlín.
T í M I N N , miðvikudaginn 30. september 1964