Tíminn - 18.10.1964, Side 5
SUNNUDAGUR 18. október 1964
Útijefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benedlktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og indriói
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta-
stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Steingrlmur Gíslason
Ritstjórnarskrifstofur 1 Eddu-húsinu, símar 18300—18305 Skrif-
stofur, Bankastr 7. Afgreiðslusími 12323. Augl.sími 19523 Aðrar
skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr 90,00 á mán. innan-
lands. — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Goði steypt af staili
Forustugrein sú, sem birtist í Pravda, aðalmálgagni
r'ssneska kommúnistaflokksins, í gærmorgun, bendir
til þess, að í Sovétríkjunum sé nú 'að hefjast svipaður
loikur og eftir flokksþing kommúnista 1960, þegar Stal-
ín var fyrst opinberlega steypt af stalli og ógnarstjórn
hans afhjúpuð- Gerinin í Pravda gefur til kynna, að
nú eigi að leika sama leikinn við Krustjoff.
Vafalaust má finna Krustjoff sitthvað til foráttu. Hins-
Kegar verður aldrei hægt að lýsa honum sem nýjum
Stalín. Hið sögulega hlutverk Krustjoffs hefur einmitt
verið það að hafa forustu um að gera kjör rússnesku þjóð
arinnar bærilegri eftir ógnarstjórn Stalíns. Þeir menn,
sem nú hafa tekið völdin, hafa verið samverkamenn
Krjustjoffs um þau efni. Þessvegna er það von
manna, að sú þróun haldist áfram, þótt Krústjoff sé
fallinn.
Það má hins vegar vel vera, að Krustjoff hafi gerzt
ráðríkur og erfiður samverkamönnum sínum eftir því
sem seta hans lengdist í valdasæti. Upplýsingar um það,
kæmu ekki neitt á óvart. Það væri ný sönnun þess.
að stjórnarkerfi, sem til langframa leggur öll völdin í
hendur eins manns eða fárra manna, spillir mönnum.
Þetta er eitt af mörgum ágöllunum þess stjórnarkerfis,
þar sem völdin eru í höndum eins flokks- Lýðræðis-
kerfið, sem tryggir stjórnarskipti á grundvelli frjálsra
kosninga, gefur hér allt aðra og betri raun.
Það er vissulega mikil ástæða til þess að fylgjast með
stjórnarskiptunum í Sovétríkjunum til þess að kynnast
því betur, hvernig eins flokks kerfið er í framkvæmd.
Það hefur einstaka menn eins og Stalín og Krustjoff til
óeðlilegra valda, spillir þeim og gerir þá að hrokafull-
um einræðisherrum. Meðan þeir eru í valdastólum, eru
þeir hafnir til skýjanna í blöðum og útvarpi. Þegar
stjarna þeirra er hröpuð, er þeim svo lýst á allt annan
veg.
Vissulega má finna sitthvað að því stjórnarkerfi, sem
íslendingar búa við. Samt er furðulegt, að til skuli
vera bér á landi menn, sem vilja koma á eins flokks
stjórnarkerfi.
Kínverska sprengjan
Kínverjar hafa sprengt fyrstu kjarnorkusprengju sína.
Það hefur vakið óhug. Hættan eykst að sama skapi og
þeim þjóðum, sem ráða yfir kjarnorkuvopnum, fjölgar.
Vonandi er það hins vegar góðs viti, að sama daginn
og Kínverjar sprengdu kjarnorkusprengjuna, kom til
valda í Bretlandi ný ríkisstjórn, sem leggja mun á það
höfuðkapp að hindra útbreiðslu kjarnorkuvopna. Svo ríkt
kapp mun hún leggja á það, að hún er reiðubúin til að
afsala Bretum yfirráðum yfir kjarnorkuvopnum. Af
sömu ástæðum leggur hún áherzlu á, að Atlantshafs-
bandalagið komi sér ekki upp sérstökum kjarnorku-
vopnaflota, því að það myndi óbeint fjölga þeim þjóð-
um, er ráða yfir kjarnorkuvopnum og þannig ýta undir
kapphlaup þjóða i þessurn efnum •
Fyrsta sporið er að hindra útbreiðslu kjarnorkuvopna.
Því færri sem kjarnorkuveldin eru, því auðveldara á að
vera að semja um þessi mál Undirbuning slíkra samn-
inga þarf að hefja sem fyrst á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna, því að þeir hljóta að taka sinn tíma. Þar er hins
vegar sá galli á, að Kína er utan S. Þ. eins og sakir
standa..
5
Waiter ritar um aIp|óiSamái:
pr frjá
Goldwater bi
ana
sikinn ósigur
Að öðrum kosti ráða afturhaldsmennirnir flokkunum áfram
NELSON ROCKEFELLER
ÞaS er hagur hans, aS Goldwater biSi mikinn ósigur.
HINIR frjálslyndu republik-
anar eru í næsta erfiðri að-
stöðu. Goldwatersinnarnir bol-
uðu þeim burt úr forustusveit
flokksins. Færi svo, að Gold-
water sigraði í forsetakosning-
unum eða hlyti allverulegt
fylgi, yrðu frjálslyndari menn
irnir áfram utanveltu í flokkn
um. Meðal þeirra eru menn eins
og Rockefeller, Scranton, Keat
ing, Scott, Taft, Romney og
Percy.
Frjálslyndari republikanar
geta því aðeins gert sér von-
ir um að komast aftur til valda
í hinum sögufræga flokki og
gefa honum á ný gömlu grund
vallarstefnuna, að Goldwater
og Miller bíði svo rækilegan
ósigur, að leiðtogar republik
ana í hinum einstöku ríkjum
gleymi ekki þeirri bitru reynslu
í bráð. Stórsigur Johnsons er
það eina, sem veitt getur frjáls
lyndum republikönum von um
að bæta það, sem aflaga fór í
San Francisco.
SÁ böggul fylgir skammrifi,
að stórsigur Johnson ylli senni
lega tapi þeirra frjálslyndra
republikána, sem í kjöri eru
þetta ár. Þarna er um að ræða
menn eins og Keating öldunga
deildarþingmann í New York,
— sem að visu getur borið höf
uðið hátt, hver sem útkoman
verður, — Scott öldungadeildar
þingmann í Pennsylvania,
Romney fylkisstjóra í Michigan,
Percy í Illinois og ef til vill
Taft í Ohio.
Þessir menn verða að reyn-
ast miklum mun fengsælli en
Goldwater, ef þeir eiga ekki að
bíða ósigur. Til þess að svo
megi verða, þurfa sérlega marg-
ir kjósendur að hafa sterkan
hug á að deila atkvæðum sín-
um og kunna að framkvæma
það. Mér er sagt, að engin
dæmi þekkist um jafn almenna
skiptingu afckvæða og með
þyrfti til þess að forða mörg
um hinna frjálslyndari repu-
blikana frá falli, ef Johnson
vinnur stórsigur.
FARI aftur á móti svo, að
Johnson vinni ekki stórsigur í
kosningunum, geta frjálslyndir
republikanar ekki náð aftur
flokknum, sem þeir glötuðu í
San Francisco. Þeir komast
þar ef til vill aldrei til valda
aftur. En margir af beztu framá
mönnum þeirra kunna að lúta
í lægra haldi ef Johnson vinn
ur mikinn sigur.
Þegar menn eins og fylkis-
stjórarnir Scranton og Rocke
feller, — sem hafa lýst yfir
fylgi við Goldwater, — hugleiða
þessa hörmulegu klípu, hlýtur
þeim að vera innanbrjósts svip
að og franska hershöfðinejan-
um í fyrri heimsstyrjöldinni.
sem óskaði mönnum sínum alls
hins bezta, þegar þeir lögðu til
orrustu. Hann vonaði. að þeir
hlytu hin beztu sár, — nægi-
lega stór til þess, að þeir yrðu
sendir heim, en góð að því
leyti, að þau væru ekki lífs-
hættuleg.
EFTIR því sem ég kemst
næst má einna helzt líkja úlfa-
kreppu Republikanaflokksins
við ástand Demókrataflokksins
árið 1896, þegar William Jenn
ings Bryan hertók hann. Bry
an bar að vísu í brjósti um-
hyggju fyrir þeim fátæku, gagn
stætt Goldwater, en hann stjórn
aði einnig uppreisn úr vestri
gegn austur-fylkjastjórn flokks
ins.
Fylgjendur Bryans voru
engu óvissari um eigin rétt-
sýni en fylgjendur Goldwaters,
en meðal þeirra voru vissulega
færri, sem áttu morð fjár. En
þetta var hinn harðsnúnasti
hópur og það tók Demókrata-
flokkinn 16 ár og kostaði fjóra
ósigra í forsetakosningucn að
hreinsa sig með öllu af Bryan
ismanum.
Sé þessi samlíking réttmæt
eru mestar líkur til að Repu-
blikanaflokkurinn verði ekki
endurreistur eða endurheimt-
ur fyrr en ný kynslóð er tekin
þar við forustu. Hinir nýju for
ustumenn verða að líkjast
þeim, sem tilnefndu Woodrow
Wilson árið 1912, mönnum, sem
ýmist höfðu aldrei kynnzt bar-
áttunni 1896. eða voru vaxnir
frá og upp úr þeitn kynnum.
Leiðtogar Republikanaflokks-
ins verða ekki einungis að
verða nýjir, heldur þarf og
ný málefni handa honum að
berjast fyrir. Vera kynni einn-
ig, að Demókrataflokkurinn
yrði þá tekinn að gerat hrum-
ur vegna 'gamallar sérvizku, —
og ekki er örgrannt um, að á
óljósum fyrirboðum þessa
virðist örla, ef rýnt er nógu
fast inn í framtíðina.
EINS og nú standa sakir er
það áhrifamesta afleiðingin af
útnefningu Goldwaters, að
republikanar hafa eftirlátið
demókrötum allt miðsvæðið í
opinberri afstöðu, eins og það
leggur sig, alt frá hófsamari
vinstri stefnu til hófsamrar
hægri stefnu. Þeir hafa af-
hent demókrötum hlutverk
hinna hyggnu og skynsömu
stjórnmálamanna, sem takast á
við veruleika samtíðarinnar.
Svo vill til, að þetta er ein-
mitt það hlutverk, sem bezt hæf
ir eiginleikum, skapferli og
skoðunum Lyndons Johnsons
Hann er hinn fullkomni mið
fylkingarmaður, hófsamur um
hvaðeina og fæddur samninga-
maður og græðari. Þegar Gold
water hefir runnið sitt skeið
á enda mun republikönum ekki
veitast auðvelt að endurheimta
af Johnson neina teljandi skika
af því miðsvæði, sem honum
hefir nú verið eftir látið.
Framhald á bls 6
I