Tíminn - 18.10.1964, Side 8

Tíminn - 18.10.1964, Side 8
8 TÍMINN SUNNUDAGUR 18. október 1964 JÓN H. MAGNÚSSON SKRIFAR FRÁ AMERÍKU Blöðin snúast flest á sveif með Johnson JIIM-NEW YORK Það hefur varla liðið sá dag- ur síðan Barry Goldwater, gaf fyrst kost á sér í forsetafram- boðið fyrir republikana að hann hafi ekki kvartað undan því að blöðin, sjónvarpið og út varpið væru á móti sér í þess- ari kosningabaráttu. Það hef- ur aldrei liðið sú forsetakosn- íng í þessu landi að einn eða annar af frambjóðendunum hafi ekki einnig kvartað und- an því sama. Goldwater og hans stuðnings menn halda því fram að blöð- in hafi aldrei neitt rétt eftir honum, heldur reyni þau vilj- andi að snúa út úr öllu sem hann segir. Þessi ásökun fram- bjóðendans hefur að vissu leyti við rök að styðjast, en oftast er það samt þanníg að Gold- water hefur sagt eitt eða ann- að, sem síðan hefur verið haft eftir honum á prenti, en í milli tíðinni hefur hann skipt um skoðun, eða kosningasérfræð- ingar hans hafa sagt, að hann hafi verið misskilinn. Það sem er furðulegast' við þennan óklíð á milli Barry og press- unnáí, ér sú staðreynd að flest öll blöð og útvarpsstöðvar í Bandaríkjunum eru í eign repu blikana. Núna síðustu tvær vikurn- ar hafa allmörg stór og voldug vikurit og dagblöð gefið út yfir lýsingar í ritstjórnargreinunum að þau styðji Lyjidon B. John- son og Hubert H. Humphrey í þessum kosningum, en ekki Barry Goldwater og William Miller. Það sem hefur vakið mestu athyglína við þessar yf- irlýsingar er sú staðreynd að þessi blöð hafa annað hvort aldrei fyrr stutt frambjóðend- ur demókrata í forsetakosning- um, eða _þá ekki gert slíkt í áratugi. í þessu sambandi má fyrst nefna vikublaðið Life, sem hefur aldrei stutt aðra en republikana síðan það byrjaði Johnson á kosnlngafundl. að styðja frambjóðendur 1944. í ritstjórnargrein í Life segir: „Johnson er mjög vel hæfur maður tíl að vera forseti Bandaríkjanna", og bætir við að þjóðin hafi vel efni á að „vera án Goldwaters“. Eigandi Life er Henry Luce, sem einn ig á hin heimsþekktu tímarit Time og Fojd.une, og er kvænt- ur hinni umtöluðu Clara Booth Luce, sem m. a. var um tíma ambassador í Róm og er nú ein eldheitasta stuðningskona Goldwaters. Frú Luce er ein af aðalleiðtogum mjög hægrisinn aðs, hóps innan republikana- flokksins, sem kallar sig „Borgarar fyrir Goldwater“, eins var hún ein af þeim sem útnefndu Goldwater á flokks- þinginu í San Francísco. Luce sjálfur studdi William Scrant- on, ríkisstjóra í Pennsylvanía. Það er álitið hér að það hafi tekið ritstjóra Life langan tíma og mikil heilabrot áður en þeir ákváðu að styðja John- son. Life er eina blaðíð af þess um þrem (Time - Life - For- tune) sem hefur rltstjórnar- grein, svo að það er alltaf álit- ið að það tali fyrir öll þrjú rit- in, sem þýðir það að þau styðja öll Johnson og Humphr- ey., Önnur blöð sem lýst hafa yf- ir stuðningi við Johnson eru m. a. Houston Post, Saturday Evening Post, Kansas City Star, Chicago Daily News, Philadelphia Inquirer, Chic- ago Sun Times og mörg fleiri. New York Herald Tribune sem hefur verið gefið út í 124 ár og er prentað bæði í New York og París, hefur alla tíð stutt republikana, en í ár í fyrsta sinn styðja þeir demókrata. New York Times, sem oftast hefur stutt frambjóðendur republikana, styður nú John- son og er mjög harðort í garð Goldwaters í ritstjómargrein- um sínum. Blaðið hefur stutt tvo síðustu sigurvegarana í for setakosningum, þá Dwight D. Eisenhower (republikani) og John F. Kennedy. (Demó- krati). Scripps-Howard og Hearst blaðahringirnir vold- ugu styðja nú Johnson og Humphrey, sem eru fyrstir demókratarnir sem þeir hafa stutt í þrjátíu ár. Blað eins og t.d. Christian Science Monitor, sem er frekar hægrisinnað í sínum ritstjórnargreinum og hefur ætíð stutt republikana, hefur nú tekið hlutleysis- stefnu í þessum kosningum, þar sem það álítur sig ekki geta stutt Goldwater af heil- um huga. Þrátt fyrir að svo mörg stór og áhrifamikil blöð styðji nú Johnson, þá hefur Goldwater stóran hóp af blöðum á bak við sig. Mánaðarrítið Editor And Publisher gerði skoðana- könnun nýlega á yfir níu hundruð dagblöðum, þar af lýstu 500 þeirra yfir „hlut- leysi“ sínu, 250 lýstu yfir stuðningi við Goldwater og um 200 sögðust vera með Johnson. Þrátt fyrir þennan stuðning þá er ekki þar með sagt að blöð- in, þó svo að þau séu áhrifa mikíl, geti fengið einn eða ann an frambjóðendann kosinn í embættið. í forsetakosningun- um 1948 hafði Thomas Dewey stuðning frá flest öllum dag- blöðum landsins, en Harry S. Truman vann samt sem áður kosninguna. Dwight D. Eisen- hower hafði stuðning frá 67,3% pressunnar í kosningun um 1952, en Adlai Stevenson hafði aðeins 14,5% stuðning. í forsetakosningunum 1960 fékk Ríchard Nixon 54,0% stuðning pressunnar með sér, en Kennedy aðeins um 15%, og um 31% lýsti yfir hlutleysi. Á sama tíma fékk Kennedy stuðning frá 37 af 50 áhrifa- mestu frétta- og blaðamönnum landsins. Þrátt fyrir þá stað- reynd að flest öll dagblöð í Bandaríkjunum séu í eigu manna sem eru republikanar, þá bregzt það aldrei, að flest allir starfandi blaðamenn kjósi demókrata. Það er ólíklegt að ófriður- inn á milli fréttamanna og Goldwater eigi eftir að batna úr þessu. Goldwater á enn eft- ir að ásaka blöðin fyrir að fara rangt með það, sem hann segir og blaðamenn eiga eftir að bera því fyrir sig að hann skipti svo oft um skoðun, að það sé ekki hægt að hafa neitt eftir honum. Hvort að prent- svertan á eftir að hjálpa eða koma í veg fyrir að Goldwater komist inn í Hvítahúsið, er nokkuð, sem Bandaríkjamenn sjálfir munu skera úr um þann þriðja nóvember næst komandí. MINNING Jdn Sigmundsson frá Hamraendum Hann var fæddur að Breiðuhlíð í Mýrdal í Vestur-Skaftafellssýslu: 28, sept 1895, sonur sæmdarhjón- anna Margrétar Jónsdóttur og Sig mundar Jónssonar er lengst bjuggu að Hamrae'ndum í Breiðu- vík og létust fyrir fáum árum í hárri elli. Um aldamótin fluttist Jón með foreldrum sínum vestur á Snæfells | nes og bjuggu fyrst eitt ár að Saurum í Staðarsveit en fluttust íðan að Hamraendum í Breiðu- víkurhreppi. Á Hamraendum átti Jón síðan heima til ársins 1957, að hann fluttist að Syðri Tungu í sömu sveit og þaðan til Ólafs-I víkur árið 1963. Jón lézt á Lands-: spítalanum 24. júlí s.l. eftir stutta, en þunga legu, á 69 aldursári. | Er Sigmundur og Margrét komu1 að Hamraendum var sá staður rýrð arkot, en með þrautsegju og dugnj aði tókst þeim að gera Hamraenda að stórbýli á þann tíðar mæli- kvarða, en barnahópurinn var stór og tók fljótt þátt f uppbyggingunni á Hamraendum. Það mun þá ekki hvað sízt hafa komið í hlut Jóns þar sem hann var elztur bræðr- anna, þó áttu öll systkinin það sameiginlegt, að gera þetta heim-í eftir heima af stórum systkinahópi Handtök Jóns voru orðin mörg á Hamraendum og mun sá staður lengi bera þess vitni, það var honum því eigi sársaukalaust er hann varð að flytjast þaðan árið 1957. Lengi framan af ævi fór Jón á vertíð til að afla heimilinu tekna og þótti hann sitja skip- irúm sín vel. Um tíma átti Jón og ! gerði út trillubát frá Stapa. Hug- : þekkust voru honum þó landbún- ! aðarstörfin, sem hann lagði og \ mest til af kröftum sínum. ; Alla tíð var Jón fjörmaður mik- í ill, félagslyndur og uppörvandi ; yngri kynslóðina til félagslegra 1 átaka. Það kom og í hans hlut að j verða fyrsti formaður ungmenna félags sveitarinnar, er það var stofnað að Hamraendum árið 1925 Enn þá minnast þess margir hér, er Jón skemmti unga fólkinu í Breiðuvík með tvöföldu harmon- ili svo víttrómað fyrir myndarskan ikunni sinni, og er mér nær að á fjölmörgum sviðum. Með foreldr halda að unga fólkið hafi skemmt um sínum dvaldi þó Jón lengst sér betur þá við músíkina hans og veitt heimilinu forsjá um ára Jóns, en ungt fólk í dag við fjöl- bil. enda hann loks einn orðin:i mennar hljómsveitir. Á yngri ár- um var Jón leikari góður og kom fram í mörgum sjónleikum í sveit inni á fyrri árum. Söngmaður var hann einng góður, eins og hann átti kyn til og lét sig aldrei vanta til að leggja þeim málum lið ef með þyrfti og aldrei sá ég Jón svo innilega með sjálfum sér, eins og þegar hann var í hópi söng- félaga sinna. í áratugi var Jón virkur þátttakandi í söng við heima kirkju sína, Búðakirkju, þar var hann og einnig meðhjálpari um árabil. Formaður skólanefndar Breiðavíkurhrepps var hann þar til hann fluttist úr hreppnum ár ið 1963. Árið 1952 kvæntist Jón eftirlif andi konu sinni Lovísu Einars- dóttur frá Syðri Tungu í Breiðu- vík, þeim varð ekki barna auðið, en hjá þeim ólst upp dótturdóttir Lovísu, Þorbjörg og unm Jón henni sem sínu eigin barni Hér er farið fljótt yfir sögu þessa ágæta drengs, sem barn að aldri var fluttur á hripi á klyfja hesti yfir sjö sýslur um síðustu Framh a 15 síðu

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.