Tíminn - 08.11.1964, Page 3

Tíminn - 08.11.1964, Page 3
SUNNUDAGUR 8. nóvember 1964 TÍMINN í SPEGLITÍMANS HINN heimsfrægi CHARLIE CHAPLIN hafSi nýlega stutta viðdvöl á Kastrup-flugvelli í Danmörku á leið sinni til Stokkhólms, og var Jiessi mynd tekin við það tækifæri. Með honum var hin fagra kona hans, ONA, og tvær dætra þeirra, Victoria og Josephine. Á myndinni sézt Otto B. ■Lind- hardt, útgefandi minninga Chaplins í Danmörbu, rétta Onu fögur blóm við komuna. Bretum og Bandaríkjamönn- um hefur tekizt að bæta raf- eindasmásjána ótrúlega mikið. Með þessari endurbættu smá- sjá er hægt að stækka þann hlut, sem á er horft, hvorki tneira né minna en tveirn millj- ón sinnum! Engar nánari upp- lýsingar eru gefnar um þetta nýja tæki, sem hefur að sögn vissa hernaðarlega þýðingu, en þó er sagt, að í smásjánni séu 4300 stykki, og að allar leiðsl- urnar í henni séu rúmlega 100 klíómetrar á lengd! Þessi smá- sjá gerir vísiindamönnum m.a. m.a. kleitf að sjá hvaða áhrif hiti hefur á sameindir hiinna ýmsu efna, og gefur það nokkra hugmynd um, hversu merki- Iegt tæki er hér á ferðinni. Kosningarnar í Bandaríkjun- um 1964 eru yfirstaðnar, og i ljós kotn, að margir Repúblík- aiiar, sem alltaf áður hafa stutt frambjóðendur síns, sýndu öfgamönnum bandaríska íhalds- ins fyrirlitningu sína með því að kjósa frambjóðanda Demó krata. Einn þcssara kjósenda var frú Alice Roosevelt Long- worth, 80 ára gömul dóttir re- públíkanska forsetans Theo- dore Roosevelt (1901—1909). Allt frá því hún fékk kosninga- rétt, hefur hún kosið flokk föð- ur síns, en 3. nóvember s.l.„ kaus hún í fyrst sinn Demó- krata. Kvikmyndln „My Fair Lady“, er komin á markaðinn, og mót- tökurnar eru stórkostlegar. Sér- staklega mikiö hrós fær Audrey Ilepburn, sem leikur Elizu, og fullyrða blöðin, að þótt margar hafi leikið það hlutverk mjög vel, þá slái Audrey þeim öllum við. Hin þekkta söngkona, Mari- an Anderson, hefur nú lagt upp í sína síðustu söngferð, að því er sagt er. Hún hóf hana í Washington og var geysivel fagnað. Táknrænt var, að hún söng nú á sviðiinu í Oonstitu- tion Hall, en eigendur hussins bönnuðu henni að koma þar fram fyrir nákvæmlega 25 ár- um, vegna þess að hún er blökkukGtna. Og það er í raun- inni ekki svo undarlegt, því að eigendurnir eru hin öfgafullu samtök „Daughters of the Ame- rican Revolution“. Charles de Gaulle, forseti Frakklands, hefur orðið fyrir mörgum banatflræðum og lög- reglan gerir sitt bezta til þess að tryggja líf hans. Nú hafa þeír fundið upp nýtt ráð, sem þeir kynntust fyrst þegar de Gaulle var á ferða- Iagi um Suður-Ameríku. Öll boðskort, sem send eru út í sambandi við vcizlur, opinber- ar móttökur og annað af því tagi, eru geislavirk, og þegar boðsgestirnir koma til veizlunn- ar afhenda þeir boðsmiðaran, sem látin ner fara í gegnum Geiger-teljara. Ef boðsmið sem ekki er geislavirkur, kem- ur í leitirnar, er viðkomandi maður þegar handtekinn og rannsakaður. Þjóðsagan um, að kcinur séu mun verri bílstjórar en karl- menn, virðist furðu lífseig. Kvenbílstjórum til ánægju, má benda á ársskýrslu umferðalög- reglunnar í París, þar sem seg- ir að ökuskírteini hafi verið tekiinn af alls 1293 bflstjórum árið 1963. Af þessum 1293 bíl- stjórum voru aðeins 47 konur. Þeir bjartsýnustu í Banda- ríkjunum reikna með því að rúmlega ein milljón ferða- manna komi til Bandaríkjanna á næsta ári. Þeir hafa því á-. kveðið að gefa ferðamanninum númer 1.000.000 stóra og m'ikla gjöf, þegar hann kemur í heimsókn. Nú er farið að nota papipírs lök á sumum bandarískum hótelum. En fyrst um sinn, með an gestinnir eru að venjast þess ari nýjung, er þeim gefinn 25% afsláttur, ef þeir vilja sofa á þeim. Og um leið auglýsa fram- leiðendurnir af fullum krafti: — „Pappírslökin eru mjúk eins oig flauel og kryipplast aldrei." Prins Bernhard af Hollandi, verður bráðlega útneftadur heiðursmarskálkur í brezka flughernum. Er það Elizabeth drottning, sem veitir honum þennan heiður. Prins Bernhard er mjög góður flugmaður, og þessi heiðursvottur er þakklætf fyrir hetjulega framgöngu hans i hinni miklu loftorrustu milli Breta og Þjóðverja, hinni svo- kölluðu „Battle of Britain“ ár- ið 1940, og segja því sumir, að hann hefði átt að fá þennan hcðurstitil fyrir löngu. En betra er seint en aldrei. John Kennedy yngri tók þátt í kosningabaráttu föðurbróður síns Robert Kennedy, í New York. Hér sést hann hinn á- nægðasti á kosningadaginn. Útllt KIM NOVAK, frægustu, ógiftu stjörnunnar í Hollywood, breytist lítið, en þeir sem sjá hana í kvikmyndinni „Of Human Bondage" munu vissulega undrast framburð hennar. f stað sinnar venjulegu „bandarísku", talar hún þreinræktaða Lowdon mál- ýzku. Kvikmynd þessi er nefnilega gerð eftir skáldsögu Sommerset Maugham, og aðalpersónan, hln frœga Mildred, sem Kiip leik- ur, talar að sjálfsögðu London-málýsku. Klm varð því að læra nýjan framburð, og eftir blaðaumsögnum að hefur henni tekist það vöi. s , ivAtUMM-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.