Tíminn - 10.11.1964, Side 9

Tíminn - 10.11.1964, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 10. nóvember 1964 TÍMINN i&söiasai Fréttastjóri Tímans, Jón- as Kristjánsson, hefur und anfarið dvalizt í Vestur- Þýzkalandi og kynnt sér við- horf þar. Hann átti þar tal við ýmsa þekkta stjórnmála- •menn, svo sem Erich Mende, varakanzlara og formann fjárlynda flokksins, og Willy Brandt, borgarstjóra og formann stjórnarandstöð unnar. Þar sem samtöl þessi og ýmis fleiri voru veitt á þeim forsendum, að hér væri ekki um blaðaviðtöl að ræða, er ekki hægt að rekja þau í Tímanum í einstökum atriðum, en ýmis athyglis- verð atriði úr þeim munu koma fram í Tímanum í þrem greinum Jónasar um Vestur-Þýzkaland, og birtist fyrsta greinin á 9. síðu í dag Greinarflokk sinn nefnir Jónas: „Horfa í senn í aust- ur og vestur“, — og kjarni hans fjallar um hina tví- þættu ósk Vestur-Þjóðverja, samvinnu við Vesturlönd og sameiningu við Austur- Þýzkaland — tvö markmið sem virðast útiloka hvort annað. Þessar greinar eru um leið endahnúturinn á starfi Jónasar Kristjánssonar sem fréttastjóra við Tím- ann, þar sem hann mun nú hverfa til náms og annarra starfa. Hann hefur verið fréttastjóri blaðsins nokkuð á annað ár. Vesturátt: HORFA SENN I AUSTUR 0G VESTUR stríðið, þótt Vestur-Evrópa klofnaði ekki núna. En það kom fram hjá Jentsch sem öðr- um, að Þjóðverjar eru ákveðn ir að styðja samstarfið í Efna- hagsbandalaginu, þótt enginn árangur verði af viðræðum út á við, við Breta og EFTA ríkin. Það er ekki sama að vilja og gera. Ég átti þess kost um daginn að ræða við nokkra embættis- menn EBE. Það vakti sérstaka athygli mína, hvernig þessir menn hafa losað sig við til- finningatengslin við sitt þjóð- ríki og líta framvegis á sig sem Evrópumenn. Þannig vinna t.d. þýzkir embættismenn í EBE að áætlunum, sem stríða gegn hagsmunum Þjóðverja, en styðja hagsmuni EBE almennt. Þessir embættismenn hugsa einungis um hagsmuni EBE, ekki einstakra ríkja innan þess, Við stríðslok voru Þjóðverj- ar hataðir í allri Evrópu, ekki sízt af andstæðingum sínum í Vestur-Evrópu. Mikið af þessu hatri var sprottið af áþján naz ismans, en sumt átti sér eldri rætur. Frakkar og Þjóðverjar höfðu um áratuga skeið barizt hvað eftir annað um landamæri s£n. Frá stríðslokum eru liðin nærri 20 ár og á þeim tíma hef- ur afstaðan gerbreytzt. Arftaki þýzka ríkisins, Sambandslýð veldið Þýzkaland, er orðinn virkur og virtur þátttakandi í samvinnu ríkja Vestur-Evrópu. Með fyrri óvinum sínum hefur það myndað efnahagsbandalag, sem ber í sér frjó evrópsks al- ríkis. Og við Frakka hafa Þjóð- verjar gert sérstakan vináttu- samning, sem markar náið sam- starf og sameiginleg örlög þess arra tveggja gömlu óvina. Hvernig mátti þetta verða? Svarið liggur hjá Adenauer kanslara. Þessi gamli og þraut- seigi maður var frá stofnun Sambandslýðveldisins ákveðinn í að tengja það traustum bönd ii m við hinn vestræna heim og binda varanlegan enda á erjurn ar við Frakka. Örlög Austur- Þýzkalands skiptu hann minna máli. enda benda mörg rök til þess, að kaþólikkinn og Rín lendingurinn Adenauer hafi alls ekki viljað fá mótmælenda trúarmennina austur í Prúss- landi innlimaða í Rínarríki sitt Einkunnarorð Adenauers voru: „Samvinna við Frakka, hvað sem það kostar“, og „Aldrei aftur einangrun frá vestrinu" Paul Henri Spaak sagði um Adenauer: „Án hans hefði draumurinn um sameinaða Evrópu aldrei getað orðið að veruleika . . . án hans hefði ekki orðið neitt Efnahagsbanda lag Evrópu.“ Erich Mende varakanslari Vestur-ÞýZkalands, benti mér á í samtali fyrir stuttu, að í Vest- ur-Þýzkalandi væru nú jafn margir menn mótmælendatrúar og kaþólskir, eða rétt innan við 30 milljónir í hvorum hópi. í Austur-Þýzkalandi er þorri hinna 20 milljóna íbúa mótmæl endatrúar og auk þess vinstri sinnaðri en í vesturhlutanum. I sameinuðu Þýzkalandi mundu mótmælendur og jafnaðarmenn hafa vinninginn og núverandi jafnvægi í þessum efnum mundi raskast. Mende sagði, að þetta hefði gert allri sam einingarviðleitni erfitt fyrir, enda liggur í augum uppi, þótt ekki væru það orð Mende, að flokkur kristilegra, flokkur Adenauers, hefur ekki knýjandi áhuga á sameiningu við austur hlutann og þeirri eflingu mót- mælendatrúar og jafnaðar- stefnu,. sem það hefði í för með sér. Sjálfur er Mende úr flokki frjálslyndra og helzti forsvars maður austanvindarins í Bonn. Frá yngri árum Adenauers til okkar daga, eða í 45 ár af stjórnmálaferli hans, má rekja það, að hann er Rínlendingur, sem hefur alla tíð haft óbeit á hinu austlæga Prússlandi. Nú er Rín ás Vestur-Þýzkalands og Prússland kjarni Austur-Þýzka lands. Stefna Adenauers hefur unnið sigur, Hann hefur unnið þann sigur að berja stefnu sína í gegn, fyrst í eigin flokki og síðan í ríkisstjórn. Hve alger sigur hans var, má marka af því, að í orði styðja allir þrir þingflokkar landsins utanríkis stefnu stjórnarinnar, sem mót- uð var á Adenauer-tímanum. Þjóðverjar hafa tekið mjö'g virkan þátt í starfi Efnahags bandalagsins og gengið miklu lengra en Frakkar í hugmynd um sínum um endanlegt evr ópskt airíki. Þeir hafa einnig verið oddamenn innan banda- lagsins um víðtækari efnahags lega samvinnu, við Breta, við EFTA-ríkin, við Bandaríkin, og þeir eru enn á þeirri línu, þótt Frakkar hafi á sínum tíma hindrað inngöngu Breta i banda lagið. Samkvæmt því sem barón von Stempel, fulltrúi í þýzka utanríkisráðuneytinu sagði mér fyrir stuttu, álítur þýzka stjórnin enn mögulegt, að Bret- land og önnurf EFTA-ríki teng ist Efnahagsbandalaginu á einn eða annan hátt, með inngöngu, með aukaaðild eða með sér- stökum samningum, eins og hann orðaði það Hann sagði, að Þjóðverjar væntu mikils af Kennedy-lotunni, en það eru ADENAUER og de GAULLE efnahagsmálaviðræður vest- rænna ríkja beggja *vegna At- lantshafsins. Sömu skoðanir hayrði ég hjá mörgum Þjóð- verjum, sem ræddu þessi mál við mig í fyrra mánuði. Von Stempel sagði einnig, að hann áliti mjög eðlilegt, að gagn- kvæmar tollalækkanir ættu sér stað milli Efnahagsbandalags ins og annarra Vestur-Evrópu ríkja, en við það mætti samt ekki Efnahagsbandalagið sjálft þynnast út. Rudolf Jentsch ráðuneytis- stjóri sagði mér, að það væri nógu slæmt að sínu áliti, að Evrópa hefði klofnað efnahags- lega í austur og vestur eftir þeir senda börn sín i sam-evr- ópska skóla, eru ákveðnir í að gefa EBE þingræðislegt form sem það skortir enn, og þeir sjá í framkvæmdanefnd EBE það óþjóðlega eða yfirþjóðlega afl, sem muni, þegar fram í sækir, vinna sigur á einstök- itm þjóðernum og gera EBE að evrópsku alríki með bein um kosningarétti og þingbund inni framkvæmdastjórn. Og þetta gerist allt með þjóð um, sem hafa hingað til lifað saman eins og hundar og kett- ir. Sjálfir skýra þeir þetta þann ig: Við gátum ekki annað árið 1945 en séð fram á, að þetta gekk ekki svona lengur. Hinar stríðandi þjóðir, flakandi í sár um, fundu skerandi nauðsyn samkomulags um framtíðina, bæði efnahagslega og í stjórn málunum. Þið í Norður-Evrópu hafið ekki fundið þessa nauð- syn, þið hafið elskað friðinn og þið hafið haft friðinn. Fyrir ykkur táknaði seinni heimsstyrj öldin ekki það algera hrun gild andi hugmynda, sem hún tákn aði fyrir okkur hér fyrir sunn an ykkur. Þess vegna finnst Bretum og Norðurlandabúum nóg að stofna tollabandalag, en við Frakkar og Þjóðverjar hugsum: aldrei aftur. Þetta — aldrei aftur — þýðir evrópskt alríki í miðri Vestur-Evrópu. Nú kunna sumir í framhaldi af þessu að segja, að ekki sé allt sem fallegast í vestxænni samvinnu og þar sé hver hönd- in upp á móti annarri Mér þótt athyglisvert álit Hermut Schmidt, sem væntanlega verð ur hermálaráðherra Vestur Þýzkalands að ári, ef jafnaðar menn vinna kosningarnar. Mér fannst þankagangur han.s vera í stuttu máli þessi: Það er stað reynd, að NATO er að veikjast De Gaulle heldur því fram, að Evrópurikin geti ekki reitt sig á Bandaríkin. Gagnkvæma traustið er úr sögunni. En sama er einnig að segja um austan- tj aldslöndin, Varsj ár-bandalag- ið er í sömu upplausn og NATO. Polaris-kjarnorkuflot- inn, sem við Þjóðverjar styðj um svo ákaft, hefur lítið hern aðarlegt gildi, en starf NATO er i voða, ef honum verður ekki komið upp. Það er búið að leggja það mikla áherzlu á þennan flota kjarr.orkulegrar samábyrgðar. að hann er orð- inn prófsteinn á samheldni NATO-ríkjanna. Eg tel ekki. að de Gaulle hafi reynt að koma upp sjálfstæðum frönsk um kjarnorkuvörnum vegna þess að hann sé haldinn þeirri firru, að það gagni gegn austr inu. Franski kjarnorkuherinn „force de frappe“ er fyrst og fremst myndaður til þess að Bandaríkjamenn sjái getu Frakka, viðurkenni hana og taki Frakka í kjarnorkuhóp hinna innvígðu, alveg eins og Breta, og stuðli að lykiláhrif- um Frakka innan NATO. Og Bandaríkin verða að sættast við de Gaulle og þau munu gera það. Þetta sagði Schmidt. Þjóðverjar eru yfirleitt bjart sýnir á vestræna þróun, ekki aðeins innan hins þrönga ramma EBE, heldur einnig inn an ramma OECD og NATO Þessi vestræni þorsti Þjóðverja á tákn sitt í persónu Adenau- ers kanslara eins og fyrr seg- ir, og gullöld þessa þorsta var á tímum tvístirnisins de Gaulle — Adenauer Nú er Adenauer ekki lengur kanslari og flokkur hans er ekki lengur einn við stjórnartaumana. Fyrir þremur árum var mynd- uð ! Þýzkalandi samsteypu- stjóm kristilegra og frjáls- lyndra. Þá komust í stjórn menn, sem aldrei hafa verið sérstaklega hrifnir af EBE, en því hrifnari af sameiningu Þýzkalands. Með þátttöku þeirra í vestur-þýzku valdi fóru ný atriði að móta stefnu Sam- bandslýðveldisins, og austan- vindur fór að leika um salina í Bonn. Frá því segir nánar í næstu <rein.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.