Tíminn - 12.11.1964, Síða 1
249. tbl. — Fimmtudagur 12. nóvember 1964 — 48. árg.
VILJA ÁUTAND-
STÆÐINGÁNNA Á
LEYNILISTANUM
Aðils-Khöfn, 11. nóvember.
Berlingske Aftenavis skrifar í
dag, að þingnefnd sú, sem fjallar
um lagafrumvarpið um af-
hendingu handritanna, muni krefj
ast þess að fá upplýsingar um
öll atriði þessa máls og einnig
nákvæma greinagerð um viðræð-
ur dönsku stjórnarinnar við ís-
lenzku ríkisstjórnina árið 1961.
Segir blaðið, að utanríkismála-
nefnd danska þingsins hafi ekki
fengið upplýsingar um þessar við-
ræður, en það hafi utanríkismála-
Þórólfur seldur
til Glasgow
Rangers í gær
fyrir 20 búsund
pund. Siá íþrótt-
ir blaðsíðu 12.
nefnd Alþingis aftur á móti feng-
ið.
Samkvæmt skrifum Berlingske
Aftenavís, mun varaformaður
nefndarinnar, vinstrimaðurinn Ib
Thyregod, senda átta fyrirspurn-
ir til K. B. Andersens, kennslu-
málaráðherra. Efni þessara spurn-
inga er eftirfarandi:
1. Krafist er yfirlits yfir þau
handrit, sem fyrirhugað er að af-
henda Íslendíngum úr Árnasafni
og Konungsbókhlöðunni, ásamt
upplýsingar um, hvort einhverjar
breytingar hafi verið gerðar frá
því „leynilistinn" svonefndi var
gerður árið 1961.
2. Spurt er, hvort leynilistinn
hafi verið sýndur Handritanefnd-
inní, sem berzt harðast gegn af-
hendingunni. Ef svo hefur ekki
verið gert, þá er beðið um álit
nefndarinnar á listanum.
3. Beðið er um greinagerð í
sambandi við gagnrýrii Ole Wídd-
i'ngs, lektors, á leynilistanum, en
hann sagði í Berlingske Aftenavis,
að ýmis handrit, sem væru á list-
anum, væru á engan hátt innan
þess ramma, sem frumvarpið set-
ur, heldur tilheyrðu þau frekar
Noregi.
4. Beðið er um greinagerð um
viðræðurnar við íslenzku ríkis-
stjórnina, sem fram fóru áður
en lagafrumvarpið var lagt fram
1961. Einnig er spurt, hvort rætt
hafi verið við íslenzku ríkisstjórn-
ina síðan 1961 og hvort íslenzka
ríkisstjórnin sé ennþá sammála
um, að hér sé um gjöf að ræða.
5. Beðið er um endalegt svar
frá lögfræðistofnuninni í Árósum
við spurningu þeirri, sem lögð var
fyrir stofnunina 1961, en sem
stofnunin gat ekki svarað vegna
þess stutta frests, sem hún fékk.
6. Beðið er um eintak af greina
gerð þeírri, sem prófessor dr. Jur.
Paul Johannes Jörgensen afhenti
Kaupmannarhafnarháskóla 23.
marz 1946 og sem fjallar
um eignaréttindin í sambandi við
Árnasafn.
7. Þá er spurt, hvaða fjárveit-
Framhald á 15. síðu.
Lögreglan heldur rörð
KJ-Reykjavík, 11. nóvember.
í dag var kominn lögregluvörð-
ur á slysasvæðið á mótum Grens-
ásvegar og Miklubrautar, og virt-
ist ekki veita af, því að smábörn
eru þarna um allt að leik.
Lögregluþjónar skiptust á vökt-
um í dag við að gæta svæðisins,
þar sem urðu hörmuleg slys í
gær og í fyrradag. Mikið jarðrask
er þarna á svæðinu, þvi bæði er
verið að undirbúa Miklubrautina
undir malbikun á kaflanum frá
Háaleitisbraut og niður fyrir
Grensásveg, og einnig er verið að
leggja hitaveituleiðslur í Grensás-
veginn, Gengur einn mikíll skurð-
ur eftir götunni frá Miklubraut og
upp að Hólmgarði. Lögregluþjón-
amir stóðu tveggja tíma vaktir
þarna í dag, og gættu þess að börn
væru ekki að leik í eða við skurð-
ina.
Rannsóknarlögreglan gaf blað-
inu þær upplýsingar í dag að líð-
an Eggerts Guðmundssonar,
drengsins, sem slapp lifandí úr
moldarbingnum, væri eftir von-
um, og höfðu læknar gefið von
um að hægt væri að spyrja hann
á morgun, hvernig slysið hefði
viljað til, þegar bakkinn féll yfir
þá. Eggert er sá eini, sem getur
sagt um með hverjum hætti þetta
vildi til, því að sjónarvottar voru
engir.
Rannsókn á báðum slysunum, á
Grensásveginum og Miklubraut-
inni, stendur yfir, og ef rannsókn-
in leiðir í ljós, að þarna hafi ein-
hverju verið ábótavant, sem varð-
ar við lög, munu viðkomandi að-
ilar verða látnir sæta refsingu.
Myndin er af lögregluverði við
Grensásskurðinn (Tímamynd KJ).
Það er okkar eigin
styrkur sem dugar
— samt er gott að eiga góða vini, sögðu Israelsmenn
IGÞ—Reykjavík 11. nóv.
Forsætisráðherra landsins, dr.
Bjami Benediktsson, lætur nú
ATTfl TEKNIR OKTÖBER
MB—Reykjavík, 11. nóv.
Varðskipið Óðinn tók í nótt
brezka togarann Cape Spartel að
ólöglegum veiðum út af Barða og
fór með hann til ísafjarðar. 'ír
það áttundi togarinn, sem varð-
skipin taka að veiðum innan fisk-
veiðitakmarkanna frá byrjun
okt. Er það óvenjulega há tala.
Klukkan hálf fjögur í nótt kom
varðskipið Óðinn að togaranum
Cape Spartel, H-79, þar sem hann
var að toga innan landhelgismark-
anna 1,3 sjómílur út af Barða.
Togarinn var að toga út, er varð-
skipið kom að honum og er Óð-
inn kom að togaranum var hann
kominn á línuna. Setti Óðins-
menn út dufl þar. Veður var mjög
vont og ekki unnt að setja menn
um borð úti á hafi og fóru skipin
ínn á Önundarfjörð og þar fóru
varðskipsmenn um borð í togar-
ann og héldu bæði skipin síðan til
ísafjarðar.
Óvenjumörg skip hafa verið tek
in að iandhelgisveiðum að undan-
förnu. Talið er eðlilegt, að nálega
12 togarar séu teknir að land-
helgisveiðum yfir árið, þ.e. að
meðaltali eínn á mánuði, en síð-
an í októberbyrjun hafa átta tog-
arar verið teknir að veiðum inn-
an landhelgi. Sex þeirra eru
brezkir, en tveir íslenzkir. Hefur
landhelgisgæzlan því verið óvenju
fengsæl að undanförnu og senni-
legt, að þetta ár verði metár hjá
henni, hvað togartökur snertir
skammt langferða í milti. Eins
og kunnugt er, þá ferðaSist hann
síðsumars um fslendingabyggðir
vestan hafs og kom til Washing
ton, og nú á þriðjudagskvöldið
kom hann úr nokkurra daga boðs
ferð til ísrael. Forsætisráðherra
hefur brugðið á þá ágætu ný-
breytni, að eiga viðtal við blöðin,
þegar hann kemur úr ferðum sem
þessum. Var blaðamannafundur
um ísraels-ferðina i Stjórnarráð-
inu í gær, þar sem dr. Bjarni
skýrði frá því helzta, sem vakti
athygli hans í ferðinmi.
Eins og kunnugt er, þá hafa
Gyðingar í ísrael tekið upp nýja
hætti um margt, eins og hæfir
þjóð, sem er að brjótast til lífs
í nýju og þröngu landi, sem auk
þess er stöðugt umsetið harðvít-
ugum andstæðingum. Hefur þessa
m. a. gætt í landbúnaði þeirra. f
Framhald á 15. siðu
Dr Bjarni Benediktssor
■■ *• • t <■
V V