Tíminn - 12.11.1964, Blaðsíða 16

Tíminn - 12.11.1964, Blaðsíða 16
<$■ mnini Fimmtudagur 12. nóvember 1964 249. tbl. 48. árg. Saksðknari fær skýrslu Kj-Reykjavík, 11. nóv. Saksóknara rfldsins hefur bor- izt skýrsla frá bankaráði Útvegs- banka íslands, en hann óskaði eft- ir því við bankaráðið, að sér yrði send skýrsla vegna eins dags mót- mæla verkfalls sem starfsfólk Út- vegsbankans gerði fyrir nokkru. JONAS LÆTUR AF STARFI FRÉTTA- STJÓRA VIÐ TÍMANN Jónas Kristjánsson hefur látið af fréttastjórn við Tímann. Hann réðst til blaðsins vorið 1961 og hefur síðan unnið við fréttir og annazt fréttaritstjórn frá sumr- inu 1963. Jónas fór nýlega til Þýzkalands, þar sem hann ræddi fyrir blaðið við kunna forustumenn í stjórn- málum. Viðtal hans við Wílly Brandt, borgarstjóra í Vestur-Ber- lín birtist á bls. 8 í blaðinu í dag, ennfremur grein eftir hann um MUnchen á bls. 3. Um leið og Jónas lætiu- af störf- um hjá blaðinu, vill það færa hon- um þakkir fyrir mikið og gott starf, þann tíma sem hann hefur unnið hjá því. Eins og kunnugt er efndi starfs- fólk Útvegsbankans til mótmæla verkfalls 2. nóvember, og mætti enginn starfsmaður bankans til vinnu þann dag nema bankastjór- amir, sem tóku á móti fólki í viðtalstímum sínum. Af þessu til- efni óskaði saksókriari ríkisins eft ir skýrslu um málið, en í lögum nr. 33 frá 1915 er lagt bann við því, að opinberir starfsmenn fari í verkfall. Útvegsbanki fslands er ríkisbanki og er því starfsfólk bankans opínberir starfsmenn. Hins vegar eru starfsmennirnir ekki í Bandalagi starfsmanna rík- is og bæja, heldur í samtökum bankastarfsmanna, Samband ís- lenzkra bankamanna. Bankastjórar bankans gáfu skýrslu um mótmælaaðgerðir starfsmannanna, og er þar Framh. á 7. síðu. Stofnfundur F.li.F. Stofnfundur félags ungra Fram sóknarmanna í Mosfells-, Kjalar- nes- og Kjósahreppi verður á föstu daginn 13. nóvember að Hlégarði og hefst kl. 20,30. Jón Skaftason, alþingismaður og Örlygur Hálf- dánarson mæta á fundinum. — Undirbúningsnefnd. SÍÐUSTU FORVÖD AÐ FÁ MIÐA Á PRESSUBALUÐ Nokkrir miðar eru enn óseld- ir á Pressuballið á Hótel Borg á laugardaginn og verða þeir til sölu hjá blaðamönnum Morgunblaðsins — sími 22480. Matseðillinn er sérstaklega glæsilegur, fjórréttað: sveppa- súpa, humarréttur, rjúpur og „Pressubomba". Gestir Pressu- ballsins verða Bjarní Benedikts son forsætisráðherra og frú og veizlustjóri verður Vilhjálmur Þ. Gíslason. Húsið verður sér- staklega skreytt af listamannin- um Steinþóri Sigurðssyni, leik- tjaldamálara LR. Meðal skemmtiatriða verður einsöng- ur frú Aðalheiðar Guðmunds- dóttur við undírleik Rögnvald- ar Sigurjónssonar og verður þetta í fyrsta skipti, sem frúin syngur einsöng opinberlega hér í Reykjavík, en undanfarin ár hefur hún dvalizt meira og minna við söngnám í Þýzka- landi. Þá les Helga Valtýsdótt- ir leikkona kvæði, er William Heínesen, rithöfundur, hefur sent Blaðamannafélaginu og leikararnir Rúrik og Róbert fara með paródíu eftir Ragnar Jóhannesson. Aðalheiður Guðmund.dóttir Holan orðin 160 metrar MB-Reykjavík, 11. nóvember. Norðurlandsborinn er kominn niður á 50 stiga heitt vatn á Laugalandi í Hörgárdal og vatns- rennslið úr holunni er 2y2 sek- úndulítrar. Er holan nú orðin 160 metrar á dýpt og verður borun- inni haldið áfram. Blaðið spurði Jón Jónsson, jarð- fræðing hjá Raforkumálaskrifstof- unni í dag um hvað liði borunum með Norðurlandsbornum á Lauga- landi í Hörgárdal. Hann veitti þær j NIÐURSTÖÐUR RANNSÓKNA Á VEGUM EVRÓPURÁÐSINS RAFHA6N UR KJARNORKU- VERUM ÚSAMKEPPNISHÆFT FB-Reykjavík, 11. nóv.' Nefnd, sem starfar á vegum Evrópuráðsins, hefur að undan- fömu safnað upplýsingum um verð á rafmagni frá ýmiss konar rafmagnsstöðvum, en við þennan samanburð hefur komið í Ijós, að enn sem komið er er rafmagn frá kjarnorkuverum ekki samkeppnis- fært við rafmagn frá eldri tegund- um orkuvera. í skýrslu frá nefndinni, sem lögð var fyrir ráðgjafarþing ráðs- ins í síðustu viku, segir m. a., að ekkert kjarnorkuver, sem nú er starfrækt í Evrópu, geti selt raf- orku lægra verði en jafnstórar stöðvar af eldri gerð. Þvert á móti virðist verðið frá kjarnorkuverun- um enn þá vera allmíklu hærra en frá öðrum orkuverum. Nefndin bendir enn fremur á það, að örar framkvæmdir hafi orðið á sviði kjarnorkuvísindanna á síðustu árum, og því sé ekki óliklegt, að eitt eða fleiri þeirra kjarnorkuvera, sem nú eru í smíð- um í Vestur-Evrópu og áætlanir liggja fyrir um, verði því nær samkeppnisfær, og er í því sam- bandi sérstaklega bent á Wylfa- orkuverið í Bretlandi, sem taka á í notkun árið 1969, en vélarafl þess verður 1100 megawött. Um þrjár leiðir er að ræða varð andi framleiðslu á rafmagni með kjarnorku, og mikil samkeppni er nú milli framleiðenda kjarnorku búnaðar, og getur þetta haft nokk ur áhrif á rafmagnsframleiðsluna. í Vestur-Evrópu eru nú kjarnorku ver, sem hafa vélárafl, er nemur 2090 megawöttum og í smíðum eru kjarnorkuver, sem verða með 8360 megawatta vélarafl. Til sam- anburðar má nefna, að á íslandi framleiða rafstöðvar 147 mega- wött. Reykjaneskjördæms Kjördæmisþing Framsóknar- manna í Reykjaneskjördæmi verð ur h’aldið að Hlégarði í Mosfells- sveit, sunnudaginn 15. þ. m. og hefst það kl. 9.30 árdegis. Auk venjulegra þingstarfa verða á þinginu flutt erindi um helztu atvinnuvegi þjóðarinnar og Jón Skaftason, alþm. flytur ræðu um stjórnmálaviðhorfið. Framsóknarmenn í Reykjanes- kjördæmi eru hvattir til að fjöl- menna á þingið. Stjórnin Minni Crund opnuí í gær Jónas Krlstjánsson upplýsingar, sem að framan grein- ir og kvað boruninni verða haldið áfram. Á Laugalandi er fyrir gömul hola og er vatn úr henni not að tll upphitunar í skólahúsinu. Er talsvert mikill kraftur á vatn- inu úr þeirri holu og er það um | 77 stiga heitt. — Unnið hefur ver I ið í nálega mánuð við borunina i með Norðurlandsbornum á Lauga- 1 landi. Ej-Reykjavík, 11. nóvember. Elliheimilið Grund hefur fært út kvíarnar og gert hús númer 12 við Blómvallagötu, sem áður var starfsmannahús, að vistheim- ili fyrir 30 manns, og kallast það Minni-Grund. Gísli Sigurbjörns- j son, forstjóri Elliheimilisins, j sagði i dag, að jafnframt væri mikill áhugi á þvl, að byggja nýtt NY ROÐ AF RAUÐUM LEIÐTOGUM Leiðtogar ýmissa kommún- istaríkja komu til Moskvu til þess að halda upp á 47 ára af- mæli byltingarinnar. og er myndin tekin á Rauða torginu meðan á hersýningunni stóð. Frá vínstri: — Todor Zhikov. forsætisráðherra Búlgariu Walter Ulbricht, kommúnista leiðtogi A-Þýzkalands, Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, Rodian Malin ovsky, varnarmálaráðherra So vétríkjanna. Leonid Bresnév. formaður sovézka kommúnista flokksins, Wladyslav Gomulka kommúnistaleiðtogi Póllands. Anastas Mikoyan, forseti Sovéi ríkjanna, og Chou En-Laí, for- sætisráðherra Rauða-Kína. vistheimili, sem yrði aðeins fyrir konur, í nánd við Grund. Gísli Sigurbjörnsson sýndi blaðamönnum nýja vistheimilið, Minni-Grund, í dag, en það var áður eingöngu notað sem starfs- mannahús. Húsið er 2500 rúmmetr ar, byggt árið 1945, og er það mjög vistlegt í alla staði. — Áætlað er. að Minni-Grund taki fyrst í stað 30 vistmenn — sagði Gísli.— Sem stendur eru hér 22 vistmenn. þar af 16 konur og 6 karlar, en auk þess eru í hús- ínu 18 starfsmenn. í framtíðinni verður þessu þó breytt þannig, að húsið verður smám saman gert að vistheimili eingöngu. — Hvað eru mörg herbergi í húsinu? — Þau eru alls 50, þar af eru 28 ætluð fyrir vistfólk, 18 fyrir starfsfólkið og fjögur herbergi eru notuð sem dagsstofut og kaffi stofur. Auk þess er eldhús á hverri hæð. Annars borðar vist- fólkið í Mínni-Grund allan mat úti í Grund, nema kaffi, sem það fær hér. Þvottahús er einnig sam eiginlegt. — Þannig, að vistfólkið gengur á milli húsanna í matartímum? — Já, ef veður er ekki vont. Hér á Minni-Grund verður aðeins fólk, sem getur gengið um og er því ekki rúmbundíð. Það er mín skoðun, að fyrirkomulag framtíð- arinnar á þessu sviði felst ein- mitt í því, að byggja minni vist- heimili umhverfis stóra elliheimil- íð og í nánum tengslum við það. Og það er nú meðal okkar mikil áhugi fyrir því að byggja hér ná- lægt nýtt vistheimili, sem verður eingöngu fyrir konur. — Fáið þið þá lóð hjá borg- inni undir það? —- Ja. það virðist frekar ólík- legt. Ég hef tvisvar sótt um slíka lóð tíl borgarinnar, en í bæði skiptin var mér synjað, svo að ég mun aldrei aftur biðja borgina um lóð í þessu skyni. Þeir verða þá að koma til mín og bjóða mér lóð! Gísli bætti þvi við, að nú væru Framh. á 7. síðu. F.U.F Akureyri Aðalfundur Félags ungra Fram sóknarmanna á Akureyri verður haldinn í Rotary-salnum að Hótel KEA í dag. 12. nóvember 02 hefst kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venju leg aðalfundarstörf. 2. Jakob Frí- mannsson kaupfélagsstj. ræðir um bæjarmál o.fl. 3 Önnur mái Sam eiginleg kaffidrykkja. Félagar fjöl mennið. Stjórnin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.