Tíminn - 22.11.1964, Blaðsíða 8

Tíminn - 22.11.1964, Blaðsíða 8
TlMINN 8 Leikfélag Kópavogs: FÍNT FÓLK höfunur: Peter Coke — þýSandi: Óskar Ingimars- son — ieikstjóri: Gísli AlfreSsson Leikfélag Kópavogs frum- sýndi Fínt fólk, sakamálaskop- leik eftir Peter Coke, á fimmtu dagskvöldið. Coke þessi, brezk- ur, er ekki við eina fjölina felldur í leikhúsmálum. Hann hefur starfað sem leikari frá 1936 og komið fram í leikhús- um, kvikmyndum og sjónvarpi, skrifað mörg leikrit og þar að auki verzlar maðurinn með forngripi og hefur áhuga fyrir síamsköttum, samkvæmt upp- lýsingum í leikskrá. Kvikmynd eftir þessu leik- riti mun hafa verið sýnd í Háskólabíói í vetur, kölluð Pelsaþjófarnir, en leikurinn snýst um miðaldra fólk og það- an af eldra, sem fer að stela pelsum sér til afþreyingar. Ágóðinn af þessari starfsemi notar fólkið m.a. til styrktar bágstöddum. Ifugmyndin er ekki sem verst, en svo virðist sem fleiri hafi fengið hana. Danskir hafa fyrir nokkru gert kvikmynd, sem nefnist Stöv- • sugebanden, og hún fjallar um gamalt fólk, sem stelur til að -drepa tímann. Það virðist því renna upp fyrir mönnum hér og þar með stuttu millibili, að gamalt fólk þurfi á dægrastytt- ingu að halda, og leikurinn Fínt fólk er einmitt gerður til dægrastyttingar. Þeim tilgangi var náðif félagsheimili Kópa- vogs á fimmtudagskvöldið. Frumsýningargestum var skemmt. Leikfélag Kópavogs hefur sýnt athyglisverðan dugnað, og meira að segja tekið fyrir það langa og illmeðfærilega leikverk, sem gert var upp úr Manni og konu. Það sem fyrst og fremst vekur athygli í þetta sinn, er hve leikendurn- ir ráða yfirleitt vel við þetta dágóða léttmeti, Fínt fólk. Þar má að sjálfsögðu greina fingra för leikstjórans, Gísla Alfreðs- sonar, sem er ákveðinn og fasthentur í starfi sínu. En hvað sem því líður, þá myndar enginn leikstjóri jafn samval- inn hóp úr liði áhugamanna í skjótri svipan, nema gott upp lag og nokkur æfing hjálpi til. Frammistaða leikfólksins í kópavogi bendir til þess, að félagið gæti snúið sér að verk- efnum, sem eru þyngri á met- unum en Fínt fólk og eiga brýnna erindi en Maður og kona. Góðu starfi fylgir sú kvöð að gera meir og betur. Ekki eru aliir leikendur í Fínu fólki úr hópi áhuga- manna. Nína Sveinsdóttir fer með aðalhlutverkið, roskna frú, húseiganda, og gerði því sem vænta mátti ágæt skil, einkum í síðari þætti, en þá var Nína búin að hita sig upp, ef svo mætti að orði komast, og vakti mikið gaman áhorfenda. Guð- mundur Gíslason (formað- ur LK) lék fyrrv. hershöfð- ingja, leigjanda frúarinnar, og hélt vel í við Nínu með skemmtilegum og hressilegum leik. Auður Jónsdóttir fór með hlutverk leiklistarkennara og leigjanda frúarinnar. Hún mun raunar enginn viðvaning- ur á leiksviði, enda sýndi hún bráðskemmtilega persónu í hlutverki sínu. Oktavía Stef- ansdóttir lék þjónustustúlku, vel og ísmeygilega, Hólmfríð- ur Þórhallsdóttir fór snotur- lega með hlutverk lafði nokk- urrar og Lily Guðbjörnsdóttir lék taugaveiklaða ungfrú, sem gerir við postulín. Var margt vel um leik hennar, en á stund um þótti mér fullmikið gert úr Nína Sveinsdóttir (frúin) og Oktavía Stefánsdóttir (þjónustan). SUNNUDAGUR 22. nóvember 1964 Frá vinstri: Guðmundur Gíslason (hershöfðinginnl, Auður Jónsdóttir (leiklistarkennari), Oktavia Stefáns- dóttlr (þjónusta), Hólmfríður Þórhallsdóttir (lafðl) Nina Sveinsdóttir (frúin) og Lily Guðbjörnsdttir (ungfrú sem límlr postulín.) æðibunugangi þessarar ung- frúar. Þá komu fram í smáhlut- verkum Björn Magnússon, Sig- urður Grétar Guðmundsson og Sigurður Jóhannesson. Óskar Ingimarsson þýdd leikinn á gott og lipurt mál. Hafsteinn Austmann gerði þokkaleg leiktjöld, og hefði þó mátt • vanda betur til útsýnis úr stofuglugga frúarinnar. Ég þakka Leikfélagi Kópa- vogs kemmtilega kvöldstund. Baldur Óskarsson. ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Ljós, sem deyja „Það slokknar á lömpunum okkar,“ kvörtuðu óforsjálu dömurnar í dæmisögunni frægu um meyjarnar tíu, sem voru svo misjafnar að for- sjální og fyrirhyggju. Það gæti litið svo út, að sag- an væri úrelt. Nú höfum við ekki lengur olíulampa og það- an af síður viðsmjörsgeyma, lýsi eða fífukveiki. Nú streym- ir ljósið um þræði og glerpíp ur og ekki þarf annað en styðja á hnapp eða takka, og „Verði ljós“ birtan umlykur úti og inni. Við þurfum ekki á mána og stjörnum að halda. Og sumir þurfa ekki einu sinni sólina, því að þeir sofa þann stutta tíma, sem hún sýnir sig- að minnsta kosti um skamm- degið. Það mætti því álíta kvört- • un þessara frægu fimm-menni inga einnig út í bláinn. Nóg ljós. Við þurfum seinast hvorki sól né Guð. Við getum þetta sjálf. En gættu þín á blekkingun um. Vakið, hugsið, vinníð. Var það ekki það, sem lík- i’-.gin átti að kenna lærisvein- um Krists. Og varð það ekki einmitt dömunum að falli, að þær þóttust öruggar, án þess að vpra það. Sjálfsblekkingín varð orsökin til þess að þæi lentu í myrkrunu og kuldan um fyrir utan. Munið þið nokkuð eftii manni og mönnum, sem voru fyrstu menn, sem hugðust byggja þetta land. Þeir gleymdu að heyja og sá, af því að sumarið var svo gott, veiðin svo nærtæk. En urðu þeir ekki að flýja næsta sumar, og yfirgefa allt sitt. Og gáfu svo landinu hefnd arheiti, sem það ber með röngu enn þann dag í dag og við höfum orðið að líða fyrir um aldir, þótt enginn mundi vilja breyta því. En það var ís og myrkur óforsjálni og tómlæti í hjörtum þessara fyrstu íslandsbúa, Flóka og félaga hans, fremur nokkru öðru, sem gaf landinu nafn Þetta er fyrsta lexían ; íslandssögu, sögu okkar eigin þjóðar. En er hún ekki sagan um óforsjálu meyjarnar í breyttrí mynd, annarri útgáfu? En sannarlega ætti hún að verða okkur íslendingum til varnaðar. „En þetta er svo fjarlægt í tíma og rúmi,“ gætuð þið hugsað. Ættum við þá að segja sög- una af piltinum. sem var á einu hæsta og heppnasta sild- veiðiskipinu í fyrrasumar, en varð að slá fátæka mömmu sína um aura fyrir jólagjöf handa kærustunni, af því að síldargróðinn var allur horf- inn í bílagleði og bardrykkju. Kannski þið þekkið engin slík dæmi. Það er gott, ef svo væri. en ég veit um þau. Og slík eyðsla, óhóí og ófor sjálni væri nú út af fyrir sig afsakanleg, ef hún væri ekki að verða þjóðareinkenni. Og væri ég þingmaður eða ráð herra, þá léti ég semja lög, þar sem fólki innan 25 ára væri skylt að geyma eða varð veita 60 prósent tauna sinna nema sannað yrði, að þau færu til heimilisframfærslu eða hús bvgginga. Olían er viðar á lömpum sagnánna. Hún ei líka afl þeirra hluta. sem gera skal. En þið sjáið, hvernig hún er notuð nú. ef þið staldrið við glugga Austurríkis eða Ný borgar á laugardagsmorgni. Það er ekki von hún endist lengi. Og svo gætuð þið líka skyggnzt bak við tjöldin, til að athuga fólkið með út- brunnu lampana á sunnudags- kvöldin og mánudagsmorgna. Eða væri kannski hægt að líta bara á þá, sem bókstaflega eru lokaðir úti frá gleðinni við dyr dansstaðanna. Þar sést hvort sagan er ekki sönn og margt fólk, sem á þar útbrunn inn lampa og uppbrunninn kveik í þokkabót. Því hverju skiptir, þótt sú olía eyðist, sem nefnd er auð- ur og aurar. Hitt er verfa, þeg- ar brennur út á lampa sálar- innar líka. Þá verður myrkrið svart og frostið við læstar dyr hamingjunnar hart og napurt Ættum við að koma inn í Síðumúla eða niður í lögreglu- kjallara. Nei, við skulum held- úr fara inn á eitthvert heimili þar sem sjálfblekkingin hefui orðið að voða. Þar er þó oft- ast einhver eftir, sem ekki er orðinn svo dofinn á huga og og kalinn á hjarta, að geta ekki lengur grátið. En tár og andvörp, hvað var það kallað. Grátur og gnístr an tanna þarf ekki að heyra til neinu helvíti annars heims eins og kirkjan hefur oft vilj að vera láta. Enda var Krist ur að tala um ástand í þessari veröld, ástand, sem þyrfti aó; varast, þegar hann sagði sög- ur sínar. „Og ægilegast er -að glata verðmætum sinnar eigin sálar.“ Var það ekki grunnur- inn í viðvörun hans, þegar hann sagði „Það, sem ég segi yður, segi ég öllum: Vakið.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.