Tíminn - 09.12.1964, Blaðsíða 2
2
TIMSNN
MIÐVIKUDAGUR 9. desember 1964
Þriðjudagur, 8. desemeber.
NTB-Nairobi og New York.
Kongóski uppreisnarleiðtoginn,
Gbehye, lýsti t>ví yfír í dag, að
hvítir málaliðar hefðu drepið
rúmlega 10,000 kóngósk börn,
konur og menn, og það væru
Bandaríkin og Belgía sem
bæru ábyrgð á þessúm líflát-
um. Öryggisráð SÞ kemur sam
an á morgun til að ræða ástand
ið í Kongó. Er það gert eftir
beiðni 20 landa, sem mótmælt
hafa aðgerðum Belgíu og USA
í Kongó. Utanríkisráðherra
Belgíu mun sitja fundinn.
NTB-Djakarta. Bókasafn
bandarísku upplýsingaþjónust-
unnar í Surabaja á A.-Java.
var í dag brennt til ösku. Þar
voru að verki 2000 Indónesar
og er þetta önnur árásin, sem
gerð er á bókasöfn upplýsinga
þjónustunnar í Indónesíu á
fjórum dögum. Síðasta föstu-
dag eyðilögðu Indónesar bóka
safnið í Djakarta.
NTB-Vietnam. Miklir bardagar
urðu í dag milli liðssveita ríkis
stjórnarinnar og manna Viet
Cong í dag í Dat Do, höfuð-
borg ríkis, sem er 80 km. íyrir
austan Saígon. 163 af mönnum
Viet Cong munu hafa látið líf
ið. Um leið og þetta gerðist
gerðu menn Viet Cong árásir
á fleiri stöðum í suðurhluta
landsins.
NTB-Róm. Utanríkisráðherrar
ítalíu og V.-Þýzkalands, Saraat
og Schröder, hófu í dag stjórn
málaviðræður í Róm um evr-
ópska samvinnu og hinn fyrir
hugaða kjarnorkuflota NATO.
Á morgun heldur Schröder til
Parísar, þar sem hann ræðir
við Murville og síðar í vik-
unni til London til viðræðna
við Gordon Walker.
NTB-Havana. Atvinnumálarað
herra Kúbu, Augusto Martinez
Sanchez, reyndi í dag «ð
fremja sjálfsmorð, þar sem
honum hafði verið vikið úr
stöðu sinni. Reyndi hann að
skjóta sig í höfuðið og er
líðan hans slæm. Var
honum vikið úr stöðu sinni.
vegna mistaka í starfi.
NTB—Moskva. Sovézka geim-
farið, Zonda 2 er nú á leið til
Marz og útvarpssendingar trá
geimfarinu eru reglulegar.
Zond var skotið á loft upp 30.
nóv. sl.
NTB-La Paz. Farþegaflugvél,
sem var á leið frá La Paz til
Tipuani hrapaði í dag. 11 far-
þegar og fjögurra mann áhöfn
fórst með vélínni. Meðl þeirra
var eigandi flugfélagsins, sem
átti vélina.
NTB-Briissei. Hin sex aðildar
ríki Efnahagsbandalags Evr-
ópu komu sér saman um Dað
í dag, að nauðsynlegt sé stjórn-
mállega séð að bæta þýzkum
bændum tjón það, er þeir
verða fyrir við lækkun korn
verðs á milli landanna, en
flest landanna voru sammála
um það. að fjármálalega séð
ættu kröfurnr ekki rétt á sér.
i : iin b >w———
Fyrsti fundur æðstaráðs
síðan Krustjoff fór frá
NTB-Moskva, 8. desember.
Æðsta ráð Sovétríkjanna kom
saman í dag til að ræða fjárhags-
áætlun næsta árs »g líklega verða
mannabreytingnr í stjórninni
einnig til umræðu, en þær standa
í sambandi við stjórnarsliintin
Orðrómur gengur um það í
Moskvu, að margir af nánustu
samstarfsmönnum Krustjoffs
munu missa stöður sinar. Áreiðan
legar heimildir þar í borg herma,
að varla verði gerðar mannabreyt-
ingar í æðri stöðum, en mikið
verði hreinsað til i lægri stöð-
um.
Erlendir stjórnmálamenn í
Moskvu velta því nú fyrir sér,
hvort varnarmálaráðherrann, Ro-
dion Malinovskij, muni halda
stöðu sinni og sömuleiðis mennta-
málaráðherrann, frú Jekatérina
Furtseva. Ekki hefur tekizt að
fá neina staðfestingu á þessum
HJARTAVERND
AK-Reykjavík, 8. des.
Hjarta- og æðasjúkdómavarna-
félagið hefur nú sent frá sér tíma
rit sitt, Hjartavernd, o_g fæst heft
ið í bókaverzlunum. í því eru
fræðandi greinar um þessi mál,
og má benda á grein eftir Snorra
P. Snorrason, lækni um einkenni
kransæðasjúkdóma og tværi grein
ar eftir dr. Sigurð Samúelsson,
lækni, formann félagsins, aðra um
hjartasjúkdóma en hina um mark
mið félagsins. Þá er og athyglis-
verð grein eftír Ólaf Ólafsson,
lækni um starfsemi hjartaverndar
félaga.
Hjarta- og æðasjúkdómavarna-
félag Reykjavíkur bendir borgar-
búum á, að iðgjaldi til félagsins
er veitt móttaka í öllum bönkum
og sparisjóðum borgarinnar og
þar geta nýir félagar einnig lát
ið skrásetja sig. Minningarspjöid
félagsins fást í Bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustíg 3 og
Bókaverzlun ísafoldar í Austur-
stræti.
orðrómi, hvað þá heldur að fá
nöfn þeirra, sem vikið verður úr
stöðum sínum.
Viðræðurnar í Æðsta ráðinu
munu standa yfir í þrjá eða fjóra
daga og mannabreytingarnar lík-
lega ekki ræddar fyrr en á síð-
asta fundardegi. Alls eru 1443
fulltrúar í ráðinu. Krustjoff, fyrr-
um forsætisráðherra, er enn með-
limur Æðsta ráðsins sem full-
trúi kjördæmis í Moskvu, en lík-
legt er. að tilkynnt verði á þessum
fundi, að hann sé ekki lengur
meðlimur. Þetta er í fyrsta skipti,
sem Æðsta ráðið kemur saman,
eftir að Krustjoff var vikið frá.
Ráðið mun m.a. taka afstöðu til
fjárhagsáætlunarinnar fyrir árið
1965. Er hún lögð fram af fjár-
málaráðherranum Vasilij Garbu-
zov og felur líklega í sér auknar
fjármáiaframkvæmdir, því á það
hafa hinir nýju sovézku leiðtog-
ar lagt mikla áherzlu
Mikill áhugi er meðal vest-
rænna stjórnmálamanna á því,
hvort minnkað verður fjárfram-
lag tii hernaðarframkvæmda. í
fyrra var það lækkað um 600
milljónir rúblna. Gromyko, utan-
ríkisraðherra, hefur lagt fram þá
tillögu fyrir allsherjarþing S.Þ að
stórveldin ættu að koma sér sam-
an um að minnka fjárframlög
herframkvæmda um 10—15%,
en hann minntist ekki á fyirætl-
an Sovétrikjanna í þeim málum.
NAGLAR í SNJÓDEKKJUM
KJ—Reykjavík 8. des.
Á myndinni hér tii hliðar er
Björn Pálsson fugmaður t h. og
Lennart Carlén en þeir kynntu
blaðamönnum kosti snjónagla
í snjódekkjum á dögunum.
Snjónaglar þessir Secomet eru
reknir í snjódekkin með sérstk.
tækjum, og hefur Hjólbaiðinn
Laugavegi 178 þessi tæki. Nagl
arnir endast til 15—20 þús.
kim. akisturs og kostnaður við
að setja nagla í dekk undir lít
inn fólksbíl er um 450 krúnur.
Þó að snjónaglar sem þessir
hafi verið settir í snjódekk er
ekki þar með sagt að ökumenn
geti hagað akstri sínum að
vild, beldur verðar auðvitað að
gæta varkárni í hálku.
Mokveiði á Austfjarðamiðum
NTB-Washington, 8. desember
Johnsons Bandaríkjaforseti og
Wilson forsætisráðherra Bretlands
héldu í dag áfram viðræðum sin-
um í Washíngton um stefnu
KJ—Reykjavík 8. des.
Silli o>g Valdi opnuðu sína 12
verzlun á laugardaginn í hinu nýja
stórhýsi sem þeir iiat'a byggt við
Austurstræti. Verzlunin sem þeir
opnuðu á Jaugardaginn er nýlendu
vörukjörbúð og þar er einnig kjöt
deild- Verzlunarstjori er Baldur
Ágústsson. Á neðstu hæð hússins
verða auk þess snyrtivöruverzlun
og skartgripaverzlun og F'p’-ða-
skrifstofan Útsýn. Unpi á hæðun
um verða svo skrifstofur n .a.
E.J.-Reykjavík, 8. desember. samtals 27.000 mál og tunnur. Alls
Mjögsgóð veiði var fyrir austan munu vera um 40—50 skip á mið-
í nott. Mutiu 30 skip hafa fengið unum fyrir austan, og fjölgar
VIÐRÆÐUM JOHNSON
OG WILSON LOKIÐ
NATO í varnarmálum, fjárhag
Bretlands og fjölda annarra al-
þjóðlegra vandamála. Viðræðum
þeirra lýkur í kvöld og heldur
Wilson til Ottawa á morgun. Wil
son kom til Hvíta hússins í dag
eftir að hafa lagt blómsveig á
leiði Kennedys heítins forseta og
leiði óþekkta hermannsins.
Mótbárur Breta við tillögu
Bandaríkjamanna um kjarnorku
flota NATO voru til umræðu á
fyrri fundi Wilsons og Johnsons í
dag. Starfsmaður Hvíta hússins
sagði í dag, að búast mætti við
opinberri yfirlýsingu þeirra
beggja, að loknum síðari fundin-
um í dag. Þess er gætt vandlega,
að engin hlutí viðræðnanna verði
gerður opinber, en óstaðfestar
heimildir herma, að árangur af
þeim sé góður. Opinberlega hefur
verið skýrt frá því, að í þetta
skipti muni varla nást nokkurt
samkomulag, allra sízt um hin
fyrirhugaða kjarnorkuflota.
í Washington er álitið að við-
ræður þessar séu aðeins upphaf-
ið á viðræðum meðaJ allra NA rn
landanna. Bandaríkin, studd af
V.-Þýzkalandi hafa sett frarn il-
lögu um 25 skipa flota, vopnaðan
polariseldflaugum og verði áhöfn
skipanna blönduð mönnum úr
hinum ýmsu ríkjum NATO. Hin
nýja brezka ríkisstjórn hefur ekki
verið hrifin af þessari tíllögu.
Hún hefur í staðinn sett fram eig
in tillögu um víðtækari kjarnorku
her NATO.
Jökla h.f. Atlantor, Stéttasum-
bands fiskiðnaðarins, Einars Sig-
uvðssonar o. fl. 17 mánuðir eru
síðan byrjað var á stórhýsi pessu
og er Bárðtir Danieisson arkiteikt
hússins.
Úr nýju kjörbúðini. Frernst á
myndini afgreiðslustúlkur við ný-
stárleg afgreiðsjuborð, og aftar f.v.
Bárður Daníelsson. 'Jeldimar Þórð
Reiknað er með, að Wilson
komi aftur til Washington í jan-
úar eða febrúar og ræði frekar
við Johnson um kjarnorkuflotann.
arson, Baldur Ágústsson og Sigur 42 þingmenn Bandarikjanna skor
liði Kristjánsson. (Tímamynd KJ) i Framhald á 15. síðu.
þeim stöðugt.
Fyrsta síldin um langan tíma
kom til Seyðisfjarðar í dag. Var
það Sunnutindur, sem kom með
700 mál. Von var á Helgu Guð-
mundsdóttur þangað í kvöld með
nokkurn afla.
7000—8000 mál voru komin til
síldarbræðslunnar í Neskaupstað í
kvöld. en von var á fleiri bátum
síðar í kvöld.Bræðslan er þar í full
um gan^i, og sagði verksmiðju-
stjórinn að veðrið á miðunum
væri allsæmilegt, og voru margir
bátar að kasta þá um kvöldverðar-
leytið.
Til Eskifjarðar komu fimni bát
ar í dag með samtals 4-800 mál
og tunnur. Mestur hluti sítdar-
innar fer í bræðslu, en eitr.bvað
verður saltað.
Til Reyðarfjarðar komu tveir
bátar, Áskell og Bergur, með
samtals um 2400 mál. Er það
geymt í þróm og fer í bræðslu.
Ekki er enn farið að bræða á
Reyðarfirði, en búast má við ag
bræðslan hefjist bráðlega. í gær
og fyrradag voru saltaðar 1000
Framhald a 15. siðu
Guðlaug Hjörleiís
dóttir látin
í gærmorgun lézt í Reykjavík
Guðlaug Hjörleifsdóttir, ekkja Sig
urðar Kristjánssonar, fyrrverandi
forstjóra SÍS, 78 ára að aldri.
6865 SLÁTRAÐ
SÞ—Borgarfirði eystra, 1. de«.
í haust var slátrað 6865 fjár
hiá Kaupfélagi tíorgarfjarðar
eystra eða heldur færri en í fyrra
en þá var slátrað 6981 kind. Meðal
þungi dilka núna varð heldur lak
ari en í fyrra, eða 12.9 kg. á
raóti 13.2 í fyrra. Hæsta meðalvigt
fékk Hannes Ámason, Grund, 14.4
kg. þynkstan dilk á'.ti Kristján
Þorsteinsson, Jökulsá, 22.6 kg.