Tíminn - 09.12.1964, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. desember 1964
ÞINGFRÉTTIR
TÍMINN
ÞINGFRÉTTIR
2
SKIP
OG SILDAR
LEIT ALLT ARIÐ UM KRING
Jón Skaftason flytur ásamt
þeim Ingvari Gíslasyni, Ey-
steini Jónssyni og Ólafi Jó-
fiannessyni tillögu til þings-
ályktunar um kaup á síldar-
leitarskipum. Tillagan er svo-
hl jóðandi:
Alþingi ályktar að skora á ríkis-
stjórnina að ákveða nú þegar að
kaupa eða láta smíða a. m. k. tvö
vel útbúin síldarleitarskip til þess
að annast síldarleit allan ársins
hring umhverfis landið. Enn
Tillaga Framsóknarmanna
fremur að efla fjárhag síldarleit-
arinnar, svo að unnt verði að taka
leitarskip á leigu yfir mesta anna-
tímann á sumar- og haustsíldveið-
um.
í greinargerð segir:
Nú má telja, að örugg vit-
neskja sé fengin fyrir því, að síld-
in haldi sig á miðunum umhverfis
landið árið um kring. Mikið ríður
á að afla sem mestrar vitneskju
um göngu hennar og hvar hún
hefst við á nverjum árstima.
í þessu skyni hefur skipulögð
síldarleit verið stunduð hér við
land á vegum sjávarútvegsmála-
ráðuneytisins í rúman áratug. Al-
þjóð er kunnur hinn mikli árang-
ur, sem náðst hefur í þessum efn-
úm, og er ekki ofmælt, þótt full-
yrt sé, að síldarleitinni megi að
verulegu leyti þakka þann mikla
síldarafla, sem borizt hefur á land
síðustu árin og nemur nú um
helming heildaraflans.
Þrátt fyrir þessa staðreynd
hefur af hálfu hins opinbera ekki
verið nægilega vel búið að þess-
ari starfsemi þau 11 árin, sem
hún hefur verið stunduð. Má þar
til nefna, að leitin hefur ávallt
þurft að notast við misvel útbúin
leiguskip frá ári til árs, sem oft
(hefur reynzt erfitt að útvega og
'búa góðum leitartækjiun.
Við svo búið má ekki lengur
standa, ef stórtjón á ekki af að
hljótast fyrir þjóðina.
Með tillögu þessari er lagt til,
Opinberir starfsmenn
fái verkfallsrétt
Einar Olgeirsson hafði í gær
framsögu fyrir frumvarpi er hann
flytur um verkfallsrétt opinberra
starfsmanna, er kveður á um að
bann við verkfalli opinberra starfs
manna frá 1915 verði numið úr
gildi og opinberum starfsmönnum
verðj heimilt að gera verkfall,
náist ekki samningar um kjör
þeirra á grundvelli laga um kjara-
samninga opinberra starfsmanna,
sem sett voru 1962.
Þórarinn Þórarinsson sagði, að
fullur samningsréttur til jafns við
aðrar stéttir hefði lengi verið bar-
áttumál opinberra starfsmanna og
kröfur um hann hefðu aukizt eftir
að opinberum starfsmönnum í
Noregi hefði verið veittur samn-
ingsréttur. Þessar kröfur leiddu
til þess að bráðabirgðasamkomu-
lag náðist milli ríkisstjórnarinnar
og samtaka opinberra starfsmanna
um takmarkaðan samningsrétt,
sem staðfest var með lögum
1962. Samtök opinberra starfs-
manna höfðu greinilega þann fyr-
irvara á, að þar væri um bráða-
birgðasamkomulag að ræða og um
framnaldið færi eftir því, sem
hin nýju lög reyndust í fram-
kvæmd
Samkomulag náðist ekki skv.
hinum nýju lögum og kvað Kjara-
dómui upp úrskurð sinn skv. á-
kvæðum laganna. en iafnframt
skýrt tekið fram i lögunum, að
verð' almennar kauphækkanir í
LOKAÐ
Tilraunastöð Háskólans í meinafræði að Keld-
um verður lokuð til hádegis í dag vegna útfarar
Páls Zophóníassonar fyrrverandi búnaðarmála-
stjóra.
Bílaeigendur athugið
Ventlaslípingar, hringjaskiptingu og aðra mótor-
vinnu fáið þið hjá okkur
b
V
BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ
10
VENTILU
SlMI 35313
landinu á því, tímabili, skuli opin-
berir starfsmenn fá sömu hækk-
anir. Almenn 15% kauphækkun
varð hjá öðrum stéttum eftir að
Kjaradómur tók gildi og áttu oþiíi-
berir starfsmenn skýlausan rétt á
sömu hækkunum. skv. lögunum.
Vitnaði Þórarinn m.a. í þingræðu
Bjarna Benediktssonar um launa-
mál. þar sem hann túlkaði ákvæði
laganna. Þrátt fyrir þetta ákvæði
laganna kvað Kjaradómur upp
þann úrskurð að opinberir starfs-
menn skyldu engar hækkanir fá.
Þetta var opinberum starfsmönn-
um til mikilla vonbrigða. og með
þessum úrskurði var raunverulega
kippt stuðum undan þeim grund-
velli sem samkomulag ríkisstjórn-
arinnar og B.S.R.B hafði byggzt á.
Síðan hafa ýmsar aðrar stéttir enn
fengið kauphækkanir án þess að
opinberir starfsmenn hafi nokkuð
fengið og ofan á þetta bættist svo
hin gííurlega skattaálagning í sum
ar. Allt þetta veldur því að opin-
berjr starfsmenn verða nú að leita
nýrra leiða f kjarabaráttunni og
eðlilegt að þeir krefjist nú samn-
ingsréttar. Þeir höfðu sýnt fullan
samkomulagsvilja og fallizt á að
fara millileið. en þeirri leið hefur
nú verið lokað af meirihluta
Kjaradóms. Það er erfitt að neita
opinberum starfsmönnum um
samningsrét eftir það, sem á und-
an er gengið og opinberum starfs-
mönnum er öðrum stéttum eins
vel eða betur trúandi til að fara
gætilega með sinn samningsrétt.
að ríkisstjórnjn ákveði strax að
láta smíða tvö vel útbúin síldar-
leitarskip eða kaupi til þessarar
starfsemi hentug skip, sem búið
er að smíða.
Reynslan hefur sýnt, að hin
svonefndu 250 lesta austurþýzku
stálskip henta að flestu leyti vel
til síldarleitar vegna góðrar sjó-
hæfni, hæfilegrar stærðar og hóf-
legs rekstrarkostnaðar. Telja kunn
áttumen á sviði síldarleitar, að
ef ríkið keypti tvö þessara skipa
°g byggi þau hinum beztu leitar-
tækjum, væri stórt skref stigið til
eflingar síldarleitinni og þar með
síldarútveginum.
Þótt tvö vel útbúin skip mundu
þannig verða til mikilla hagsbóta,
er ljóst, að enn sem fyrr yrði að
styðjast við leiguskip til viðbótar
yfir háannatímann, þegar síld-
veiði er stunduð á mörgum stöð-
um samtímis allt í kringum land-
ið og mikillar leitar er þörf.
^JíGaSaGaH
IMíiOl KSSTR/KTI 11
Sima? 15014 11325
19181. |
E
■ArAr Ríkisreikningurinn fyrir árið 1963 va rtil 1. umræðu í neðri
deild í gær og hafði fjármálaráðhcrra framsögu.
Skúli Guðmundsson kvaddi sér hljóðs og vakti athygli á nokkr-
um liðum reikningsins. Sagði hann, að reikningurinn bæri mjög aug-
ljóslega með sér að kostnaður við ríkisreksturinn hefði aukizt veru-
Iega í valdatíð miverandi ríkisstjórnar. T.d. hefði kostnaður við
Stjórriarráðið aukizt um 115%, kostnaður við utanríkismál um 119%
og kostnaður við skattaálagningu um 130%. Þegar Iögin um skattaá-
lagningu var breytt og skattanefndir lagðar niður var sagt að það
myndi verða til þess að stórlækka kostnað við skattakerHð, en raunin
hefur orðið töluvert önnur og í athugasemdum yfirskoðunarmanna er
á þetta bent og að athuga þurfi þetta mál gaumgæfilega þar sem
reynsla sýni, að kostnaður við hið nýja fyrirkomulag' er miklu meiri
en hið eldra. Einnig gera yfirskoðunarmenn athugasemdir við kostn-
að vegna innheimtu tolla og innflutningsgjalda, en sá kostnaður hef-
ur aukizt um 90 % síðan 1958.
★★ Skúli rakti ýmsar fleiri athugasemdir yfirskoðunarmanna. sem
ráðherra hefði ekki gefið fullnægiandi svör við. Yfirskoðunarmenn
benda á, að kostnaður við hagsýslu hefur orðið samtals 2-7 milljnnir
króna síðan 1960 en segja að ekki sé ljóst, hver árangur hafi orðið af
þeirri hagsýslu. Fjármálaráðherra bendir einkum í svari sínu á sam-
einingu Tóbaks- og áfengisverzlananna. Skúli sagði, að ekki hefði
nú þurft neina hagsýslustofnun til að sameina þau fyrirtæki, að rekst
urkostnaður Tóbaks- og áfengisverzlunarinnar væri hlutfallslega inið-
að við brúttósölu eins mikill og hann var hiá búðum fvrirtækjunum
samanlegt.
★★ Skúli benti á, að ráðherrann bæri aðallega við launahækkunum,
sem ástæðu við hækkuðum rekstursútgiöldum ríkissjóðs, en það svar
væri ekki fullnæjandi. Laun opinberra starfsmanna hefðu hækkað
um 40—50%, en hækkunin hefði aðeins komið á hálft árið 1963 og
mætti því búast við enn meiri hækkunum á næsta ári af þeim sökum.
★★ Þá benti Skúli á, að endurskoðun hjá fjármálaráðuneytinu á
reikningnum væri hvergi nærri lokið og minnti á þær athugasemdir
yfirskoðunarmanna, er þeir segja, að ástandið í endurskoðuninni sé
ekki gott og hafi þróun mála gengið í öfuga átt við það, sem >'onast
hefði verið eftir. Að lokum lagði Skúli til, að frestað yrði afgreiðslu
á reikningnum þar til nánari upplýsingar lægju fyrir um einstök
atriði.
★Ar Gunnar Thoroddsen svaraði ekki ræðu Skúla og var tnálinu
vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar.
★★ Emil Jónsson hafði í efri deild í gær framsögu fyrir frumvarpi
um að heimila erfðafjársjóði að lána til enduræfingastöðva örvrkja.
Ólafur Jóhannesson drap á nokkur atriði málsins, cr hann oskaði
að nefndin, sem fengi málið til meðferðar athugaði sérstaklega.
BILA & BIIVÉI.A5SALAN
Við höfum bílana og traktorana
Vörubílar, Fólksbílar, Jeppar Traktorar með á
moksturstækjum allaf fyrir hendi
BILA & BÚVÉLASALAN
við Miklatorg, sími 2-31-36.