Tíminn - 09.12.1964, Side 8

Tíminn - 09.12.1964, Side 8
8 TÍMINN MIÐVIKUDAGUR 9. desember 1964 PALL ZOPHONIASSON fyrrverandl alþingismaður í dag verður Páll Zóphónías- son fyrrverandi alþingismaður til moldar borinn. Er þar fallinn í valinn mikill baráttu- og for- ustumaður úr fylkingabrjósti Framsóknarmanna. Páll var hreinn og sannur félagshyggju- maður og brennandi af áhuga. Knúinn fram af ákafri löngun til þess að láta gott af sér leiða og með ráð undir hverju rifi í umbótamálum, sótti hann starfið fast og hlífði sér lítt. Honum varð líka mikið ágegnt, sem sjá má víðsvegar um land- ið, og rakið verður rækilegar af öðrum. Okkur sem áttum þvi að fagna að starfa með Páli Zóph- óníassyni og hafa stuðning af áhuga hans og þekkingu, er nú þakklætið til hans efst í huga, og söknuður yfir því að hafa ekki mátt lengur eiga hann að félaga. Um það tjáir á hinn bóginn ekki að tala, því þetta er gangur lífsins. En á þessum degi vil ég láta í ljós'þakkir fyrir stórfellt starf og ómetan legt samstarf og félagsskap. Ég sendi fjölskyldu Páls Zóphóníassonar innilega samúð arkveðju og þakkir, sem ég veit að mikill fjöldi fólks um ger- valít landið mundj vilja tak'a undir. Eysteinn Jónsson Það mun hafa verið árið 1928 að ég kynntist fyrst Páli Zophon- jassyni persónulega. Borgfirðing um fannst sem nýr heimur opn- aðist í sambandi við búfjárrækt með tilkomu Páls sem búfjár- ræktarráðunaut Búnaðarfélags Is- lands því málflutningur hans á þessu sviði svo Ijós og skiljan- legur, að það var eins og flestir gætu tileínkað sér hans raunhæfu sjónarmið. Mun bar, meðal annars hafa ráðið hans miklu kennara- hæfileikar og eldlegur áhugi fyrir málefninu. Niðurstaðan af þessari fyrstu fræðslu Páls var sú, að við báðum hann að útvega okkur kyn- bótanaut og jafnhliða réðum við mann til að annast mjólkurmæl- ingar í hreppnum, og skýrslugerð um mjólkurmagn og mjólkurgæði hverrar kýr. Samhliða var svo frá gengið, að hver bóndi skyldi ekki farga kvígukálfum undan gæða- kúm sínum nema aðrir bændur hefðu áður átt kost á að kaupa bá til uppeldis. Nærri jafntímís var svo ákveðið að búnaðarfélag hreppsins fengi sér úrvalshrút úr S-Þingeyjarsýslu til kynbóta. sem það svo hefði á sínum vegum og hver félagi ætti rétt á að leíða ákveðna ærtölu undir hann á hverjum vetri. Páll reisti þvi í Borgarfirði, eins og víðar, áhrifa öldu um aukna arðsemi búfjár, sem bændur þar !lafa búið að. Það var eins ug hinn hógværi málflutningur Páls á þessu sviði, studdur ljósum rökum um eftir- sóknarverða kostí gæðagripanna, væru þannig fram sett að hver maður gæti tileinkað sér kunnáttu íans. Leiðbeiningar Páls um lækn- ingu húsdýrakvilla voru líka oft eins vel metnar eins og þær kæmu frá reyndum dýralækni, og ef einhvern slíkan vanda bar að höndum, þegar Páll var á ferð- inni, leituðu bændur óspart til hans og ætíð var hann reiðubúinn til aðstoðar. Höfðu pólitískir and- stæðingar Páls það stundum að góðlátlegu gamanmáli, að hann fengi stundum atkvæði út á kýr sjálfstæðisheimila. Náttú’lega voru slík ummiæli ýkt og yfirdrif in, en undirstrikuðu þó hið al- menna sjónarmið, að Páll væri í mörgu v|l fær og hefði áhuga fyrir að greiða úr allra vanda Páll var samvinnumaður að eðli og uppruna og var lítið hrifinn af verzlunarbraski og gróða- áfergju einstaklinga, sem fór með árunum vaxandi, en löngum var hann hófsamur í orðum þá sem endranær þegar slík fyrirbæri báru á góma. Persónuleg kynni mín af Páli fóru eðlilega vaxandi eftir að hann gerðist þingmaður okkar N-Mýlinga og að sjálfsögðu meir eftir að við urðum samþingsmenn. Á leiðarþingum og framboðsferð- um dvaldi hann að sjálfsögðu á mínu heimili, þegar hann var á ferðinni í Borgarfirði og Vopna- firði, þar sem ég bjó á þeim ár- um. Til þeirra daga hlökkuð- um við hjónin ætíð, því að þá var „opið hús“, eins og reyndar oftar. Allir þurftu að hitta Pál. ekki síður pólitískir andstæðingar en fylgismeni væri „seni honum í þeim efnum og öllum var hans aðstoð jafn velkomin og sjálfsögð. Páll var á marga iund óvenju- legur persónuleiki, gáfaður mann- kostamaður með góða menntun á sínu sviði og mikill áhugamaður um öll þau mál, sem hann taldi til bóta og framdráttar þjóðinni. Hann var frjálslyndur umbótamað ur og i ýmsu talsvert róttækur í skoðunum, en bó stundum íhalds- samur ef hann taldi að um væri að ræða þjóðleg verðmæti. Hann lét sig flest mál nokkru varða og var aldrei myrkur í máli um skoð- anir sínar, á Alþingi eða heima í kjördæmi. Og hann fékkst ekki ætíð um, hvort mönnum líkaði betur eða verr. Páll hafði sterka tilfinningu, sem hann dró ekki fjöður yfir, fyrir því sem hann taldi rétt í hverju máli, og hann taldi sig stundum fá hugboð um hvernig ætti að snúast við erfið- um og tvísýnum pólitískum vanda málum. Stundum ullu „sérsjónar- mið“ Páls nokkru fjaðrafoki inn- an hans flokks, bæði heima í kjör- dæmi og á þingi, en slíkt kom ekki að sök og allur slíkur ágrein- ingur hjaðnaði eins fljótt og hann reis, þvi allir þekktu grandvar- leika hans og viðleitni tíl að finna það sanna og rétta í hverju mál. Páll var góður ræðumaður, sanngjarn, rökfastur og alvarleg- ur í málflutningi, en enginn „humoristi“ og óáleitinn var hann í garð andstæðinganna. Man ég að mér fannst hann stundum vera á framboðsfundum full „dauf ur“ til svara við andstæðingana, og kom fyrir að ég talaði í trún- aði um slíkt við hann og vildi ætíð færa samstundis heim til föðurhúsanna allar fullyrðingar og staðlausar ádeilur andstæðing- anna, ef Páli rann í skap á þeim vettvangi, þá var enginn öfunds- verður að mæta honum og kom þar meðal annars til hið óvenju- íega minni hans uim alla forsógu mála. Páll var í eðli sínu óvenju- lega sanngjarn maður í dómum um menn og málefni, og í raun og veru mjög ,,landsföðurlega“ sinnaður i flestu, og þótti því stundum full kröfulítill fyrir kjör- dæmi sítt, sem stafaði af því að honum fundust sumar kröfur ekki vera í samræmi við það sem hann taldi sanngjarnt í bili eða í sam- ræmi við það sem hægt var að sinna, enda oft í mörg horn að líta í fjármálum á þeim árum. Páll var, eins og kunnugt er, margfróður og meðal annars sjón- minnugur á allar hagfræðilegar tölur. Man ég glöggt hversu hann gat komið andstæðingunum heima í héraði úr jafnvægi í pólitískum deilum, þegar hann þuldi yfir þeim tölur. sem studdu hans mál- flutning, og þeir gátu þar enga rönd víð reist. Það er gamalt orðtak að hver maður verði mikill að sjálfum sér. Slíkt er að nokkru rétt, bví hæfileikar manna, skapgerð og mannkostir eiga sinn mikla þátt í hversu menn verða farsælir fyr- ir sjálfa sig og sína samtíð. Hitt er svo, að mínum dómí, jafn mik- ið sannmæli, að stundum er „mað- urinn ei nema hálfur“, því í iífi og störfum, baráttunni fyrir hug- sjónum og hugðarefnum, veldur oft gæfumun að hafa eignazt góð- an og skilningsríkan lífsförunaut — og í því efni var Páll mikill gæfumaður. Frú Guðrún Hannes- dóttir, kona Páls, var á fíesta lund óvenjuleg kona, sem hafði til að bera gáfur, mannkosti, hus- móðurlega glæsimennsku og ann- að það sem góða konu má prýða. Hefi ég fáum eða engum konum kynnzt, sem mér hefir fundizt meira til um en frú Guðrúnu, og ég fullyrði, að fáar íslenzkar kon- ur hafa, að mínum dómi, verið betur færar um að koma vel og virðulega fram í hvaða stöðu þjóð- félagsins sem verða vildi. Hvort sem hún hefði verið húsmóðir í höll eða hreysi, þá hefði hún kom- ið fram með þeirri reisn og höfð- ingsbrag. sem við átti og glatt gat gest og gangandi. Beimili Páls og Guðrúnar var „opið hús‘ Allir gátu leitað þar skjóls og fyrirgreiðslu. og þar var enginn mannamunur gerður Hjartahlýja og góðvild hjónanna beggja var ,sú sama í garð vina og vanda- manna sem og nauðleitax-manna hvaðan af landinu sem þeir voru. Slíkir menn áttu oft erindi við Pál og þeim var frú Guðrún ekki síður innan handar en maður hennar. Páll var því mikill gæfu- maður í einkalífi sínu, ekki ein- göngu í sambúð við ágæta konu, heldur einnig vegna barna þeírra, sem öll eru þekkt að góðum hæfi- leikum, hvert á sínu sviði. sam- fara mannkostum, sem þau erfðu frá foreldrum sínum og ræktuð- ust í uppeldi þeirra á þeirra ágæta æskuheimili. Eg minnist Páls vinar mins með mikilli virðingu og einlægri þökk fyrir langt og gott samstarí. Við vorum ekki ætíð samferða i hverju máli. en skoðanámunurinn var ekki meiri en það, að gagn- kvæmt traust og vinátta eyddi jafnóðum slíkum ágreiningi. Eins og komið var heilsu Páls, •hefði ég óskað að hann hefði mátt losna við jarðvist sína sem fljótast eftir að hann missti kon- una, en svo fór þó ekki, og hann hefir langa stund síðan þurft að bíða við mikið heilsuleysi, sem fyrir augum okkar mannanna viri ist tilgangslaust, en Páll var trú- maður og taldi að allt, sem frarn við mann kæmi í lífinu, hefði sinn tilgang. Ef til vill hefir hann rétt fyrir sér og að „krossganga“ hans í rúmt ár frá andláti konu hans hafi haft sinn æðri tilgang. Við vinir hans sem á eftir koma, fáum ef til vill síðar svar við slíku. Að lokum kveðja okkar hjón- anna til Páls: í guðs riði og hafðu þökik fyrir allt og allt. Halldór Ásgrímsson. í dag fer fram útför Páls Zóph- óníassonar, fyrrverandi alþingis- manns og búnaðarmálastjóra. Með honum er genginn mikill hæfi- leikamaður og sérstæður persónu- leiki, sem unnið hefur lengur og meira fyrir bændur þessa lands en nokkur annar á þessari öld. Páll var fæddur í Viðvík í Skagafirði 18. nóvember 1886, sonur prófasts- hjónanna þar, Zóphóníasar Hall- dórssonar og Jóhönnu Jónsdóttur, Péturssonar, háyfirdómara. Hann ólst upp með foreldrum sínum í Viðvík. Kunnugir hafa tjáð þeim. er þetta ritar, að strax á bamsaldri hafi komið fram hjá Páli óvenju- legur starfsáhugi og dugneður. Hann hafði mikið yndi af öllum bússtörfum, ekki sízt skepnuhirð- ingu, hann unni náttúrunni og öllu lífi, og var alltaf boðinn og búinn ti) að hlúa að öllum nvgræðingi. Á bernsku- og æskuárunum sótti hann eftir að blanda geði við vinnufólkið, starfa með því, taka þátt í gleði þess og finna til með því í erfiðleikum þess og um- komuleysi. Þá þegar mun skapgerð Páls hafa mótazt til lífstíðar, hon- um til gæfu og þjóðinni til bless- unar. Hann var ætíð mannvinur, hafði andúð á öllum sérréttindum þeiiua, sem betur máttu sín, en vann óskiptur og ótrauður að bættun. hag þeirra sem verr voru settir í þjóðfélaginu. í þessari stuttu grein verður aðeins rætt um nofckur atriði úr hinu fjöjþætta ævistarfi Páls Zóphóníassonar, en aðrir mnuu lýsa öðmm þáttum starfa hans. Páll Zóphóníasson var námsmað- ur mikill, hafði frábært minni og skarpan skilning. Samt lagði hann ekki stund á latínuskólanám. Mun áhugi hans á búskap hafa valdið því. Hann stundaði nám í Hóla- skóla og útskrifaðist búfræðingur þaðan árið 1905. Eftir það stund- aði hann verklegt nám hjá Rækt- unarfélagi Norðurlands, unz hann snemma árs 1906 hélt til Dan- merkur. Þar stundaði hann ívrst nám í lýðháskólum, en hóf svo nám við Landbúnaðarháskólann i Kaupmannahöfn og brautskráðist þaðan sem landbúnaðarkancudat 1909. Sama ár réðist Páll sem kenn ari við bændaskólann á Hvann- eyri og gegndi því starfi til vors- ins 1920, að hann tók við stjórn Bændaskólans á Hólum i Hjalta- dal. Pál) kvæntist vorið 1912 Guð- rúnu Hannesdóttur frá Deildar- tungu. Fyrstu tvö búskaparárin var heimili þeirra á Hvanneyri, en vorið 1914 fluttu þau að Kletti í Reykholtsdal og hófu þar búskap Þar bjuggu þau til 1920, að þau fluttu að Hólum. Búskapurinn á Kletti mun mjög hafa hvílt á herðum húsfreyju, þar sem Páll var öll árin kennari 4 Hvannevri og tók auk þess þátt í ýmsum fél- ag'málum í héraði. Páll var skólastjóri á Hólum í 8 ár, og hafði skólabúið á leigu fyrri hluta þess tímabils. Bæði skólastjórn og kennsta fór V'» '/

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.