Alþýðublaðið - 17.05.1954, Page 3
ÞriSjudagUr 18. maí 1954
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
r tt
útvarp Reykjavík.
20.00 Fréttir.
20.30 Erindi: Addis Abéba; —
frásögn eftir Fexil Ólafsson.
kristniiboða (Ólafur Ólafsson
kristniboði flytur).
20.55 Tónleikar (plötur) „Funch
and the Child“, balletmásik
eftir Arnell (Konungl. phil-
harmoniulhljómsveitin. í Lund
únum leákjur; .Si.r. Thomas
Beeeham stjórnar).
21,15 Náttúrlegir hlutir: Spurn-
ingar og svör um náttúru-
fræði (Guðmundur Kjartans-
son, jarðfræðingur).
21.30 Undir Ijúfum lögum: Carl
Billiðh o. fl. leika létt hljóm-
sveitarlög.
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,10 Garðyrkjuþáttur: Innijurt
ir og hirðing þeirra (Öli Vai-
ur Hansson, garðyrkjukenn-
ari).
22.30 Kammertónleikar (plötur),
Kvartett í A-'dúr op. 41 nr. 3
eftir Scihumann (Lénarkvart-
ettinn leikur).
Rréfakmsinn;
KROSSGÁTA
Nr. 658
Lárétt: 1 á fornri tungu, 6
toatjurt, 7 gá, 9 eldsneyti, 10
liðið tímafoil, 12 mynni, 14
Uaska, 15 möguleikar, 17 festar.
Lóðrétt: 1 dýr, 2 feiti, 3 tónn,
4 eins, 5 skynsamir, 8 naum, 11
■jurt, 13 tímarit, 16 tveir ems.
Lausn á krossgátu nr. 658.
LLárétt: 1 ósannur, 6 ina, 7
élin, 9 dd, 10 rök. 12 tt, 14 funi,
15 urr, 17 rúsína,
Lóðrétt: 1 óréttur, 2 akir, 3
sni, 4 und, 5 raddir, 8 nöf, 11
[kunn, 13 trú, 16 rs.
ORÐ OG
,.SUMARÁÆTLUN“, Flug- ’
félags íslands h.f. hefur verið
kunngjörð nýlega. — Þar er
svo ákveðið, að daglega verði
flogið milli Reykjavíkur og ísa
fjarðr.a (þ. e. s. alla daga nema
sunnudaga.)
Daglega berst á öldum ljós-
vakans eftirfarandi auglýsing
frá F.Í.:
^Reykjavík, — ísafjörður.
daglegar flugferðir“.
Fagurt er fyrirheitið, ■— en
stundum er mikill munur á orð
um og athöfn.
Því miður hefur flugpjón-
usta Flugfélagsms gagnvart ís
firðingum og raunar fleiri
byggðarlögum á Vestfjörður,
ekki verið eins góð og skyldi
eða slík, sem fyrirheit hafa ver
ið gefin um á áætlunum félags
ins.
Svo virðist sem sama óheilla
viðhorfið til ísfirðinga ætli að
setja mark sitt á framkvæmd
marka má hina stuttu reynslu,
flugþjónustunnar í sumar^ ef
sem fengin er á núverandi
„sumaráætlun“.
Viðskiptamenn F.í. hljóta að
gera þá kröfu til félagsins, að
það haldi uppi þeim flufeferð-
um, sem ákveðnar eru og aug
lýstar hafa verið? svo framar-
lega sem óviðráðanlegar ástæð
ur ekki hamla, (t.d. verður, bil
anir o-s. frv.)
En þessa sjálfsögðu skyldu
sína sniðgengur FÍ æði oft hvað
Vestfirði snertir, og sendir held
ur þá flugvél, sem aðalega ann
ast Vestfjarðaferðirnar, eitt-
hvað annað til staða, sem eru
óviðkomandi áætlun félagsins.
Viðskiptaaðiljarnir fá svo bara
það kurteisa svar: Það ve’rður
flogið vestur á morgun“; en
stundum hefur veður þá spillzt
svo, að ekki er flogið þann dag
i'nn eða næstu daga. Það er
margvíslegt óhagræði, sem
hlýzt að slíku háttarlegi, enda
mundi enginn dirfast að bjóða
einum eða neinum slíka óhæfu,
ef í önnur hús væri að venda.
En samgöngumál Vestfirðinga
eru slík, að þeir eiga ekki hæg't
um vik og fárra kosta völ, síð-
an kosti Loftleiða var þrengt
svo mjög, ð það félag neyddist
til að hætta innanlandsflugi.
l»að sem af er bessari viku
(rní er i'immíudagur) hafa fall
i» niður úr áæthin F.í. til ísa-
fjarðar tveir dagar^ mánudag
ur og miðvikudagur. Ekki er
mér kunnugt um hvort flugvél
var send í gær, en á mánudag-
i>nn var hún send til Fssreyja.
En auglýsingin um hinar
„daglegu flugferðir“ gleymd-
ist e.kki dagana pá. Þó hefði F.
í. að skaðlausu "getað sparað sér
þau útgjöld, því það mega ráða
menn þess vita, að ísfirðingar
sem og aðrir Vestfirðingar
muna sannaxdega eftir þjónustu
F.í. við Vestfirði og ekki síður
þá dgana? sem félagið gleymir
skyldum sínurn og loforðum
við þá og Iætur þeirra haga
þoka um set fyrir hagsmunum
óviðkomandi aðilja.
En Vestfirðingar hafa aldrei
og munu aldrei sætta sig við
það hlutskipti möglunarlaust
að verða hornrekur eins eða
neins. Þess vegna vænta þeir
þess, að „Sumaráætlun:: Flug-
félagsins verði fylgt svika- og
undanbragðalaust.
ísafirði, 13. maí 1954.
Vestfirðingar.
1 DAG er þri'ðjudagurínn 18.
Snaí 1954.
FLUGFERÐIR
Ijoftleiðir.
. „Hekla“, millilandaflugvél
Loftleiða h.f... er væntanleg til
Reykjavíkur kl. 11 í íyrramál-
íð frá New York. Gert er ráð
íyrir. að flugvélin íari kl. 13
til Stafangurs, Oslóar, Kaup-
Snannahafnar og Hamborgar.
Ríkisskip.
Hekla er í Reykjavík.. Esja
fór’ frá Reykjavík í gærkveldi
vestur um land i hringferð.
Herðuíbreið fer frá Reykjavík í
dag austur um, land til Bakka-
fjarðar. Skjaldibreið verður
væntanlega á Akureyri í dag..
Þyri.11 var væntanlegur til
Béykjavíkur í morgun að vest-
an og norðan. Skaftféilingur
fór frá Reykjavík i gær.kveldi.
til Vestmannaeyja.
FUNDIB
Síansk kvindeklub. Fundur í
Tjarnarcafé, uppi í fcvöld kl.
8.30.
Eimskip.
Brúarfoss fór frá. Reykjavík
3.6/5 til Rötterdam og Hamíborg-
en. í dag 17/5 til Rotterdam.
Goðafoss fór frá R.vík 15/5 til
Portland og New Ycrk. Gullfoss
kom til Kaupmannabaf nar 16 /5
frá Leith. Lagarfoss fer frá
Akureyri í kvöld 17/5 til
Hvammstaniga, Paireksfj arðar,
Stykkishólms og Reykjavíkur.
Reykjafoss fer frá R.vík 19/5
til vestur- og norðui’landsins.
Selfoss fer frá Köfomandskær
18/5 til Álaborgai’, Gautaborg-! )
ar og Krisiansand. Tröllafoss | )
koin til R.víkur 11 /5 frá New
York. Tungufoss fór frá Berg-
en 15/5 til Gautaborgar og
Kaiupmann-aihafnar. /l(”R,eprest
us lestar í Hull um 22/5 til
R.víkur.
Þeir, sem vilja fylgjast
með því sem nýjast er.
! S
\
Skipadeild SÍS.
Hvassafell lestar timbur í
Hamina. Arnarfell er í aðalvið-
gerð í Alaborg. Jökulfell kom
til Gloueester í. gærkvöldi frá
R.Vík. Dísarfell kom til London
í fyrrakvöld frá Vestmannaeyj-
um. Bláfell fór frá Helsingborg
13. þ.m. áleiðis til Þorlákshafn-
ar með timlbur. Litíafþlí er í
Reykjavík.
e s a
Pípur og fiíting:
svart og galvaniserað.
% — % — L
Sérlega ódýj- og vönduð.
-
■ÉÆ
.-" *'v
Höfðatún 2 — Sími 4280
Tónlistarfélagið
frönsku listamannanna
verða í kvöld kl. 7 í Austurbæjarbíói.
NÝ EFNISSK RA .
Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundssen og Lárusi lílöndal.
í Hafnarfirði er hér með alvarlega áminntir um að þrífa
nú þegar til á Ióðum sinum ella mun heilbrigðisnefnd
láta gera það' á þeirra kostnað.
Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar.
Frá Sundhöllinni
Hafinn er sértxmi kvenna í Sundhöll Reykjavíkur kl,
8 30 s. d. og verða fyrst um sinn 5 kvöld í viku, alla virka
daga nema laugai’daga. Sundleiðbeiningar ókeypis
eins og undanfarin sumur. Bæjarbúar almennt fá nú að-
gang að Sundhöllinni frá kl. 4—8 ,s. d., en baðgestum skal
bent á það, að morguntímarnir frá &1. 7,30—9.30 eru á-
kjósanlegir tímar til að Ijúka 200 m. sundinu í Samnor-
rænu sundkeppninni.
Þeir, sem óska eftir að koxnast á árdegissundnámskeið
í Sundhöllinni, ættu að láta skrá sig sem íyrst. — Uppl.
í síma 4059.
var.tar unglinga til að bera blaðið íil kaupenda f
KÓPAVOGSHREPPI
Talið við afgreiðsluna. - Sími 4900.