Tíminn - 17.12.1964, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.12.1964, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 17. desember 1964 TIMINN n 54 XV. Hamilton læknir. Næstu fjóra daga hugsuðum við ekki um annað en eymd okkar og niðurlægingu, við Stewart, Coleman og Skinner. Klefinn, sem við vorum læstir inn í, var hræðileg pestar- hola. Og þar sem skipið lá við akkeri í Suðurhöfum, var hitinn og óþefurinn óþolandi. Varðmennirnir skiptust á annan hvorn klukkutíma, og ég minnist pess, hversu varð mennirnir, sem voru leystir af verði, voru fegnir því að geta farið upp á þiljur og fengið sér svalandi loft. Við fengum mat kvölds og morgna. Á þann eina hátt gátum við greint nótt frá degi, því að enginn sólargeisli gat skinið á okkur. Það eina, sem við fengum að borða, var saltkjötið og harða brauðið, sem skipverjar höfðu komið með alla leið frá Englandi. Við fengum aldrei að bragða nýtt kjöt eða grænmeti, sem þeir höfðu þó nóg af, eftir að þeir komu til Tahiti. Samt sem áður langaði okkur svo mikið til þess að fá -að koma út undir ferskt loft, að við gleymdum matarraunum okkar. Við gátum aðeins risið á fætur og gengið eitt skref. Lengra náðu böndin ekki. Fimmta morguninn, sem við vorum þar í Döndum, kom liðþjálfinn inn til okkar með fjölmenna varðsveit. Fætur mínir voru leystir, og ég var leiddur upp stigann, aftur eftir þiljunum og inn í klefa stjórnborðsmegin. Þetta var klefi læknisins og læknirinn sjálfur, sem hét Hamiton, beið þar eftir mér. Hann sendi varðmennina burtu. Þegar hann sá, að ég haföi handjárn, kallaði hann á liðþjálfann og bað hann að leysa hendur mínar. Maðurinn hafði litla löngun til þess. — Far’kins liðsj^ingi skipaði svo fyrir ... — Þvættingur, greip læknirinn fram í. — Leysið hendur hans. Ég ábyrgist. Því næst var ég leystur, og liðþjálfinn fór út. Læknirinn sneri lyklinum í skránni og brosti. — Ég er ekki hræddur um, að þér flýið, herra Byam, sagði hann, en ég vil ekki, að við séum truflaðir. Fáið yður sæti. Hann var karlmannlegur maður, um fertugsaldur, hafði viðfeldna rödd og kurteis í framkomu. Hann virtist vera óvenju vel hæfur skipslæknir. Ég settist á fatakistuna og beið. — Fyrst, sagði hann — vildi ég fá að frétta eitthvað af málanámi yðar. Yður þykir máske undarlegt, að ég skuli hafa irétt um starf yðar, en um það ræðum við seinna. Haf- ið þér haldið áfram starfi yðar hér? — Já, sagði ég. — Ég hef haldið því áfram. Ég hef einnig samið málfræði þeim til leiðbeiningar, sem kunna að hafa löngun til þess að læra málið. — Það var ágætt! Ég skil nú, hvers vegna Sir Joseph Bands bar svona mikið traust til yðar. — Ekki svo vel sem ég vildi. í sannleika sagt hitti ég hann ekki fyrr en rétt áður en Pandora fór af stað, en sumir kunningjar mínir þekkja hann vel. — Þá getið þér ef til vill sagt mér, hvort hann álítur, að ég sé sekur um þátttöku í þessari uppreisn. Og þér, herra læknir! Álítið þér, að ég hafi tekið þátt í þessari heimskulegu uppreisn? En samt sem áður hagar skipstjórinn sér gagnvart mér eins og ég hefði verið einn af forvígs- mönnum uppreisnarinnar. Læknirinn horfði alvarlegur á mig andartak. — Ef það getur verið yður til huggunar, herra Byam, skal ég segja yður þetta. Þér lítið ekki út eins og sekur maður. Og um Sir Joseph Banks er það að segja, að hann trúir á sakleysi yðar, enda þótt margt misjafnt hafi verið sagt um yður — Bíðið ofurlítið! Lofið mér að halda áfram, sagði hann, þegar hann sá, að ég ætlaði að grípa fram í fyrir honurh. — Mig langar til þess að heyra, hvað þér hafið að segja. En lofið mér fyrst að segja yður frá hinum alvarlegu ákærum, sem komið hafa fram á hendur yðar. Sir Joseph hefur skýrt mér frá málinu. Hann hefur ekki einasta rætt við Bligh skipstjóra, hefldur hefur hann lesið skýrslu þá, sem Bligh gaf flotamálastjórninni og hefur lagt eið út á, að væri rétt. Ég ætla ekki að skýra yður frá aukaatriðum. En ein ákæra nægir til þess að sína yður, hve mjög þér eruð flæktur í málið. Nóttina áður en uppreisnarmenn tóku Bounty, kom Bligh upp á þiljur og hann hlýddi á niðurlag samtals yðar og Christians. Bligh skipstjóri fullyrðir. að hann hafði heyrt yður segja við Christian: — Þér getið treyst mér. Ég var svo undrandi, að ég var gersamlega orðlaus. Auðvitað mundi ég vei eftir samtalinu við Christian, en þótt undarlegt mætti virðast, hafði ég steingleymt því, enda þótt það hlyti að hafa mikla þýðingu fyrir réttinum Það bar svo margt við um þær mundir, að aukaatriðin höfðu þurrkazt út úr minni mínu. Nú, þegar ég var minnt- ur á þetta samtal, sá ég þegar í stað, hversu alvarlegt það gæti verið fyrir mig, ef Bligh hefði skilið samtalið þannig að við hefðum verið að ræða um uppreisnina. Og hvað g.at %k^tí. ciGhrjsti-í ... an, þatttökp, í uppi,gisniþpinf. -aiu«iori ,£I io nozbboioriT isnni/O Hamilton læknir studdi handleggjunum á stólbríkurnar. meðan hann beið eftir svari minu. — Það er bersýnilegt, að þér munið eftir þessu sam- tali, herra Byam. — Já, læknir, ég sagði einmitt þessi orð við herra Christ ian — og undir þeim kringumstæðum, sem Bligh skipstjóri hefur skýrt frá. Því næst skýrði ég honum frá uppreisn- inni, eins og hún kom mér fyrir sjónir og gleymdi engu. Hann hlustaði á mig án þess að grípa fram í fyrir mér. Þegar ég hafði lokið sögu minni, horfði hann hvasst á mig og sagði: — Drengur minn! Þér hafið sammfært mig, og hér er hönd mín. Ég tók í hönd hans. — En ég verð að segja yður það, að ég er sannfærður af því, hvernig þér segið frá þessu, en ekki af því, sem þér hafið sagt. Þér verðið að játa það, að Bligh hefur mikið til síns máls. — Hvernig má það vera? spurði ég. — Þér skiljið — ég trúi yður, en hugsið þér yður í spor NÝR HIMINN - NY JÖRÐ EFTIR ARTHÉMISE GOERTZ 64 inum okkar, og óku á fund amts-! dómarans. Faðii Guichard hafði sem sé færzt undan, þar sem hann hafði ekki leyfir frú Vigée il verksins. Narcisse kærði sig eKki um að kvænast á sama hátt jg [ foreldrar hans. án annarra heigi-: siða en að stökkva yfir sópskaft. — Eg vil kvænast eftir bók, sagði hann — Það er gamall siður frá tim- um þrælahaldsins, að negrar. sem óskuðu að kvænast voru bara látn ir stökkva yfir sópskaft. með leyfi husbænda sinna Hanr er enn - 'ð líði sums staðar hjá þeim allra fá- tækustu Honum þótti vænt jrn að heyra Mirjam hlæja glaðlega, og honum létti við. — En — Narcisse sagði, að for- eldrar sínir hefðu sparað saman ögn af peningum og fengið prest til að gifta sig seinna. Mamma hans var þá barnshafandi en hún klæddist brúðarskarti, og pabbi hans var með blóm í hnappagat- inu og börn þeirra voru viðstödd, öll níu, þar á meðal hann sjálfur. Og þetta var dásamlegt brúðkaup. En svo — þegar þau höfðu verið löglega gift í nokkra mánuði. bá hljóp hann brott frá henni. — Þá er betra, að vígslan eftir bók hefur, ekki verið nærri eins bindandi og stökkið yfir sópskaft- ið! • Þau hlógu bæði. — Hvað sem um bókina og sóp- skaftið er að segja, skyldi maður halda að þau uefðu verið nægileric bundin með sínum níu börnum! Mikið langaði hann til að vita, hvort hún þekkti leyndarmálið um sjálfa sig — 'ivort Palmýra hefði nokkurn tíma haft kjark til að segja henni það. Þau komu niður að ströndinm, sem var nú auð og yfirgefin. og héldu áfram út á nesið. k — Það er óskiljanlegt, mælti læknirinn hugsandi, — að nokkur skuli geta *engið af sér að ganga næst lífi annars nanns fyrir fáein pund af rækjum sem hvorki gera til né frá . . . Þau þögðu það sem eftir var Jeiðarinnar. Þegar þau áðu út að Fagranesi, var himininn tekinn að roðna í austri. Homére kom ljós og hóf samvizkusamlega hring ferð sína. Reisti stiga sinn upp við ljósakersstólpann á vegarhorninu, ifetaði sig upp, slökkti ljósið, klöngraðist niður aftur og keifaði að næsta stólpa. — Ég þakka yður, ungfrú, mælti Viktor, er þau stóðu við garðshliðið. — Ef yðar hjálpar hefði ekki notið við, væri nú tveim augum færra til að horfa á sól rísa í dag. Nú vildi hann snúa við, en fékk sig ekki til að stíga fyrsta sporið. Þá sagði Mirjam: — Þegar ég hef yður ekki fynr augunum, segi ég alltaf við sjáifa mig: Hann er svo önnum kafinn viþ að byggja fangelsi sitt. I — Fangelsi mitt? — Já, þessa starfsemi inni í borginni. sem þér ætlið að tak- ast á hendur, en hirðið þó ekk- I ert um. ' Hann þagði um stund en sagði svo aðeins: — Já, ég hef átt ann- ríkt. — Það er ekki um seinan fyrir yður enn, að umflýja þetta fang- elsi. Honum hafði dottið hið sama í hug endrum og eins, siðustu dag- ana. Hann brosti. — Það eru kynd ugir órar, sem hringsnúast í höfði yðar. — Ég þekkti einu sinni mann í Bretlandi. Hann skar myndir í tré, hugsaði um garð sinn og veiddi fisk. Fólkið sagði að hann væri eitthvað skrítinn. En þvert á móti var hann mjög gáfaður. Hann var listamaður. Ó, nei, ekki hlutirnir sem hann bjó til. Þeir voru svona og svona. En hann gerði sér lífið að list. Og það er ekki mikið af þess konar lista- mönnum. Til þess þarf sérstakar listgáfur, — meiri en til nokkurs annars. Og, hvernig öðlaðist Breta- korn vísdóm sinn, ef ég má spyrja? — Ég hygg að hann hafi haft frábært auga fyrir verðmætum. Flestir menn hafa aðeins auga fyr ir almennum hlutum. Þer leggja sama mælikvarða á allt. Þeir eru múgamenn Hann varp öndinni ósjálfrátt. — Og þér ættuð ekki að lifa lífi - yðar samkvæmt viðurkennd um regíum eins og í stærðfræð- inni, hélt hún áfram af ákefð. — Allir vilja fá sama svar, sömu lausn. Þó er svarið misjafnt eft- ir því hver í hlut á! Og miklu skiptir fyrir hvern aö finna sitt eigið svar! — Það hljóta að vera margir, sem aldrei finna rétt svar . . Hann horfði framhjá henm. — Það er vegna þess, eins og ég sagði áðan, að þeir loka sig inni > dýflissum, sem þeir hafa reist umhverfis sig, og sjá aldrei út úr þeirru — Já, sagði hann og reyndi að hrista af sér gjörningana, — en þá er líklega hið bezta sem einn maður getur gert, að byggja sér bjarta og fagra dýflissu. — Skiptir engu, hversu mjög sem hann leitaðist við það. Hún yrði aldrei svo björt og fögur sem hjartans ósk hans! Augu þeirra mættust. Hann vissi fyrirfram það, sem hún hafði sagt honum nú, en það vakti upp á ný allan vafann og óróleikann í huga hans. Martröð efans féll yfir hann eins og ískaldur sviti. — Þegar allt kemur til alls, verð ur hver að velja sjálfur. — Það er einmtt það! Andlit hennar varð fagurt, þegar hún var svo alvörugefin. — Hver maður á svo mörg — sjálf. Maður verður að vera viss um að velja hið rétta. Svo mörg sjálf . hann var orðinn þreyttur á baráttunni við þau sjálf, sem hann var settur saman af. Hann þráði hana Hún hafði lagt höndina á armlegg hans. Hann stóð drykklanga stund og starði a andlit hennar með djúpa þrá í svip. Og gegn vilja hans brauzt sann- leikurinn fram á varir hans. — ég hef hugsað um þig hvern einasta dag, Mirjam. Hann lagði arminn um um hana, kyssti hana á muninn, augun, hárið, og endurtók tnao ertn mn að: — ég hef hugsað til þín . . . ó, hvað ég hef hugsað oti n pin Hann vissi að hann hafði barizt vonlausri baráttu Ö11 n- leitni hans síðustu /ikum natði verið árangurslaus. Hann hætti öllu viðnámi og vafði hana tastar að sér. tiALLDOK KRISTINSSON trullsmiðiu — Simj »6979

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.