Tíminn - 17.12.1964, Blaðsíða 14

Tíminn - 17.12.1964, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 17. desember 1964 SKYNDIHAPPD RÆTTID í dag verður skrifstofa Happdrættisins, Tjarnar- götu 26, opin til klukkan 7 e. h. Áríðandi er að þeir, sem fengið hafa miða senda heim, geri skil. Umboðs- menn út um land þurfa nú þegar að póstleggja uppgjör, þvi að á Þ>>rláks- messu verður dregið Enn þá fást miðar. og eru allir þeir, sem mögulega geta bætt við sig, beðnir að hafa samband við skrifstofuna. Eflum Framsóknarflokkinn fjárhagslega með því að kaupa miða í happdrættinu Þeir fást i skrifstofunni. Tjarnargötu 26. sími 15564 hjá afgreiðslu Tímans. Bankastræti 7. sími 12323 og i happdrættisbílnum á lóðinni Austurstræti 1. FRlMERKJASÝNING KJ—Reykjavík 10. des. Núna fram að jólum stendur yfir sýrning í Frímerkjamiðstöð inni Týsgötu 1, á jólamerkjum frá öllum Norðurlöndunum, og eru þar á meðal öll merkin sem Thor valdsensfélagið hefur gefið út, svo og merkin þau sem Kvenfélagið Framtíðin á Akureyri hefur gefið út nú um nokkurt skeið. Jólamerki eru ekki síður verð mæt en venjuleg frímerki, og t. d. er þarna á sýningunni merki sem Ungmennafélag Önundarfjarð ar gaf út fyrir fjölda ára, fyrir félagsmenn sína til notkunar inn an héraðs. Merki þessi eru með tveim verðgildum, 3ja og 5 aura, en af þrem gerðum og eru föl fyrir eitt þúsund krónur. Á þessari sýningu í Frímerkja miðstöðinni er gott yfirlit yfir út- gáfu jólafrímerkja á Norðurlönd- um, en merkin eru ærið marg- vísleg. Sýningin er opin daglega frá kl. 9—18 og er aðgangur ókeypis. við auðmenn þessa lands og t. d. ekki innheimt nema um 400 þús. af milljónamæringum, sem lagð ur var á stóreignaskattur, þótt 25 millj. króna séu óinnheimtar og gjaldfallnar. Sagði Ólafur Jóhann ! esson, að sú ríkisstjórn, sem i leggði hinn almenna skattborgara j í einelti en sýndi milljónamæring um sérstaka hlífð hentaði ekki á 1 tslandi og það ætti eftir að koma I í Ijós. Nánar er sagt frá umræðunni um söluskattsfrumvarpið á þing- síðu blaðsins bls. 7. Umboðsmenn norskrar keðjuverksmiðju=1 E.J.-Reykjavík, 10. des. Norska keðjuverksmiðjan A/s Kjættingfrabriken hefur fengið sér umboðsmenn hér á landi, fyrirtæk ið E. Th. Mathiesen h.f. Forstjóri verksmiðjunnar, Helge Odd Spil- haug, og sölustjórinn, Egil Arnulf Buen, mættu í dag á blaðamanna- fundi, sem fyrirtækið hélt, og skýrði frá þessu. A/S Kjættingfabriken er fram- leiðandi allra tegunda af keðjum, krókum, lásum, lyftiblökkum og bíla- og traktorskeðjum. Einnig framleiða þeir vélar til framleiðslu GUÐMUNDAR Bergþórogötu 3 Slmar 19032, 200T0 öefui fivaUi dJ sölu allai tep índii bifreiða rökuœ bifreiðai i umboðssölu Öruggaste bionustan bílanoiÍQ GUÐMUNDAR BergþOrugötu X Simar 19032, 20070. á keðjum, og hafa þeir selt slíkar vélar m. a. til Finnlands, Svíþjóð- ar, Englands, Kanada, Brasilíu og Indlands. Er verksmiðja þeirra mjög nýtízkuleg, búin sjálfvirkum vélum. Fyrirtækið hefur einka- leyfi á ýmsum vélum og fram- leiðsluaðferðum til keðjufram- leiðslu. Fyrirtækið var stofnsett í Osló 1909 og byrjuðu í smáum stíl, en í dag rekur það stóra verksmiðju með eigin orkuveri í Kragerö, en aðalskrifstofan er í Osló. Einnig rekur fyrirtækið verksmiðju í Vancouver í Kanada. Verksmiðjan hefur undanfarin ár selt nokkurt magn af keðjum og lásum hingað til lands, en vill auka þessa sölu, og hefur því valið sér umboðsmenn hér á landi, eins og fyrr segir. Islandskort Guðbrands biskups — kærkomin jóla gjöf, til vma heima og er- lendis. HNEFAHÖGG Framhald ai 16. síðu ingu frá I suimar en nú hafa menn fengið jólagjöf frá ríkis- stjóminni, sem er annars eðlis en menn höfðu átt von á, og veldur hún mönnum sárum vonbrigðum — ekki sízt þeim, sem hafa treyst rí'kisstjórninni bezt, því að þessi skattahækkun nú er sem hnefa; högg í andlit almennings. Engin vafi væri nú lengur á því, að núverandi ríkisstjórn er mesta 9kattpíningarstjórn, sem nokkurn tímann hefur á íslandi setið og verður met hennar vart slegið eftir þetta síðasta afrek. Þótt ríkisstjórnin hafi gengið með hinni mestu hörku að hinum al- menna skattborgara og ætlað fjöldamörgum launamönnum að lifa á nær skattakvittunum ein- um undanfarna mánuði, þá hefur hún verið einkar tilhliðrunarsöm Frá Alþingi Framhald at 7 síðu. lögin fái neitt af þessari söluskatts hækkun. Þótt söluskatturinn eigi að hækka í 1000 milljónir á ári á 74 milljón króna framlagið til Jöfnunarsjóðs að standa óbreytt. i Sveitarfélögin eiga við mikla erfið- leika að etja og helzti tekjustofn þeirra eru útsvörin, sem eru orð- in sérstaklega þungbær almenningi og þau verður að lækka, en það ! verður ekki gert nema sveitarfé- lögunum verði séð fyrir tekjum í staðinn. Þá sagði Ólafur, að Mbl. væri að reyna að læða bví inn hjá mönnum, að þessi skattahækkun væri gerð samkvænit samkomulagi því, sem ríkisstjórnin gerði við launþegasamtökin í vor og ráð- herrann hefði einnig tæpt á þessu í_ framsöguræðu sinni. Sagðist Ólafur ekki trúa því að svo gæti verið, að þetta frumvarp væri byggt á samkomulaginu, sem gert var í vor um kjaramálin, en rétt væri að það kæmi skýrt fram í þessum umræðum frá fulltrúum beggja aðila, hvort svo sé, því að það hlyti að teljast meginatriði í málinu. Jón er ekki sama og séra Jón Þá ræddi Ólafur um stóreigna- skattinn, en ríkisstjórnin hefur nær stöðvað innheimtu á honum og aðeins hafa verið innheimtar 400 þús krónur á þessu ári en útistandandi eru 25 milljónir. Viss ir aðilar þurfa vissulaga ekki að kvarta yfir skattheimtu núverandi ríkisstjórnar, þótt daglega glymji í útvarpinu hótanir um aðgerðir, ef menn sanda ekki skil á skött urn sínum. Fjármálaráðherra ber því við að enn séu óútkljáð mála ferli út af stóreignaskattinum og hann eigi sér enga hliðstæðu. Stór eignaskatturinn 1957 er alveg hlið ! stæður stóreignaskatti sem á var .lagður 1950. Mörg kærumál voru' j til meðferðar út af honum, en j I skatturinn var innheimtur þótt j þau væru ekki útkljáð eins ogi venja er um alla skattheimtu ríkis ‘ ins, sem meiri og minni mála | rekstur er þó út af. Hér fer ríkis j stjórnin því með öðrum hætti að en gagnvart hinum almenna skattborgara og milljónamæring- arnir þurfa sannarlega ekki að kvarta. En ríkisstjórn, sem legg ur hina almennu skattborgara í i einelti en sýnir milljónamæringj um sérstaka hlífð hentar ekki á ís landi og það mun sýna sig, sagðil Ólafur Jóhannesson að lokum. I Afhenti fullgiHing- arskial Íslands Hinn 3. desember s. 1. afhenti Pétur Eggerz ambassador fram- kvæmdastjóra Evrópuráðsins í Strassbourg fullgildingarskjal ís- lands að samiþykkt Evrópuríkja um framfærslu- og læknishjálp. Með þingsályktun 27. marz 1963 heimilaði Alþingi ríkisstjórninni að fullgilda samþykktina, og for seti íslands undirritaði síðan full- gildingarsikjalið. Aðalefni samþykktarinnar er, að borgarar aðildarríkjanna skuli eiga rétt til framfærslu og læknis hjálpar, ef þeir þurfa þess með og eru búsettir utan heimalands síns í einhverju aðildarrfkjanna. Skal þessi réttur vera hinn sami og borgarar viðkomandi ríkis njóta. Aðildarríkin eru nú 13 að tölu. Samiþykkt Evrópuríkja um framfærslu- og læknishjálp er einn af þeim samningum, sem gerðir hafa verið um félagsmálefni á veguim Evrópuráðsins, óg hinn fyrsti þeirra, sem fullgiltur er af íslands hálfu. RÚMENSKUR TOGARI rramiiaiu u ib slðu ingjar íslendinga, má þar til nefna Baader-flökunarvélarn ar. Þeir á Constanfa geta fryst um 20 tonn af fiskflökum á sólarhring, og eru frystivélarn I ar mjög afkastamiklar. Eru þær margar af Sabroe-gerð, en sú tegund er íslendingum vel. kunn. Aðalvélai skipsins eru smíðaðar í Japan eftir teikx, ingu Burmeister & Wein í Kaupmannahöfn Við spurðum Milu skipstjóra hvort um borð væru tveir skip stjórar, eins og tíðkast á mörg - um hinum stóru verksmiðju- togurum, fiskiskipstjóri og siglingaskipstjóri, en hann kvað svo ekki vera. Hlæjandi neitaði hann og menn hans þvi, hvort þeir hefðu kvenfólk með sér í verksmiðjunni, eins og Rússarnir . Skipverjar fá góð laun. Mán aðarlaun óbreyttra verkamanna í verksmiðjunni munu nema sem svarar rúmum 18 þúsund krónum á mánuði og auk þess, vasapeninga, þegar komið er í erlendar hafnir, sem svarar 60 íslenzkum krónum á dag. Við höfðum orð á því, er við komum í brúna, að þar væri hægt að halda ball, svo rúmgott var þar. Þegar skipið er að veiðum er skipstjóri, eða stýrimaður í „fiskibrúnni' sem er fyrir aftan aðalbygginguna, og getur þaðan fylgzt mjög vel með fiskiríi. Unnt er að stilla, hve djúpt varpan er í sjó, ann ars vegar niður við botn, hins vegar ofar. Sjálfvirkt kallkerfi er um allt skipið úr brúnni og sjálfvirkur simi er um allt | skipið. STOFNUN NÝBYLA Frambald ai 16 siðu um, ræktað, byggt og komið sér upp bústofni, en 135 eru enn með byrjunarframkvæmdir, og jarðirn- ar eru enn ekki hæfar til bú- rekstrar. Aðeins 27 aðilar bafa hætt búskap eða fallið frá, og er því búið á 872 nýbýlum eða endur- bvggðum eyðijörðum, og hafa því aðeins 3% horfið frá búskapnum á bp^sum jörðum í 17 ár. Einna flest munu nýbýlin vera í Hreppunum. Frá því 1947 hafa 24 nýbýli verið stofnuð í Hruna- mannahreppi og 21 í Gnúpverja- hreppi. og mun þó nóg landrými vera eftir í þessum sveitum, til þess að þar verði stofnað til fleiri nvbýla í framtíðinni. Pálmi Einarsson landnámsstjóri sagði, að sá misskilningur væri ríkjandi, að nýbýli hlyti að vera smábýli. Það væri ekki rétt, að ný- býlin væru ekki minni en meðal- iarðir, og í mörgum tilfellum væru ban íafnvpi tniuvert stærri. SPAÐ HLAKU Kalt var á Suðurlandi í dag, að þvi er Jónas Jakobsson, veður- fræðingur sagði blaðinu. Klukkan ellefu í morgun var t. d. fjórtán stiga frost á Eyrarbakka og klukk an fjórtán var þar ellefu stiga frost. Héðan úr Reykjavík hefur sézt í dag bakki í vestri og suð- vestri og hefur hann smáhækkað á lofti. Kvaðst Jónas vona að þess um bafcka fylgdu hlýindi. Fyrst í stað væri búizt við nokkurri snjó komu hér sunnanlands, en í nótt væri þess vænzt að gerði hláku hér og hlýnandí veður um allt land. Ekki væri þess þó að vænta að frostleysu gerði strax í innsveitum norðanlands, „og svo getur þetta allt breytzt fljótlega. aftur“ sagði Jónas. Iljörleifur á Vegamálaskrifstof unni sagði ofckur, að nú væri kom. ið gott bilfíferi um Snæfellsnes og norður í Skagafjörð, en um Öxna- dalsheiði og Eyjafjörð og til Húsa vikur um Dalsmynni væri enn þungfært. BREYTINGAR HJÁ KEA stiga og lyftna. Stiginn er af sömu gerð og er í mörgum stærstu verzlunarhúsum meg inlandsins. Hann er með full- komnum öryggisútbúnaði svo að enginn slysahætta er tal in stafa af honum. Uppsetn- ingu stigans annaðist Mr. W J. Davis frá Otis-fyrirtækinu í Englandi, en hann hefir farið víða um heim í slíkum erind- um. Hverfistiignn flytur við- skiptavinina úr Herradeildinni upp í Vefnaðarvörudeildina, og er staðsettur nálægt miðju þessara deilda, en að sjálf- sögðu er einnig venjulegur stigi milli þeirra, sem nota verður við útgöngu úr Vefn aðarvörudeild. Deildarstjóri Herradeildar er Björn Baldurs son, en vefnaðardeildar Kári Johansen. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir til vandamanna og vina, sem á marg- an hátt heiðruðu okkur á 50 ára hjúskaparafmælinu 19. nóvember s. 1. Guð blessi ykkur öll, Kristín Jónsdóttir, Stefán Jónsson, Hlíð, Lóni. Þakka innilega samúð við andlát og útför, Eiríks Eiríkssonar, Hlemmiskeíði. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, , Ingibjörg Kristinsdóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.