Alþýðublaðið - 20.01.1955, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 20. jan. 1955
Útgefandi: Alþýðuflofáurlnn.
Ritstjórí: Helgi Scemundsson.
Fréttastjóri: Sigvaldi Hjálmarsson.
Blaðamenn: Björgvin Guðmundsson og
Loftur Guðmundsson.
Auglýsingastjóri: Emma Möller.
Ritstjórnarsímar: 4901 og 4902.
Auglýsingasími: 4906.
Afgreiðslusími: 4900.
Alþýðuprentsmiðjan, Hverfisgötu 8—10.
Ásþriftarverð 15,00 á mánuði. í lausasölu 1J00.
Ný gengislœkkun?
DÍEirLA ríkásstjórnaVinn-
ar og bátaútvegsmanna er
enn ein sönnun þess, að ís-
lenzkir atvinnuvegir eru á
hverfanda hveli. Við getum
hvenær sem er átt von á
því, að stórvirkustu fram-
lelðslutæki okkar stöðvist
lengri eða skemmri tíma.
Þetta á við um togarana, og
sama gildir um vélbátana.
Stöðvun þeirra leiðir svo til
þess, að hraðfrystlhúsin
víðs vegar um landið skort-
ir verkefni. Allt er þetta tal
andi tákn þess, að hætta at
vinnuleysisins vofir yfir
þjóðinni, þó að góðæri sé í
landi. Ástæðan er einfald-
lega sú, að framieiðslan er
ekki lengur sá grundvöilur
þjóðarbúskaparins, sem hún
þarf að vera. Stjórnarvöld-
in hafa brugðizt skyldu
sinni vlð þá stefnu, sem all-
ar frjálsar þjóðir binda
framtíðarvonir sínar við.
Orsök þessa er óheillaþró
un gengislækkunarinnar.
Spár þeirra, sem vöruðu við
gengislækkuninni 1950,
hafa allar rætzt. Fullyrðing
ar gengislækkunarpostul-
anna hafi hins vagar allar
reynzt staðlausir stafir.
Samt gerast menn eins og
Ólafur Thors og Benjamín
Eiríksson talsmenn nýrrar
gengislækkunar. Þeir neita
að horfast í. augu við veru-
leikann og vilja áframhald
andi ferðalag út í kvik-
syndlð.
•Fróðlegt væri að vita,
hvaða rök Olafi og Benja
mín virðast hníga að því,
að ný gengislækkun reyn
ist betur en vandræðaráð
stöfunin 1950. Þau hafa
enn ekki komið fram. Olaf
ur og Benjamín gefa
meira að segja báðir í
skyn, að gengislækkun sé
neyðarúrræði, en slíkt
fengust þeir ekld til að við
urkenna 1950. Hvers kon-
ar ráðsmennska er þá að
grípa til ítrekaðra neyðar
úrræða? Sjá ekki allir
sæmilega viti bornir
menn, að slíkt og þvílíkt
leiðir til hruns og öng-
þveitis?
Ný gengislækkun nú
myndi hafa sams konar af-
í
leið'ngar og gengislækkun-
in 1950, en stórauka vand
ann. Þess vegna á hún ekki
að vera ábyrgum aðilum í-
hugunarefni. Það nær engri
átt að auka verðbólguna og
dýrtíðina með nýjum vand-
ræðaráðstöfunum. Þvert á
móti ber að fylkja liði til
baráttu fyrir þeirri stefnu,
sem verkalýðshreyfingin
hefur löngu mótað. Verk-
afni okkar á að ver a að
draga úr dýrtíðinni og verð
bólgunni með raunhæfum
ráðstöfunum eins og grann-
þjóðir okkar viðhafa. Al-
þýðuflokkurinn hefur beitt
sér fyrir þeirri stefnu á al-
þingi. Stjórnarvöldin láta
standa á sínu svari við þeim
tillögum. En Ólafi Thors og
Benjamín Eirikssyni er
teflt fram á leiksviðið til að
boða nýja gengislækkun.
Þær yfirlýsingar spá vissu-
lega ekki góðu.
Annars væri ekki úr
vegi, að úr því fengist
skorið, hvort boðskapur
Ólafs Thors á gamlaárs-
kvöld hafi verið einkamál
hans eða fluítur í nafní
allrar ríkisstjórnarinnar.
Þjóðin á heimtingu á að
vita, hvort hugmyndin um
nýja gengislækkun sé dag
skrármál og ■stefnuatriði
ríkisstjórnarinnar eða að-
eins keppikefli Ólafs
Thors ’og Benjamíns Ei-
ríkssonar sem einstak-
linga. Afstaða Morgun-
hlaðsins bendir til þess, að
orð Ólafs þyki vísdómur í
herbúðum Sjálfstæðis-
flokksins, enda naumast
annars- að vænta. En hvert
er viðhorf samistarfs-
flokksins? Hefur . Fram-
sóknarflokkurinn fengið
nóg af vandræðaráðstöfun
inni frá 1950 eða vill hann
taka þátt í nýju og marg-
földu neyðarúrræði?
Ný gengislækkun myndi
áreiðanlega orka því að stór
lama atvinnulíf og fjárhag
íslendinga, og er þó vissu-
lega nóg að gert í því efni.
Þess vegna verður barizt
gegn henni af öllu því harð
fylgi, sem íslenzk alþýða á
yfir að ráða.
Fuilorðin hjón
með 9 ára telpu óskast eftir íhúð 1—2 herbergjum og eld
húsi eða eldunarplássi helzt í Kópavogi. Lítilsháttar
húshjálp gæti komið.til greina eða líta eftir börnum
2—3 kvöld í viku. Til’boð sendist blaðinu • merkt
„Rólegt“.
SÚ TILKYNNING. sem birt
var í Moskvu ekki alls fyrir
löngu. að Victor S. Abakumov,
fyrrverandi yfirmáður leyni-
lögreglunnar, hiefði verið
dæmdur til dauða og líflátinn,
ryfjaði upp fyrir mönnum
,.læknamálið“, svonefnda, sem
mesta athygli vakti árið 1953,
og síðan hafa menn tekið að
leiða getum að því, hvort nú
muni að vænta nýrra átaka og
valdastreitu meðal framá-
manna í Kreml. í tilkynning-
unni var að finna eina dulbúna
vísbendingu, þar sem þess var
getið, að ,.Leningradmálið“
svonefnd.a, hefði ver.ð sannan
legá tilbúningur og fölsun
Abakumovs. Hér á eftir verða
raktir helztu þættir valdastreit
unnar í Kreml í Ijósi fyrr-
nefndrar tilkynningar.
LENINGRADMÁLIÐ.
Snemma á árinu 1948 virt-
ist Andrei A. Zhdanov líkleg-
astur til þess að taka við völd
um af Stalin. Við dauða hans,
síðla á sumrinu, — sem síðar
var mjög dreg'.ð í efa. að hefði
orðið með eðlilegum hætti, —
breyttust horfurnar óvænt,
hvað það snerti, til hagsbóta
fyrir Georgi M. Málenkov og
Lavrenti P. Beria. Zhdanov,
’ sem hófst t'.l valda og áhrifa
(í Leningrad, hafði myndað um
sig volduga klíku, Leningrad-
klíkuna. svonefndu. og v.ar
Nikolai A. Voznesenssky, yfir
1 skipulagsstjóri og yngst'. með-t
limur Politiburos, aðalvalda-
maður hennar, er Zhdanov
leið. 1
( Malenkov og Beria brugðu
við, og tókzt á skömmum tíma
að svipta fylg'smenn hins
látna keppinautar, völdum og
|áhrifum. Leíðtoguni Leningrad
klíkunnar var vikíð úr embætt
um, en nú hefur því verið op-
|inberlega lýst yf.r, að sannan
ir þær. sem vaidasvipting
þeirra b.yggðist á. hafi verið
tilbúnngur og fölsun Aba-
kumovs.
KHRUSHCHEV IÍEFST |
TIL VEGS OG VALDA.
Annar þáttur þessarar valda
togstreitu hefst í desember-
mánuði. 1949, þegar Nikita S.
Khrushohev gengur skyndi-
lega fram á le'ksviðið í Kreml.
Sennilega hefur þar verið
um að ræða mótieik af hálfu
Stalins, gegn vaxandi völdum
og áhrifum Malenkovs, er
K/'.irushchey. 'sem áður hafði
gegnt íiltölulega áhrifalitlu
starfi sem forlngi kommúnista
Richard Beck:
Prýðiieg! landkynningarrif
Á SÍNUM tíma b rti ég hér
í blaðinu stutta umsögn um
sænsku útgáfuna af riti þeirra
Hans Malmbergs Ijósmyndara
og dr. Helga P. Briem sendi-
herra um ísland. Var það
meira en verðugt, því að sann
arlega á það, sem vel er gert
ættlandi voru til auklnnar
kynningar, skilið, að því sé á
lofti haldið.
Ensk útgáfa af þéssu íslands
riti þeirra félaga, ICELAND,
er nýlega komin út á vegum
sama útgáfufélags (Nordisk
Rotogravyr) í Srokkhólmi í
Svíþjóð, og er útgáfa þessi um
allt hin vandaðasta sem hin
sænska. Liggur e:nn?g í aug-
um uppi, að þessi enska útgáfa
ritsins á enn meira eríndi til
okkar í hinum enskumælandi
heimi heldur en sænska útgáf
an, þó ágæt væri, og næði vel
tilgangi sínum. Annars eru út
gáfur þessar að mjög miklu
leytí hinar sömu um efni og
myndaval.
Dr. Helgi P. Briem fylgir
ensku útgáfunni úr hlaði með
gagnorðum inngangi um Is-
land nútíðarinnar (,.Changing
Iceland11), og leggur þar, eins
og fyrirsögnin bendir til, á-
herzlu á hinar miklu breyting
ar, sem orðið hafa á íslandi á
öllum sviðum á síðari árum,
og bá ekki sízt í atvinnu- og
samgöngumálum. Er þessi
hressilega og um margt fróð-
lega lýsing hans snið'n meir
við hæfi enskumælandi les-
enda, en hin sænska var, og
er það vel ráðið og viturlega.
Helgi ritar einnig kjarnorð-
ar og glöggar skýrmgar við
myndirnar, og er þar harla
miklnn og margþætían fróð-
leik að finna um land og þjóð,
sögu hennar og menningu,
sem erlendum lesendum kem-
ur að góðum notum og eykur
drjúgum skilning þeirra á ís-
landi og íslendingum. Seilist
Helgi ósjaldan til tilvitnana
úr ýmsum ritum, eigi sízt ís-
lenzkum forniritum, myndun-
til skýringar, og hitta þær til
vitnanir löngum vel í mark.
Til skýringar heilsíðumynd
inni af blaðsíðu úr skinnhand
ritinu að Heimskr’nglu vitnar
Helgi t. d. til 'eftirfarandi um-
mæla um íslenzkar segnritun í
Encyclopedip. Br’ta11 nica, sem
óþarft er að þýða fyrir allan
þorra lesenda þe.ssa blaðs: ,,The
independent invention of prose
by the Icelanders is one of the
most singular phenomena ’in
history . . . The splendid nrose
of these two centuries stands
unrelated, an unparalleled por
Framiiald á 7. síðu.
flokksins í Ukrainu, var allt í
einu falin forusta flokksskipu
lagsins í Moskvu.
Það var nú aöalhlutverk
Kihrushchevs að skapa sér að-
stöðu til valda og áhrifa, svo
_að kvæði. Hann hóf sókn sína
á sviði landbúnaðarmálanna,
sem bá voru veikasti hlekkur
inn í hagkerfi þjóðarinnar.
Árangurinn af þessari sókn
Khrushchevs kom í Ijós þegar
á ár'.nu 1950, er Pravda réðist
á Andrei A. Andreyev, . sem
lengi haíði verið æðsti maður
landbúnaðarráðuneytisins, og
bar honum á brýn vanrækslu
og alvarleg mistök i starfinu.
Andrei tapaði skákinni, og
Khrushohev, sem tók við em-
bætti hans, jóf þegar viðtæka
og harða sókn í því skyni, að
koma. samyrkjubúunum aftur
á réttan kjöl.
En svo fór. að Khrushchev
gek'k of langt. og þeir Malen
kov og Beria voru þá ekki sein
ir á sér, að hagnýta sér það
g'muhlaiíp hans| í marzlmán
uði 1951 birti Pravda ræðu
Khrutihchevs, þar sem hann
hvatti til þe.ss, að bændur
væru fluttir úr sínum gömlu
þorpum til nýrra staða. Var
þá vakin athygli Stalins á því,
að þetta myndi skapa megna
I óáriægju meðal bænda, og dag
I Inn eftir var ræðunni mótmælt
| í ’blaðinu. Þar með var Khrush
I chev lamaður í bili í sókn sinrii
I til aukinna valda. enda • þótt
|hann væri enn einn af framá-
mönnum þjóðarinnar.
LÆKNAMÁLIÐ.
i Þriðji þátturinn hefst með
hinu fræga læknamálþ sem
j byrjaði í janúarmánuði 1953
og stóð yfir, er Stalin lézt, sem
samkvæmt opinberri t'.lkynn-
ingu átti að hafa verið þann
5. marz. sama ár. Þarin 31. jan
úar. 1953, tilkynntu blöð í So-
véttríkjunum, að öryggismáía
starfsmenn rík-isins hefðu
komizt á snoðir um starfsemi
samsærisflokks innan lækna-
stéttarinnar. sem meðal ann-
ars hefðu staðið að morði
tveggja háttsettra meðlima
Pc.tit jburos, og var ZíhcLanov
tilnefndur annar þeirra. Auk
Framhald á 7. síðu.
EFTIRLEIÐIS rnun verða
greint frá fréttum í þessum
dálkum um starfsemi flokks-
félaganna í Reykjavík og ná-
grenni.
KVENFÉLAG ALÞÝÐU-
FLOKKSINS í KEYKJAV.
Félagsfundir eru haldnir
reglulega fyrsta þriðjudag
hvers mánaðar.
Skemmtanir fyrir börn hafa
verið haldnar einu sinni til
tvisvar í mánuði með fjöl-
breyttum skemmtiatriðum. —
Aðgangseyrir hefur verið 1
króna. Árshátíð íélagsins er
| ákveðin n. k. föstudag og verð
ur auglýst nánar.
Þá hefur félagsstjórriin á-
kveðið að efna til gamalmenna
skemmtunar í febrúar og verð
ur ókeypis aðgangur. Fundir
og samkomur féB.agsi.ns hafa
verið vel sóttar og félagslíf
allt með ágætum og hefur fé-
lagsstjórn margar nýjungar í
undirbúningi.
ALÞÝÐUFLOKKSFELAG
REYK JAVÍKUR.
Hverfisstjórnarfundur verð-
ur haldinn n. k. mánudags-
kvöld í Iðnó (uppi) kl. 8,30.
Fundarefni: Leitað eftir uppá
stungum í stjórn félagsins fyr
ir næsta kjörtímabil.
Félagsfundur n. k. þriðju-
dags'kvöld kl. 0,30 :í Alþýðu
húsinu við Hverf.sgötu. Nán-
ar auglýst síðar.
STJORNMALASKOLI
ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG-
ANNA í REYKJAVÍK.
Skólinn kemur saman hvert
mánudagskvöld í skrifstofu
Alþýðufjbkklins kl. 8,30. Er
Alþýðuflokksfólk eindregið
kvatt til að notfæra sér þann
fróðleik, er þar er fluttur um
starf og .stefnu Alþýðuflokks-
ins í flestum þjóðmálum fyrr
og síðar. ;