Tíminn - 23.12.1964, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 23. desember 1964
TÍMINN
Þriðjudagur, 22. desember.
NTB-Róm. — ítalska þingið
gerði í dag tólftu tilraun sína
til að kjósa forseta landsins,
en hún mistókst. Þrettánda at-
kvæðagreiðslan mun fara fram
fyrir hádegi á morgun.
NTB-Peking. — Kínverska
þjóðþingið hélt áfram störfum
sínum í Peking í dag. Chou En
Lai, forsætisráðherra landsins,
lagði í dag fram skýrslu um
starfsemi stjórnarinnar á árinu
og var honum ákaft fagnað af
öðrum meðlimum þingsins.
Reiknað er með, að þingið
standi í eina 10 daga, en ekki
er vitað, hvenær kosningar nýs
forsætisráðherra og þjóðhöfð-
ingja munu fara fram, on reikn
að er með, að núverandi emb-
ættismenn haldi stöðum sínum.
NTB-New York. — Miklar
umræður voru í dag í Öryggis-
ráði S. Þ. um Kongómálið.
Noregur sagðist ekki draga það
í efa, að aðgerðirnar í Stanley-
ville hefðu verið framkvæmdar
í þeim tilgangi að bjarga hvít-
um gislum. Allir þeir, sem taka
þátt í umræðunum eru fylgj-
andi friðsamlegri lausn á deilu-
málinu. Umræðurnar halda
áfram á morgun.
NTB-Stokkhólmur. — Deild í
sænska fjármálaráðuneytinu
hefur nú reiknað út skaðabæt-’
ur þær, sem Helander biskup
á inni hjá ríkinu, eftir að dóm-
ur var aftur kveðinn upp í máli
hans fyrir nokkru síðan. Lög-
fræðingur biskupsins hefur gef
ið þær upplýsingar, að alis
nemi skaðabæturnar 450—500
þúsund sænskra króna fyrir
utan vexti.
NTB-Stokkhólmur. — Louise
Svíadrottning mun dveljast á
sjúkrahúsi yfir jólin. Þar verð-
ur hún meðhöndluð við vægum
hjartasjúkdómi, en hin 75 ára
gamla drottning var lögð á
spítalann til rannsóknar í síð-
ustu viku.
NTB-Helsingfors. — Mikojan
forseti Sovétríkjanna hefur að
undanförnu dvalizt í Finnlandi
og rætt við Kekkoner. Finn-
landsforseta. Rætt hefur venð
um fjármálasamband landanna
og einnig um ýmiss alþjóðleg
vandamál. Báðir aðilar hafa
lýst yfir ánægju sinni með við-
ræðurnar.
NTB-Bonn. — V-Þýzkaland
neitaði því opinberlega í dag,
að það hefði í huga að koma
fyrir neðanjarðarkjarnorku-
sprengjum við landamæri
Austur-Þýzkalands. Var sagt, að
slíkt mundi aldrei verða gert á
friðartímum.
NTB-Saigon. — Þess er nú
að vænta, að til algers upp-
gjörs komi á milli leiðtoga
Bandaríkjamanna í Saigon og
Khanh, yfirhershöfðingja. Er
helzt að skilja, að Khanh þoli
ekki orðið afskipti Bandaríkja
manna af málum S-Vietnam,
en hann hefur gagnrýnt af-
skipti þeirra opinberlega að
undanförnu.
LEIKSTARFSEMI
A-SKAFTFELUNGA
Guðjón Sigurðsson, leikstjóri í hlutverki Jóns kotbónda og frú Anna
Guðmundsdóttir sem kerlingin.
BO-Reykjavík, 22. desember.
Höskuldur Skagfjörð leikari boð
aði fréttamenn til viðtals í dag og
skýrði frá starfsemi Leikfélags
Hafnarkauptúns í vetur, en það
hefur sýnt leikinn Þrír skálkar eft
ir Carl Grandrup átta sinnum í
nóvember og desember, tvisvar á
Eskifirði, tvisvar á Norðfirði og
fjórum sinnum á Höfn í Horna-
firði.
Þýðingu leiksins gerði Þorsteinn
Ö. Stephensen, en undirleik ann-
aðist Sigjón Bjarnason. Höskuldur
Skagfjörð stjórnaði þessum leik,
og stjórnar um þessar mundir
æfingum á Ráðskonu Bakkabræðra
sem Kvenfélag.ð Ósk í Suðursveit
mun sýna á jólum. Þrír skálkar
verða sýndir á Höfn í síðasta sinn
annan jóladag, en Höskuldur sagði
að leikflokkurinn mundi ef til vill
leggja leið sína suður á land á
vori komanda. Formaður Leikfé-
lags Hafnarkauptúns er Jóhannes
Kristinsson. Magnús Pálsson
teiknaði leiktjöldin við Skálkana,
en þau voru smíðuð og máluð
eystra. Þetta er 25. leikurinn, sem
Höskuldur setur á svið á lands-
byggðinni. Bar hann mikið lof á
Leikfélag Hafnarkauptúns og
GULLNA HLIÐIÐ - JOLA-
LEIKRITIÐ Á SAUÐÁRKRÓKI
GÓ-Sauðárkróki, 21. des.
Leikféiag Sauðárkróks, hefuf I
tekið Gullna hliðið eftir Davíð
Stefáns-son til sýningar nú um jól-|
in og var frumsýning á leiknum
s.l. laugardagskvöld 12. þ.m. Ey-
þór Stefánsson las prologus áður
en sýning hófst. Þrjár sýningar
verða á leiknum á milli jóla og
nýárs.
Leikstjóri er Guðjón Sigurðsson
bakarameistari, sem leikur jafn-
framt Jón kotbónda. Frú Anna
Guðmundsdóttir leikkona frá
Reykjavík, fer með aðalhlutverk-
ið, kerlingu Jóns, er leikur sem
gestur, og er þetta fyrsti gesta-;
leikur hjá Leikfélagi Sauðárkróks.
Gerði frúin þessu erfiða hlut-
verki, sem vænta mátti, ágæt skil,
var leikur hennar bæði listrænn
og eðlilleg túlkun á fórnarvilja
„kerlingar" sem átti það t.akmark
eitt að koma sál síns forherta
bónda inn fyrir hið Gullna hlið.
Frú Sigríður Stefánsdóttir ieikur
Vilborgu grasakonu, en Kári Jóns-
son fer með hlutverk Óvinarins.
Öll eru þessi hlutverk, sem telja
verður stærstu hlutverkin, íeikin
með miklum ágætum, eins og
raunar fleiri hlutverk í leiknum,
sem minni eru.
Aðrir í leiknum eru: Kristján
Skarphéðinsson (Lykla-Pétur),
Haukur Þorsteinsson(Páll postuli)
Sveinn Ingason (Mikael höfuðeng-
ill) Hrafnhildur Stefánsdóttir
(María mey) Kristín Sölvadóttir
(Móðir kerlingar), Sveinn Frið-
vinsson (Föður kerlingar), Halla
Jónasdóttir (vinkona kerlingar),
Hafsteinn tíannesson (bónda),
Bragi Haraldsson (Fiðlung), Ant-
on Angantýsson (prest), Þorberg-
ur Jósefsson (sýslumann), Adólf
Björnsson (ríkisbubba), Fríða Eyj
ólfsdóttir (konu, frillu Jóns),
Gunnar Guðjónsson (drykkju-
mann), Gunnar Ingólfsson (böð-
ul), Helgi Magnússon (þjóf).
Búningar eru allir fengmr að
lánr frá Þjóðleikhúsinu.
Aðsókn að þessari frumsýningu
var mjög góð. Húsið var þéttskipað
áhorfendum. Var það vel ráðið af
Leikfélagi Sauðárkróks að taka
þennan sérstæða öndvegissjón-
leik Davíðs frá Fagraskógi til
sýningar nú um jólin. Leikstjóra
og leikendum var forkunnar vel
tekið. Frú Önnu Guðmundsdóttur
var að lokinni sýningu færður
fagur blómvöndur með þökk fyrir
góða frammistöðu.
Valgarð Blöndal ávarpaði leik-
endur og þakkaði þeim góða
skemmtun og prýðilega útfærslu
I á leiknum. Þá talaði form. Leik-
félags Sauðárkróks Kári Jónsson
jog leikstjorinn Guðjón Sigurðsson
og þökkuðu báðir frú Önnu Guð-
mundsdóttur fyrir mikilvæga að-
I stoð og þann heiður, sem hún
j hefði sýnt leikfélaginu að koma
hingað norður og leika þetta erf-
j iða hlutverk.
! Frú Anna þakkaði leikfélögun-
um ánægjulegt samstarf og færði
leikstjóra og formanni blóm.
Jónas Þór Pálsson gerði leik-
tjöldin, sem eru bæði smekkleg
j og fögur. Ljósameistari er Þórð-
'ur P. Sighvats.
taldi það hafa sérstöðu meðal
þeirra félaga, sem hann hefði
Framhald á 14. síðu.
Fjárhagsáætlun fyrir
Kópavogskaupstað
Frumhvarp að fjárhagsáætlun
fyrir Bæjarsjóð Kópavogs og önn-
ur fyrirtæki bæjarins, var lögð
fram til fyrri umræðu á fundi
bæjarstjórnar 18. þ.m.
Niðurstöðutölur áætlunarinnar
eru kr. 64,8 millj., en voru á á-
ætlun fyrir árið 1964 kr. 41.850.-
000.00. Á áætlun næsta árs koma
áætluð gatnagerðargjöld ekki inn
í tekjuhlið, en eru færð til frá-
dráttar á gatna- og holræsið. Sé
tekið tillit til þessarar breytingar
hækkar áætlunarupphæðin um
23,65%.
Útsvör, auk 5—10% álags fyrir
vanhöldum, eru áætluð 34,5 millj-
ónir, en voru áætluð á þessu ári
28,5 millj. Hækkunin nemur 21 af
hundraði.
Aðstöðugjöld áætlast 2 millj.
Framlag úr jöfnunarsjóði 7,8
millj.. Fasteignagjöld áætlast 2,2
millj.
Hæstu gjaldaliðir eru:
Til gatna- og holræsagerðar kr.
10.255.000,— auk áætlaðs gatna-
gerðargjalds kr. 2,5 milljónir.
Til félagsmála: kr. 9.678.000,—
Til fræðslumála:
1) rekstur kr. 6.375.000,—
2) skólabyggingar — 4.250.000,—
Samtals kr. 10.625.000.00
(Frá skrifstofu bæjarstjóra).
'ólatrésfagnaður
Framsónkarfélag-
^nna í Revkjavík
Framsóknarfélögin i Reykja-
vík halda jólatrésfagnað sinn i
Glaumbæ 3. janúar n. k. Að-
göngumiða má panta í síma 1-55-
64 eða í Tjarnargötu 26, þar sem
þeir eru einnig til sölu.
Ræia ténhurð Hallgrímskirkju
i kom saman um, að í Hallgríms-
kirkju þyrfti að koma a. m. k.
: 70 radda orgel, en síðar verða
teknar ákvarðanir um hvaðan slíkt
hljóðfæri verður fengið. Nú mun
yfirleitt vera um 4y2 árs af-
; greiðslutími í Þýzkalandi á stór-
; um kirkjuorgelum.
Þá má geta þess, að Hallgríms-
kirkja í Reykjavík á gamlan orgei-
sjóð, sem ber nafnið „Hvammur'
og er hann í vörzlu biskupsskrif-
stofunnar. Þann sjóð þarf að efla
sem mest á næstu árum, svo að
hægt verði að kaupa fullkomið
orgel í Hallgrímskirkju, strax og
hún verður fullgerð — væntan-
lega 1974.
Nýverið var efnt til ráðstefnu
hjá liúsameistara ríkisins í Borgar-
túni, þar sem arkitekt ilallgríms-
kirkju í Reykjavík, Jörundur Páls-
son. ráðgaðist við sérfróða menn
um það, hvernig tryggja megi sem
bezt aðstöðu i Haligrimskirkit;
! til flutnings þar á stærri og minni
: kirkjulegum tónverkum.
; Rætt var um stærð og staðsetn-
I ingu á fullkomnu orgeli, fyrir
j komulagi á sönglofti og svölum
j með tilliti til aðstöðu og rýmis fyr-
I ir kór og hljómsveit, ýmis atriði
varðandi hljómburð í kirkjum j:
fl. Sérstaklega var fenginn hingað
til ráðuneytis í þessu sambandi
hr. Fritz Steinmeyer frá G. F
Steinmeyer & Co Orgelbau, Oett-
ingen, Bayern.
Mikil! áhugi var á þessari ráð- j
stefnu fyrir því að leysa sem bezt .
úr öllum fyrrgieindum atriðum, j D Páll jsóifSson ræðir við Jörund Pálsson arkltekt. Organleikararnir,
sem varða song og tonlist i fram i ,,
tíðinni í kirkjunni á Skólavörðu- Guðmundur Gilsson og Pall Kr. Palsson (fyrir mlðn myndlnnl) hlýða
hæð. Þess má geta, að mönnum með athygli á meistara organleikaranna á íslandi.